Morgunblaðið - 10.06.1964, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ
Miffvikudagur 10. iúní 1964
AÐALFLMDUR
Kaupmannasamtaka íslands 1964 verður haldinn í
suðursal Hótel Sögu í.mmtudaginn 11. júní og hefst
kl. 14.
DAGSKRÁ:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Viðskiptamálaráöherra
Doctor Gylfi 1». Gíslason heimsækir fund-
inn og flytur ávarp.
Fulltrúar og félagar eru hvattir til þess að mæta
stundvíslega.
Framkvæmdastjóm.
DURIUM
MURBORAR-
HVAÐ ANNAÐ
Enginn Bor hentar betur til að bora I múr-
stein, tigulstein, þakplötur, sementssteypu
o.þ.h. heldur en DURIUM Borinn. Hann má
nota í handsveif eða rafmagndbor. Nettasti
og hraðvirkasti múrbor sem gerður hefur
verið. Allar stærðir. Langir borar allt að 16
tommu dýpt.
THE RAWLPLUG CO. LTD.,
Cromwell Road, London, S.W.7
Umboðsmadur fyrir Islandi:
John Lindsay, Austurstræti 14,
Reykjavik. Pósthólf 724. Simi 15789
Skor fra Clarks
eru vandaðir og
þægilegir.
Nýkomið fallegt
úrvaL
SKðVAL
Austurstr. 18.
Þorsteinn Halldórsson
ÞORSTEINN Halldórsson, ís-
firski bóndinn og frændi minn
lézt síðastliðinn vetur. Af því
langar mig að senda honum
hinztu kveðju mína á þessum
vettvangi.
Þorsteinn var fæddur að Mið-
húsum í Reykjafjarðarhreppi
29. júlí, 1899 og var þar til heim
ilis, er hanu lézt 26. febrúar
1964.
Hann var jarðsunginn frá
Vatnsfjarðarkirkju 6. marz.
Þorsteinn var sonur hjónanna
Halldórs Sigurðssonar og í>ór-
dísar Guðmundsdóttur. Hann
ólst upp í stórum systkinahópi
hjá foreldrum sínum, en fór
snemma að vir.na fyrir sér o»
14 ára að aldri var hann orðinn
fullgildur vinnumaður, því að
drengurinn var efnilegur, stór
og sterkur og varð brátt hinn
ágætasti verkmaður.
Árið 1924 stofnsetti Þorsteinn
sitt eigið bú að Vogum við ísa-
fjörð ásamt heitkonu sinni Ingi-
björgu Sigurðardóttir, ættaðri
úr sömu sveit og sem ennþá lif-
ir mann sinn eftir 45 ára sambúð.
í Vogunum byggðu þau hjón
nýjan bæ og útihús.
Vogar voru of lítil jörð fyrir
slíkan athafnamann, sem Þor-
steinn var. Flutti hann því bú
sitt árið 193”, yfir að Hörgshlíð
í sömu sveit, sem var stærri og
slægjumeiri jörð. Þar bjuggu
þau hjónin tÞ ársins 1948, að
þau brugðu búi og fluttu að Mið
húsum og hafa átt þar heima
síðan.
Þrátt fyrir erfiða búnaðar-
hætti þeirra tíma bjuggu þau
hjón góðu búi, eftir því sem þá
tíðkaðist. Einyrkjabúskapur,
sem byggist eingöngu á manns-
aflinu, eins og þá gerðist áður
en búvélarnar komu til sögunn-
ar, hefur löngum verið erfiður.
Leit að slægjum upp um fjöll
og heiðar, margra tíma lestar-
gang frá bænum, kostaði lang-
an vinnudag og mikið erfiði
sömuleiðis umönnun öll fyrir
mörgu sauðfé og stóru búi. Það
kom sér því vel fyrir Þorstein,
að hann var þrekmaður mikilí
og rammur að afli, því að oft
þurfti að binda bagga og koma
þeim til klakks, þar sem reiðings
hesturinn og mannslíkaminn
voru þá einu flutningatækin á
landi.
Þorsteinn var fyrst og fremst
maður starfsins, vinnufús og af-
kastamikill, enda vinnan þá ekki
síður err nú undirstaða lífsgæð-
anna og hanúngja mannsins. Á
Þorsteini frænda mínum fynnst
mér sannast bezt orð skáldsins
Bjarna Gíslasonar er hann segir:
„Sá spinnur sterkastan þjóð-
lífsþáttinn, sem þjálfar aflið
hvern skínandi dag, rís upp
með sól en fer síðast í háttinn
og semur lítt við sinn eigin hag.“
Þannig var Þorsteinn. Hann
gerði miklar kröfur til sjálfs
sín og bjó yfir miklum dugnaði
til að uppfylla þær. Hann lifði
sig inn í störf sín og umhverfi
heill og óskiptur og áttu þau
hjón eitt m.a. sameiginlegt, en
það var átthaigatryggðin.
