Morgunblaðið - 09.06.1964, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 9. juní 1964
Aukin viðskipti
V-Þýzkalands við Kína
Gerhard Schröder og Couve de Murville
rœðast við í Bonn
Bonn, 8. júní. — (AP-NTB)
TALSMAÐUR vestur-þýzku
stjórnarinnar, Gúnther von
Hase, sagði sagði á fundi með
fréttamönnum í dag, að Bonn-
stjórnin hefði í hyggju að
auka viðskipti við Kína. Yrði
að öllum líkindum gerður við-
skiptasamningur við Pek-
ingstjórnina — en þó væri
ekki fyrirhugað að veita
henni neins konar lán.
f dag ræddust þeir við - Bonn
utanríkisráðherrar Vestur-Þýzka-
lands og Frakklands, Gcrhard
Schröder og Couye de Murville.
Ræddu þeir meðal annars aukna
efnahagssamvinnu við Peking-
stjórnina.
Aðalræðuefni þeirra var þó
fyrirhuguð Bandaríkjaför vest-
ur-þýzka kanzlarans, dr. Ludwig
Erhards, og þau mál, er hann
hyggst ræða við Johnson, Banda-
ríkjaforseta, — vandamál Þýzka-
lands, samband Austurs og Vest-
urs, afvopnunarmál, skipulag
NATO og ástandið í SA-Asíu. —
Ennfremur ræddu utanríkisráð-
herrarnir ráðstafanir er gera
þarf vegna heimsóknar de Gaulle,
Frakklandsforseta til Bonn í
næsta mánuði, svo og Kennedy-
viðræðurnar í Genf ágreininginn
innan Efnahagsbandalagsins um
kornverðið og vandamál varð-
andi aukna einingu Evrópuríkja.
synda með kópa
ÞÚFUM, 6. júní. — Nú er að
enda eitt hið allra bezta vor er
menn muna. Vortíminn algerlega
áfallalaus um sauðburð sem fá-
gætt er. Er nú sauðburði að ljúka,
kýr farnar að liggja úti og vega-
gerðarflokkur að hefja störf.
Líklega verður Morylla i
Kaldalóni brúuð síðar á sumr-
inu.
Æðarvarp lítur vel út og sel-
ur syndir með kópa, sem brátt
verða veiddir. Grenjavinnsla er
að hefjast og minkaveiðar hefj-
ast eftir grenjavinnslu af æfðum
veiðimanni. Fyrir stuttu var 26
minkum eytt í Rauðasandshreppi,
svo nóg er af þessum fénaði.
P. P.
Dr. Tómas Hclgason
hi Epidemiology of Mental Des-
erders in Iceland. Hún felur i
sér rannsónkir á 5395 íslending-
um og er nýkomin út hjá Munka
gaard forlaginu í Kaupmanna-
höfn. Doktorsvörnin stóð í 3
klukkustundir og fékk ritgerð
doktorsefnis mjög góð ummæli.
Tómas Helgason er sem kunn-
ugt er yfirlæknir við Klepps-
spítalann og jafnframt prófessor
við Háskóla íslands. Hann hefur
unnið að doktorsritgjerðinni, allt:
síðan 1953, í Árósum og einnig
i Reykjavík og New York.
Tómas Helgasaiiv lækn-
ir ver cSoktorsritgerð
í GÆR varði Tómas Helgason,
læknir, doktorsritgerð við Ár-
ósaháskóla, þar sem hann hafði
verið í nokkur ár við rannsókn-
arstörf. Ritgerðin fjallar um
tíðni geðveiki á íslandi ag nefn-
Fánaborgin og Lúðrasveit Reykjavíkur á Aust urvelli, Erlingur Vigfússon syngur einsöng.
Æðarvarp lítur
vel íit og selir
MIKILL mannfjöldi tók þátt
hátíðahöidum Sjómannadags-
ins í Reykjavík að venju, enda
var veður með afbrigðum gott.
K1 11 um morguninn hófst há-
tiðaguðsþjónustu í Laugarásbíói.
Séra Grímur Grímsson prédikaði
Húsið var fullsetið. Meðal gesta
voru forsetahjónin. Klukkan hálf
tvö tók Lúðrasveit Reykjavikur
að leika á Austurvelli undir
stjórn Páls P. Pálssonar. Var þá
fólk farið að safnast saman og
kl. 2 hafði drifið að mikill fjöldi.
Biskupinn yfir íslandi, herra Sig
urbjöm Einarsson, minntist
arukknaðra sjómanna. Þá söng
Erlingur Vigfússon. Þessu næst
fluttu ávörp af svölum Alþingis
hússins Emil Jónsson, sjávarút-
vegsmálaráðherra, fyrir hönd
rikisstjórnarinnar. Valdimar Ind
riðason ,framkvæmdastjóri fyrir
hönd útgerðarmanna, Örn Steins
son, vélstjóri, forseti FFSÍ fyrir
hönd sjómanna. Að lokum sæmdi
Pétur Sigurðsson, formaður Sjó-
mannadagsráðs, fimm aldraða
sjómenn heiðursmerki sjómanna-
dagsins.
