Morgunblaðið - 01.05.1964, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.05.1964, Blaðsíða 14
14 MOHGUNBL 4Ð1D FSstudaguc 1. mal 1964 Útgefandi: Fram ky æmdas t j óri: Ritstjórar: Auglýsingar: Útbreiðslustjóri: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Askriftargjald kr. 90.00 í lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Árni Garðar Kristinsson. Sverrir Þórðarson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Sími 22480. á mánuði innanlands. 5.00 eintakið. 1. MAI ¥ dag er 1. maí, dagur verka- lýðsins. Þá fagna launþeg- ar í lýðræðisríkjum, unnum sigrum og setja fram sjónar- mið sín og kröfur, en í ein- ræðislöndunum er efnt til hersýninga og hópgangna, sem skipulagðar eru af ríkis- valdinu til að votta því holl- ustu. 1. maí er nú orðinn almenn- ur frídagur, því að allar launa stéttir eru í samtökum, sem gert hafa þennan dag að bar- áttu- og hátíðisdegi sínum. En fyrrum var það svo, að það voru fyrst og fremst verka- menn, sem við bág kjör bjuggu, sem notuðu þennan dag til að knýja á um kröfur sínar um mannsæmandi lífs- kjör. 1. maí hefur því breytzt mikið — eins og raunar kjara- barátta í öllum þroskuðum löndum. Nú er ekki lengur um að ræða fjandsamlegar stéttir, heldur má segja að þjóðfé- lagsumbreytingar í lýðræðis- löndunum hafi leitt til þess, að hagsmunir allra stétta séu samtvinnaðri en áður. Þess vegna er það þjóðin öll, sem í dag hugar að því, hvernig hún bezt sjái málum sínum borgið. Það er ánægjwlegt að sam- staða skyldi takast um hátíða- höldin í dag, og vonandi nota menn daginn til að strengja þess heit að láta einskis ó- freistað til að framfylgja þeim óskum almennings, að verð- bólguþróunin verði stöðvuð, víxlhækkanir kaupgjalds og verðlags hætti, en þess í stað verði kröftunum einbeitt að því að ná raunhæfum kjara- bótum. í trausti þess óskar Morg- unblaðið launþegum og lands mönnum öllum til hamingju með daginn. ISLENZKUR EFNAIÐNAÐUR /'Vuuhreinsunarstöð sú, sem fyrirhugað er að reisa hér á landi, verður grundvöllur að víðtækum íslenzkum efna- iðnaði, því að olíuvörur eru hráefni í sífellt fleiri iðn- greinum. Þess vegna er hér um að ræða eitthvert mikil- vægasta fyrirtæki, sem íslend ingar geta ráðist í. Við því má búast, að ein- hverjir einstaklingar reyni að torvelda framgang þessa mikla máls. Sú hefur orðið raunin um öll meiriháttar ný- mæli, bæði hér og annars staðar. Einstakir menn hafa séð á þeim annmarka, ýmist vegna meintra sérhagsmuna eða skammsýni. En slíkir menn hafa aldrei fengið að ráða ferðinni, enda hefðum við þá hvorki síma eða raf- magn í dag, né þau lífsþæg- indi, sem menn búa við. Síð- ast minnast menn þess, að bar izt var gegn Sementsverk- smiðjunni, þar sem hún átti bæði að eyðileggja fiskgengd í Faxaflóa og fiskverkun á Akranesi. Á þingi hefur Einar Ol- geirsson, vafalaust í umboði kommúnistaflokksins, snúizt gegn því að olíuhreinsunar- stöð verði reist. Hann hefur þó hvorki sér til afsökunar skammsýni í þessu efni né neina umhyggju fyrir ein- hverjum öðrum íslenzkum hagsmunum. Hann lýsti því sem sagt yfir, þegar málið var fyrst rætt á Alþingi, að fram- tíðarmöguleikar íslands á iðn aðarsviðinu væru fyrst og fremst tengdir margháttaðri fram'eiðslu, þar sem olía væri hráefnið. Hann gerir sér þannig réttilega grein fyrir mikilvægi fyrirtækisins. En annað er honum þyrnir í augum. Hann heldur að Rússar muni skaðast á þess- ari framkvæmd íslendinga, og álítur augsýnilega, að þeir muni telja það mjög þóknan- legt, að hann berjist gegn þessu fyrirtæki. Hann lætur að því liggja, að Rússar muni beita okkur viðskiptaþving- unum, ef við dirfumst að iðn- væða landið. Sannleikurinn er hinsvegar sá, að þetta mál hefur verið undirbúið þannig, að hægt er að halda áfram víðtækum við skiptum við Rússa á jafnvirð- iskaupagrundvelli og m.a. er gert ráð fyrir að kaupa veru- legt magn olíu þaðan áfram. En meginatriði málsins er það, að allar stórþjóðirnar keppa að því að vinna sér hylli með því að styðja þróun arlöndin og smáþjóðirnar. — Auk þess hafa Rússar látið af viðskiptastríði Stalínstíma- bilsins og leggja megináherzlu á að ná frjálsum viðskiptum við Vesturlönd. Allir vita að Rússar kaupa gífurlegt magn matvæla fyrir frjálsan gjaldeyri í Ameríku og stórauka frjáls