Morgunblaðið - 09.06.1964, Blaðsíða 8
9
MORGU N BLAÐIÐ
Þriðjudagur 9. júní 1964
M
Vélin fauk af jöklinum
skömmu áður en Konrad kom
EINS og kunnugt er af fyrri
fréttum, nauðlenti hinn heims
frægi flugmaður, Max Conrad,
lítilli eins hreyfils flugvél á
skriðjökli á Grænlandi 17.
marz sl. Vakti atburður þessi
heimsathygli, þar sem Max
Conrad er einn þekktasti flug-
kappi veraldar, og var hann í
117. ferð sinni, einn síns liðs,
yfir Atlantshaf, er olíuleki
neyddi hann til lendingar
nokkuð sunnan við Narssas-
suak í Eiríksfirði.
í viðtali við Morgunblaðið á
sínum tíma, sagði Konrad, að
hann mundi gera tilraun til að
gera við vélina þar á jöklin-
um og fljúga henni síðan það-
an. Fréttamaður Mbl. var
staddur í Narssassuak um
helgina ,og þar var þá Konrad
kominn ásamt syni sínum, að
sjálfsögðu á eins hreyfils vél.
En lánið lék ekki við hann,
því að þremur dögum áður en
Konrad kom fauk vélin, sem
staðið hafði óhreyfð og ó-
skemmd á jöklinum í allt vor,
upp í miðjar hlíðar og brotn-
aði í spón.
Konrad hafði meðferðis nýj-
an mótor í vélina, sem var
ítölsk að gerð. Ennfremur
hafði hann meðferðis skíði,
sem hann hugðist setja undir
vélina, en hún stóð á skrið-
jökulsrana nokkurn veginn á
jafnsléttu. í>essar ráðstafanir
reyndust þó tilgangslausar,
þar sem vélin var fokin og
brotin ,en á sunnudag leigði
Konrad sér bát og sigldi að
jöklinum til þess að hirða það,
sem nýtilegt kynni að vera úr
brakinu.
Þorsteinn Jónsson, flugstjóri,
var einnig í Narssassuak um
helgina, og má geta þess til
gamans, að Konrad var enn
íklæddur úlpu þeirri, sem Þor
steinn kastaði niður til hans
á jöklinum, og stígvélum, sem
þá var varpað niður til hans
Sýnin£ arki-
tekta á íbúðar-
húsum
A MÁNUDAGSKVÖLD var opn-
uð sýning á vegum Arkitektafé-
lags Islands í húsakynnum Bygg-
ingarþjónustunnar, Laugavegi 26
og á hún að veita yfirlit yfir
ibúðahúsabyggingar á íslandi sl.
20 ár með ljósmyndum og teikn-
ingum. Sýningin er framlag fé-
lagsins til listahátíðarinnar, og
verður hún opin kl. 1—10 dag-
lega til 19. júní. Formaður sýn-
ingarnefndar er Hannes Kr.
Davíðsson.
Formaður A.Í., Aðalsteinn
Richter, opnaði sýninguna með
ræðu. Sagði hann hér ekki um
að ræða tæmandi yfirlit yfir þró
unarsögu íslenzkra íbúðahúsa-
bygginga á tímabilinu frá lýð-
veldisstofnuninni, heldur hefðu
verið valin til sýningar nokkur
beztu húsin, sem byggð hefðu ver
ið í Reykjavík þessi 20 ár. Elztu
húsin eru frá 1946—48, en flest
eru byggð um eða eftir 1955.
Slys
Geldingaholti, 8. júní.
ÞAÐ slys vildi til á laugardag-
inn var, að Sigríður Jóhannsdótt-
ir frá Hamarsheiði, kennari í
Víðihlíð, lærbrotnaði, er hún datt
á steingólfi heima hjá sér á Ham
arsheiði. SigriðUr var flutt á
sjúkrahúsið á Selfossi og liggur
þar. — J. Ól.
