Morgunblaðið - 10.06.1964, Page 11
MuSvikudagur 10. jfiní 1964
MORGU N BLADID
11
: ' vo~,o«mmoc'v«v
FLUGUMSJON
pi iriwT riDCDATirsKic
Guðmitndur Jónsson og Kristinn Stefánsson við afgreiðsluborð
flugumsjónar.
pressuðum fötum með gljá-
andi skjalatöskur 1 hendinnL
Fólkið skimar fyrst eins og
dáiitið utan við sig — kannski
er það dagsbirtan, sem vekur
furðu þess — og síðan gengur
það inn í biðsal hóteisins. Við
íyllgjumst meg straumnum og
Bill Teaham frá Detroit snýr
eér að okkur og spyr, hvort
við séum íslendingar. Við
evörum því játandi og hann
Irefur mál sitt með þeim um-
mælum, að hárlubbi og klæða
burður ungu mannanna í vél-
inni væri Bandaríkjunum til
ekammar. — Maður gæti hald
ið, að þessir strákar væru ald
ir upp í píanókössum, en ég
veit, að foreldrar þeirra eru
vel efnaðir og það er engin
éstæða fyrir þessa vitleysinga
®ð ganga um í þessum lörfum
á ekki nokkur orð yfir
þetta. Þetta eru bara asnar,
eem halda ag þeir séu sniðug-
ir. Við höfum búið það vel að
•eskuxmi, að það er ósvífni að
september 1 fyrirlestraferð.
Heimsætki aðallega kaþólskar
stofnanir oig svo býst ég við að
ég lendi á heimssýningunni.
Það er svo margt nýstárlegt
að sjá þar. Á heimleiðinni
ætla ég að stanza hér í nokkra
datga.
— Er almenn þekking á ís-
landi fyrir hendi í Hollandi?
— Nei, blessaðir. Við vitum
ekkert um ykkur.
— Hérna fylgdust allir með
atburðum í samtoandi við gift
ingu prinsessunnar ykkar.
— Já, er það. Jú, þetta var
mikið vandamál og mikið um
það talað. Báðum aðilum urðu
á mikil mistök.
— Þér hefjið kannski áróð-
ur fyrir ísland í stólræðum,
þegar þér komið aftur til Hol-
lands?
— Já, því ekki það? En þið
verðig þá að heita mér sæmi-
legu veðri og móttökum í sept
emtoer.
Flugfreyjurnar bíða komn farþeganna um borð.
hún láti sjá sig í öðrum eins
druslum á erlendum vett-
vangi. Hvað haldið þið, að
útlendingar hugsi um okkur,
þegar þeir sjá þessi ósköp?
Ég er kominn á eftirlaun og
fer á hverju ári til Evrópu
með Loftleiðum og alltaf
verða þessir vitfirringar á
vegi manns. Það er nú annars
tnerkilegt, hvað þetta gemgur
vel hjá Loftleiðum. Það eru
®ðeins þrjú flugfélög, sem
standa sig í heiminum, —
bara þrjú. Það eru Loftleiðir,
Air Lingus og E1 Al. Ég hef
líka alltaf sagt, að....
I • -
Inni við minjagripaverzlun-
tna standa kaþólskur prestur
og roskin kona. Þau ræðast
við á hollenzku, en við spyrj-
um, hvort við megum taka
«f þeim mynd.
— Jú, sjálfsagt hvað miig
enertir, svaraði faðir Peters
frá Grave í Hollandi. En því
miður get ég ekki svarað fyrir
frúna, hún er ekki mamma
mín.
— Ætlið þér að dveljast
lengi í Bandaríkjunum?
/ — Nei. Ég verð þar fram í
Bill Teaham hefur fylgzt
með þessu samtali og tekst all
ur á loft og vill láta okkur
ræða við piltungana, sem hann
hafði áður lýst með ófögrum
orðum, og láta okkur komast
að hinu sanna í málinu, — að
þeir hafi ekki alizt upp í pía-
nókassa. Og þarna eru þeir
komnir John Tassano og Ge-
orge Majors frá Kaliforníu.
— Er þér ekki kalt á tán-
um, George?
— Nei. Er þér kalt?
— Nei. Við íklæðumst allt-
af _ einangruðum skóm hérna
á Islandi.
— Er alltaf svona bjart
hérna á sumrin?, spyr Jöhn.
— Já, í nokkra mánuði.
— Okkur fannst þag hrein-
asta paradis í Danmörku, þeg-
ar birti klukkan fjögur eða
fimm að morgninum.
— Eruð þið búnir að ferð-
ast mikið um meginlandið?
— Já, svarar George. Við
erum búnir að flakka í fjóra
mánuði. Dvöldumst lengst í
París og fórum svo á „þumal-
fingrinum" um nágrannaríkin.
— Eruð þið ekki í skóla?
— Jú, við erum báðir í 'há-
skóla, en fengum að sleppa
siðara námstímatoilinu. Við
lærum báðir ensku.
— Hvað gerðuð þið í París,
ef mér leyfist ag spyrja svona
nærgöngullar spurningar?
— Við heimsóttum aðallega
listasöfn og þó einkum eitt
lítið safn með verkum impress
ionistanna.
— Hveriiig hafið þið ráð á
svona ferðalögum?
— Pabbi á verzlun, svarar
John. Við höfum verið til að-
stoðar, og svo ferðumst við
ódýrt. Okkur tókst að komast
á átta döigum yfir Bandarík-
in með því að veifa til bíla.
á vegunum .Þannig ætlum við
líka að ferðast frá New York
til 'heimkynnanna.
