Morgunblaðið - 09.06.1964, Blaðsíða 21
Þriðjudagur 9. juní 1964
MORGUNBLADIÐ
21
EINKAUMBÓD
INGVAR HELGASON
TPYGGVAGOTU 4 SIMI 19655
SOLUUMBOO
BILAVAL
lAUGAVEGi 90 5IMAR 19092-18966
VIOGERÐA.ÞJONUSTA
BIFREIOAÞJONUSTAN
SUDAVOGI r'
Skólavörðustíg 41.
Sími 20235.
Komið og skoðið.
Margar gerðir af 8 mm sýningar-
vélum, töskuvélum, skuggamynda-
vélum og ljósmyndavélum.
Flestar gerðir af sýningarlömpum.
8—16 mm filmuleiga.
ATH.: Erum fluttir í ný húsakynni.
Fiimur & Vélar
! Úr síðdegisboðinu. Jóhannes
son og Sveinn Einarsson,
— Listaháflbin
Framh. af bls. 11
verið kjörinn hér vestur í haf
inu.“
Þá flutti Sinfóníuhljóm-
sveit íslands, söngsveitin Fíl-
harmónía og blandaður kór
Fóstbræðra Minni íslands,
forleik fyrir hljómsveit og
kór, op. 9, eftir Jón Leifs við
Ijóð eftir Einar Benediktsson
og Jónas Hallgrímsson.
Stjórnandi var bandaríski
hljómsveitarstjórinn Igor
Bukefoff.'
Þessu næst lásu rithöfundar
úr verkum sínum, fyrstur
Guðmundur Gíslason Haga-
lín, sem las úr óprentaðri bók
sinni um Harald Böðvarsson,
útgerðarmann ^ á Akranesi,
sem nefnist „í Fararbroddi.“
Þá las Guðmundur Böðvars-
son þrjú ljóð eftir sig og loks
sagði Þorbergyr Þórðarson
sögur af séra Árna Þórarins-
syni á Stórahrauni.
Setningarathöfninni í sam-
komuhúsi háskólans' lauk
með því, að Sinfóníuhljóm-
sveit íslands, söngsveitin Fíl-
harmónía og blandaður kór
Fóstbræðra_ flutti Lofsöng
eftir Pál ísólfsson við ljóð
eftir Davíð Stefánsson frá
Fagraskógi.
Var Páll kallaður upp á
söngsviðið eftir flutninginn
og var honum mjög vel fagn-
að af áheyrendum, sem einnig
hafði hyllt þá listamenn, sem
verk voru flutt eftir.
Bóka- og myndlistarsýning
í Þjóðminjasafninu
Klukkan 4 síðdegis var
bóka- og myndlistarsýning
opnuð í Þjóðminjasafninu að
Jóhannesson, Þorvaldur Skúla-
viðstöddum miklum fjölda
gesta, m. a. forsetahjónunum.
Sýningarnar voru opnaðar
af Ragnari Jónssyni, for-
stjóra, sem sagði m. a. við það
tækifæri:
„Það væru ömuleg örlög
okkar kæra lands, ef sagan
um tómlæti gagiivart vísind-
um og listum, sem þjóð þess
hefur tíðum sýnt, mest sök-
um fátæktar og menntunar-
skorts, ætti, á öld hinna
- miklu framfara og fjölmiðlun
artækni, eftir að endurtaka
sig. Ef hús á íslandi þessarar
aldar, klædd verksmiðjutepp-
um útá hlað, mjúkum sem
æðarhreiður, fyllt öllum hugs
anlegum munaði og þægind-
um, frá ísskáps til vínbars,
ættu ekkert, að gleðja hið
innra auga íbúanna, ekkert
málverk, enga höggmynd,
jafnvel ekki handgerðan dúk
eða púða, sem allir veggir
klæddir þilplötum og steinhell
um, sem panta má með sím-
skeyti eins og rúsínukassa.
Ekkert sem gerir lifið þess
virði að lifa því.
Þetta má aldrei ske, og við
sárbænum ykkur öll að taka
höndum saman að forða
æsku framtíðarinnar frá svo
ópersónulegu lífi.
Þeir sem hér sýna verk
sín, og sem ekki eru fram-
leidd í verksmiðjum, heldur
er hvert eitt tjáning persónu
legrar reynslu, bjóða okkur
aðstoð sína af heilum hug.
Eins og sagt hefir verið frá
í blöðum, eru á sýningu þeirri
sem við ætlum að fara að
skoða, aðeins verk síðustu
fimm ára. Ég hef átt þess kost
að renna augum eftir veggj-
um og gólfum og get með
ánægju óskað listamönnunum
til hamingju.
Hér í Bogasalnum er önnur
sýning, bókasýning, þar sem
sýndar eru bækur íslenzkra
höfunda og annSra lista-
manna, frá síðustu tveimur
áratugum, eða frá stofnun .lýð
veldisins og til þessa dags.“
Þessar tvær sýningar lýsi
ég hér með opnaðar.
Klukkan 5 síðdegis hélt
menntamálaráðherra boð inni
í Ráðherrabústaðnum við
Tjarnargötu fyrir íslenzka
listamenn og aðra gesti. Var
þar mjög margt um manninn
og vakti það athygli ýmissa
hversu margt var þar um
ungt fólk.
Um kvöldið var hátíðasýn-
ing í Þjóðleikhúsinu á óper-
ettunni Sardasfurstinnan eft-
ir Emmerch Kálmán.
Stærsti verksamningur Reykja-
víkur um byggingu íbúðahúsa
J'YRIR helgina undirritaði Geir
Hallgrímsson, borgarstjóri, verk
samning við byggingarfélagið
Sökkul s.f. um byggingu á þrem-
ur fjölbýlishúsum við Klepps-
veg. Er samningurinn upp á 34,5
milij. kr. og er stærsti samningur
sem Reykvíkurborg hefur gert
um byggingar íbúðarhúsa. í hús
um þessum verða alls 54 íbúðir,
og eru þær ætlaðar til útrýming-
ar heilsuspillandi húsnæðis.
Á myndinni eru. sitjandi frá
Tiægri: Geir Halligrímsson, borg-
arstjóri, Einar Ágústsson, húsa-
smíðameistari og Gisli Teiísson,
skrifstofustjóri Innkaupastofn-
unarinnar .Standandi eru húsa-
smíðameistararnir Már Bjarna-
ATHUGIÐ
að borið saman v.ið útbreiðslu
er langtum óýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
son, Óskar Konráðsson og Frið-
geir Sörlason.
35 V-Íslend-
íngnr
KL. 7.30 í morgun voru 35
Vestur-íslendingar væntanlegir
hingað til lands með flugvél frá
Pan American. Hópur þessi mun
staldra hér við til 23. júni.
NÝJUNG
Fyrsta 8 mm tónvélin er komin
SILMA SONIK 8
Hafið þér kynnzt hinum frá-
bæra, ódýra Trabant? Hefur
reynzt sérlega vel, enda mjög
sterkbyggður.
mcum
Viðgerðarþjónusta alla daga,
varahlutir í úrvali.
Loftkæld vél. Sjálfstillandi
bremsur. 4 gíra kassi samfasa
og margt fleira.
Nokkrir bílar til afgreiðslu nú
þegar. Leitið upplýsinga um
þennan einstæða, ódýra smá-
bíl, Trabant 600.
c