Morgunblaðið - 29.05.1964, Blaðsíða 8
8
MORGU N B LADIÐ
I
Föstudagur 29. maí 1964
Jón úr Vör:
Steinn og hið
hefðbundna form
DAN'SKA Skáldið Poul P. M.
Pedersen heíur ritað fallega
igrein um Stein Steinarr í eitt
Kaupmannahafnarblaðanna og
er hún birt í ísl. þýðingu í Lesb.
Morguwbl. 3. maí s. 1. í>air eru
þessi orð:
„í>egar skáldið gekk módern-
ismanum á hönd að fullu og öllu,
vakti það ákafar deilur í heima-
landi hans. Prófessor Sigurður
Nordal gekk fram fyrir skjöldu
og varði hina hefðbundnu ljóð-
list“.
Erlendur Jónsson hinn nýi
bókagagnrýnandi 0(g bókmennta-
fræðingur Morgunblaðsins birt-
ir svo grein 24. maí s. 1. er hann
nefnir: Nýjungar og erfðir. I>ar
ræðir hann m. a. um Tímann og
vatnið eftir Stein Steinarr og
segir: „Gamlir kveðskaparunn-
endur, sem ólust upp við anda
ferskeytlunnar stóðu agndofa
.... Var hann að skojjast að
heilbriigðri skynsemi, eða ætlaði
hann í einni svipan að varpa
fyrir borð meira en tíu alda
kveðskparhefð þjóðarinnar?"
Hér þykir mér lítillar fræði-
mennsku um bókmenntavið-
burði vorra eigin daga. Hvað
mun þá, þegar lengra er frá-
liðið? — Danska skáldinu er
vorkunn. Hann hefur fengið
rangar upplýsingar. Sigurður
Nordal hefur aldrei gengið í lið
með hatursmönnum bókmennta-
legra nýjunga á íslandi.
Erlendur segir: „Fræg eru orð
Steins: „Hið hefðbundna ljóð-
form er nú loksins dautt“. Þau
orð voru auðvitað sögð í alvöru.
Steinn var ekki maður stöðun-
unar og vana“.
Hér er ég hræddur um að gæti
ek'ki lítils misskilnings. Þessa
frægu setningu Steins má ein-
mitt ekki skilja bókstaflega.
Framsetningin er stílbragð. Eng-
inn vissi betur en Steinn, að hið
hefðbundna ljóðform lifði góðu
lífi, þegar þessari fleygu setn-
ingu var varpað framan í alla
nöldurseggi hins gamla tíma,
manna, sem skildu. ekki, og
munu aldrei skilja, að þéir eru
alltaf heila, hálfa eða jafnvel
margar aldir á eftir framsækn-
ustu samtímaskáldunum.
Það var síður en svo, að
Steinn vildi ganga á milli bols
og höfuðs á hinu hefðbundna
formi. Hann var fyrst og fremst
maður frjálsrar hugsunar, upp-
reisnarmaður gegn vanahugsun
og andlegum þrælsótta. — Hann
sá manna bezt, að ef einblínt
var á formið sjálft var bók-
menntunum dauðinn vís. En
mestur hluti ljóða hans hlítir
öllum rímreglum fornrar hefðar,
sem hann var alinn upp við, og
í öllu eðli sínu var hann mjög
klassiskt sinnaður. í þeirri bók
.sinni, þar sem hann er nýstár-
legastur í formi og í hugtaka-
framsetningu — Tímanum og
vatninu — notar hann oftast
stuðla, hljóðstafi og jafnvel
endarim, og í „rímlausustu“
ljóðum fyrri bóka hans er svo
mikið rím, að það er hreinasta
öfugmæli, að flokka þau með
óbundnum Ijóðurn yngri skáld-
anna.
