Morgunblaðið - 06.02.1964, Qupperneq 11
Fimmtudagur 6. feter. 1964
MORGU*i*l4ÐID
11
Útvarpsráð minnist
Fritz Weisshappels
Á FUNDI í Útvarparáði s.l.
þriðjudag, miruitist formaður
ráðsins, Benedikt Gröndal, Fritz
Weisshappels, Benedikt fórust
þannig orð:
„Við andlát Fritz Weiss-
happeis missti Ríkisútvarpið einn
égætasta starfsmann sinn. Hafði
hann unnið fyrir stofnunina
imeir en aldarfjórðung og nýlega
tekið við nýju ábyrgðarstarfi, er
hann lézt á bezta aldri i sl. viku.
Fritz Weisshappel fæddist í
Vínarborg 18. júlí 1908 og ólst
upp á heimili, þar sean tónlistar-
gyðjan sat jafnan í öndvegi.
Stundaði hann tónlistarnám að
loknu stúdentsprófi, en lagði
land undir fót aðeins 19 ára gam
all og hélt í norðurátt. Kom
hann til íslands til að leika á
gistihúsi um skeið, en fékk ást
é landi og þjóð og dvaldist leng-
ur en ætlað var í upphafi.
Weisshappel festi ekki aðeins
rætur í hrjóstugum jarðvegi ís-
lenzks tónlistarlífs, heldur gerð-
ist ríkisborgari stofnaði farsælt
heimili og eignaðist stóran hóp
tryggra vina. Það er í frásögur
fært, er hann ferðast til ann-
arra landa með íslenzkum söng-
mönnum, að þá sótti heimþrá
fyrr á hann en félaga hans.
Ríkisútvarpið hefur átt megin-
þátt í því að færa íslendingum
þá dýrmætu gjöf, sem góð tón-
list er hverjum manni, er henn-
ar fær notið. Hlutur Fritz Weiss
happels í því starfi hefur verið
mikill og verður seint fullþakk-
aður. Hann sótti ekki í sviðs-
Ijósið, en vann starf sitt af ein-
atakri tryggð alúð og prúð-
mennsku. Hann átti í ríkum
mæli þá þekkingu, snilld og
smekkvísi, sem verða að fylgja
allri góðri list. Kom þetta jafnt
fram í konsertsal með einsöngv-
urum og kórum sem í hinum
mikla hljómleikasal útvarpsins,
þar sem öll þjóðin er viðstödd.
Síðasta starf hans, framkvæmda-
stjórn Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands, var að mörgu leyti þýð"
ingarmest, og átti hann drjúgan
þátt í sigrum hljómsveitarinnar
síðustu ár.
Útvarpsráð þakkar Fritz Weiss
happel störf hans tryggð og vin-
áttu og vottar fjölskyldu hans
dýpstu samúð.“
Hundbók bænda 1964 bomin út
ÚT er komin Handbók bænda
1964 hjá Búnaðarfélagi ísiands.
Bókin hefst á almanaki, sem hef-
ur að geyma stuttar leiðbeining-
ar varðandi bústörfin. Almanak-
ið er jafnframt handhægt að
nota sem dagbók. Greinar eru
eftir 30 höfunda í bókinni. Þær
snerta nær öll svið búskapar.
M. a. eru greinar um holdakjúkl-
ina, illgresiseyðingu, meðferð
túngrasa, tilraunastarfsemina,
vélar og verkfæri, fóður og fóðr-
un, mjaltabása, skógrækt, verð-
lagsmálin og mjög ýtarieg grein
um helztu sjúkdóma í kúm. Enn
fremur er sérstakur þáttur ætl-
aður garðyrkjubændum, ritaður
af Óla Val Hannssyni. Þátturinn
Húsfreyjan og heimilið hefur
Vigdís Jónsdóttir, skólastjóri séð
um, en í honum er m. a. birt
grein um svefnherbergið eftir
frú Kristínu Guðmundsdóttur
hýbýlafræðing. Handbókin er
320 bls., bundin í þægilega plast-
kápu. Ritstjóri er Agnar Guðna-
son.
USA viðurkennir
stjórn Dahomey
Washington, 1. febr. NTB
# Bandarikjastjórn heifur til-
kynnt, að hún hafi ákveðif
að viðurkenna nýju stjórnina
í Afríkuríkinu Dahomey. —
Stjórnmálasambandi landanm
var slitið í okióber s.L, ei
Hubert Magas forseti var hral
inn frá völdum.
Bjarna frá Vogi
reist minnismerki
STJÓRN Bandalags islenzkra
listamanna boðaði blaðamenn á
fund sinn í gær til þess að segja
frá ákvörðun sáðasta aðalfundar
Bandalagsins að reisa Bjarna
Jónssyni frá Vogi minnismerki.
Formaður Bandaiagsins Jón
Þórarinsson, tónskáld, sagði að
þessi ákvörðun hefði verið gerð
til að heiðrá minningu Bjarna
Jónssonar frá Vogi, sem reynzt
hefði ísienzkum listamönnum
mikill haukur í horni, og hefði
hann aldrei farið í manngreinar-
álit og látið ailar greinar
lista til sín taka.
Sagði hann marga listamenn,
sem nú væru miðaldra, vera
þakkláta Bjarna og teidu haim
velgerðarmann sinn.
Bjarni frá Vogi var fæddur
13. október 1863, og væri mein-
ingin að samkeppninni um minn-
isvarða hans, sem nú yrði aug-
lýst, lyki á þeim degi í haust, en
þá væru 101 ár írá fæðingu hans
liðin.
Jón sagði, að dómnefnd til und
irbúnings þessu verki væri þegar
skipuð. Formaður hennar væri
Björn Th. Björnsson listfræðing-
ur, en aðrir í nefndinni væru
sonur Bjarna frá Vogi, Jón
Bjarnason hrl. og Þorvaldur
Skúlason listmáiari.
Björn Th. Björnsson upplýsti,
að keppnin væri alveg óbundin,
hvað við kæmi gerð minnismerk-
isins, að öðru leyti en því, að
minnismeitkinu væri ætlað að
vera úti og standa í Reykjavík.
Hann sagði að það myndi
valda væntanlegusm keppendum
erfiðleikum, að staðarval væri
ekki ákveðið, svo að nefndin yrði
að velja því stað síðar eftir eðli
verksins.
Björn sagði, að ekki væri frek
ar verið að óska eftir Likneski af
Bjarna, fremur en t.d. einhverju
táknrænu minnismerki um starf
hans, en varðandi staðarval,
hefði nefndinni dottið í hug, að
minnismerkið yrði á einhvem
háitt tengt framtiðar Aliþingis-
húsi þjóðarinnar.
Upplýst var á fundinum, að
engin stytta væri til af Bjarna,
utan lágmynd greipt í stein i
Vogi vestur í Dalasýslu.
Auglýsing um samkeppniná
mun birtast í dagfolöðunum ein-
•hvern næstu daga.
Melbourne, 1. febr. NTB.
• Sjö börn biðu bana í gær,
er eldur kom upp í barna-
heimili í Metbourne. Tuttugu
öðrum biönum var naumlega
bjargað.
IJTSALA - IJTSALA
Stórkostleg verðlækkun á
KAIÍIM/WWl (Í ilí\1 og FRÖKKUM
Aðeins fáa daga — Komið tímanlega
" IMotið einstakt tækifæri -
AIMDERSEN & LAUTH hf.
Laugavegi 39 — Vesturgötu 17