Morgunblaðið - 15.05.1964, Page 26
MORGUNBLABID
Föstudagur 15. maí 1964
2«
ÍA A A A/n/V-
MMa
\aA\^.a AvNj
f/.WAf
Valur batt endi á
sigurvonir Þróttar
— vann í gær 4:0
M5IR, sem höfðu gert sér von
um að Þróttur yrði þriðja liðið
í úrslitum Reykjavíkurmótsins
hljóta að hafa orðið fyrir sár-
um vonbrigðum í gærkveldi. Lið
Þróttar komst aldrei í gang ef
svo má segja og unnu Vals-
menn því auðveldlega. Skoruðu
4 mörk, tvö í hvorum hálfleik.
Sigur Vals var aldrei í haettu
utan þess að á 40. mín. var born
spyrna dæmd Þrótti og Jens
fékk knöttinn utan vítateigs og
skaut umsvifalaust föstu skoti
að marki Vals, en .Björgvin fékk
bjargað með að kasta sér í
vinstra horn marksins.
Mörkin
Fyrsta mark Vals skoraði Her
mann Gunnarsson á 14. min.
leiksins. Hermann fékk send-
ingu frá Þróttara rétt innan
vítateigs og sendi knöttinn með
kraftlítilli spyrnu að markinu
og lenti knötturinn inni.
Annað markið kom upp úr
samvinnu Hermanns, Ingvars og
Bergsteins. Léku þeir upp miðj
una gegn um vörn Þróttar og
sendi Bergsteinn knöttinn í net-
ið fram hjá úthJaupandi mark-
manninum.
Mátt- og viljaleysi Þróttar-
manna kom einna bezt fram er
Valur skoraði þriðja markið. Her
mann Gunnarsson skoraði auð-
veldlega á 59. mín. Þrír Þrótt-
arar horfðu aðgerðarlausir á og
markmaður gerði ekki tilraun til
að verja.
Hermann, Reynir og Ingvar
unnu saman að 4. marki Vals.
Léku þeir í gegnum vörn Þrótt-
ar og skoraði Ingvar laglega með
skoti frá markteig.
LIÐIN.
Um leikinn í heild er það helzt
að segja að hann var fjörlítill og
því fátt um- spennandi augna-
blik. Valur náði af og til sæmi
legu spili, en það vantar alla
festu í leik þeirra. Árangur
þeirra í þessum leik má ein-
ungis þakka því hve Þróttararn
ir voru lélegir. — Um leikmenn
er það helzt að segja að af Þrótt
armönnum reyndi Ingvar Stein-
þórsson hlzt að standa sig, en
afar lítið fór fyrir landsiiðsmann
inum' Axel Axelssyni. — Vals-
liðinu var mikill styrkur að Orm
ari, sem lék nú aftur með. Berg-
steinn virðist vera mun kraft-
meiri og fjörugri en áður og
Matthías er vaxandi leikmaður.
Hann varð þó að yfirgefa völl-
inn sakir smá meiðsla og kom
Bergsveinn inn í hans stað. —
Jörundur Þorsteinsson dæmdi
leikinn og sögðu Þróttarar að
hann hefði dæmt illa.
— Á. Á.
rxm
5 mömmur meö 8 börn
— urðu sigurvegarar í 1. flokki
ÞESSI mynd hefur beðið
nokkuð hjá okkur en skemmti
leg er hún. Hún sýnir stúlk-
urnar úr Víkíng er sigruðu
í keppni 1. flokks í íslands-
mótinu í handknattleik. Sigur
þeirra var öruggur og sætur
— og ékki kannski sízt vegna
þess að þarna voru stúlkur
sem áður og fyrr meir voru
meðal beztu handknattleiks-
kvenna landsins og eru reynd
ar enn þó skorti á æfinguna.
Æfingaskorturinn er þvi að
kenna að þær fóru að sinna
öðrum störfum og þarna í
hópnum eru 5 mæður og þær
eiga samtals átta börn. Þetta
sýnir að mömmur eni ekki
illa til þess fallnar að leika
handknattleik og skyldi ekki
handknattleiksíþróttinni auk-
ast ásmegin er krógarnir átta
stækka fyrst mæðurnar gefa
sér tíma til að sinna því áhuga
máli sínu sem handknattleik-
urinn er. (Ljósm. Sv.Þ.
| 1 25. sinn (
e =
EHER er sundknattleiksflokk-=
gur Armanns sem s.l. mánu-S
gdagskvöld vann KR með 5—2.||
HÞað voru einu liðin, sem =
=þátt tóku í greininni. Armenn|
Emgar unn-u með þessum sigrig
gíslandsmeistaratign í 25_ sinn.=
|Mun það eins dæmi að félagn
pgeti státað af svo mörgum|
gsigrum á þeim árafjólda sem|
gkeppt hefur verið í sund-H
gknattleik á íslandsmóti.
ÚUilillllllllllllllltlllllllllltllillilllllllllllilllllllllllllli .11
íbúðir við FeSIsmúla
Til sölu eru 3ja herbergja hæðir og 5—6 herb.
endaíbúðir í sambýlishúsi við Fellsmúla. —
Seljst tilbúnar undir tréverk, með tvöföldu verk-
smiðjugleri, húsið fullgert að útan o. fl. — Sér
hitaveita fyrir hverja íbúð. — Ágætt útsýni.
ÁRNI STEFÁNSSON, HRL.
Málflutningur — Fasteignasala.
Suðurgotu 4. — Sími 14314.
Ferðafólk - Ferðafólk
T J ALDSIL
é
Þornar á einni
klukkustund.
Höfum nú hafið fram-
leiðslu á Silicone þéttiefni.
TJALDSIL ver tjöld, bak
poka, strigaskó og annan
ferðaútbúnað úr segldúk,
poplíni og gerviefnum.
Verð kr. 67.— pr. dós.
a K mmm | ■ U Lækjargötu 6B.
f\ I 3 I LL F Sími 1-59-60.
Hófel fil sölu
Gisti og veitingahús úti á landi selst í rekstri með
öllum áhöldum og tilheyrandi innanhuss. Upplýs-
ingar gefur
Austurstræti 12.
Simar 14120 og 20424.