Morgunblaðið - 11.06.1964, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 11.06.1964, Blaðsíða 23
Fimmtudagur 11. júní 1964 MORGUNBLAÐID 23 - Björn Ölafsson Framihald af bls. 13. einn fastan um lengri tíma, jafnvel nokkur ár, væri völ á góðum manni. En þá kem- ur það til að áhorfendur hér eru afar nýjungagjarnir og vilja gjarna sjá og heyra nýja menn. — Hvernig telur þú, að hinn „ideali“ hljómsveitarstjóri ætti að vera? Ja, svona í fljótu bragði mundi ég segja, að hann þyrfti að vita mikið, vinna fljótt, vera skapgóður og gæddur kímnigáfu, hafa lag á því að láta hljómsveitina finna sem minnst fyrir aðsteðjandi erfið- leikum og greiða sem mest úr þeim með sínum eigin per- sónuleika. Hljómsveitarstjór- inn hefur fulla heimild til að gera strangar kröfur til hljóm sveitar sinnar, en hún á að geta gert jafnmiklar kröfur til hans. Þetta er eins og með kennara og nemanda, — kenn ari getur ekki ætlazt til að nemandinn mótist og þroskist nema hann gefi honum það, sem til þarf. — En hvað finnst þér um uppbyggingu hljómsveitarinn- ar sjálfrar? Undanfarið hefur mönnum orðið tíðrætt um það, jafnvel í blaðaskrifum, að Sinfóníuhljómsveitin sé rang- lega uppbyggð; að hér þyrfti að koma á fót sérstakri strengjasveit, sem yrði stofn hljómsveitar. — í rauninni er þetta ein- mitt það, sem við höfum ver- ið að gera á síðustu áratug- um. Við höfum leitazt við að byggja upp hljómsveitina inn- an frá, á þann eina hátt, sem mögulegur var. Hún er að mestu byggð upp af nemend- um Tónlistarskólans og strengjasveit hefur verið starf andi bæði innan og utan hans, og einnig strengjakvartettar. Að sjálfsögðu mætti segja, að við gætum valið svo sem fimmtán góða strengi og kom- ið á laggirnar strengjasveit — „Strengi Reykjavíkur" — en það yrði ekki gert nema á kostnað Sinfóníuhljómsveitar innar. Mennimir sem þar leika eru svo önnum kafnir, að ekki er meira á þá leggjandi. Og öðrum er ekki til að dreifa. Og ég -tel Sinfóníuhljómsveit- ina svo mikilvægan þátt í tón- listarlífinu, að ekki megi án hennar vera. ' — En eru strengirnir ekki enn full fáir? — Jú — og þeir voru alltof fáir til skamms tíma. Á síð- ustu árum hefur þeim fjölgað verulega og Tónlistarskólinn leggur hljómsveitinni jafnan til aðstoðarfólk úr hópi nem- enda á einstökum hljómleik- um. Strengir sveitarinnar eru nú 37 en þyrftu að vera minnst 40—45, svo þetta er smám saman að færast í rétt horf, því að óðum fyllist í skörðin. Og þar sem þetta er eina Sinfóníuhljómsveitin á íslandi ætti hún ekki að vera minni en 68—70 manns. Vona ég, að við eigum ekki mjög langt í land með það. Reynsla síðustu ára bendir ótvírætt til þess, að Sinfóníuhljómsveit sé velkomin á íslandi, þrátt fyr- fr atlögur einstakra manna gegn henni og tilraunir þeirra til að sverta hana og skapa kringum hana tortryggni og úlfúð. Viðtökurnar, sem hljóm sveitin hefur fengið bæði hér í Reykjavík og úti á lands- byggðinni sýna þetta glögg- lega. — Ég fæ ekki betur séð, en hér séu eins góðir möguleik- ar og hvar annars staðar til að halda uppi öflugu tónlistar- lífi, ef ekki betri. Uppbygg- ingarstarfið hefur verið afar erfitt en jafnframt skemmti- legt og breytingarnar frá 1930 eru næsta ótrúlegar. Lengi framan af voru einstaklingar og nokkrir stórhuga menn. sem börðust fyrir uppbygg- ingu og þróun hljómsveitar á fslandi en á síðustu árum hef- ur hins vegar Ríkisútvarpið tekið að sér forystuhlutverkið, annazt fyrirgreiðslu hljóm- sveitarinnar og farizt það vel úr hendi. — Við erum alltaf að verða til sem þjóð ,og fyrir okkar menningu og viðleitni til að hasla okkur völl meðal ann- arra