Morgunblaðið - 29.05.1964, Qupperneq 2
2
MORGU N BLAÐID
i
Fðstudagur 29. mal 1964
Sauðburði aó Ijúka
i Mývatnssveit
Mývatnssveit, 28. maí.
HÉR var frekar kalt allan apríl-
mánuð og fram í miðjan maí,
gróðri fór því mjög hægt fram.
Síðan um hvítasunnu hefur verið
hið blíðasta og bezta veðurfar og
hiti oft komizt í 14—16 stig á
daginn.
Er því orðið frekar sumarlegt
nú og sums staðar komið gras
á tún og ágætur sauðgróður í út
haga. Sauðburði er að verða
lokið, hefur hann gengið ágæt-
lega vel, þó var með færra móti
tvílembt. Margir eru búnir að
sleppa lamibfé.
Fuglinn er farinn að setjast í
eyjar og hóimia. Enn er óséð
lrversu mikinn usla minkurinn
gerir í varplöndum manna.
Ferðamannastraumur er byrjað-
ur. Er aðallega um að ræða hópa
skóilafólks.
Mikið er þegar búið að panta
á hótelunum hér fyrir sumarið.
Vaðlaheiði er nú sem stendur
lokuð fyrir öðrum bdlum en jepp
um. í sumar verður hér byrjað
á brú á Helluvaðsá. Bætir það
vissulega úr brýnni þörf, því
gamla brúin var mjög úr sér
gengin, auk þess er við hana
slæm beygja fyrir stærstu bdla.
Sém kunnugt er var lagt hing-
að rafmagn í hluta sveitarinnar
frá Laxárvirkjun 1962. Nú verð-
ur þessari framkvæmd fram hald
ið á þessu ári. Á næstunni verð-
ur byrjað að setja niður staura.
Eru það vissulega góð tíðindi.
— K. Þ.
Fellibylur í Hong kong
þúsundír misstu heimili
Judy Garland i sjúkrahúsi i borginni
Hong kong 28. maí (NTB)
Fellibylur, sem veðurfræðingar
nefna Violu, skall í dag yfir
brezku nýlenduna Hong kong.
Mörg þúsund manna misstu heim
iti sín og 41 særðist. Franska
fréttastofan AFP, skýrði frá því
aS hin fræga bandaríska söng-
kona Judy Garland, hefði verið
meðal þeirra, sem lagðir voru i
sjúkrahús eftir fellibylinn. Hún
hafi fengið fyrir hjartað og verið
gefið súrefni i sjúkrahúsmu.
Fréttastofan segir, að söngkonan
sé ekki úr allri hættu.
Viola fór yfir Hong kong með
112 km hraða á klukkustund og
svo kröftug var hún, að skip,
sem lágu við akkeri í höfninni,
rak á land upp. í borginni lagðist
allt atvinnuiíf niður meðal byl-
urinn gekk yfir og örvænting
ríkti meðal íbúanna en þeir
höfðu gert ráð fyrir enn meiri
hamförum.
Vantar vitni að
árekstrum
Á 9UNNUDAGSKV ÖLDIÐ um
kl. 20,30 varð harður árekstur á
gatnamótum Snorrabrautar og
Laugavegar milli vörubáls og
jeppa. Þar sem ökumönnum ber
illa saman um aðdraganda og or
sakir árekstursins eru það ein-
dregin tilmæli umferðadeildar
rannsóknarlögreglunnar, að þeir
sem kunna að hafa séð er árekst-
urinn varð að gefa sig fram hið
fyrsta við umferðadeildina.
Þá vantar enn fremur vitni
vegna þess að ekið var utan í
mannlausan bíl Y-1145 í portinu
við Breiðfirðingabúð, rétt fyrir
kl. 11,30 þetta sama sunnudags-
kvöld. Grunur leikur á, að gul-
leitur sendiferðaibíll hafi ekið
utan í Y-1145.
