Morgunblaðið - 10.06.1964, Síða 28
Stúlkumvnd Ólafar Pálsdóttur í garðinum framan við Kvennaskólann. Á myndinni sjást frá
vinstri: Knútur Bruun, fulltrúi, Hafliði Jónsson, garðyrkjustjóri, Kagnar Jónsson, framkvæmda-
stjóri Lístahátíðarinnar og Geir Haligrímsson, borgarstjórú (Ljósm. Mbl. Sv. Þ.)
Tvær nýjar höggmyndir settar upp í Reykjavík:
Útlagar Einars Jónssonar
Stúlkumynd Úlafar Pálsdóttur
TVEIMUR höggmyndum hefur
verið komið fyrir í Reykjavíkur-
borg, Útlögum eftir Einar Jóns-
son, sem stendur á grasflötinni
sunnan við gamla kirkjugarðinn
við Suðurgötu, og stúlkumynd
(Soffiu) eftir Ólöfu Pálsdóttur,
sem sett hefur verið upp fyrir
framan Kvennaskólann við Lækj
argötu. Geir Hallgrímsson, borg-
arstjóri, sagði að þótt hefði til
hlýða að setja þessar höggmynd-
ir upp nú í tilefni Listahátíðar-
innar og voru framkvæmdastjóri
hátíðarinnar og formaður Banda
lags listamanna í hópi gesta, er
borgarstjóri og borgarráð sýndu
stytturnar, er settar voru upp í
fyrrinótt.
i>í voru einnig skoðaðar tvær
höggmyndir, Móðir jörð og Syst-
urnar eftir Ásmund Sveinsson,
sem komið var fyrir í Laugar-
dalsgarðinum í vor. Einnig
skýrði borgarstjóri frá þvi, að í
sumar mundu tvær aðrar stytt-
ur verða settar upp í Reykjavík-
urborg, Hesturinn eftir Sigurjón
Ólafsson, sem er í steypingu í
Noregi og verður komið fyrir
á Hiemmi, og stytta af Einari
Benediktssyni skáldi eftir Ás-
mund Sveinsson. sem verður af-
hjúpuð á Klambratúni á 100 ára
afmæiisdegi skáldsins i haust.
Stúlkumyndina eftir Ólöfu Páls
dóttur, keypti Reykjavíkurborg
og hefur látið steypa hana í
bronz. Það er telpumynd, sem
fer einkar fallega á fremur háum
granít stalli í tTjágarðinum fyrir
framan Kvennaskólann. Þessa
sömu höggmynd keypti Árósa-
borg í Danmörku á sínum tíma
og prýðir samskonar bronzaf-
steypa einnig þá borg.
Styttunni Útlagar eftir Einar
Jónsson er komið fyrir á stórum
steini úr Öskjuhlíðinni á gras-
flöt sunnan við gamla kirkjugarð
inn. Horfir útlaginn, sem mynd-
in sýnir með barn sitt í fang-
inu og konuna látna á bakinu,
í áttina að Hringbrautinni, en
trjálundur myndar baksvið. Borg
arstjóri skýrði frá því að stytt-
an hefði verið steypt í kopar
„ /
i mm
Útlagar Einars Jónssonar sunnan gamla kirkjugarðsins.
(Ljósm. Mbl. Sv. Þ.)
fyrir gjafafé írá forstjórum Nýja
bíós, Bjarna Jónssyni og Guð-
mundi Jenssvnj, í tilefni af af-
mæli fyrirtækisins og fyrir á-
góða af listaverkabók, sem
Norðri gaf út.
Styttunum eftir Ásmund
Sveinsson hefur verið komið
fyrir á grasflötum í Laugardals-
garðinum. Móður jörð keypti
Reykjavíkurborg af listamannin-
um í tilefni af 70 ára afmæli
Flugvélin sentist hundrað
metra eftir jörðu
— en flugmaðurinn slapp ó-
meiddur og vélin lítt skemmd
A MÁNUDAGSKVÖLDIH vildi
það til í Hvalfirði, í hlíðinni
skamrnt frá Ferstiklu, að áburðar
dreifingarflugvél Sandgræðslunn
ar hlekktist á. Var flugmaðurinn
nýbúinn að sleppa áburðarfarm •
inum er óhappið varð, en þá tók
vélin niðri af elnhverjum orsák-
um. Þeyttist hún í loftköstum
yfir stokka og steina, um 100
metra, en nam síðan staðar. Hið
furðulega gerðist að flugmaður-
inn slapp án þess að fá srvo mikið
sem skrámu, og sjálf er vélin til-
tölulega lítið skemmd. Er þetta
talið ganga kraftaverki næst,
ekki sízt með tilliti til þess að
í áburðardreifingarfiugi er alla
Minnisvarði vegna
afmæiis lýbveídisins
Á BORGARRÁÐSFUNDl í gær
var lögð fram tillaga frá þjóðha-
tíðarnefnd um að reistur verði
minnisvarði í tilefni af 20 ára
afmæli lýðsveldisins og verði
hann tilbúinn á 25 ára afmælinu.
Er gert ráð fyrir samkeppni um
gerð minnisvarðans, en ekki er
nánar tiltekið um gerð þessa
minnisanerkis.
Þjóðhátíðarnefnd varðveitir
sjóð, sem myndast hefur af sölu
lýðveldismerkjanna og mun nú
vera á 8. hundrað þúsund og er
ætlunin að hann verði notaður
í þessu skyni.
Geir Hallgrímsson, borgar-
stjóri, sem átti tal um þetta við
fréttamenn, taldi ekki fráleitt að
slíkt minnismerki mundi fara
vel í nánd við fyrirhugað ráð-
hús Reykjavíkurborgar.
jafna flogið mjög lágt yfir jörðu,
og slíkt flug er t.d. í Bandaríkj-
unum talið áhættusamasta flugið
þar i landi.
Áburðardreifingarflugvélin er
af Super-Cub gerð. Eru þa<5
tveggja sæta vélar, en í aftursæti
er komið fyrir áburðartanki, sem
rúmar ?.00 kg. af áburði.
Flugmaðurjnn, Arni Guðmunds
son frá Múlakoti í Fljótshlíð, er
vanur áburðardreifingu, hefur
flogið undanfarin ár þessari vél.
Var hann þarna að bera á hlíð-
ina fyrir ofan veginn skammt frá
Ferstiklu, en Strandarhreppur
mun bera kostnaðinn við það.
Framhald á bls. 27
hans og hefur nú látið steypa
hana í kopar. Og styttan af Svstr
unum er samskonar afsteypa
sem Reykjavíkurborg gaf Akur-
Framh. á bls. 27
Höggmyndin Systurnar eftir
Asmund Sveinsson.
Móðir jörð Ásmundar Sveinssonaj- í Laugardalsgarðinum. Hinum ungu Reykvíkingum
myndin greinilega forvitnileg. (Ljósm. Mbl.