Morgunblaðið - 11.06.1964, Side 1

Morgunblaðið - 11.06.1964, Side 1
24 síðun ?f:!:S3»*llN#£Jiiiii^ í jafn ágætu sumarveSri og var í gær er fátt skemmtilegra eða meira hressandi en að bregða sér í Nauthólsvikina. Enda létu margir verða af því, eins og þessar stúlkur, sem virðast skemmta sér konung- lega. — (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.) DaiGiir hækkc! vexfti Kaupmannahöfn 10. júní. (NTB). DANSKI landsbankinn ákvað í dag að hækka forvexti um eitt prósent, og frá og með morgun- deginum 11. júní verða þeir 6%. Öldungadeildin hættir þófi um mannréttindafrumvarpið — vonazt er til qð þoð verð/ afgreitt fyrir þjóðhátíðardag USA 4. júli Washington, 10. júní. — (AP-NTB) — í D A G samþykkti Öldunga- deild Bandaríkjaþings að hætta málþófi um frumvarp- ið um jafnrétti allra borgara Bandaríkjanna. Lögð var fram tillaga um að málþófi skyldi hætt og hana sam- þykktu 71, en 29 voru á móti. Til þess að ná fram að ganga þurfti tillagan tvo þriðju at- kvæða . I>að eru öldungadeildarþing- menn frá Suðurríkjunum, sem haldið hafa uppi málþófi í deild- inni um mannréttindafrumvarp- ið, til þess að tefja afgreiðslu þess. Frumvarpið hefur verið til umræðu á 7á fundum. Samþykktin í dag er talin benda til þess að mannréttinda íbúar Sovétríkjanna samgleðjast Valentinu og Ádrian Nikolayev Geimfarar eignast dóttur Moskvu 10. júní. (NTB-AP) FYRSTA og eina konan, sem farið hefúr út í geiminn, Val- entina Tereskova-, eignaðist dóttur í sjúkrahúsi í Moskvu sl. mánudag, en ekki var til- kynnt um fæðinguna fyrr en í dag. Mæðgunum líður vel, en barnið var tekið með keis- araskurði. Maður Valentínu er geimfarinn Andrian Niko- layev. íbúar Sovtéríkjanna fögn- uðu í dag barni geimfaranna, og móður og dóttur bárust blóm og heillaóskir í þúsunda tali. Nikolayev fékk að heim- sækja konu sína sama daginn og barnið fæddist, en það er alger undantekning í Sovét- ríkjunum. Feður fá venjulega ekki að sjá börn sín fyrr en á öðrum degi. Nikolayev sagðist vera mjög hamingjusamur og allt sitt líf hafa dreymt um að eignast dóttur. Valentína segist einn- ig hafa óskað þess að barnið yrði stúlka. Talsmenn sjúkrahússins segja að litla stúikan hafi vegið rúmar 12 merkur, sé dökk- hærð og svipi til beggja for- eldra sinna. Telpan fæddist nokkru fyr- ir tímann, en fyrirtímafæðing- ar eru algengar í fjölskyldu Valentínu. Móðir hennar, sem er ekkja, kom til Moskvu í dag til þess að sjá barnabarn sitt. Valentína og Nikolayev gengu í hjónaband í byrjun nóvember sl. og við það tæki- færi sagði Krúsjeff, forsætis- ráðherra, m.a.: „Ef þið eignist einhvern tíma barn, mun ekki vanta gjafirnar.“ Valentína er 26 ára og fór geimferð sína fyrri hluta árs 1963, en Nikolayev, sem er 34 ára, fór í geimferð 1962. frumvarpið nái fram að ganga innan skamms. Með henni er ræðutími hvers þingmanns tak- markaður við eina klukkustund og talið er að umræður um frumvarpið standi hálfan mán- uð í viðbót. Ef öldungadeildin samþykkir mannréttindafrumvarpið verður það lagt fyrir sameinað þing beggja deilda og þar þarf að jafna allan ágreining, sem milli þeirra er um frumvarpið. Að lok um þurfa deiidirnar báðar að samþykkja það á ný. Ýmsir hafa látið í ljós von um, að lokið verði afgreiðslu frumvarpsins fyrir næsta þjóðhátíðardag Banda- ríkjanna, 4. júli. Síðasti Öldungadeildarþing- maðurinn, sem flutti ræðu áður en samþykkt var að hætta mál- þófi var Robert Byrd frá Vest- ur-Virginiu. Hann hafði orðið í 14 klukkustundir og í alla nótt Alvar- | legt ástand | - segir Kekkonen [ Helsingfors, 10. júní (NTB).| JOHANNES Virolainen full- | ; trúi finnska Bændaflokksins, = I sem Kekkonen forseti fól | : stjómarmyndum s.l. mánu- I : dag, skýrði frá því í dag, að 1 ! hann hefði gefizt npp við að | : mynda meirihlutastjórn borg i ! araflokkanna. j Virolainen kvaðst vera | \ þeirrar skoðunar, að ekki E j væri heldur unnt að mynda | í meirihlutastjórn undir for- | : ystu fulltrúa annars flokks. i É Þegar Virolainen skýrði i i Kekkonen frá þessu kvaðst i i forsetinn telja ástandið íi | stjórnmálum landsins mjög | i alvarlegt, og sagðist hafa | i litla von um að stjórnarmynd | i un muni takast á næstunni. | var hann nær einsamall í fund- arsalnum. Samkvæmt útreikningum, sem gerðir voru fyrir skömmu hafa undanfarna þrjá mánuði verið töluð 8 milljón orð í öldunga- deildinni um mannréttindafrum- varpið, en það sjálft er um 15 þús. orð. Við atkvæðagreiðsluna í dag greiddu 44 demókratar og 27 repúblíkanar atkvæði tillögunni um að málþófi skyldi hætt, en á móti voru 23 demókratar og 6 repúblikanar, þar á meðal Framh. á bls. Mikil flóð í USA Great Falls, Montana 10. júní (NTB-AP). MIKIL flóð hafa gengið yfir rikið Montana í Bandaríkjun- um undanfarna daga. Vitað er um 30, sem látizt hafa af völd- um flóðanna en þúsundir hafa misst heimili sín. Tjón á öðr um mannvirkjum t.d. brúm og stíflum er talið nema milljón um dollara 20 látast af völd- um óveðurs á ftalíu Róm, 10. júní (NTB). AÐ minnsta kosti tuttugu manns létu lífið í óveðri, sem gekk yfir Norður-ltalíu s.I. mánudag og þriðjudag. Vni fimmtiu særðust í veðrinu og nokkurra er sakn- að. Mjög mikið rok var á N,- Ítalíu frá Ölpunum til Adría- hafs, einnig haglél og gífurleg rigning. Vindurinn eyðilagði hús, reif tré upp með rótum, velti bifreiðum og marga fiski- báta rak á land upp. Nokkrir fiskimenn voru að veiðum á Adríahafinu, þegar stormurinn skall á og er þeirra saknað. Um fangsmikil leit fer nú fram. Þorpið Faverano í Bresciahér- aði lagðist nær alveg í rús og eru 500 ibúar þess heimilislausir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.