Nýjungar Tímans og vatnsins
liggja i allt öðru en rímleys-
inu, og skal óg láta bókmennta-
fræðingum eftir að útlista það
Afgreiðslustúlka
óskast. — Upplýsingar kl. 1—5 e.h.
kiddabúð
Garðastræti 17.
bAÉMMHHWHHHMMIBMHBHttiMHHHBfeiftMMlÉlÉHtlMriMMtflMifi
íbúðir til sölu
Óvenju glæsilegt einbýlishús við Flatirnar, Garða
hreppi. Húsið er um 200 ferm. með tvöföldum
bílskúr. Tvöfalt verksmiðjugler í öllum glugg-
um. Selst tilbúið undir tréverk og málningu.
3ja herb. íbúð á 2. hæð við Miðbraut, Seltjarnar-
nesi. Sér hiti. Tvöfalt gler. Stórkostlegt útsýni.
Engin lán áhvílandi. Selst tilbúið undir tré-
verk og málningu.
Glæsileg 150 ferm. verzlunarhæð, ásamt 130 ferm.
lagerplássi í kjallara, á góðum stað í Vogunum.
Efri hæð og ris, neðarlega við Bárugötu. Á hæðinni
eru 4 herbergi, eldhús og bað. Selst í einu eða
tvennu lagi. Tilvalið sem skrifstofur, læknastof
i ur eða fyrir félagssamtök. — Eignarlóð.
Óvenju falleg 2ja herb. íbúð í nýju tvíbýlishúsi við
Brekkugerði. Tvöfalt gler. Teppi fylgja. Rækt-
úð og girt lóð.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
SKIPA OG FASTEIGNASALAN
(Jóhannes Lárusson hrl.)
Kirkjhvoli. — Símar 14916 og 13842.
Jón úr Vör.
fyrir fróðleiiksfúsum almenningi.
Vissulega væri timi til kominn,
að hinir lærðu menn færu að láta
Ijós sitt skína á þessi efni af þekk
ingu, viti og fullri alvöru.
I grein danska skáldsins segir,
að fyrri gerð Tímans og vatnsins,
sem kom út 1948 og var 13 kvæði
og 1954 orðin 21 talsins, beri öll
einkenni módernismans í ljóðlist
Evrópu og Ameríku. Mér þykir
hér að visu nokkuð djarflega að
orði komist, en tel mig að öðru
leyti ekki dómbæran um þetta.
En mér virðist Steinn hér sem
annars staðar í ljóðum sínum
fyllilega styðjast við fornar erfð-
ir um leið og hann plægir akur
málsins og sáir til nýs lífs, eins
og öíl góð skáld hljóta að gera.
Steinn mætti ek'ki mikilli and-
stöðu vegna Tímans og vatnsins.
Það var varla fyrr en hann var
farinn að búa sig undir ferðina
löngu, að um þá bók var veru-
lega farið að fjalla á opinberum
vettvangi. Hún fór að sjálfsögðu
ekki framhjá skáldahópnum, hin
um ungu og trúu aðdáendum
Steins. — En að öðru leyti held
ég að bún hafi helzt komið til
umtals upp úr því, að hún var
þýdd á sænsku, skömmu fyrir
lát Steins. Þegar hann var horf-
inn vildu náttúrulega allir Lilju
kveðið hafa.
Andstaða og aðkast, sem
Steinn mætti, var af allt öðrum
toga spunnið en hér er að vikið.
Það voru fyrri Ijóð hans — ekki
sízt þau beinskeyttustu og bezt
rímuðu, — sem gerðu hann að
litlum vini máttarstólpa þjóðfé-
lagsins og þeirra, sem auðveldast
áttu með að móta almennings-
álitið — og réðu skáldalaununum.
Hann var alltaf að afvegaleiða
æskulýðinn, eins og hann minnt-
ist á í viðtali við Matthías Jó-
hannessen Morgunblaðsritstjóra
og skáld. Á þeim árum var
Steinn „soltinn og klæðlaus og
orti í Alþýðublaðið og alluir heim
urinn fyrirleit blaðið og mig,“
eins og hann segir sjálfur.