Emil Jónsson, sjávarútvegsmála
ráðherra, ræddi meðal annars
um aukningu bátaflotans, stór-
bætt veiðitæki og góð aflabmgð
að undanförnu. Þó kvað ráðherr-
ann aflafréttir blaðanna oft vill-
andi,þar sem yfirleitt væri að-
eins getið um afla hæstu bátanna,
en meginþorri flotans veiddi að-
eins brot af honum. Yrði því að
hafa í huga að afkoma lægri bát-
anna og skipverja á þeim væri
í engu samræmi við þær tölur
sem fram kæmu í slíkum afla-
fréttum. Þá veik ráðherrann máli
sínu að hinum mjög aukna skips-
tapa. Kvað hann ríkisstjórnina
þegar hafa gert sér grein fyrir
því að grípa þyrfti til skjótra
úrræða í máli þessu, enda hefði
nefnd verið skipuð til að rann-
saka orsakir sjóslysa. Nefndin
starfaði ennþá, en hefði lagt
fram greinargerð fyrir skömmu,
þar sem talið er að síldarnót á
bátapalli og vanmat skipstjórnar
manna á aðstæðum sé ein aðal-
orsök slysanna. (Greinargerðin
birtist í Morgunblaðinu 2. júní
siðastliðinn).
Valdimar Indriðason, fulltrúi
útgerðarmanna, hugleiddi meðal
annars framtíð togaraútgerðar-
innar á íslandi. Sagðist hann
telja, að ekki bæri að leggja
hana niður, þótt óbyrlega hefði
biásið ag undanförnu. Bað hann
rnenn vera minnuga þess, að það
hefði verið togaraútgerðin, sem
komið hefði fótunum undir fjár-
hag íslendinga í byrjun þessar-
ar aldar. Þá stakk Valdimar upp
á því við Sjómannadagsráð, að
færa sjómannadaginn fram og
halda hann hátíðlegan síðasta
sunnudag í maí, þar sem mörg
síJ dveiðiskip lægju ferðbúin í
Biskupinn yfir íslandi, herra Sigurbjörn Einarsson, minnist drukknaðra sjómanna á svöl-
um Alþingishússins.
Sjómannadagsins
höfn hér sunnanlands, en biðu
til þess að eyða sjómannadegin-
um heima.
Örn Steinsson, forseti Far-
rí.anna og fiskimannasambands
íslands, minnist á þá ábyrgð, sem
fylgir því starfi að vera yfirmað-
ur á skipi. Kvað hann því mikils
um vert að hafa góða skóla fyrir
sjómenn. Þá sagðist Örn harma
það, hve fáir stunduðu slíkt
nám, einkum væri tilfinnanlegur
skortur á vélstjórum á sjó, þar
sem margir þeirra ynnu sem vél-
stjórar í landi eða héldu áfram
tækninámi.
Þá lýsti hann sig andvigan því,
að tækniskóli yrði settur upp á
vegum vélskólans í' húsakynnum
Sjómannaskólans, þar sem slík-
ur skóli gæti ekki talizt stuðla á
neinn hátt að hag. sjómanna né
fiotans. Örn kvaðst vilja, að lagt
verði niður minna fiskimanna-
prófið (réttindi til stjórnar báta
ur.dir 120 tonnum), enda færu
bátar yfirleitt stækkandi. Væri
það líka afleitt, að margir skip-
sljórar, sem aðeins hefðu minna
prófið, sigldu stærri bátum á und
anþágu.
Pétur Sigurðsson, formaður
Sjómannadagsráðs, sæmdi eftir-
talda menn heiðursmerkjum Sjó
mannadagsins: Elísberg Péturs-
scn, sem unnið ’hefur matreiðslu-
og brytastörf síðan 1912, síðast-
liðin 30 ár hjá Eimskipafélagi ís-
lands. Friðstein Friðsteinsson,
sem lengi hefur verið sjómaður
hgá Eimskipafélaginu. Friðsteinn
var staddur um borð í Brúarfossi
úti á rúmsjó á sjómannadaginn
og tók því kona hans, Jósefína
Jóhannesdóttir, við heiðursmerk
inu fyrir hans hönd. Guðmundur
Guðjónsson 84 ára, sem verið hef
ur vélstjóri, síðast hjá Skipaút-
gerð ríkisins, mest alla ævi sína.
Þorsteinn Guðlaugsson, 76 ára,
sem mjög lengi var bátsmaður á
ýmsum skipum, einkum hjá út-
gerðarfélaginu Alliance. Heiðura
merki úr gulli hlaut Þorvarður
Bjömsson, fyrrverandi yfirhafn-
sögumaður. Er viðtal við hann
annarstaðar í blaðinu.
Þá gat Pétur Sigurðsson þeirra
sem námsverðlaun hlutu á
farmanna- og fiskimanna-
prófi frá Stýrimannaskólanum i
vor. Einnig þess, sem hæsta eink
ur.n fékk á brottfararprófi frá
Vélskólanum.
Milli ávarpa þessara lék Lúðra
sveit Reykjavíkur ýmis lög.
Stóðu lúðraþeytararnir á Austur
velli miðjum, en beggja vegna
gegnt Alþingishúsinu stóðu sjó-
menn og mynduðu fánaborg, af
íslenzkum fánum og fánum sjó-
mannafélagaima. Setti þetta mik-
inn hátíðasvip á athöfnina alla.
Hátíðahöld