Morgunblaðið - 10.06.1964, Qupperneq 14
14
MORGUNBLADI&
Miðvlkudagur 10. jún'i 1964
Útgefandi:
Framkvæmdast j óri:
Ritstjórar:
Auglýsingar:
Útbreiðslustjóri:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Askriftargjald kr. 90.00
í lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Sverrir Þórðarson.
Aðalstræti S.
Aðalstræti 6. Sími 22430.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
niiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiimiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimmiiiiuiiiimimiiiifmimiimimifiumimiuiiiMHimimimiiiMinuiiiuiiiMiiiimiiiiiiimiiiiiiiiimiiiiiimiuiiiiii'iiiiiiw
LITIÐ TIL FRAM-
TÍÐARINNAR
¥Tm langt skeið hafa íslend-
^ ingar verið svo önnum
kafnir við lausn efnahags-
legra vandamála, vinnudeilna
og annars óróa í þjóðfélaginu
að lítill tími hefur gefizt til
að líta til framtíðarinnar og
undirbúa þjóðina undir þær
byltingarkenndu breytingar
sem framundan eru á síðari
helmingi tuttugustu aldar-
innar.
Nú er hins vegar svo kom-
ið vegna heilbrigðrar efna-
hagsstefnu og hins ánægju-
lega samkomulags um kjara
málin, að nokkurt tóm gefst
til frá hinum daglegu vanda-
málum að takast á við við-
fangsefni framtíðarinnar.
Það sem af er þessari öld
hafa breytingarnar á lífskjör
um fólksins orðið gífurlegar,
ekki sízt hér á íslandi, þar
sem uppbygging atvinnuvega
landsmanna hefur markazt af
stórhug og dirfsku. Þessari
öru uppbyggingu hafa að
sjálfsögðu fylgt margvíslegir
erfiðleikar, svo sem eðlilegt
ar um þjóðfélag, sem verður
að stökkva inn í hinn nýja
tíma á óvenjulega stuttum
tíma. ■ )
Þær breytingar, sem orðið
hafa eru þó smávægilegar á
móts við það, sem framundan
er.
Hinar öru framfarir, sem
eru að verða í skjóli tækni-
þróunar og vísindastarfsemi
opna þjóðum heimsins nýja
og áður óþekkta möguleika
til betri lífskjara og aukinn-
ar lífshamingju. En þær
leggja einnig þjóðum heims
og þá sérstaklega hinum smáu
eins og okkur íslendingum þá
byrði á herðar að fylgjast vel
með því, sem gerist í þessum
efnum úti í hinum stóra
heimi, jafnframt því sem við
verðum að vera fljótir að til-
einka okkur það sem okkur
hentar. Annars hljótum við
að dragast aftur úr öðrum
þjóðum.
Menn verða að skilja, að
nýir tímar krefjast nýrra að-
ferða, nýrra vinnubragða, nýs
hugsunarháttar.
Það má aldrei túlka sem
óvináttu við einstakar at-
vinnugreinar, þótt á það sé
bent, að hjá þeim megi ýmis-
legt betur fara. Tækniöldin
krefst atvinnufyrirtækja, sem
eru mun stærri í sniðum en
þau sem við höfum átt að
venjast. Þeir einstaklingar
eru ekki margir hér á landi,
sem hafa bolmagn til þess
hver í sínu lagi að reisa hin
miklu atvinnufyrirtæki, sem I
Bílstjórinn skaut sendi
| herrann í bræði
vegna uppsagnar, að eigin sögn
= MINNSTU munaði, að sendi- aftur. Aðspurður kvaðst bil-
nú er þörf. Þá verða menn að
skilja nauðsyn þess að sam-
eina krafta sína til stórátaka.
Þetta er staðreynd, sem unn-
endur einkaframtaks á ís-
landi verða að gera sér ljósa.
Þeir tímar kunna að vera
liðnir þegar einstaklingar
gátu hver í sínu lagi byggt
upp stór atvinnufyrirtæki.
Þeir tímar eru ekki aðeins
liðnir hér heldur einnig er-
lendis.
íslendingar verða nú að
taka höndum saman um að
búa þjóðina undir hinar
miklu framfarir og öru breyt-
ingar, sem næstu áratugir
bera í skauti sér, með því að
taka með opnum huga á móti
þeim nýjungum, sem tækni
og vísindi hafa upp á að
bjóða og aðhæfa það íslenzk-
um aðstæðum sem okkur
hentar. Og einkaframtaks-
menn á íslandi verða að skilja
kröfur hins nýja tíma og sam-
eina krafta sína til uppbygg-
ingar nýrra og mikillaatvinnu
fyrirtækja, sem munu auka
öryggi í afkomu þjóðarinnar
og skapa henni aukna vel-
sæld á komandi áratugum.
