Morgunblaðið - 23.05.1964, Blaðsíða 1
32 siðtir
\
Krossfestingarmálveikið
EINS OG skýrt var frá í Morp-
nnblaðinu í gaer, hefur danskur
maður, Aage Jensen í Óðinsvéum
gcfið íslenzku kirkjunni málverk
• f krossfestingunni, sem setja
mun eiga upp í hinni fyrirhuguðu
Hallgrímskirkju á Skólavörðu-
hæð. Myndin sýnir, þegar mál-
verkið var afhent. Til vinstri við
það stendur gefandinn, Aage Jen
sen, og Stefán Jóh. Stefánsson,
sendiherra ísiands í Danmörku,
en til hægri er listmálarinn,
Stefan Viggo Pedersen.
Aíhending gjafaririnar fór
fram á miðvikudag við hátíðlega
athöfn í Edvard Henriksens For-
lag í Kaupmannahöfn, og tók .
Stefán Jóh. Stefánsson við henni |
fyrir hönd ísler.zku kirkjunnar.
Gefandinn, Aage Jensen, fékk
ungur áhuga á íslandi, og kom
hingað á yngri árum.
Listmálárinn Stefan Viggo
Framhald á bls. 2
Árás á sovézka
kafbátastöð á Kúbu?
Útlagarnir segja íimm Rússa haía fallið í
átökum við Hondaflóa á Kúbu
Mexíkóborg, Havana,
22. maí (AP-NTB)
í DAG var skýrt frá því, að
skæruliðar lir hópi kúbanskra
útlaga hafi gert árás á sov-
ézka kjarnorkukafbátastöð
við Hondaflóa á Kúbu sl. mið-
Vikudag og herma fregnirnar.
að minnst fimm Rússar hafi
fallið í átökunum. Utlögunum
tókst þó, að sögn, ekki að
sprengja kafbátastöðina í loft
upp, en það var ætlun þeirra.
Sagt er, að útlagarnir hafi bar
izt við Rússa í klukkustund,
en orðið frá að hverfa vegna
þess hve Rússarnir voru vel
vopnum búnir. Ekki hefur
verið skýrt frá mannfalli í
hópi skæruliða.
f Havana var frá því skýrt í dag
að hermenn Kúbustjórnar hefðu
handtekið nokkra vopnaða menn
úr hópi andstaeðirga Castrós, for-
ssetisráðherra.'sem gert hefðu til
raun til landgöngu á Kúbu. Kúb-
anskir útlagar hafa mótmælt
fregn þessari og segja, að Kubu-
stjórn vilji draga kjarkinn úr út-
lögum m.eð því að flytja ósánnar
fregnir af óförum þeirra. Kúbu-
stjórn hefur ekki skýrt frá á-
rásinni á sovézku kafbátastöð-
ina.
Það var Modesto Vasquez,
ameríkanskur fulltrúi félags
kúbanskra blaðamanna í útlegð,
s.em skýrði frá árásinni á kafbáta
stöðina fyrir hönd skæruliða.
Framhald á bls. 31.
Alvarlegt ástand i S-Kóreu
4k
Stjórnarandstaðan vill draga Park
íorseta fyrir rétt
Kommúnistar skjóta á könnunar
flugvél USA í Laos
Souvanna Phouma hyggst biðja Breta,
Bandaríkjamenn og Frakka um hemaðar-
aðstoð — Orðrómur um auknar
aðgerðir USA í SA-Asíu
Vientiane, Moskvu, London,
Waishington, 22. maí —
— (AP-NTB) —
SOUVANNA Phouma, hinn
Sendilierrar á leið
milli Parísar og
Pekin»
París, 22. maí (NTB)
FYRSTI sendiherra Frakka í
Kínverska alþýðulýðveldinU,
Lucien Paye, hélt í dag flug-
leiðis frá París til þess að taka
við embættPsínu í Peking.
Við brottförina sagðist Paye
vonast til þess að honum tækist
eð finna hentugt húsnæði fyrir
skrifstofur sendiráðsihs áður en
haústaði. Sendifulltrúinn, sem
sendur var til Peking fyrir
nokkrum mánuðum til þess að
undirbúa komu sendiherrans, héf
wr aðsetur í tveimur herbergjum
húss, sem franska ríkið á, en
sendiráð Noregs hefur á leigu.
Sendiherra Kínverska alþýðu-
jýöveldisins í Frakklandi er nú á
Jeið til Parísar. Hann iagði af
Stað frá Peking Jyrir tveimur
dögum.
hlutlausi forsætisráðherra
Laos, hefur tilkynnt, að hann
hyggist biðja Breta, Banda-
ríkjamenn og Frákka um
hernaðaraðstoð til þess að
stöðva framsókn Pathet Lao-
kommúnista í landinu.
Samkvæmt beiðni Souv-
anna Phouma hófu Banda-
ríkjamenn í gær könnunar-
flug yfir Krukkusléttu, sem
er öll á.valdi Pathet Lao, til
þcss að fylgjast með hvort
skæruliðum berast vopn og
liðsauki og hvaðan, ef svo er.
Sovétríkin hafa fordæmt
könnunarflugið.
Könnumirflugvélarnar eru
vopnlausar, en í dag skutu
hermenn Pathet Lao á eina
þeirra og varð hún að snúa
til móðurskips síns á Suður-
Kínahafi. Flugmanninn sak-
aði ekki og flugvélin reyndist
lítið skemmd.
