Morgunblaðið - 10.06.1964, Síða 26
26
MORCUNBLAÐIÐ
r
Miðvikudagur 10. Júní 1964
“ ’ “ v S w** m * ’**' ** «**>••«* * m m ** “ 91 ........... ................ ................ wiw<i.v4m*m*i J
Jónasarmót ÍSt í sundi á Baugardag:
Þrír sundmenn koma frá
Danmörku og Svíþióð
Fimmtugt afmælisharn synd-
ir endasprett í boðsundi
Á LACGARDAGINN efna
ÍR-ingar til sundmóts í Sund
laug Vesturbæjar. Er það svo
nefnt „Jónasarmót" baldið
til heiðurs Jónasi Halldórs-
syni sem í rúmlega 20 ár hef-
ur þjálfað ÍR-inga en er nú
senn að láta af þeim störfum.
Fá ÍR-ingar hingað bezta
sundmann Svía, Jan Lundin,
beztu sundkonu Dana, Kir-
sten Strange og bjóða auk
þess Herði B. Finnssyni, kunn
um ÍR-ingi, sem verið hefur
við vinnu og sundæfingar í
Stokkhólmi í hálft annað ár,
hingað heim og vera má að
hann verði fyrsti fslendingur
inn til að ná lágmarki til
Olympíuleikanna í Tokíó.
ár Góður ferill
ÍH -ingar telja Jónas Halldórs-
son eiga alveg sérstæðan feril
að baki í ísl. sundíþrótt. Fyrst
Argentína
1
vann
ARGENTÍNA vann England
í „litlu heimsmeistarakeppn-t
inni“ s.I. laugardag með 1—0.
Með þeim sigri vann Argen-
tina keppnina, vann alla sina
leiki og fékk ekki á sig eitt
einasta mark, en skoraði 6.
Englendingar voru heldur ó-
heppnir í þessum leik gegn
Árgentínu og gefa úrslitin
ekki rétta mynd af gangi leiks
ins. Brazilia vann Portúgal
með 4—1 og urðu endanleg !
úrslit í keppninni þessi: ‘
Argentína 3 3 0 0 6—0 6
Brazilía 3 2 0 1 9—5 4
England 3 0 1 2 2—7 1
Portúgal 3 0 1 2 2—7 1
var hann um 15 ára skeið ókrýnd
ur konungur sundsins hér á
landi og setti 57 íslandsmet, sem
var algert einsdæmi. Síðar hefur
hann um 20 ára skeið verið þjálf
ari og áunnið sér frægðarorð
fyrir, eins og verk hans —- í stór-
um hópi afreksfólks á sundsvið-
inu — tala skýrustu máli um.
Af þessu segjast ÍR-ingar vilja
kveðja hann vel fimmtugan* og
þakka honum óeigingjarnt og
vel unnin störf fyrir félagið. ÍR
hefur á undanförnum árum átt
sterkasta sundfólkinu á að skipa
og oft hefur það komið fyrir að
Guðm. Gíslason, Hörður Finns-
son og Hranfnhildur Guðmunds
dóttir hafi unnið allar greinar
fullorðinna á sundmótum, en
þessi þrjú eru öll félagar í ÍR
og nemar Jónasar.
Á Erlendir gestir
Erlenda sundfólkið sem hing-
að kemur er sem hér segir:
Jan Lundin, 21 árs, banka-
starfsmaður, Stockholmspolisens
I. F. Beztu tímar á 25 m braut:
100 m skriðsund 55,8 sek., 200
m skriðsund 2:00,6, sænskt met,
400 m skriðsund 5:23,3 (aðeins
0,3 sek frá meti H. Rosendahl),
100 m flugsund 1:01,5 mín.,
100 m baksund 1:06,6 —
200 m fjórsund 2:22,2 —
Jan Lundin var kjörinn bezti
sundmaður Svía árið 1863. Hann
var í sigursveit á Evrópumeist-
aramótinu í Leipzig 1962, er
þeir settu frábært Evrópumet í
4x200 m skriðsundi. Lundin tví-
sló sænska metið á 400 m skrið-
sundi s.l. sumar á 50 m braut.
Rirstein Strange, 20 ára, nem-
andi, USG, Kaupmannahöfn.
