Morgunblaðið - 10.06.1964, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Miðýikudagur 10. júní 1964
Fylgzt með viðdvöl Leifs Eiríks-
sonar ú Keflavíkurflugvelli
ÞAÐ eru tiltölulega fáir ís-
lendingar utan fastráðinna
starfsmanna Keflavíkurflug-
vallar, sem hafa hugmynd um
öll þau verk, er vinna þarf á
öllum tímum sólarhrings, til
þess . ag flugvélar í Atlants-
hafsflugi fái þar góða og
skjóta afgreiðslu. Flugflotinn
hefur verið endurnýjaður og
Keflavíkurflugvöllur er af
þeim sökum ekki eins þýðing
armikill og hann var, áður en
stórar og langfleygar þotur
tóku að þeysast um loftin
blá. Flugvöllurinn á þó enn
marga fastagesti í hópi
smærri og hægfara farþega-
og flutningavéla og smávéla,
sem ferja þarf yfir hafið. Við-
dvöl þeirra á íslandi er jafn-
an stutt, og þjónustan, sem
þær fá, verður að ganga greið
lega.
•—
Þeigar við komum inn á
Keflavíkurflugvöll um tvö-
leytið aðfaranótt miðviku-
dags var sem kvöldljóg ló-
unnar á Miðnesheiði hefði
sungið allt í fastasvefn, en
yfirvaldið í flugvallarhliðinu
var glaðvakandi og gaf okkur
góðfúslega leyfi til að aka
innfyrir, þegar Ijósmyndar-
inn hafði gert grein fyrir öll-
þeir Halldór Gestsson ag Ein-
ar Knútsson hölluðu sér mak-
indalega aftur í djúpum stól-
um gegnt afgreiðsluborði flug
umsjónar, og þag var að sjá
sem þeim gerði svefnhöfugt.
— Hvenær kemur vélin?,
spurðum við.
— Klukkan þrjú. Við bíð-
um bara eftir að hún lendi —
erum í fríi þangað til, svar-
ar Halldór.
— Og þið þekkið aúðvitað
hverja skrúfu í henni??
— Nei, ekki ennþá. Við
þurfum að venjast henni bet-
ur. Einar V£ir úti í Kanada
að kynna sér hana hjá verk-
smiðjunum og kennir mér
sennilega kúnstina, kappinn.
Hér er hjá okkur Eugene
Coburn frá Lockheed í New
York og verður hann eftirlits-
maður með störfum okkar hér
þangað til við verðum taldir
hæfir til að sjá um eftirlit
upp á eigin spýtur.
— Hvað varstu lengi 1
Kanada, Einar?
— Við vorum fimm fslend-
ingar hjá Canadair verksmiðj
unum í fjóra mánuði, og einn
Bandaríkjamaður að auki, en
hann verður staðsettur hjá
Loftleiðum í New York. Þá
verður einn íslendinganna í
y/r
Hvítklæddír flugvirkjar aðstoða flugmennina við að setja
hreyflana í gang. Þrýstilofti er dælt inn í nef flugvélarinnar
til að snúa skrúfunum.
um útbúnaði sínum og fengið
þar með tryggingu fyrir að
hann yrði ekki handsamaður
fyrir smyigl á útleið.
Bandarísk Viscount-vél
rauf næturkyrrðina fyrir ut-
an flugvallarhótelið, og þegar
við komum inn í bygginguna
urðu á vegi okkar útlendir
elskendur, er sátu þar í sófa,
og hann spurði, hvort hún
væri hætt að elska sig, en
hún sagðist vera orðin leið að
bíða eftir flugvélinni. Þau
höfðu ætlað fyrr um kvöldið
með Loftleiða-vél vestur um
haf, en þegar þau heyrðu að
Leifur Eiríksson yrði á ferð-
inni seinna um nóttina,
ákváðu þau að breyta til og
ferðast með þessum nýja far-
kosti .Utan þessara tveggja
var ekkert kvikt að sjá í far-
þegasölum flugstöðvarinnar.
Við ákváðum því að ganga á
vit þeirra í flugumsjóninni í
annarri álmu hússins, því að
þar er ys og þys allan sólar-
hringinn.