Nú hefur þetta töluvert breyzt
hvað Stein snertir enda dáinn og
grafinn, og veraldarigengi Alþýðu
blaðsins aldrei meira en nú, einn
ig af ástæðum, sem öllum eru
kunnar.
Óvinsældir nýtízku ljóðagerð-
ar — formsins vegna — mæddu
aldrei á Steini að neinu ráði. Þar
eru það aðrir menn, sem þung-
ann bera. — Sjá t.d. úthlutunar-
skýrslur skáldalauna síðustu 25
árin. — Jafnvel hin aldna kempa
Jóhannes úr Kötlum er nýtízku-
legri en Steinn að þessu leytú
En fyrst og fremst 'hefur þarna
mætt mest á miðkynslóð skálda-
fylkingarinnar .Má þar til nefna
eftir aldri: Jón úr Vör, Stefán
Hörð, Hannes Sigfússon, Jón
Óskar, Einar Braga, Sigfús Daða
son — og loks yngstu skáldin.
Það eru þessir menn sem ég
nefni ,og ljóðstefnu þeirra, sem
Steinn er drengilega að verja á
stúdentafundinum fræga 1952.
Hann hefði aldrei stigið upp i
pontuna sjálfs sín vegna.
Vissulega var Steinn fyrirrenn
ari þessara manna, ásamt Jó-
hanni Sigurjónssyni, Jóhanni
Jónssyni, Jóni Thoroddsen yngra,
Sig. Nordal, H.K. Laxness og
jafnvel Þorberigi. Steinn, Magnús
Ásgeirsson og Jóhannes úr Kötl-
um hinn lifandi tengiliður fornr-
ar klassískrar hefðar til nýs lífa
í Ijóðlistinni, tíma, sem fyrir
löngu var upprunninn úti i
heimi, en hlaut að verða síð'bor-
inn hér. — En sjálfur var Steinn
ekki nema hálfur í nýja tíman-
um og það var honum auðvitað
ljóst.
Stúlka — Mew Yo?k
Stúlka óskast á gott heimili í New York til al-
hliða heimiisstarfa. — Þarf að hafa bílpróf. Heimil-
isfaðir er íslenzkur. — Upplýsingar í síma 33130 kl.
5—7 í dag.
Frá Lækjarskóla Hafnaríirði
Lækjarskólanum verður slitið laugardagin 30. maí
kl. 10 árdegis í Hafnarfjarðarkirkju. — Barnaprófs-
börn mæti þann dag kl. 9 árdegis.
SKÓLASTJÓRI.
Til sö!u í Sondgerði
Falleg 3ja herb. íbúð í steinhúsi í Miðbænum með
góðri lóð og bílskúr.
í Garði, lítið, snoturt einbýlishús með 800 ferm. lóð.
Upplýsingar gefur.
EIGNA- & VERÐBRÉFASALAN, Keflavík.
Símar 1430 og 2094.
71
#
I
3*
í
í
3
3
3
Alit í sveitina fyiir börnin
Gallabuxur — Pólóbolir — Nærföt, ódýr, góð — Einnig
teygjuefni í buxur — Terylene í kjóla, pils og buxur —
Ódýrar Dralon peysur — Herra- og dömupeysur, prjóna-
nælon — Diolen gardínuefni — Ódýr, þýzk herra- og dömu-
nærföt — Léreft — Damansk og tvistefni í úrvali og alls-
konar smávara, snyrtivörur og margt fleira.
Komið og sjáið — Þér gerið góð kaup hjá okkur.
4
1
3
c
u
»
p
8
c
■t
3
c
1
*
BIÍDIRNAR
Grensásveg 48, sími 36999 Jíesveg 39, sími 18414
»-*
a
n
u
Blöníulilíð 35, síml 1917T g