Beztu tímar 100 m skriðsund
1:04,2 mín. danskt met, 100 m
flugsund 1:12,3 mín., 200 m
bringusund 2:59,0 mín.
Kirstein Strange hefur einu
sinni áður komið til fslands, 1960
og þá í boði ÍR. Hún hefur verið
bezta skriðsundkona Dana nú í
um 6 ár, og nú í ár hefur hún
tekið miklum framförum í flug-
sundi, og er nú ein sú bezta á
Norðurlöndum. Kirstein mun að
eins synda hér laugardaginn
13.6. þar sem hún verður að
fara héðan strax á mánudags-
morgun til Osló til keppni þar
á alþjóðlegu móti.
Hörður Björn Finnsson, 22
ára, skrifstofumaður, hefur
keppt og æft hjá Stockholms-
polisens I F, nú í eitt og hálft ár.
Var meiddur á fæti meirihlutan
af keppnistímabili fyrra árs, en
hefur í ár verið nær ósigraður
á 100 og 200 m bringusundi í
Svíþjóð, og varð meðal annars
sænskur meistari á 200 m bringu
sundi 2:38,1 (meistaramóts met-
jöfnun) nú í s.l. marz. Hörður
Framhald á bls. 27
Hörður Finnsson, ÍR, Norðurlandamethafi í 100 og 200
bringusundi og sænskur meistari í 200 m.
Knattspyrnumenn puría súrefni
- og langhlauparar gefast upp
Bairrfarískur prófessor harð-
orður um OL i Mexico City 1968
DR. Ernst Jokl bandarískur há-
skólaprófessor flutti nýlega er-
indi þar sem hann gagnrýndi
harðlega að Mexico City skuli
hafa fengið það hlutverk að sjá
um Olympíuleikana 1968. Sagði
hann að keppni í 2133 m hæð
myndi hafa í för með sér alvar-
lega truflanir á hjartastarfsemi
íþróttafólksins.
Prófessorinn sagði að rann-
sóknir sýndu að íþróttafólkið
þyrfti 2 og hálfs mánaðar dvöl
í landinu til að venjast loftslag-
inu svo að það geti tekið þátt
í keppni. Aðeins þær niðurstöður
eru nægilegar til að réttlæta
breytta ákvörðun og flytja leik-
ana til.
Alveg síðan alþjóða-Ol-nefnd
in greiddi atkvæði með því að
Mexico City fengi framkvæmd
OL-leikana 1968 hafa víðs vegar
að borizt kvartanir og áskoranir
um að ákvörðuninni yrði breytt
vegna aðstæðna í borginni. Aðal
lega eru það frjálsíþróttamenn
sem kvarta. Spretthlauparar
geta haft nokkurn hagnað af-
rekslega séð af þunnu lofti en
hið þunna loft mun valda öllum
keppendum í 800 m hlaupi og
þaðan af lengri hlaupum ó.fyrir-
sjáanlegum afleiðingum. Ekki
horfir betur fyrir sundmönnum,
hjólreiðamönnum og fl. og knatt
spyrnumenn munu ekki geta
leikið af fullum krafti heilan
leik án þess að fá súrefnisgjöf
í hálfleik.
Dr. Joki gagnrýndi alþjóða
OL-nefndina fyrir að gefa ekki
vandanum sem af þunna loftinu
stafar nánari gaum áður ren
ákvörðun var tekin um leikana
í Mexico City. Kvað hann nefnd-
armenn sennilega hafa verið 1
hrifningarvímu yfir gestrisnum
Mexicomönnum og bætti við að
í fyrsta sinn í sögu leikanna
hefðu Nepal menn nú mikla sig-
urmöguleika.
Þessar svipmyndir eru frá knattspymuieiknum í Laugardal í fyrrakvöld er Middlesex Wanderers gersigruðu illa uppstillt lið landliðsnefndar KSÍ. Leikara-
skapur eins og átti sér stað með valið í liðið á sennilega eftir að verða knattspymuíþróttinni dýr því mörgum ofbauð. Á annarri myndinni er Jón Jóhannson
miðherji með knöttinn. Hann vakti oft athygli fyrir ákveðni og skarpan íeik þó enn skorti á knatttæknina. Á hinni er Heimirheldur seinn til að verja skot
Gandeys útherja. Það var 2. mark Breta. — Ljósm. Sveinn Þorm.