Tveir flugvirkjar Loftleiða,
ingi, ef maður ætlar að láta
geisla af sér.
— Er það eitthvað, sem þið
hafið á ákveðinni starfsskrá
hérna?
— Ja, það er þetta eftirlit
með bilunum, og....
— Nú að undanförnu hefur
mikig borið á finnsku flug-
félagi, Kar-Air, sem flýgur
leiguflug með fólk á heims-
sýninguna í New York. Þeir
koma hingað nokkrum sinn-
um í viku. Air France lætur
Olaf Olsen, flugsíjórl, og Ásmundur Ólafsson, aðstoðarflug-
maður, í stjórnklefa Leifs Eiríkssonar.
Luxemborg, en við hinif
hérna heima.
— Þið hafið ebki varahluta
birgðir hérna ennþá?
— Nei, ekki fullkominn lag
er, en það er stefnt að því að
koma honum upp. Við för-
um yfir skýrslu, sem áhöfn
vélarinnar gerir um _ gang
hennar á leiðinni til íslands
austur eða vestur um haf, og
ef eitthvað reynist í ólagi eig-
um við að ganga úr skugga
um hvað þag er, og gera við
það, svo að vélin komist ör-
ugglega áfram leiðar sinnar.
Ef um alvarlegar bilanir er að
ræða, verðum við að fá vara
hluti hingað og getum við
sett þá í, en allar meiriháttar
viðgerðir og skoðanir eiga að
fara fram í New York.
— Ég sé að þið eruð i
mjallahvítum samfestingum.
— Já, flugvélavirkjun er
ekki lengur eins og kola-
mokstur. Verkin verða æ
hreinlegri með til'komu nýrra
flugvéla. Þó er því ekki að
neita, að það er enginn þvotta
efnissparnaður af þessum bún
— Hvag bilar nú helzt?
— Það er nú tæpast hægt
að segja nokkuð ákveðið um
það. Þó kemur stundum fyrir,
að það fer að leka olíu eða
benzíni. Við verðum líka að
aðstoða fluigmennina, þegar
þeir setja „Rollsann“ í gang.
Við höfum hérna stóran þrýsti
loftsmótor í vagni, sem dælir
lofti um nef vélarinnar inn á
hreyflana og snýr skrúfunum,
þegar sett er í gang. Þetta
gengur ekki hávaðalaust, svo
að við verðum að hafa sím-
samband við flugstjórann á
meðan.
Guðmundur Jónsson, starfs
maður í flugumsjón tilkynn-
ir okkur nú, að Leifur Eiríks-
son sé yfir flugvellinum að
búa sig til lendingar. Okkur
lék hugur á að kynnast starfi
flugumsjónar, sem Loftleiðir
h.f. í Keflavík hafa annazt í
tæp tvö ár. Það er systurfyrir
tæki Loftleiða h.f. í Reykja-
vík og gerði samning við rík-
isstjórnina árið 1962 um rekst
ur flugumsjónar á Keflavíkur
flugvelli.
— Er mikil umferð um
völlinn, Guðmundur?
— Umferðin nemur um 70-
100 flugvélum á mánuði, —
það eru farþegaflugvélar ým-
issa flugfélaga og farþegavél-
ar bandaríska hersins, sem við
höfum skipti við.
— Hvaða flugfélög hafa hér
aðallega viðkomu?
flutningavélar sínar koma hér
við, og við önnumst líka þjón-
ustu við flugvélar Pan Ame-
rican. Fjöldi annarra véla hef
ur hér viðkomu, m.a. eru hér
núna De Havilland flugvél frá
Sameinuðu þjóðunum á leið
austur um haf. Viscount-vél-
in, sem lenti hér áðan verður
hér í nótt og fer svo til Ev-
rópu. Tvær . flutningavélar
hersins eru hér líka í nótt.
— Hvernig er afgreiðslu
vélanna háttað?
— Við erum í stöðugu sam-
bandi með fjarriturum við
ýmsar flugstöðvar og flugvél-
ar í gegnum flugumferðar-
stjórnina í Reykjavík og loft-
skeytastöðina í Gufunesi. Við
fáum flugáætlun vélanna
senda hingað, og fylgjumst
með þeim yfir hafið, sendum
þeim veðurupplýsingar héðan
og tilkynnum svo tollinum,
benzínafgreiðslumönnum og
þeim, sem sjá um hreingern-
ingar í vélunum, um komu
þeirra hingað.