Engin heillandi vonarlönd bak
við sjóndeildarhringinn freist-
uðu þeirra að fiytja burt úr átt-
högunum. Fæðingarsveit sinni
voru þau bundin órofa böndum
sem ekkert íær slitið, ekki einu
sinni dauðinn sjálfur, því að
moldin geymir það sem hennar
er en minningin lifir meðal kom
andi kynslóða.
Ættu byggðir íslands marga
slíka rótfasta stofna sem þau
hjón, væru mörg blómleg byggð
arlög gædd meira mannlegu lifi
en nú eru.
Umhverfið, sveitin kringum
ísafjörð innst í ísafjarðardjúpi
býr líka yfir sínum seiðmögn-
uðu áhrifum. Kjarngóð grös,
kyrrð vormorgunsins og kaldur
svali norðursins eru þær línur,
sem skírastar eru í minningu
Isfirðingsins er hann rennir hug-
anum heim til æskustöðvanna.
Það er víst að Hrafna-Flóki hefði
nefnt Isafjörð öðru nafni, efhann
hefði verið þar fæddur og uppal-
inn, en þegar hann leit hann í
svip af hálendi Véstfjarða full-
ann af ís. En þökk sé Flóka fyrir
það hreina og heiðskíra nafni,
sem er nátengdast sjálfu íslandi.
Þau hjón Ingibjörg og Þor-
steinn eignuðust tvær dætur,
Elínu, er dó í blóma lífsins 21 árs
að aldri og Guð'björgu, sem er
gift Sigfúsi Valdemarssyni og bú
sett á ísafjarðarkaupstað.
Bifreiðastöð Sfeindórs
vill selja
Kaiser fólksbifreið, model 1954, með ný uppgerðri
vél. Selst ódýrt. — VOL.VO 26 manna, model 1939,
með nýrri Chevrolet vél. Selst ódýrt. — Upplýsing-
ar í síma 18585.
Blöðrur - Blöðrur
10 TEGIJNDIR.
17. júní flögg
Heildsölubirgðir:
Eiríkur Ketilsson
Garðastræti 2. — Sími 23472.
Ég kom til Þorsteins frænda
mins sjö ára gamall og var hjá
honum á hverju sumri eftir það
til fjórtán ára aldurs. Naut ég
þar umönnunar og ástríkis
þeirra hjóna og ömrnu minnar,
en hún dvaldi hjá Þorsteini syni
sínum eftir að hún hætti bú-
skap, til dauðadags. Hjá honum
lærði ég fyrstu handtökin og að
bera virðingu fyrir hinu daglega
starfi. Með okkur batzt sérstök
vinátta, sem entist æ síðan og
eftir því sem árin liðu jókst virð
ing mín fyrir honum. Hef ég
alltaf talið hann sem minn ann-
an föður. Fyrir það allt vil ég
færa honum mitt hjartans þakk-
læti og óska að minningin um
þennan góða dreng megi alltaf
lifa.
Konu Þorsteins, minni gömlu
og góðu húsmóður, dóttir hans
og öðrum ættingjum og vinum
ásamt æskustöðvunum sendi ég
mína innilegustu samúðarkveðj-
ur vegna fráfalls hans.
Lifðu heill á landi ódauðleik-
ans kæri frændi.
Halldór Benediktsson,
frá Hnífsdal.
ALLTMEÐ
EIMSKIP
A NÆSTUNNI ferma skip vor
til íslands, sem hér segir:
NEW YORK
Selfoss lil.—17. júni
Brúarfoss 2.—8. júlí
Dettifoss 23.—29. júlí
KAUPMANNAHOFN
Reykjafoss 10,—11. júní
Gullfoss 11.—12 júnL
Gullfoss 25.—26 júní.
Gullfoss 9.—10. júlí.
LEITH
Gullfoss 15. Júnf.
Gullfoss 29. júní.
Gulíoss 13. júií.
ROTTERDAM
Goðafoss 12.—13 júní.
Dettifoss 18.—19 júnL
Mánafoss 29.—30. júní.
Selfoss 9.—10. júlí.
Mánafoss 20.—21. júli.
HAMBORG
Reykjafoss 15. júní.
Dettifoss 21.—24 júní.
Reykjafoss 3.—4. júlí.
Selfoss 13.—15. júlí.
ANTWERPEN
Goðafoss 11. júní
Mánafoss 27. júní
Mánafoss 1.8. j úlí
HULL
Goðafoss lö.—17 júní.
Reykjafoss 8. júlí.
Reykjafoss 29. júlá
GAUTABORG
.... foss um 6 jú'lí
KRISTIANSAND
Reykjafoss 13. júlí
....foss um 7 júlí
VENTSPILS
Fjallfoss 10. júní
Tunguíoss 29.—30. júní.
LENINGRAD:
Fjallfoss 16.—18 júní.
GDYNIA
Lagarfoss 27.—29 júná
EOTKA:
Fjallfoss 13.—15. juná
Tungufoss 2.-4. júlí.
VÉR áskiljum oss rétt til að
breyta auglýstri áætlun, ef
nauðsyn krefur.
Góðfúslega a t h u g i ð að
geyma auglýsinguna.
HE EIMSKIPAFÉLAG
ISLANDS