®—
Það líður senn að brottför
Leifs Eiríkssonar. Áhöfn hans
til New York hefur verið til-
kynnt að ganga um borð. Við
heimsækjum flugfreyjurnar í
fremra eldhúsinu, þar sem
þær sjá um að allt gangi sam
kvæmt áætlun. Síminn á milli
eld'húsanna og fram í flug-
stjórnarklefann er í lagi, ofn-
arnir hita sig og maturinn er
að koma um borð. Það er í
mörig horn að líta, því að skáp
ar eru um 30 og ekki nema
um 6 klst. til að leita að syk-
urmolunum á leiðinni til New
York. Erla Ágústsdóttir, sem
er yfirflugfreyja í þessari ferð,
segir stöllum sínum fjórum
frá öllum leyndardómum eld-
hússins, því að þær fljúga nú
fyrsta sinni með Leifi Eiríks-
syni.
Þeir Olaf Olsen, flugstjóri
og Ámundi Ólafsson, aðstoðar
flugmaður eru önnum kafnir
við að yfirfara svokallaðan
„tékklista" og huga að hinum
ýmsu tækjum, en það tekur
allt að því hálftíma áður en
vélin fer í gang. í farþega-
klefanum situr Jackie Henk-
ins, gamanleikari og þjáist
svo af magaverk, að hann gat
ekki farið út til að spóka sig
í morgunsólinni. Hann var á
ferðalagi milli herstöðva í
Evrópu, sagði brandara uppi
á sviði og fékk hermennina til
að hlæja, — við vonum í það
minnsta, að hann sagi ekki
eintóma fimmaurabrandara —
og hann segist aldrei gera grín
að stjórnmálamönnum, klerka
stéttinni eða kynferðismálum.
Herra Henkins talar mikið,
enda hefur hann frá ýmsu að
segja. Hann segist hafa leikið
í mörgum kvikmyndum með
Jerry Lewis, en sé nú starf-
andi hjá Gisela Gunther
Agency í Frankfurt, sem láti
alltaf starfsfólk sitt fljúga
með Loftleiðum.
Þvi miður verðum við að
kveðja gamanleikarann, biðj-
um hann að skila kveðju okk-
ar til Jerry Lewis, og hypjum
okkur í land, því að farþeg-
unum hefur verið sagt að fara
um borð. Þarna >ganga þeir
up>p stigann, dauðfegnir að
John Tassano og George Majors á hlaðinu fyrir framan flug-
stöðina á Keflavíkurflugvelli.
geta aftur hreiðrað um sig í
sætunum, og hugurinn hvarfl-
ar sennilega til Ameríku, sem
bíður þeirra handan hafsins.
Þegar allir eru komnir um
borð köllum við til Erlu flug-
íreyju og spyrjum, hvort
tannstönglarnir séu áreiðan-
lega komnir um borð. Hún
segir, að þeir séu á bökkun-
um — og þá er víst ekkert því
til fyrirstöðu að LeifurEiriks
son sé settur í gang og honum
flogið í vesturátt.
Farþegarnir girntust íslenzku lopapeysurnar í minjagripa-
verzluninni.
Tóniistarskoli Keflav'íkur
með 100 nemendur
TÓNLISTARSKÓLA Keflavíkur
’hefur verið slitið og próf farið
fram og reyndist árangur mjög
'góður. Nemendur héldu 2 tón-
leika innan skólans fyrir nem-
endur og foreldra þeirra og svo
almenna nemendatónleika í Bíó-
höllinni fyrir styrktarfélaga Tón-
listarfélagsins og aðra gesti. 34 af
nemendum skólans komu þar
fram og var leikið á píanó, fiðlu
óg blásturshljóðfæri, auk þess
'sem lítill kvennakór kom þar
fram ásamt 2 einsöngvurum.
Alls voru 100 nemendur í öll-
um deildum skólans og 7 kenn-
arar. Ragnar Björnsson er skóla-
stjóri og aðalkennari á píanó og
honum til aðstoðar með byrjend-
ur var Ragnheiður Skúladóttir,
Herbert Hriberschek og Gunnar
Egilsson kenndu á blásturshljóð-
færi og í barnadeild Gíja Jóhanns
dóttir á fiðlu og strengjahljóð-
færi og Hanna Bjarnadóttir
kenndi söng.
Frá því að skólinn var stofnað-
ur hefur alltaf verið um vaxandi
aðsókn að ræða og eru nemenckir
af öllum Suðurnesjum. — Tón-
listarskólinn hefur nú fengið
nýtt og gott húsnæði í æskulýðs-
húsi Keflavíkur og nýtur styrks
frá Keflavíkurbæ og Njarðvíkur-
og Garðahreppi.
í upphafi nemendatónleikanna
fiutti Helgi S. Jónsson ávarp og
Ragnar Björnsson skýrði starf
skólans og veitti verðlaun skól-
ans fyrir ástundun og mestu
framför. Lionsklúbbur Keflavík-
ur veitti verðlaun fyrir hæsta
einkunn í skólanum, sem Bene-
dikt Þórarinsson afhenti Soffíu
Eggertsdóttur úr Garði. Voru það
öll verk Schuberts.
Tónleikum nemendanna var á-
kaflega vel tekið og voru allir
ánægðir með starfsemi skólans
og framför hinna mörgu nem-
enda. — hsj.
Hestamót
GELDINGAHOLTI, 8. júnL
Sunnudaginn 21. júní n.k. efna
tvö hestamannafélög Árnessýslu
Smári í Hreppum og Skeiðum
og Sleipnir, sem starfar í neðanr
verðri sýslunni, til hestamóts
hjá Sandlæk í Hreppum. Þar
fara fram kappreiðar, góðhesta-
keppni og hestasýningar. Ef að
vanda lætur, munu koma þar
fram margir kunnir kappreiða-
hestar og góðhestar.