Morgunblaðið - 07.06.1964, Síða 16

Morgunblaðið - 07.06.1964, Síða 16
íe Útgefandi: Framkvæmdas t j óri: Ritstjorar: Auglýsingar: Útbreiðslustjóri: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Askriftargjald kr. 90.00 í lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Árni Garðar Kristinsson. Sverrir Þórðarson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Sími 22480. á mánuði innanlands. 5.00 eintakið. LISTAHÁ TÍÐ T hollri hugvekju sem Sig- urður Nordal skrifar í yfir- litsskrá um Listahátíð Banda- lags íslenzkra listamanna, segir hann m.a.: Listir eru jafngamlar manninum — eða með öðrum orðum eitt af því, sem hefur gert manninn að manni. Þær hafa verið iðkaðar með mjög mismunandi ár- angri á ýmsum tímum og með ýmsum þjóðum. Þær stefna að fullkomnun, sem aldrei verð- ur náð, en alltaf er verið að leita. Án þeirrar leitar, þar sem hver kynslóð og hver ein- staklingur er í vissum skiln- ingi byrjandi, mundi arfurinn frá fortíðinni verða dauður fjársjóður. Listir eru á ýms- um stigum og teknar í marg- víslega þjónustu. Samt er stefna þeirra ein: að mann- legri reýnslu, sem er alveg sérstök og ekkert annað get- ur komið í staðinn fyrir...." Þessara orða er gott að minnast í dag, þegar Lista- hátíð verður sett og íslenzkir listamenn taka um stund við stýrinu í þjóðlífi íslendinga, ef svo mætti segja. Okkur er nauðsynlegt að gera okkur sem gleggsta grein fyrir hlut- verki listarinnar í daglegu lífi og ef það er gert fordóma- laust, komumst við fljótt að þeirri niðurstöðu, að án listar væri líf mannsins eins og blás- in bein eða, ef við vildum segja þetta á annan veg: list- in er þrá mannsins holdi gædd. Hún er, með orðum Nordals: eitt af því sem hef- ur gert manninn að manni. Þegar efnt var til fyrsta listamannaþingsins í miðri síðari heimsstyrjöld, blasti rótleysið við í öllum áttum og .sundurlyndi ríkti meðal ís- lenzkra listamanna. Eins og kunnugt er, hafði þing þetta hin heilladrýgstu áhrif og má fullyrða, að það hafi orðið mörgum hvatning til að standa vörð um list og menn- ingu. List verður ekki ræktuð við þau skilyrði sem einræði veit- ir. Þvert á móti verkar ein- ræðið á listina eins og sífellt páskahret á land og jörð. Við lýðræðislega stjórnarhætti eru listinni veitt þau vaxtar- skilyrði sem henni eru nauð- synleg. Frumskilyrði þess, að unnt sé að skapa góða list, er frelsi, frelsi til orðs og æðis. En hið andlega frelsi, sem svo er kallað, er einmitt aðals- lherki þess lýðræðisskipulags, sem við búum við. Vonandi gera listamenn og aðrir sér grein fyrir því, að án þessa frelsis verður menningin drepin í dróma og lítils megn- ug. Hitt er svo annað mál og samvizkuspurning hvers og eins, hvernig hann fer með þetta frelsi, sem lýðræðið veitir honum og fer það þá eftir heiðarleik hvers og eins, upplagi hans og þroska. Menn eiga jafnvel að hafa frelsi til að vera ófrjálsir, þ.e. að ánetj ast hverri þeirri stefnu eða kalla yfir sig hver þau áhrif, sem hugurinn stendur til. Hér mætti einnig benda á orð Nordals í fyrrnefndri grein, að komið hafi berlega í ljós, þegar Alþingi einu sinni fól Bandalaginu úthlutun lista- mannalauna, „um hvað félag- arnir hefðu getað orðið svo prýðilega sammála: frelsið til þess að vera ósammála, til þess að hver höndin fengi að vera upp á móti annarri, án afskipta eða forráða óvið- komandi aðila“. Þó útlitið í heiminum sé mun betra nú en þegar fyrsta listamannaþingið var haldið, má fullyrða, að við lifum enn á róstusömum og allrótlaus- um tímum. Okkur ber skylda til að huga að mörgum hlut- um og þá ekki sízt að gefa listinni þann gaum sem hún á skilið. Án listar og menn- ingar, án gamalla bóka og nýrra, væru íslendingar ekki annað en fámenn þjóð, auðnu- laus og fátæk, því enginn markar auðlegð þjóðar af ver aldlegum gæðum einum sam- an. Listahátíðin