HÆTTUÁSTAND
íSUÐAUSTUR-
ASÍU
CJtöðugt berast uggvænlegar
^ fregnir frá Suðaustur-
Asíu. Kommúnistar auka nú
mjög skæruhernað sinn í
Suður-Vietnam og ástandið í
Laos verður ískyggilegra með
hverjum deginum sem líður.
Þessi heimshluti hefur allt
frá styrjaldarlokum verið
hrjáður af hernaðarátökum,
ýmist innbyrðis eða við
Frakka, hina gömlu stjórn-
endur Indó-Kína.
í Suður-Vietnam virðist
hagur stjórnarinnar í Saigon
ekki hafa batnað til muna
eftir fráfall Diems, en þó virð
ist ríkisstjórn Kahns, hers-
hÖfðingja, nú njóta meiri
stuðnings bændanna í land-
inu en áður. En talið er, að
sá stuðningur geti haft veru-
leg áhrif á úrslit þeirra átaka,
sem fram fara í landinu.
Ýmsar hugmyndir hafa
komið fram um lausn deil-
unnar í Suður-Vietnam og
hefur í þeim efnum mesta
athygli vakið tillaga de Gaulle
Frakklandsforseta um hlut-
leysi ríkjanna í þessum
heimshluta. Það hefur að
vísu aldrei komið skýrt fram
hvernig Frakklandsforseti
hugsar sér þessa tillögu í
herra Eþíópíu á Norðurlönd-
um, Abate Egede, biði bana
af skotsárum, er bílstjóri hans
veitti honum á. heimili hans,
eftir hörkurifrildi þeirra.
Gerðist það í vinnuherbergi
sendiherrans í húsinu númer
10 við Banergatan I Stokk-
hólmi, í viðurvist sendiherra-
frúarinnar, sænskrar skrif-
stofustúlku og annars sendi-
ráðsritara, Estephanos Mulu-
geta. Bílstjórinn, Krupsky, að
nafni er sænskur ríkisborg-
ari en fæddur í Póllandi.
Hann hefur starfað hjá sendi-
ráði Eþíópíu í 13 ár og sæmdi
Haile Selassie, keisari hann
heiðursmerki fyrir vel unnin
störf, er hann heimsótti Sví-
þjóð árið 1954.
Nánari atvik munu hafa ver
ig þau, að bílstjóranum og
sendiherranum sinnaðist al-
varlega — og fór svo að sendi-
herrann kastaði blómavasa 1
höfuð bílstjórans. Faufc svo
í hinn síðarnefnda, að hann
dró upp skammbyssu sína
og hleypti af fimm skotum.
Þrjú hæfðu sendiherrann i
kviðarhol og brjóst.
Sendiherrann var þegar
fluttur í sjúkrahús og bílstjór
inn færður til yfirheyrslu, en
hann hafði beðið lögreglunnar
hinn rólegasti.
Bílstjórinn hefur borið að
ástæðán til rifrildis hans og
sendiherrans hafi verið sú, að
honum var sagt upp starfi.
Staðhæfir hann, að sendi-
herrann hafi kastað blóma-
vasa i höfuð hans og þá hafi
honum þótt nóg komið og
gripið til skambysíljnnar.
Ekki hafi hann í fyrstu hæft,
svo sem honum lífcaði en
komið hafi til slagsmála, áð-
ur en honum tækist að skjóta
stjórinn jafnan bera á ser
byssu.
Sendiherrafrúin bar, að hún
hefði sjálf kastað blómavas-
anum í höfuð bílstjórans eftir
. að hann tók upp byssuna.
Orðrómur hefur risið um,
að afibrýðissemi hafi átt ein-
hvern þátt í þessum afdrifa-
rífcu átökum, en yfirmaður
morðmáladeildar lögreglunn-
ar í Stokkhólmi, G. W. Lars-
son, telur fráleitt ag svo sé.
Sem fyrr segir er bílstjór-
inn sænskur rífcisborgari, 61
árs að aldri, fæddur í Pól-
landi. Hann hefur starfað við
sendiráð Eþíópíu í mörg ár
og þegar Haile Selassie, keis-
ari heimsótti Svíþjóð sæmdi
hann bílstjóra þennan orðu
og gullmerki sem viðurkenn-
ingu fyrir dygga þjónustu.