En fellibylurinn var þótt undar
legt megi virðast, að vissu marki
kærkominn gestur í Hong kong.
Vegna hinnar miklu rigningar
hækkaði yfirborð vatnsgeyma
borgarinnar til muna og þegar í
stað var dregið úr vatnsskömmt-
un. Að undanförnu hefur ekki
verið vatn að fá nema fjórar
klukkustundir á dag fjórða hvern
dag, en nú er opnað fyrir vatnið
annan hvorn dag.
— íbróttir
Frarruhald af síðu 22.
en þá voru Olympíuleikarnir í
Róm í undirbúningi.
í október 1980 var Middlesex
Wanderers farið 67 ferðir og
leikið í 26 löndum.
Oftast eru knattspyrnusam-
bönd viðkomandi landa gestgjaf
ar, en einnig einstök félög eins
og er liðið heimsækir ísland nú
öðru sinni. Hingað komu þeir
fyrst 1952. í>ess má geta, að
Björgvin Schram, formaður
K.S.Í., er einn af varaforsetum
Middlesex Wanderers A.F.C. og
hefur haft milligöngu um þessa
heimsókn.
Hér sést ein af auglýsingamyn dum þeim, sem birt var í banda-
rískum ritum af Guðrúnu Bjarnadóttur fegurðardrottningu þar
sem hún sýnir nýjar tegundir tilbúinna fiskrétta frá verksmiðju
Coldwater, en fyrirtækið hefir verið með ýmsar nýjungar, sem
vakið hafa athygli á bandariskamarkaðnum og aukið sölu íslenz
kra sjávarafurða.
— N-Katanga
Framh. af bls. 1.
samband við Albertville rofnað.
Albertville er á bökkum Tang-
anyika-vatns um 1.100 km. fyrir
norðan Elísabethville. Yfirmaður
Kongóhers í Elísaebthville, Louia
Bobozo, hugðist í dag halda flug-
leiðis til Albertville ásamt þrem-
ur nánustu samstarfsmönnum, en
óvist var að flugvél þeirra gæti
lent í borginni, því að benzín-
afgreiðslunni á flugvellinum
hafði verið lokað og flugturninn
yfirgefinn.
Óstaðfestar fregnir herma, að
hersveitir stjórnarinnar í Albert-
ville hafi dregið sig í hlé, er
þær fregnuðu um sókn uppreisn-
armanna í átt til borgarinnar og
þeir hafi tekið hana baráttu-
laust. í dag var flogið könnunar-
flug yfir Albertville og virtist
flugmönnum, sem allir óbreyttir
borgarar hefðu yfirgefið borgina,
aðeins hermenn sáust á ferli á
götunum.
Fegurðardrottniicg auglýsir ásL
fiskafurðir í bandarásku sjónvarpi
AÐALFUNDUR Sölumiðstöð-
var hraðfrystihúsanna hélt á-
fram í gær og voru þá tekin fyr-
ir og rædd, markaðs- og sölumál.
Bjöm Halldórsson, framhvæmda
stjóri sölumála, gaf í upphafi
glöggt yfirlit yfir þróun markað-
anna, en útfiutningur S.H. jókst
mikið á sl. ári.
Þorsteinn Gíslason, framikv.-
stj. „Coldwater Seafood Corp”,
dótturfyrirtækis S.H. í Banda-
ríkjunum, skýrði frá rekstri og
sölustarfsemi þess. Coldwater
rekur umfangsmikla starfsemi í
Bandaríkjunum, meðal annars,
verksmiðju í Nanticoke í Mary-
land, sem framleiðir tilreidda
fiskrétti, en þeir eru afar vin-
sælir í Bandaríkjunum. Nær
sölustarfsemi fyrirtækisins um
öll Bandaríkin og tryggir hún
árvissar sölur á miklu magni sjáv
arafurða.
