Morgunblaðið - 14.06.1964, Side 1

Morgunblaðið - 14.06.1964, Side 1
51 5rgangtir 132. tbl. — Sunnudagur 14. júní 1964 Prentsmiðja Morgunblaðsin* Álitiö aö Rússar sam- - þykki fjölgun fulltrúa í Úryggisráðinu Hafa til þessa sett aðild Kínverska Alþýðu- lýðveldsins sem skilyrði NewYork, 13. júní (NTB-AP) ÁREIÐANLEGAR heimildir herma, að Sovétstjórnin hafi lýst sig samþykka breyting- um á stofnskrá Sameinuðu þjóðanna, sem fela í sér fjölg- un fulltrúa í Öryggisráðinu og Efnahags- og félagsmála- ráðinu. Allsherjarþing Sameinuðu þjóð anna samþykkti þessar breyting- ar sl. haust, en þá var Sovét- stjórnin eindregið á móti þeim. Setti hún það skilyrði fyrir breyt ingunum, að Kínverska alþvðu- lýðveldið fengi aðild að SÞ. Nú bendir allt til þess að Sovétstjórn in hafi látið þetta skilyrði niður falla og er talið að ástæðan sé samkeppni Kínverja og Rússa um hylli þjóða í Afríku, en það eru ■ þær, sem fyrst og fremst hafa krafizt fjölgunar í Öryggisráðinu svo að rúm verði fyrir fuiltrúa þeirra. SOVEZKU geimfararnlrf^_______ i Valentína Tereshkova og Andrí rian Nikolayev eru hér að : skoða frumburðinn, 13 marka: dökkhærða dóttur, er þeim : fæddist sl. mánudag í sjúkra-: húsi í Moskvu. Nikolayevi fékk að sjá dótturina sama = dag og hún fæddist sem eri alger undantekning í Sovét-i ríkjunum, þar sem feður fái venjulegast ekki að sjá börni sin fyrr en á öðrum degi. i íbúar Sovétríkjanna fögn- i uðu barnsfæðingunni mjög o,gi blóm og heillaóskir bárust íi þúsundatali — enda hafði i Krúsjeff sagt í nóvember íi haust er þau gengu í hjóna-i band. „ að eignuðust þau ein-i hverntima börn myndi ekkii skorta gjafirnar." Þurfti for-i sætisráðherrann ekki lengi aði bíða geimfara-barnsins. Könnunarflug hafið á ný í Laos Hefur fært heim sanninn um stuðning hermanna N.-Víetnam við Pathet Lao Vientiane, 13. júní (AP) f D A G skýrði Souvanna Phouma, forsætisráðherra hlutlausra í Laos, frá því, að bandarískar flugvélar hefðu á ný flogið könnunarflug yfir landssvæði þau í Laos, sem kommúnistar hafa á sínu valdi. Könnunarflugvélarnar eru óvopnaðar, en þeim fylgja orustuflugvélar. Souvanna Phounia skýrði frá könnunarflginu eftir að hann hafði gengið á fund sendiherra Bandaríkjanna í Vientiane í morgun. Sem kunnugt er, hófu Banda- ríkjamenn könnunarflug í Laos samkvæmt beiðni stjórnar lands- ins fyrir nokkrum vikum. Hafa Æðstu menn Malaysíu, Indónesíu og Filippseyja í Tókyo ’Óvíst að þeir ræðist við vegna ágreinings um fjölda efiirlitsstöðva á Borneó | til þess að miðla málum milli Malaysíu og Indónesíu. Rahman sagðist vera fús til þess að ræða I við Súkarnó, en fundur þeirra væri gagnslaus, hefði ekki náðst samkomulag um eftirlit með brottflutningi skæruliða Indó- nesíu frá landamærunum. þeir tekið myndir af svæðum, sem eru í höndum kommúnista og Souvanna Phouma sagði í dag, að myndir þéssar hefðu fært heim sannin um að hermenn frá N-Vietnam styddu kommúnista Phatet Lao. Samkvæmt beiðni Souvanna Phouma, hættu Bandaríkjamenn könnunarflugi sínu í Laos fyrir tveimur dögum. Kvaðst Sou- vanna Phouma hafa talið, að kommúnistar myndu ekki auka viðbúnað sinn í bráð, en af mynd um, sem hann hefði séð síðar, hefði verið Ijóst að miklir liðs- flutningar færu fram á landa- mærum N-Vietnam og Laos. — Væri þar af leiðandi nauðsyn- legt að hefja könnunarflug á ný. — Alþjóðlegu eftirlitsnefndinni, sem gæta á þess að Genfarsamn- ingurinn sé ekki rofinn í Laos, hafa verið fengar myndirnar í hendur. Sem kunnugt er var gripið til könnunarflugs eftir að nefndinni var meinaður aðgang- ur a8 svæðum, sem kommúnistar hafa hertekið í Jandinu. f breytingartilögunni, sem AIls herjarþingið samþykkti sl. haust er gert ráð fyrir að fulltrúum Öryggisráðsins verði fjölgað úr 11 í 15, en Efnahags- og félags- málaráðsins úr 18 í 27. En endarskoðun Sovétstjórnar- innar á afstöðunni til breyting- anna