Morgunblaðið - 13.06.1964, Síða 1

Morgunblaðið - 13.06.1964, Síða 1
24 síðuv 51 qrgangur 131. tbl. — Laugardagur 13. júní 1964 Prentsmiðja Morgunblaðsins Scranton gefur kost á sér til framboðs Tekur upp baráttuna gegn Goldwater Baltim'ore, Maryland, 12. júní. — (AP-NTB) — WILLIAM Scranton, ríkis- stjóri í Pennsylvaníu, lýsti því yfir í dag, að hann hefði ákveðið að gefa kost á sér til framboðs fyrir flokk repú- blikana í forsetakosningunum í haust. Kvaðst hann gera það til þess, að flokkurinn ætti fleiri kosta völ, er landsþing hans kæmi saman í San Frans isco 13. júlí n.k. til að velja f Ösku IMehrus dreift yfir vötrr, fjöll og dali MYND þessi var tekin 8. júní sl. er nokkrum hluta af j ösku hins látna forsætisráð- i herra .Indl.inds, Jawaharlals Nehrus var stráð á vötnin, þar j sem hin helgu fljót Ganges og j Jumna renna saman í Allaha- j bad. Barnabörn Nehrus Tajic j og Sanjay dreifðu öskunni á ! vötnin. f gær var ösku hans einn- j ig dreift úr flugvélum og þyrl'j um yfir fjöll og dali landsins j að ósk hins látna. Vildi Nehru j að aska hans fengi að blandast j jarðvegi Jndlands og verða j óaðskiljanlegur hluti þess. j Nokkru af ösknnni var dreift j yfir Kashmír og var frú Indira i Gandhi dóttir Nehrus í flug- j vélinni, er flaug yfir Pahalg- j am í Kashmír, þar sem Nehru ! dvaldist gjarna í orlofi. Systir j hans frú i'iljayalakshmi Pand j it ríkisstjóii ríkisins Maharas j htra var í flugvélinni er j dreifði ösku hans yfir fangels j ið í Ahmednagar, þar sem hann var í haldi á sínum tíma. Mandela og félagar hans hlutu lífstíðarfangelsi Pretoria, 12. júní. (AP-NTB) í DAG voru kveðnir upp dóm ar yfir hlökkumanninum Nel- son Mandela — „svörtu akur- liljunni“ — og sjö öðrum and- stæðingum stjórnar Suður- Afríku. Hlutu þeir allir lífs- tíðarfangelsi. Lauk þar með átta mánaða réttarhöldum í máli þeirra — en þeir voru allir sakaðir og sekir fundnir um skemmdarverk og undir- búning að uppreisn gegn stjórn landsins. Mandela og fleiri hina ákærðu játuðu sig seka um skemmdarstarfsemi og uppreisnarundirhúning og sögðu það einu leiðina, sem blökkumenn í Suður-Afríku gætu farið í baráttunni gegn kúgun þeirra. Mikill viðbúnaður var við dómshúsið, þegar réttur var sett- ur í morgun. Húsið rúmaði að- eins um hundrað áhorfendur, en fjöldi manna, hvítra og blakkra, hafði safnazt saman til þess að hlýða á úrskurðinn. Þegar hann var heyrinkunnur hófu blökku- menn að syngja. Margir þeirra báru spjöld, sem á voru letraðar fullyrðingar um áframhaldandi baráttu, s^> sem „dómar eða ekki dómar — við munum fylgja merki leiðtoganna", „Tárum skal ekki úthellt" og „Við erum hreykin af leiðtogum okkar og starfi þeirra“. Eiginkona Mandela, Winnie, og Framhald á bls. 23. Neslson Mandela Nýr vináttusamningur Krúsjeffs og Ulbrichts Moskvu, London, 12. júni, AP—NTB. • Nikita Krúsjeff, forsætisráð- berra So-vétríkjanna og Walter lllbrieht, leiðtogi a-þýzkra komuii únista, undirrituðu í dag sám- bomulag, sem miðar að því að tryggja svo ekki verði um villzt núverandi landamæri A-Þýzka- lands. Samkvæmt samkomulagi þessu um „vináttu og gagn- kvaeina aðstoð“ skuldbinda báðir nðilar sig til að koma hvor öðr- nm til aðstoðar verði á þá ráðizt á Evrópu og jafnframt að lita ekbi undir neinum kringumstæð *m á V-Berlin tem hiuta Vestur- Þýzkalands, heldur sem óháða PÓIitiska „heild“ eða óháð borg- riki. Samkomulagið gildir til árs- ins 1984 og á, að sögn þeirra Krúsjeffs og Ulbrichts, að stuðla að friðsamlegri lausn Þýzkalands málanna. 