•—
Kristinn Stefánsson, sem
einnig vinnur í flugumsjón
leysir nú Guðmund af hólmi
og segir okkur frá þeim störf-
um, sem fram eiga að fara
meðan Leifur Eiríksson hefur
hér viðdvöl.
— Þegar áhöfn og farþegar
hafa yfirgefið vélina og kom-
ið hingað inn, verður hafizt
handa um að hreinsa hana,
fara yfir hreyflana o@ þvo
Leifur Eiríksson hefur viðkomu á Keflavíkurflu gvelli.
upp bakka og önnur ílát, sem
notuð voru við veitingar á
leið hingað. Því miður er ekki
enn til nema einn umgangur
í vélina, en í framtíðinni verð
ur matur allur tilbúinn á bökk
um, þegar vélin lendir hérna,
og þá á hún ekki að þurfa að
bíða hér lengur en 45 mín-
útur.
Við verðum að sjá um, að
farþegar til íslands fari hér
í gegnum tollinn, sjáum áhöfn
inni, sem yfirgefur vélina
hérna, fyrir ferð til Reykja-
víkur, og svo þurfum við að
ná tali af öllum farþegum á
leið til Bandaríkjanna til að
ganga úr skugga um, að vega-
bréf þeirra séu í lagi. Ef ein-
hver farþegi kynni að koma
til New York með ógilt vega-
bréf, gæti það kostað félagið
5000 dala sekt. Mikill hluti
farseðla með Loftleiðum er
seldur hjá ferðaskrifstofum
og þær hafa ekki alltaf nægi-
legt eftirlit með því að öll
skilríki farþegans séu í lagi.
Því miður er aðstaðan hérna
á hótelinu slæm til móttöku á
farþegum, er hafa hér aðeins
stutta viðdvöl, en úr því ræt-
ist með fyrirhuguðum breyt-
ingum á húsnæðinu. Meðan
flugvélin staldrar hér við
tökum við á móti áhöfninni,
sem á að fljúga henni vestur
og semjum flugáætlun og
hleðsluskrá með flugstjóra.
Þetta er talsvert verk og
krefst nokkurs undirbúninigs.
í gær vorum við búnir að
gera áætlun fyrir eina Cloud-
master-vélina til New York.
Hún átti upþhaflega að lenda
í Gander til að taka eldsneyti,
en vegna nýrra upplýsinga
tim veður ákvað flugstjóri á
síðustu stundu að koma við i
Montreal ,og var öli áætlun
gerð á ný með tilliti til þess.
•—
Kristján biður okkur nú að
hafa sig afsakaðan, því að
Leifur Eiríksson er lentur, og
við fylgjumst með því, sem
er að gerast úti á fluigvéla-
stæðinu. Vélin kemur fyrir
hornið á flugskýli miklu og á
undan henni ekur lítil gul bif-
reið með rauðu Ijósi á þakinu
og sýnir flugmönnunum leið-
ina þangað sem vélin skal
stöðvuð. Ógnarhávaði fylgir
þessu ferlíki, en innan stund-
ar eru hreyflarnir stöðvaðir
og tröppum er rennt að- báðum
dyrum.. Hurðu-m er rennt frá,
brosandi flugfreyja afhendir
Kristjáni tösku með flugskil-
rí'kjum og farþegalista, og far
þegarnir, 140 að tölu ganga i
land.
Þetta er mjög sundurleitur
hópur, fólk á öllum aldri, mis
jafnlega klætt, og mesta at-
hygli okkar vekja tveir hár-
prúðir herrar í peysum og
gallabuxum, annar berfættur
í svokölluðurh Jesú-skóm, ó-
venjulega tástór maður, en
hinn í einum þeim göfugustu
hnöllum, sem við höfum séð.
Þarna er gömul kona með
barnabarn sitt á handleggnum,
kaþólskur prestur, ungt skóla
fól-k með bros á vör, og heild-
salar eða lögfræðingar í stíf-
(Myndirnar tók Sv. Þormóðss.)
SUMARNOTT í FLUGSTÖD