er ekki næg til þess að þær nái fram að ganga. Tveir þriðju aðildarríkja S> verða að stað- festa breytingarnar, þar á meðal öll ríkin, sem eiga fastafulltrúa í Öryggisráðinu: Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Sovétríkin ^ og kínverskir þjóðernissinnar á Formósu. Þegar atkvæðagreiðsl- an um breytingarnar fór fram í haust, greiddu Frakkar atkvæði gegn þeim, en fulltrúar Banda- ríkjamanna og Breta voru fjar- verandi. Krúsjeff í Khöfn á þriðjudag Moskvu, 13. júní (NTB): Á SUNNUDAGSKVÖLD heldur Krúsjeff, forsætisráðherra Sovét ríkjanna, til Kalingrad, þar sene hann stígur um borð í farþega- skipið „Basjkria“. Á mánud&gs- morgun leggur skipið úr höfn o>g á þriðjudag er það væntanlegí tk Kaupmannahafnar, en þar helst heimsókn forsætisráðherrans til Norðurlanda. Talið víst að de Caulle hyggi á framboð nœsta ár — við forsetakosningarnar i Frakklandi Tókyo 13. júní (AP) • Undanfarna daga hafa full- trúar Malaysiu, Indónesíu og Filippseyja rætt deiiurnar um Korneó i Tókyo. Eru viðræður þessar til undirbúnings fundar æðstu maniia ríkjanna þriggja, irm vonazt er til að hefjist ein- hvern næstu daga. Macapagal, iforseti Filippsevja, og Súkarnó, Jndónesíuforscli, eru þegar komn ir til Tókyo, en Abdul Rahman, forsætisráðherra Malaýsíu til- hynnti i dag, að hann myndi halda þangað á morgun. Rahman ikvað þó óvíst hvort hann ræddi við Súkarnó þar sem enn væri éleystur ágreiningurinn um brott flutning indónesiskra skæruliða frá landamæium Malaysíu á Borneó. Brottflutningar skæruliðanna hafa verið aðal málið á dagskrá fuiltrúanna, senr. ræðst haía við í Tókyo að undanförnu, en í dag reyndu fulltrúao- Malaysíu og Inúónfcsiu að konria sér saman um fjölda eftirlitsstöðva á landa- mærunum. Fulltrúar Thailend inga, munu hafa eftirlit með brottflutningunum, lögðu til að eftirlitsstöðvarnar yrðu fjórar, tvær hvoru megin landamær- anna. Indóhesiumenn samiþykktu þessa tillögu, en aðstoðarforsæt- isráðherra Malaysíu, Abdul Razak, sem setið hefur fundinn í Tokyo sagði, að ekki væri unnt að fallast á færri en fimm eftir- litsstöðvar. Einnig kvaðst Razak krefjast þess að Malaysíumenn fengju að ráða hvar eftirlitsstöðv arnar væru á landamærunum. Þótt æðstu menn ríkjanna þriggja verði væntanlega allir í Tokíó annað kvöld, er óvist að þeir ræðist við, sem fyrr getur. Þegar Abdul Rahman skýrði frá því í dag, að hann myndi halda til Tokíó, sagðist hann fara þang að fyrst og fremst til þess að ræða við Macapagal, forseta Fil ipseyja, og þakka honum það erf iði, sem bann hefðj lagt á sig Laon, Norður-Frakklandi, 13. júní — (NTB) — DE GAULLE, forseti Frakk- lands, hefur nú bundið endi á vangaveltur inanna um það hvort hann hyggi á framboð til forsetakosninganna í land- inu næsta ár. Lýsti hann því yfir í ræðu í Laon í gær- kveldi að hann ætlaði sér að halda áfram að stjórna Frakk landi, þegar kjörtímahil hans væri útrunnið. Forsetinn er nú á ferðalagi um Norður-Frakkland og var borgin Laon einn af fyrstu viðkomustöð um hans. Áður hafði hann þó komið til Soissons og haldið ræðu, þar sem hann kvaðst myndu gera allt, sem í hans valdi stæði til þess að varðveita franska lýðveldið í þeirri mynd, sem það nú væri. Túlkuðu stjórn málafréttaritarar ræðu forsetans é þá lund, að annað hvort hyggði hann sjálfur á framboð eða að hann ætlaði að velja eftirmann, er hann treysti til framfylgja stefnu hans. Ræðuna í Laon telja menn hins vegar óyggjandi vísbend- ingu um að de Gaulle verði íTc~ framboði. Þar sagðist hann m.a. vera staðráðinn í að þjóna landi sínu og þjóð meðan honum ent- ust kraftar tiL Er á það bent, að heilsufar forsetans muni ráða miklu um endanlega ákvörðun hans. í maí sl. var hann skorinn upp við bólgu í blöðruhálskirtli og hafa komið fram efasemdir um, að hann verði fær til fram- 1 boðs á ný.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.