viðskipti við Vestur-Evrópulöndin. Og nýlega hafa þeir afnumið tolla á iðnaðarvörum frá þró- unarlöndunum. Þess vegna er í hæsta máta ólíklegt, að þeir mundu beita okkur viðskiota- þvingunum, þótt við gerðum bað sama og allar aðrar fá- tækar þjóðir að treysta at- un Yrtsm. áBm Fyrsti kossinn d kvikmynda- tjaldi F Y R I R nokkrum dögum varð hin fræga brezka barnastjarna Hayley Mills 18 ára, og héðan í frá verð- ’ ur hún ekki látin leika telpur með tíkarspena heldur laglegar unglings- stúlkur. Fyrsta hlutverkið af þeirri tegund, sem Hay- ley leikur, er í kvikmynd Walt Disney „Moonspinn- ers“. Það er enginn annar en hinn frægi Alfreð Hit- choock, sem samdi kvik- myndahandritið, og það ber þess merki því að Hay- ley og mótleikari hennar, Peter McEnry, lenda í mörgum ævintýrum og sumum fremur óhugnan- legum. Koss í líkvag'ninum í „Moonspinners“ fær Hay- ley fyrsta kossinn á kvik- myndatjaldinu og eftir því sem hún sjálf segir, kveið hún fyrir því í marga mánuði. En þegar að kossinum kom stóð Hayley sig eins og hetja og hann tók ekki nema sex sek- úndur. Á eftir, sagði hún, að umhverfið hefði haft mest á- hrif á sig, en það var líkvagn. í kvikmyndinni særist ungi maðurinn, sem Peter McEnry leikur og ekkert farartæki er til staðar til þess að flytja hann í sjúkrahús nema lík- vagninn. Hayley fylgir hon- Hayley orðin 18 ára. um til sjúkrahússins með áð- ur nefndum afleiðingum. Skiptar skoð- anir í Frakk- landi Parls, 28. apríl. NTB. ÚRSLIT skoðanakönnunar i Frakklandi, sem birt voru í dag, sýna, að mjög eru skiptar skoð'anir Frakka á meðal um það, hvort Frakkland eigi að koma á fót eigin kjarnorku- her Af þeim sem spurðir voru i skoðanakönnun þessari reyndust 39% meðmæltir, 40% andvígir og 21% hefðu ekki myndað sér ákveðnar skoðan- ir um málið. 45% aðspurðra voru þeirrar skoðunar, að Frakkar hefðn efnalega ekki bolmagn til að koma upp eig- in kjarorkuvörnum 29% töldu það verjandi efnahagslega en 26% gerðu sér enga grein fyrir þeirri hlið málsins. Santiagó, 29. apríl. (NTB). HARÐIR jarðskjálftar urðu í gærkvöldi í borgunum Santi- ago og Yalpariso í Cliile. Ekki er kunnugt um tjón af völd- um hræringanna. vinnuvegi okkar. Slíkt mundi verða mikið pólitískt áfall fyr ir þá og þeir gætu þá ekki vænzt aukinna viðskipta við voldugri bandalagsþjóðir ís- lendinga. En ef þeim aðgerðum, sem Einar Olgeirsson hótar, ætti að beita við okkur íslendinga eina, af því að við erum fá- tækir og smáir, þá væri eins gott að við fengjum strax að sjá það. En Morgunblaðið hefur samt ekki trú á kenn- ingum Einars í þessu efni. Og gjarnan má hafa það í huga, að þótt barizt væri gegn Sementsverksmiðjunni, þá datt engum í hug að hætta við byggingu hennar, vegna þess að við höfðum keypt sement af Rússum, og ekki heyrðist heldur að þeir teldu þessar framkvæmdir óeðli- legar þótt stefna þeirra væri þá harðari en nú. HAGUR ÚTVEGSINS iT’íminn víkur í gær að því í forystugrein, að nefnd, sem fiskframleiðendur hafa skipað og rætt hefur við for- ystumenn um byggingu olíu- hreinsunarstöðvar hafi kom- izt að þeirri niðurstöðu að á- hrif af rekstri slíks fyrirtækis gæti stórskaðað fiskmarkað- inn. Sannleikurinn í því máli er sá, eins og greint er frá á öðrum stað í blaðinu, að þessi nefnd hefur ekkert látið frá sér fara í þessu máli, heldur einungis rætt það, enda hafa forgöngumenn um byggingu olíuhreinsunarstöðvar frá upphafi hagað aðgerðum sín- um þannig, að viðskiptavinir okkar í Austur-Evrópu gætu ekkert tilefni haft til að saka okkur um það að vilja eyði- leggja þessi viðskipti. Meginatriði málsins er það, að við verðum að iðnvæða landið og það munum við gera á næstu árum og áratug- um. Við höfum réttilega lagt fyrst á það megináherzlu að endurnýja skipastól landsins og byggja UPP sjávarútveg- inn og því munum við auð- vitað halda áfram, en sam- hliða hljótum við að hef ja aðr ar atvinnugreinar, enda er það álit fiskifræðinga að ekki sé unnt að auka fiskveiðar að ráði frá því, sem nú er. Þetta er útvegsmönnum ljóst eins og öðrum og þesa vegna ræða þeir mál þessi öfgalaust, og auðvitað eru all- ir sammála um það, að ein atvinnugrein eigi ekki að hindra framgang annarrar, heldur eigi þær allar að styðja hver aðra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.