Morgunblaðið - 10.06.1964, Side 13
Miðvikuðagur 10. iúní 1964
MORGUNBLAÐIÐ
13
Skók
Luorasveitin og ungax siumur með iiölux.
Mixtúra
1 tónum og töluðu orði í Siglufirði
Siglufirði, 31. maí.
ÞRÁTT fyrir skammdegi vetr
arins, einangrun og atvinnu-
leysi, var líf og fjör í margs
konar menningarstarfsemi hér
í Siglufirði liðið misseri. Skól
ar störfuðu með ágætum,
barnaskóli, gagnfræðaskóli, —
iðnskóli og tónlistarskóli, tóm
stundahéimili var rekið af
miklum myndarbrag, kórar
aefðu af kappi og lúðrasveit
lék myrkrið á flótta, að ó-
gleymdu Leikfélagi Siglufjarð
ar, sem lagðist með sveinum
annars lí'fs í víking spíritism-
ans (’Leikritið „Á útleið").
Hátindur þessarar menningar
viðleitni var 40 ára afmælis-
hátíð Vísis, þar sem milli 70
og 80 söngmenn og konur,
lúðraþeytarar og aðrir tón-
framleiðendur létu til sín
heyra nú tvö kvöld á vökunni.
Maðurinn að baki þessa tón-
listarlífs er Þjóðverji, Gerhard
Schmidt, ungur að árum, en
fjölhæfur og óþreytandi í
starfi. Hann er nú á förum,
vonandi um stundarsakir, og
síðasta skemmtunin, sem hann
stjórnaði var „Mixtúra tóna og
talaðs orðs“, sem Lúðrasveit
Siglufjarðar o.fl. fluttu s. 1.
þriðjudags- og miðvikudags-
kvölds.
Sviðsútbúnaður var fenginn
(hugmyndalega séð) að láni
úr 1001 nótt, litklæði, ljósa-
dýrð, látbragðsleikur og ið-
Gautar syngja.
Ljosm. Mbl. Stgr. K.r.).
andi fjör, blandaðist lúðralþyt
og söng, öllum til ánægju og
skemmtunar, er mixtúruna
tóku inn, enda var hinn kunni
leikari Júlíus Júlíusson í hlut
verki apótekarans, sem fram-
leiddi töfradrykkinn til flytj
enda og hlustenda. Dagskráin
var þessi:
1. Mixtúra — syrpa.
2. Hættulegt lyf — mixtúran
dularfulla.
3. Kokokko — ítalskur menú
ett (fjórar fiðlur).
4. Granada — paso dobler.
5. Nautabaninn — (sjá meðf.
mynd).
6. Grettir og Glámur — Þátt
ur úr Grettissögu.
7. Gamlix kunningjar —
mars.
8. Trylltar trommur —
Trommusóló: Rafn Er-
lendsson.
9. Stjórnandinn dæmalausi
— (apótekarinn tekur við
hljómsveitarstjórn).
10. Holdið er veikti
11. Mamibo í últraljósL
12. Ástardraumur.
13. Mixtúra.
Flytjendur, auk Lúðrasveit-
ar Siglufjarðar, voru hljóm-
sveitin Gautar, leikararnir
Júlíus Júlíusson og Matta
Rósa Rögnvaldsdóttir — og
stjórnandinn ' inn austur-
þýzki Siglfirðingur Gerhard
Schmidt.
St. Fr.
Nautaatið'.
Mambó í últraljósi.
StaðarfelEsskóla sagt upp
Hiiui ungi trommutíinleikari.
HÚSMÆÐRASKÓLANUM að
I Staðarfelli var sagt upp sl. sunnu
dag. Guðsþjónusta hófst í Staðar-
' fellskirkju kl. 5 síðdegis og pré-
I dikaði sr. Ásgeir Ingibergsson í
I Hvammi. Kirkjan var þéttsetin.
Að messu lokinni hófst skólaupp-
’ sögnin með ávarpi sr. Ásgeirs,
I en hann er formaður skólaráðs.
| Síðan talaði frú Ingigerður Guð-
ijónsdóttir, forstöðukona og af-
henti námsmeyjum prófskírteini.