9 Áður en samkomulagjð var undirritað gerði Sovétstjórnin stjórnum Vesturveldanna þriggja Bandaríkjanna, Bretlands og Frakklands, viðvart um efni þess. Er talið að með því hafi Krúsjeff viljað leggja áherzlu á, að hann vilji forðast ÖU meiriháttar átök Vegna Þýzkalandstnálanna að Framh. á bls. 23 Roosevelt og Churchill var lítt um de Gaulle gefið Roosevelt kallaði hann „bruð- ina nveð Messíasarkomplexinn6* Washington, 13. júnL (NTB-AP) • í DAG verða birt af hálfn bandaríska utanríkisráðuneyt isins skjöl er varða utanríkis- viðskipti Bandaríkjanna árið 1943. Koma þar meðal annars fram bréfaviðskipti þeirra Franklins D. Roosevelts, þá- verandi Bandaríkjaforseta og Winstons Churchills þáver- andi forsætisráðherra Bret- lands, þar sem þeir bera sam an bækur sínar um de Gaulle, sem þá var lciðtogi frjálsra Frakka. Kemur glöggt fram af bréfaviðskiptum þeirra, að hvorugum hefur verið um de Gaulle gefið. Kallar Roose- velt hann meðal annars „brúðina með Messíasarkom- plexinn." í orðsendingu frá Hoose- velt frá 8. maí 1943 segir m.a. „De Gaulle kann að vera ærlegur náungi, en hann er haldinn Messiasar komplex. Þess utan heldur henn að íranska þjóðin standi að baki honum persónuleiga. Ég efast mjög um það. Ég held að franska þjóðin standi að baiki baráttu Frjálsra Frakka. Þjóð in þekkir ekki de Gaulle og jafnvel þótt hún vissi það um hann, sem við, þér og ég, vit- um — myndi hún halda áfram að styðja baráttu Frjálsra Frakka en ekki leiðtoga þeirra í London. Ég hef til- hneigingu til að álíta að þeg ar við ráðumst inn í Frakk- land verði að líta á það sem hernám undir- stjórn brezkra og bandarískra herforingja. .....É>g veit ektki hvað við eigum ag gera við de Gaulle, e.t.v. geta þeir skipað hann landsstjóra á Madagaskar." 18. júní 1943 skrifaði Winst on Churchill: „Ég er yður sam mála um að við getum ekki treyst á vinfengi de Gaulle í garð Bandamanna." Og 21. júní 1943 segir sir Winston: „Eins og þér vitið hef ég allt- af verið þeirrar skoðunar, að við verðum að fá de Gaul'le til ærlegs samstarfs. Mér fell- ur engu bætt við hann en yð- ur, en ég vil heldur hafa hann í nefndinni 'heldur en horfa á hann ráfa um eins og ein- hvers konar sambland af Jeanne d’Are og Ciemenceau." frambjóðanda. Er nú talið næsta víst, að baráttan um útnefninguna muni standa milli hans og öldungadeild- arþingmannsins Barry Gold- waters, sem margir telja að hafi þegar tryggt sér svo öfl- ugan stuðning kjörmanna, að hann fari með sigur af hólmi þegar í fyrstu atkvæða- greiðslu. Forystumenn flokksins, þar á meðal Goldwater, Eisen- hower, fyrrverandi forseti, Rockefeller ríkisstjóri og Nix- on, fyrrverandi varaforseti, hafa fagnað ákvörðun Scrant- ons. Scranton tilkynnti ákvörðun sína á ársfundi. repúblikana- flokksins í Maryland-riki, sem hófst í Baltimore í dag síðdegis. Áður hafði talsmaður hans sagt, að yfirlýsingarinnar væri von. Þegar Scranton kom til fundar- ins í Baltimore var honum ákaft ■ Framhald á bls. 23 Könnunoiflug helsl n ný Vietniane, 12. júní NTB Souvanna Phouma, for» sætiáláðherra í Laos til- kynnti í dag, að könnunar- flug Bandaríkjamanna yfir Krukkusléttu muni hefjast á ný eftir tvo til þrjá daga þar sem fregnir hafi borizt um frekari liðsflutninga Pathet-Lao hersins. lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllilHIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIHIIIIIIIHIIIIIIHIIIIIHIIIIIIIIIIIUUn, 1' ** I 'iiiiiiiiiiiiiliuiiiitiiiiiiiHtiiiMiiiiiiiwiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiimiiiiiHiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiimmiiMimiiimiMiiiiiiiiimimiiiiiiiiiimiiiiiu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.