Agede sendiherra hefur
dvalizt í Stokkhólmi ásamt •
eiginkonu og þrem börnum
frá því í apríl 1962. Hann er
sendiherra hjá Skandinavíu-
rífcjunum öllum með aðsetri í
Stokkhólmi. Áður var hann
sendiráðsstarfsmaður í Wash-
ington og meðlimur sendi
nefindar lands síns hjá Sam-
einuðu þjóðunum.
ÞETTA er ekki í fyrsta
sinn sem sendiherra Bþíópíu
1 Stokkhólmi sér blöðum fyrir
meiri háttar fréttum, því að
haustið 1960 vakti þáverandi
sendiherra mikla athygli í
sambandi við byltingartil-
raunina, sem gerð var í
Eþíóptu, að keisaranum fjar-
verandi. í fyrstu leit út fyrir
að byltingin hefði tekizt og
lýsti sendiherrann í Stokk-
hólmi því þá yfir, að hann
hefði rofið trúnað við keisar-
ann og fagnaði byltingunni.
Veirur og krabbamein
Aðalumræðuefni ársfundar
Sambands krabbameins-
féiaganna á Mordurlöndum
Abate Egede.
Nokkrum dögum síðar var 3
byltingin bæld niður og sendi =
herranum vísað frá. Síðan héf =
ur hann og fjölskylda. hans =
verið búsett í Svíþjód sem 3
pólitískir flóttamenn. 3
......................IIIIIIIIIIH.Illllllll.IMIIIIIIIIII.IIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIII.IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIHIIIIIIIIIIIIIU.III.HIHIIUMÍ
framkvæmd, en þó virðist
margt benda til þess að henni
sé eingöngu ætlað að ná til
Suður-Vietnam.
Það ástand, sem þessa dag-
ana ríkir í Laos gefur vissu-
lega ekki mikla ástæðu til
bjartsýni um, að hlutleysi
Suður-Vietnam mundi verða
til annars en að tryggja yfir-
ráð kommúnista yfir landinu,
en þeir eru berir að því að
svíkja alla þá samninga, sem
þeir hafa gert um hlutleysi
Laos.
Það er nauðsynlegt að
menn geri sér ljósar afleið-
ingar þess, ef staða hins
frjálsa heims versnar til muna
í Suðaustur-Asíu, en það
mundi að öllum líkindum
verða til þess að Peking-
stjórnin yrði hið ráðandi afl
í þessum heimshluta og lönd
eins og Malaysía og Indó-
nesía verða í bráðri hættu.
Þess vegna ber brýna nauð-
syn til að ekki sé hvikað frá
þeirri línu sem dregin hefur
verið og árásum kommúnista
á Suður-Vietnam og Laos
verði hrundið.
Stokkhólmi, 8. júní (NTB)
1 DAG hófist í Saltsjöbaden fyr-
ir utan Stokkhólm ársfundur
Sambands krabbameinsfiélaga á
Norðurlöndum, sem standa mun
yfir í tvo daga. í fundinum taka
þátt sjötíu krabameinssérfræð-
ingar frá Norðurlöndum öllum
og verður helzta umræðuefnið
„Veirur og krabbamein“. Munu
umræður byggjast fyrst og
fremst á niðurstöðum rannsókna
síðustu ára á veirum sem krabba
meinsvaldi.
Af Islands hálfu sitja þennan
fund Bjarni Bjarnason, læknir,
varaformaður Krabbameinsfé-
lags íslands, Halldóra Thorodd-
sen, ritari félagsins, og Margrét
Guðnadóttir, læknir og sérfræð-
ineur í veirurannsókuum.
Stjdrnarmyndun
í Finnlondi?
★ VONIR sianda til a« hægt
verði að mynda nýja stjörn í Finn
landi í dag eða á morgun. Þingi
verður slitið annað kvöld og þaH
kemur ekki sanian að nýju fyrr
en i september, svo að allt kapp
verður lagt á stjórnarmyndun
fyrir þingslit.
Tillögur hafa verið lagðar fyrir
formenn stjórnmálaflokkanina mn
myndun rikisstjórnar, undir for
sæti Dr. Johannes Virolainena
varaformanns bændaflokksins
þar sem sjö ráðherrar verði úr
bændaflokknum, þrir úr ihalds-
flokknum, tveir úr sænska þjóð-
flokknum og tveir úr hinun*
finnska, auk eins ráðherra ataaa
flokka.