I Hæstar einkunnir hlutu Sigur-
Ibjörg Björnsdóttir, Reykjavík,
I 9,69 og Hólmfríður Lára Sigurð-
ardóttir, Tjaldanesi, Saurbæ, 9,36.
Hlutu þær báðar heiðursskjal frá
I Breiðfirðingafélaginu í Reykja-
| vík, ásamt peningagjöf. Þriðja
, hæsta var Kristín Samúelsdóttir,
Höllustöðum, Reykhólasveit, 9,36
' og hlaut hún bókaverðlaun frá
I forstöðukonu og manni hennar,
| Ingólfi Eyjólfssyni. — Skólahald
, gekk ágætlega í vetur. Nokkrar
»konur dvöldust um tima í skól-
lanum á vegum orlofsnefndar hús
Jmæðra í Dalasýslu, auk hinna
ireglulegu nemenda.
\ Hópur 10 ára nemenda sótti
iskólann heim við þetta tækifæri.
iFærðu þær skólanum að gjöf
/ljósastjaka, hina fegurstu gripi.
IHjónin Kristjana Ágústdóttir og
IMagnús Rögnvaldsson, vegaverk-
ístjóri, Búðardal, gáfu skólanum
(málverk eftir Kjarval. — Frk.
/Halldóra Eggertsdóttir, náms-
Istjóri, flutti ávarp við skólaslitin.
t— Handavinnusýning námsmeyja
tþótti fjölbreytt að vanda. —
^Þennan sama dag var fundur
Jhaldinn í skólaráði Staðarfells-
Iskólans og voru allir fulltrúar
imættir. Þeir eru þessir: Ásgeir
Llngibergsson, prestur í Hvammi,
-Einar Kristjánsson, skólastjóri,
Laugarfelli, Sigurður Ágústsson,
alþingismaður, og húsfreyjurnar
Elínbet Jónsdóttir, Innri-Fagra-
dal, og Steinunn Þorgilsdóttir,
Breiðabólstað. Auk þess mættu á
fundinum Ásgeir Bjarnason og
Jón Árnason, alþingsmenn, og
Friðjón Þórðarson, sýslumaður.
Rætt var um endurbætur á skóla
húsinu og uppbyggingu hans.
Húsið var allt yfirfarið hið ytra
sl„sumar, en á þessu ári verður
það endurbætt að innan. í ráði er
og að skipuleggja staðinn, undir-
búa byggingu skólastjórabústað-
ar og aukið húsrými í þarfir skól-
ans. Margar umsóknir hafa bor-
izt fyrir næsta vetur og eru horf-
ur á, að færri komist að en vilja,
þar sem skólarými er næsta tak-
markað. — Fréttaritari.
New York, 8. júní NTB—AP.
BANDARÍSKI rithöfundur-
inn, Pamela Moore, fannst í
dag# látin í íbúð sinni í New
York. Er talið, að hún hafi
framið sjálfsmorð. Pamela
Moore var 26 ára að aldri.
Hún hlaut mikla viðurkenn-
ingu er hún var 18 ára fyrir
bókina „Súkkulaði til morg-
unverðar".
Þ A Ð voru aðeins tvær skákir
sem höfðu verulega þýðingu í
10. umferð, fyrir efstu sætin. —
Reshewsky byggði upp harðvít-
uga stöðu gegn Larsen, en Dan-
inn skynjaði hættuna í tíma og
gaf skiptamun fyrir peð. Með
þessu móti tókst honum að hrifsa
til sín frumkvæðið. Vegna tíma-
hraks urðu keppendur ásáttir um
jafntefli í 30. leik, en þá virtist
mér Larsen hafa betri möguleika.
Skák þeirra Gligoric og Spassky
fylgir hér með stuttum skýring-
um.
★
í elleftu umferð sigruðu Rúss-
arnir í öllum fimm skákunum.
Smyzlof átti furðulega auðvelt
með að ná yfirhöndinni gegn
Gligoric, sem fórnaði skiptamun
til þess að halda í horfinu, en
tókst ekki.