Fyrsta síldin til
Siglufjarðar
MYNDIRNAR eru teknar, þegar l son kom þangað. Á stærri mynd
fyrsU síldin barst til Siglufjarð- inni siglir báturinn hlaðinn að
ar í sumar. Það var miðvikudag- bryggju, en á hinni er verið að
iau 3. júní, þegar Helgi Flóveots I landa. (Ljósm. Mlbl.: Stgr. Kr.)
Togarinn Geir kom með fullfermi úr veiðiför á sunnudag.
Það tekur allan hug-
ann að drepa karfann
B.v. Gelr með fullfermi til Reykjavíkur
| TOGARINN Geir kom á
S sunnudagskvöldið með full-
H fermi til Reykjavíkur, eftir
H veiðiför við Grænland, á Ant
M on Dorn bankanum og í Víkur
= álnum. í gær og í dag er unn-
5 ið við að landa aflanum og
§É koma honum í vinnslu. Mbl.
= átti stutt samtal við skipstjór-
S ann, Jónmund Gíslason og
= spurði hann um veiðiferðina
= og aflann.
M Jónmundur sagði, að túrinn
M hefði tekið 16 daga. — Fyrst
H vorum við SA af Angmasalik
= og fengum nokkuð gott fyrstu
= 4-5 daigana, sagði hann. Þar
B var heiðríkja sól og hiti. Síð-
j| an fórum við á Anton Dorn
E bankann, vorum þar dag-
B stund og urðum þorsks varir.
= Seinast vorum við í Víkuráln-
= um, út af Látrabjargi, og feng
= um þar ágætan reyting á
H fimmtudag og föstudag. Þá
= vorum við komnir með fullar
= lestarnar.
= — Hvað er það mikið?
= — Ætli það sé ekki 250-260
= lestir. Þetta er ágætur fiskur,
= aðallega karfi, en einnig þorsk
ji ur og ufsi innan um.
= — Urðuð þið varir við önn-
B ur íslenzk skip við Grænland?
= — Sigurður er núna við
= Austur Grænland, á Fylkis-
= miðum. Við 'höfðum daglega
= samband. Þeir höfðu reyting
= þar.
— Var ís á þeim slóðum
sem þið voruð?
— Já, það var ís bæði á
Jónmundur Gislason,
skipstjóri
Dornbankanum og í Víkur-
álnum. Á Dornbankanum var
ísrek, en við sáum enga borg-
arísjaka, í Víkurálnum náði
ísspöngin svo langt sem við
fylgdumst með henni og sáum
til. ísspöngin virðist óvenju
sunnarlega, líklega ca. 50 míl-
ur frá Látra'bjargi.
— Tefur þetta fyrir ykkur
við veiðarnar?
— Að nokkru leyti. ísrönd-
in var komin á það svæði sem
við vorum á, svo við þurftum
að færa okkur nær landi. En
jakana sóum við vel, og ef
dimmt er þá í radarnum.
— Svo þig voruð 16 daga
í túrnum. Þá hefurðu verið
farinn, þegar Pálína dóttir þín
var kjörin fegurðardrottning
íslands?
— Já, ég fór sama daginn.
Konan hringdi til mín á sunnu
dag. Það heyrðist illa, en þó
skildi ég hvaða fréttir hún
var að færa. En ég hafði lítinn
tíma til að hugsa um það. Það
tekur allan hugann að drepa
þennan karfa. Maður hugsar
ekki um annað á meðan.
— Jæja, hvenær farið þið
aftur? Og hvert þá?
— Annað kvöld eða á mið-
vikudag. Hvert? Annað hvort
á Austur-Grænland eða heima
mið. Það er orðið svo erfitt
að eiga við þetta. Maður færir
sig til eftir því hvar fisks er
helzt von.
— Þú hefur nægan mann-
skap?
— Já, þetta er ágætisfólk
sem ég hafði. Ætli það verði
ekiki mest sama áhöfnin.