þjóða er efling lista nauð synleg. Við státum af okkar bókmenntum og ættum eins að geta státað okkur af músik, myndlist og leiklist. Nóg er hér af fólki með hæfileika og við verðum aldrei nein heild sem þjóð, ef við vanrækjum að þroska þá hæfileika, sem með einstaklingunum búa. — Og ég skal segja þér, sagði Björn Ólafsson að lok- um, — að ekkert er eins gleði- legt fyrir mann í starfi sem mínu, að fá góða nemendur, að finna spírurnar og hafa möguleika á að leiðbeina þeim og koma þeim á braut. Jarlinn Framh. af bls. 24 í eins manns klefa. Stýrimað- ur um borð er Guðmundur Andrésson og 1. vélstjóri Jón Grímsson. Þá hitti fréttamaður Gunn- ar Halldórsson að máli um borð. Hann sagði, að skipinu væri ætlað að annazt allar venjulegar millilandasiglingar eins og flutningar féllu til. Frá íslandi yrði aftur siglt með fiskimjöl og sjávarafurð- ir. Þá sagði Gunnar að kapp- kostað yrði að sækja afurðir beint í smærri hafnir hérlend ir, t.d. Kópavog og Grindavík, en flutnnigaskip koma sjald- an á þá staði. Sagði Gunnar að fiski og varningi, sem til fiskaðgerðar þyrfti, væri ekið á bílum fyrir 67 milljónir kr. árlega í sambandi við Grinda vík eina. Frá Reykjavík mun hið nýja skip halda til Kópavogs Og lesta þar afurðir frá frystihúsi eigenda þess, Hvammsins h.f. Loks gat Gunnar þess, að eigendur skipsins hefðu í hyggju að athuga um síldar- flutninga frá miðunum aust- anlands til Norðurlands síðar í sumar. Til þess þyrfti að setja skilrúm í skipið, en Síld arverksmiðjur ríkisins mundu eiga slík skilrúm. Væri Jarl- inn mjög vel fallinn til slíkra flutninga. Samningar um kauip skips- ins hófust í febrúar s.l., en lauk í síðari hluta maí. Kaup verð var á sjöundu milljón króna. Til sölu 2 herb. íbúð við Brekkugerði, 1 mjög góðu standi. Allt sér. 3 herb. íbúð við Ljósheima á 2. hæð. Svalir meðfram allri suðurhlið hússins. Teppi á gólfi. íbúðin gæti verið laus strax. Gótfflötur 90 ferm. 2 herb. íbúð við Kvisthaga. Stærð 60—70 ferm. Þvotta- hús og geymsla á hæðinni. Laus strax. Sanngjörn úfcb. Til sölu bílskúr úr timbri, — flytjanlegur. Verð 16.000 kr. Lajfveiðiland í Borgarfirði, ca. 20 hektarar, framræst. Á staðnum er veiðihús. Fokhelt einbýlishús í Kópa- vogi. Einnig 4ra, 5 og 6 her bergja fokheldar hæðir. 4ra 5 og 6 herb. fokheldar hæð ir, tilbúnar undir tréverk og málningu, við Háaleitis- braut. Öll sameign frágeng- in. F&STE16NIR Austurstræti 10, 5. hæð. Simar: 24850 og 13428. Strákar á reiðhjólum á Hringbrautinni í gærdag. Híólreiðaninmskeið fyrir 7—12 ára börn SUMARSTARFSNEFND Lang hoitssafnaðar gengst fyrir hjól- reiðanámskeiði fyrir börn á aldr- inum 7—12 ára dagana 11. til 15. júní n.k. Námskeiðið er haldið í sam- vinnu við umferðadeild lögregl- unnar og Slysavarnafélag ís- lands. Börnunum verða kenndar umferðareglur, meðferð reiðhjóla (Ljósm. Sv. Þ.) og einnig verða þreytt hæfnis- próf. Námskeiðið hefst í kvöld, fimmtudag, klukkan 8 síðdegis við safnaðarheimilið við Sól- heima. Foreldrar eru eindregið hvatt- ir til að láta börn sín taka þátt í námskeiðinu vegna öryggls þeirra sjálfra og annarra. Johnson sendir Ball til Aþenu og Ankara Bandarikjamenn sagðir reiðubúnir oð gripa til róttækra aðgerða til að hindra strið vegna Kýpur Aþenu, Genf, Washington, 10. júní (NTB—AP). • Johnson Bandaríkjaforseti sendi í dag aðstoðarutanríkis ráðherra sinn, George Bail, tii Aþenu, til þess að ræða við stjórn Grikklands um Kýpur- deiluna, og hina auknu hörku, sem deiluaðilar hafa sýnt að undanförnu. Frá Aþenu held- ur Ball til Ankara og ræðir við trykneska ráðamenn um deiluna. • Haft er eftir áreiðanlegum