Mjög skemmtileg var skák
þeirrá Ivkovs og Portisch. — Sá
fyrrnefndi átti peð yfir og betri
stöðu er hann valdi að þráleika
í 24. leik, vegna tímaskorts.
Hvítt: S. Gligoric (Júgóslavía)
Svart: B. Spassky (Rússland)
Spánski leikurinn.
1. e4, e5. 2. Rf3, Rc6. 3. Bb5,
Bc5. (Þessi leikur heyrir til þess
elzta í þessari byrjun. Spassky
hefur átt stóran þátt í að auka
hróður leiksins). 4. c3, f5?! (Ein-
staklega skarpur leikur, en það á
mjög vel við skákstíl Leningrad-
búans að tefla svona djarft). 5.
d4. (Gligoric velur þessa leið
sennilega af ótta við eitthvað
nýtt. Fine bendir á 5. exf5, e4.
6. d4! sem beztu leið hvíts). 5. —
fxe4. 6. dxc5, exf3. 7. Dxf3, De7.
8. Dh5f. (Leikið til þess að veikja
peðastöðu svart). 8. — g6. 9. De2,
d6. (Eftir 9. — Dxc5. 10. Bg5 á
svart í erfiðleikum). 10. 0—0, Rf6.
11. Bg5, 0—0. 12. Rd2, 12. — d5.
13. Bxc6. (Erfitt er að benda á
leið fyrir hvítt sem leiðir til betri
stöðu. Til álita kom 13. b4, en
svartur átti þá prýðilega mögu-
leika á kóngsvæng). 13. — bxc6.
14. Rf3, e4. 15. Rd4, Dxc5. 16. f3,
a5. 17. Df2. (Svartur hótaði Ba6).
17. — Ðd6. 18. fxe4. (Hvítur má
engan tíma missa, vegna hótun-
arinnar Bab og c6—c5). 18. —
Rxe4. 19. Dxf8f, Dxf8. 20. Hxf8f,
Kxf8. 21. Hflf, Kg7. 22. Bf4, Bd7.
23. Bxc7, a4. 24. a3, c5. 25. Rf3,
Bb5. 26. Hdl, Rc4. 27. Bf4, Kf6.
28. h4, Kf5. 29. Bcl, Hb8. 30. Hel,
h6. 31. Rh2, h5. 32. Rf3, Hb7. 33.
Rg5, Rxg5. 34. hxg5. 34. — d4.
(Það er athyglisvert að endatafl
sem þetta, eru oft og tíðum van-
metin, og því enda þau oft sem
jafntefli. -Ef menn reyna að
krifja stöðuna til mergjar þá
koma þeir auga á hinar geysilegu
hættur, sem hvítur þarf að var-
ast. Og það er staðreynd að
Gligoric tókst að tapa taflinu. 35.
cxd4, cxd4. 36. Kf2, Hf7. 37. Kg3,
Hb7. 38. He8, Be6. 39. Kf3. (Hvít-
ur getur ekki valdað c-línuna).
39. — Bd5f. 40. Kf2, Hc7. 41.
Bd2. Hc2. 42. Ke2, 42. — Bc4f.
43. Kdl, Hxb2. 44. Hf8f, Ke4. 45.
Hf4f, Kd5. 46. Hf6, Bd3. 47. g3,
Ha2. 48. Bcl, Bf5. 49. Hb6, Hg2.
50. Bf4, Ke4. (Hótar h4). 51. Bd6,
d3. 52. Hb4f, Kd5. 53. Bf4, Bg4f.
54. Kcl, Hc2f. 55. Kbl, Bf5! 56.
Hb5f, Ke4. 57. Bd6, Kf3. Gefið.
Hótunin d3—d2 er of sterk.
IRJóh.
Æ^kulýðsrá) Reykfavíkur
óskar að ráða íþróttakennara í 2—2 y2 mánuð frá
1. júlí. — Nánari upplýsingar veita: Formaður
Æskulýðsráðs Dalvíkur, séra Stefán Snævarr og
Jóhannes Haraldsson. Umsóknarfrestur til 20. júní.