Á sl. ári varði Coldwater sem
fyrr miklu fé tii auglýsingastarf-
semi. Einn þáttur starfseminnar
var að Guðrún Bjarnadóttir, feg
urðardrottning, kynnti íslenzkar
sjávarafurðir í sjónvarpsiþáttum,
sem hlutu góðar undirtektir.
Auk þess voru birtar myndir
af henni í auglýsingum í víð-
lesnum blöðum og tímaritum í
Bandaríkjunum.
Árni Finnbjörnsson sölustjóri
gerði grein fyrir mörkuðum í
Austur-Evrópu og ræddi ítarlega
um freðsíldarmarkaðina. Kom
meðal annars fram í ræðu hans,
að freðsíidarútfiutningur íslend-
inga hefur rúmlega fimmfaldaist
á síðustu fjórum árum, eða úr
rúmum 7.000 tonnum í 37.000
tonn. Þá undirstrikaði hann þýð
ingu Austur-Evrópumarkaða fyr-
ir íslenzkan sjávarútveg og fisk-
iðnað.
Othar Hanson, sölustjóri S.H.
í London skýrði frá sölu- og
markaðsmálum
Bretlandi.
Sagði hann m a. að þar væru fáir
en stórir kaupendur og að inn-
byrðis samkeppni íslenzkra aðila
á brezka markaðnum væri stór-
skaðleg. íslendingar eiga í harðn
andi samkeppni í sölu sjávar-
afurða við Þjóðverja, Dani og
Norðmenn auk Breta sjálfra.
Þá flutti Einar G. Kvaran,
frkv. stj. ræðu um framleiðslu-
mál og ræddi sérstaklega um
þýðingu blokkaframleiðislu fyrir
hraðfrystihúsin.
Fundinum verður haldið á-
fram í dag, í húsi Slysavarnar-
félagsins á Grandagarði,
Iþrótfir og leikir
tyrir börn í dag
í DAG hefjast á fjórum íþrótta- i Á hverjum stað verður náms-
svæðum í Reykjavík námskeið í skeiðunum tvískipt, fyrir hádegi
íþróttum og leikjum á vegum
Æskulýðsráðs, Leikvallanefndar,
íþróttabandalagsins og íþrótta-
vallanna. Verða námsskeið þessi
fyrir börn og unglinga á aldrin-
um 5—10 ára.
Almenningi boðið að
skoða nýju flugvél Loft
leiða á laugardaginn
f DAG er hin nýja Rolls Royce
400 flugvél Loftleiða væntanleg
til Keflavíkur með um 100 manns,
allt gesti Loftleiða. Meðal þeirra
er margt stórmenna, svo sem
ýmsir ræðismenn íslands erlend-
is, svo og blaðamenn og ritstjór-
ar og fulltrúar ferðamála. Flug-
vélin verður til sýnis almenningi
á Keflavíkurflugvelli á laugar-
daginn frá kl, 4—6 30. maí.
Það hefir verið ákveðið að
þessi flugvélargerð beri nafnið
Rolls Royce 400 og heitir hún
eftir hreyflunum og 400 merkir
að hún fari með 400 mílna hraða
á klukkustund. Þetta er raunar
fyrsta flugvélin sem byggð er hjá
Canadair-verksmiðjunum af gerð
inni CL 44 og eingöngu er ætluð
til farþegaflugs. Þess vegna er
hið nýja nafn.
kl. 9.30—11.30 verður tekið við
börnum 5—9 ára en eftir hádegi
við eldri börnum, 9—13 ára, og
þá kl. 14—16. Á hverjum stað
verða 2 íþróttakennarar, karl og
kona, sem leiðbeina börnunum.
Á morgun verður byrjað á þess
um stöðum: Ármannssvæði, Vals
svæði, Víkingssvæði og KR-
svæði. Á þessum stöðum verður
kennt á mánudögum, miðviku-
dögum og föstudögum.