er mikill at- burður í fábreyttu þjóðlífi ís- lendinga. Þeir sem að henni standa eiga þakkir skildar. Hún er einkum og sér í lagi kærkomin nú þegar margt er í deiglunni og ýmsir nýir straumar mætast í menning- arelfunni miklu sém enn rennur um líf okkar frá þeim tíma, þegar afrek voru unn- in í bókmenntum hér á landi, sem þykja einstæð í verald- arsögunni. Það er okkar hlut- verk að virkja alla þessa strauma eins og bezt verður á kosið, þannig að við getum ávallt bætt nýjum ljósum menningarinnar við þau, sem fyrir eru, og þannig haldið áfram að lýsa upp heim þess fólks, sem nú á. að taka við nýju landi. íslenzk æska er í deiglu. Hún lifir á erfiðum tímum, eins og sagt hefur verið. Ekkert vopn verður henni traustara í lífsbarátt- unni en sífrjóvgandi kynni við list og menningu þjóðar sinnar, auk þess sem sérhver maður ætti að leggja stolt sitt í að vera handgenginn því MQRGUNBLAÐIÐ Sunnudagur T. júní 1964 Tító, forseti Júgóslavíu, og í fréttunum ÞREMUR dögum áður en próf- kosningin milli Nelson A. Rooke- feller og Barry Goldwaters fór fram í Kaliforníu, eignast sá fyrrnefndi son með seinni konu sinni, sem genigur undir gælu- nafninu Happy. kona hans, frú Jovanka Broz, heimsóttu Finnland um mánaða- mótin sl. — Þegar Tító fór að skoða skipasmíðastöð í Helsing- fors, kaus frúin heldur að fara í verzlanir, svo sem kvenna er vandi. Og hér sézt hún í þeim leiðangri, þar sem hún dáist að handskornum trékörlum í einni verzluninni. „Þetta er ánægjulegasti blaða- mannafundurinn sem ég hef haldið“, sagði Rockefeller ríkis- stjóri, þegar hann tilkynnti fæð- ir.gu sonarins. Hann sagði að nióður og syni liði vel og að drengurinn yrði skírður Nelson Aldrich Rockefeller jr. Rockefeller skildi við fyrri konu sína árið 1960, og hafði það alvarlegar afleiðingar fyrir póli- tískarr feril hans. Þau áttu fimm börn og hefur hann þegar eignazt nckkur barnabörn. Síðari konu sinni kvæntist hann 4. maí í fyrra. Hún er emnig fráskilin og átti fjögur börn frá fyrra hjónabandi. bezta í menningu erlendra þjóða. í þeirri von að Lista- hátíð nú glæði metnað og menningaráhuga íslenzkrar æsku, fagnar Morgunblaðið hátíð Bandalags íslenzkra listamanna og óskar lista- mönnum til hamingju með það spor, sem nú hefur verið stigið, um leið og það þakk- ar trúnað þeirra við land og þjóð. SJÓMANNA- DAGURINN l^agnstætt því sem áður var ^ má nú segja, að þannig hagi til, að útgerðartími ís- lenzkra fiskiskipa sé sam- felldur allt árið. Áður unnu sjómenn mikið á vertíðunum, en höfðu góð frí á milli, en nú er meira og minna unnið við arðvænlegar veiðar árið um kring. Auðvitað er það ánægju- legt að unnt skuli vera að hagnýta hinn nýja og glæsi- lega fiskiskipaflota eins vel og raun ber vitni, og allir vona, að ekki dragi úr fiski- gengd, svo að mikil auðæfi berist áfram að landi. En vinna sjómannanna er mikil. Oft bera þeir líka ríf- lega úr býtum, eins og vera ber, þvr að íslenzkir sjómenn afla margfaldlega á við aðra. Þeir þurfa líka að vera lang- dvölum burtu frá heimilum sínum, bæði formenn og fiski- menn, og einnig af þeim sök- um eiga kjör þeirra að vera betri en hinna, sem í landi vinna. í dag fagna ekki einungis sjómenn þeim mikla árangri, sem náðst hefur, heldur þjóð- in öll, og menn minnast þess í dag, að sjávarútvegurinn er undirstaða þorra útflutnings verðmæta þjóðarinnar og þar með sá atvinnuvegur, sem góð og batnandi lífskjör fyrst og fremst byggjast á. Sjómannadagurinn er því dagur allrar þjóðarinnar. Og í dag mun ríkja sérstakur gleðibragur, ekki einungis vegna þess, að vel hefur afl- azt og síldin er þegar gengin á miðin, heldur einnig vegna þess, að framundan er vinnu- friður og þjóðfélagsstéttirnar búa saman í sátt og samlyndi og vinna sameiginlega að nýj- um markmiðum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.