Embættismenn í Washington
hafa látið í ljós þá skoðun, að
könnunarflugið sé upphaf frek-
ari aðgerða Bandaríkjamanna
í SA-Asíu vegna aukinnar fram-
sóknar komunúnista í S.-Vietnam
og Laos. Herma heimildir, að til
greina geti komið að senda auk-
inn flugher og flota til SA.-Asíu)
landher til Thailands, sé stjórn
landsins því samþykk, ef til^vill
hernaðarleg aðstoð í Laos og auk
in harka ge.gn N.-Víetnam.
— O —
Stjórnin í Vientiane hefur sett
vörð við byggingar pólsku full-
trúarina í alþjóðlegú eftirlits-
nefndinni í borginni og sendiráð
N.-Víetnam þar. En kommúnist-
ar í samsteypustjórn Laos hafa
leitað hælis í húsakynnum
pólsku nefndarinnar. Stjórnin
hefur ekki gefið neinar skýr-
ingar á þessum aðgerðum.
— O —
í Moskvu var það haft etfir
áreiðanleguan heimildum í dag,
að Sovétstjórnin sé saimþykk
tillögu Frakka um að boðað
verði til nýrrar alþjóðlegrar ráð
stefnu um ástandið í Laos. Hins
vegar hefur Sovétstjórnin dreg-
ið í efa, að árangur muni nást,
þótt sendiherrar landanna 14,
sem sæti áttu á Genfarráðstefn-
Franihald á bls. 31
SOVÉZKIR og kinverskir full-
tfúar á alþjóðlegu verkalýðsþingi
í Varsjá náðu samkomulagi um
lokayfirlýsingu eflir 12 klukku-
stunda þjark. Þótt þetta sam-
komulag sé frávik frá þeim fjand
skap, sem ríkt hefur með' fulltrú-
um þessara tveggja þjóða á ráð-
stefnum undanfarið, benda heim-
ildir innan Varsjárþingsins á, að
hvorki Kinverjar né Rússar séu
ALVARLEGT ÁSTAND rikir nú
í stjórnmálum Suður-Kóreu, og
í dag lagði stjórnarandstaðan á
þingi landsins fram tillögu um
að forsetinn, Park Chung, yrði
dreginn fyrir rétt, sakaður um
að vera valdur að óeirðum, sem
komið hefur til í landinu að und-
anförnu. Leiðtogar stjórnarand-
stöðunnar halda því fram, að for-
setinn beri einn ábyrgð á. að lög-
regla og fallhlífahermenn hafa
beitt ofbeldisaðgerðum gegn stúd
entum, er þeir hafa efnt til mót-
New York, Saigon, 22r maí.
— NTB-AP: —
UTANRÍKISRÁÐUNFYTI
Breta lét í dag í ljós stuðning
við tillögu Bandaríkjamanna
um, að Sameinuðu þjóðirnar
hefðu eftirlit með lanffamær-
um S-Víetnam og Kambódíu.
Forsætisráðherra S-Víetnam,
Nguyen Kahn, kveðst vera
þeirrar skoðunar, að gæzlulið
undir stjórn SÞ væri bezt fall
ið til þess að gæta landamæra
ánægðir með form yfirlýsingar-
innar.
Sovézku sendinefndinni tókst
að fá inn í yfirlýsinguna áskorun
um algert bann við notkun kjarn-
orkuvopna, en Kínverjar tóku
þvert fyrir að vitnað yrði í sátt-
málann um takmarkað bann við
kjarnorkutilraunum, sem undir-
ritaður var í Moskvu sl. ár. Kín-
verskir kommúnistar' kröfðust
þess að Bundarikjamenn væru
fordæmdir vegna heimsvalda-
stefnu og var það gert.
mælaaðgerða gegn stjórninni í
Seoul og fleiri borgum.
Forsætisráðherra Suður-Kóreu,
Ohung id Kwon, lýsti hryggð
sinni yfir atbunðum undaníar-
inna daga, en margir stúdentar
hafa verið handteknir og nokkr-
ir særzt í átökunmn. Hins vegar
kvað hann ljóst, að uppreisnar-
öfl fjandsamleg ríkinu stæðu bak
við aðgerðir stúdentanna.
Leiðtogar stúdenta í Seoul létu
frá sér fara í dag fregnir um að
Framhald á bls. 2
S-Víetnam og Kambódíu. En
lið þetta verði að vera nægi-
lega öflugt til þess að geta
tekið í taumana, verði ofbeldi
beitt á landamærunum.
Sem kunnugt er, hefur stjórn
Kambódíu sakað Bandaríkja-
menn og S-Víetnammenn um
yfirgang á landamærunum og
hefur kæra hennar verið fil um-
ræðu í Öryggisráði SÞ undan-
farna tvo daga. í gær lagði Ádlai
Stevenson til, að SÞ tækju að
sér umsjón með gæzlustörfum á
landamærunum og í dag ræddi
ráðið möguleika á samkomulagi
um tillögur hans. — Fulltrúi
Kambódíu hjá SÞ, Voeunsai
Sonn, kvaðst telja tillögunk mjög
athyglisverða, en biða fyrirmæia
stjórnar sinnar um afstöðu til
hennar. Fundir Öryggisráðsins
um kæru Kambódíu halda áfram
á mánudag. __
Kahn, forsætisráðherra S-Víet-
nam, skýrði frá því í dag, að
hann myndi senda utanríkisráð-
herra sinn, Phan Huy Quat, til
New York til þess að skýra sjón-
armið stjórnarinnar og geta þess,
að hún hafi gert sitt ítrasta til
þess að koma á viðræðum við
Kambódíu um landamærin, en
það hafi ekki borið árangur því
að stjórn Kambódíu sýndi ékki
samningsvilja.
\ ■ r
Rússar og Kínverjar ná sam-
komulagi á verkalýðsþingi
Varsjá, 22. maí (NTB)
Vilja eftirlitslið SÞ á
landamærum Kambódíu