Á þriðjudögum, fimmtudögum
og laugardögum verður kennt á
þessum stöðum:
Laugalækjarblettur, Skipa-
sundsblettur, Golfvöllurinn 6g
Álfheimablettur.
Innheimt verður vægt þátt-
tökugjald fyrir tímabilið, sem
verður 4 vikur. Gjaldið er kr.
25.00. Allar upplýsingar eru veitt
ar í símum 15937 (Æskulýðsráð)
kl. 2 4 og 10655 (ÍBR), kl. 4—6
daglega. -
Bílaleigubílar í tryggingu
þeir séu framseldir
ur niður hafi bílaleigan leigt bíl-
inn án þess að trygging-rskiyrð
um sé fullnægt, t.d. því að leigu
taki hafi náð 21 árs aldri o.g hafi.
ökuréttindi.
Þá má geta þess, að við venju
lega kaskótryggingu eru bílar
tryggðir gegn þjófnaði og eldi.
MORGUNBLAÐIÐ hefur aflað
sér upplýsinga um það hjá trygg
ingarfélögunum, vegna ýmissa á-
rekstra bálaleiguibíla að undan-
förnu, að þeir eru í tryggingu
þótt ökumenn þeirri hafi ekki
ökuréttindi, ef leigutaki hefur
framselt bílinn. Hið sama gildir
um ölvun eða þjófnað.
Tryggingarfélögin eiiga hins
v-jar endurkröfurétt á ökumann
í slíkum tilfellum. Trygging fell
— SIA-menn
Framhald af síðu 24
ár síðan skýrslur þessar fyrst
voru birtar, hafa þeir þó mann-
að sig upp í miálshöfðun, og jafn-
framt segja þeir munu kæra mál-
ið til sakadómara ríkisins, þar
sem telja megi að bréfin hafi ver
ið „numin brott úr hirzlum eins
stefnandans og fengin Morgun-
blaðinu til birtingar”!
Morgunblaðið mun síðar skýra
nánar frá gangi þessa sérstæða
máils og bendir mönnum á að aifla
sér Rauðu bókarinnar og kynna
sér efni hennar.
Arnesingar í
skógræktarferð
ÁRNESINGAFÉLAGIÐ í Reykja
vík fer næstkomandi laugardag
í skógræktarferð að Áshildar-
mýri og Þingvöllum. Hefur fé-
lagið efnt til slíkra ferða mörg
undanfarin ár og á góða gróður-
reiti á báðuro. stöðum.
Lagt verður af stað frá Bún-
aðarfélagshúsinu við Lækjargötu
kl. 14 og væntir stjórn félags-
ins þess að félagsmenn fjölmenni
í þessa ferð og láti vita fyrir
föstudagskvöld í síma 24737 eða
15354. Ferðin verður jafnframt
kynningar og skemmtiferð um
átthagana.
Ófremdarástand í sam-
göngumálum Eskfirðinga
Eskifirði, 28. maí
SAMCÖN'GUMÁL hér við Eski-
fjörð eru nú í hinum mesta ó-
lestri síðan Geir Björgvinsson
hætti áætlunarferðum til Norð-
fjarðar. Póstur kemur nú aðeins
3svar í viku þótt daglegar flug-
ferðir séu til Egilsstaðo. í gær
þurftu 13 manns að komast héð-
an og varð hver »3 bjai'ga sér
með bílferð eins og bezt gekk og
kaupa aér dýrt far. Þetta ófretnd
arástand er mjög Skaðlegt fyrir
staðinn og vilja Eskfirðingar nú
spyrja bæði póststjórnina og
Flugfélag íslands, sem að sjálf-
sögðu nýtur farþega héðan, sem
þurfa að fara suður og norður
mn land, hvað þessir aðilar hyggj
ast fyrir. Borið hefir á því að
Norðfirðingar hefðu áhuga á að
beina farþegum sem fljúga
iþurfa 'héðan að austan tíf flug-
vélar þeirrar, sem heldur uppi
smagöngum þangað. G.W.