heimildum í dag, að ferð Balls yrði upphaf umfangsmikilla málamiðlunartiirauna Banda- ríkjamanna í Kýpurdeilunni, tækju deiluaðilar vel tilboði þeirra um að reyna að koma á sáttum. • Bali hóf viðræður við George Papandreou forsætis- ráðherra Grikkja í kvöld. Heimildir hermdu, að aðstoð- arutanrikisráðherrann myndi skýra forsætisráðherranudm frá hinum auknu áhyggjum Bandarikjamanna vegna Kýp- urdeilunnar, og segja þá reiðu búna að grípa til róttækra að gerða til að koma í veg fyrir að Kýpurmálið valdi styrjöid milli tveggja Atlantshafs- bandalagsríkja, Grikklands og Tyrklands. Ekkert var skýrt frá í hverju aðgerðir þessar yrðu fólgnar. í kvöld skoraði Makarios, forseti Kýpur á öll aðildar- ríki Sameinuðu þjóðanna að reyna að koma í veg fyrir að Tyrkir réðust á Kýpur. — Sagði Makarios, að fjöldi tyrkneskra herskipa væru reiðubúinn að halda til eyjarinnar. Mikils ótta hefur gætt að undanförnu í Grikklandi við, að Tyrkir myndu gera innrás á Kýpur. En yfirlýsing Maka- ríosar forseta eyjarinnar um að hann hyggðist kaupa sovézk vopn til þess að verja eyjuna gegn innrás Tyrkja, er sögð hafa haft mjög alvar- leg áhrjf á ástandið. George Ball var staddur I Genf, þegar Johnson forseti sendi hinum boð um að halda þegar í stað til Aiþenu. Átti Ball að halda langa ræðu á viðskiptaráðstefnunni, sem haldin er í Genf að tilhlutan Sameinuðu þjóðanna og ráð- gert er að ljúki 15. þ.m. Ball aflýsti ræðunni en ávarpaði fulltrúa ráðstefnunnar stutt- lega áður en hann héit til Aþenu. Skoraði hann á þá að Hofum kaupendur að 2ja, 3ja pg 4ra herbergja Ibúðum. Miklar úfcborganir. Höfum einnig kaupendur að lóðum og einbýlishúsum í Reykjavík og Kópavogi. Gjörið svo vei og hringið í síma 204Ö5, 24034 og 15965. Saia og samningar HamarshÚ3Í við Tryggvagötu 5. hæð (lyfta). Faðir okkar og tengdafaðir GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON sjóniaður, Bamiahlíð 18, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í dag kl. 13,30. Marín Guðmundsdóttir, Brynjólfur Jónsson, Aðalsteinn Ó. Guðmundsson, Sigríður S. Sveinsd., Ólafur Guðmundsson, Elín ísleifsdóttir. reyna að gera síðustu daga ráð stefnunnar árangursríka, en ráðherramn kvaðst óttast að það myndi ekki takast. Við brottförina frá Genf sagði Ball, að stríð milli tveggja Atlantshafsbandalags- ríkja myndi hafa mjög alvar- legar afleiðingar fyrir allan hinn frjálsa heim. Fyrr á þessu ári ferðaðist Ball um Kýpur til þess að kynna sér ástandið þar Og kom einnig til Aþenu og Ank ara. Síðan hefur hann fylgzt sérstaklega með gangi mála og á mánudaginn ræddi hann Kýpurdeiluna við Richard A. Butler, utanríkisráðh. Breta. Heimildir í Washingfcon herma, að Grikkir hafi fyrst vakið mála á því að Johnson forseti Bandaríkjanna sendi fulltrúa til Grikklands og Tyrklands, til þess að reyna að draga úr styrjaldarhætt- unni. Til sölu 4 herb. íbúð í sambyggingu við Álfheima. Mjög góð íbúð, stílhrein og falleg eldhúsinnrétting. — Stórax svalir. Bílskúrsrétt- ur. Teppi fylgja. Allur sam eiginlegur kostnaður búinn. 2 herb. stór íbúð á jarðhæð við Drápuhlíð. Sér inngang- ur. Hitaveita. Snyrtileg íbúð. 3 herb. íbúð við Efstasund, um 90 ferm. á hæð. Allt sér. Girt og ræktuð lóð. Bílskúr* réttur. Höfum kaupendur að tvíbýlishúsi, hvor hæð mætti vera um 90—100 ferm. 5 herb. íbúð í Laugarásnum. Góðri ibúð. 6 herb. góðri íbúð í Vestur- bænum á 1. hæð. 3 herb. góðri risíbúð i Teig- unum. Eignaskipti oft æskileg. JÓN INGIMARSSON lögmaður Hafnarstræti 4. — Sími 20555. Sölum.: Sigurgeir Magnússon KI. 7.30—8.30. Simi 34940

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.