Morgunblaðið - 14.07.1964, Síða 12

Morgunblaðið - 14.07.1964, Síða 12
12 Þríðjudagur 14. júlí 1964 MORGU NBLAÐIÐ Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjórar: Auglýsingar: Ú tbreiðslust j óri: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Askriftargjald kr. 90.00 í lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Árni Garðar Kristi'nsson. Sverrir Þórðarson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Sími 22480. á mánuði innanlands. 5.00 eintakið. BARRY GOLDWATER |® UTAN ÚR HEIMI | ... §||il ■ | i | í-v:|||; ■'■■■■ ■■ : ' ■' ' . " • z' i ' - ■/ ' ' "' .... , . . . ■ ..... ■ : V//,' ' iiv'l'',/,/' ' ' " /; :v - S SÉÆ.4: v-x / \ . . m 'f' - ■ ' ■ "■ * ■ > */; O'i , *■•' pj ' <•' '■./ / ' '> s s ■ ,' 'í, , ‘i$ > 1 • Á samveldisráðsaefnunni í 1 London ræðast þeir við Ayub egar þetta er ritað er allt útlit fyrir að öldunga- déildarþingmaðurinn Barry Goldwater verði tilnefnd- ur frambjóðandi Repu- blikánaflokksins í Banda- ríkjunum við -forseta- kosningarnar í nóvember n.k. Barátta Goldwaters fyrir' tilnefningu hefur verið rædd í blöðum um allan heim og naumast hafa aðrir pólitískir atburðir vakið meiri eftirtekt undanfarið en sígrar hans. Barry Goldwater hefur gef- ið hverja yfirlýsinguna af ann arri, sem bandarísku blöðin hafa yfirleitt fordæmt og stjórnmálamenn og blaða- metra víða um veröld hafa talið uggvænlegar. Lengi framan af var því spáð, að barátta hans væri vonlaus, en á daginn er komið, að hann nýtur mun meira stuðnings en menn gerðu sér fyrirfram grein fyrir. Ýmsar skýringar eru á sigr- um Goldwaters. Þannig leik- ur naumast vafi á því, að stuðningsmenn hans hafa bar izt betur en andstæðingarnir. Þeir hafa skipulagt baráttuna frá grunni og stefnt að á- kveðnu marki meðan andstæð ingafylkingarnar voru riðlað- ar. Þeir, sem kenna sig við í- haldsstefnu í Bandaríkjunum, hafa haft takmörkuð áhrif að undanförnu, meðan hinir, sem teljast frjálslyndir, hafa ráð- ið í báðum bandarísku flokk unum. Að vísu er það svo, eins og kunnugt er, að hugtök eins og íhaldssamur og frjálslynd- ur eru hvergi nærri glögg, enda ekki furða þótt erfitt sé að skilgreina stefnur borgara- flokka, þegar höfð er hlið- sjón af þeim umbyltingum og hraða, sem við eigum við að búa, þar sem stöðugt er við ný viðfangsefni að fást. Þess vegna eru líka víðast saman í flokkum menn, sem telja sig íhaldssama og frjálslynda, og það er síður en svo, að allt af sé auðvelt að greina í hverju frjálslyndi hinna síðarnefndu birtist og íhaldssemi hinna fyrrnefndu. Engu að síður er líklegt, að það hafi hjálpað Goldwater og hans mönnum, að þeir hafa barizt undir þeim vígorðum, að þeir ætluðu ýmsu að breyta og hefðu nýmæli á stefnuskrá sinni, en eins og kunnugt er er það venja í lýðræðisríkj- um, að þær stefnur og þeir flokkar, sem við völd eru, tapi fremur en vinni á, því að fólk- ið er nýjungagjarnt og vill auk þess veita stjórnarvöldum aðhald. Fram að þessu hefur Barry Goldwater verið sigursæll. Ef hann verður valinn frambjóð andi repúblikana mun hann vafalaust draga nokkuð í land. Hann hefur sjálfsagt vilj að vekja athygli á sér og bar- áttu sinni með nokkuð víga- legum fullyrðingum. En hvað sem því líður þá munu flest- ir vinir Bandaríkjanna óska þess, að Johnson forseti fari með sigur af hólmi í nóvem- ber. í stefnuskrá Repúblikana- flokksins sem nú hefur verið samin, gætir mjög áhrifa Gold waters og ýmislegt er þar óað- gengilegt, en stuðningsmenn Goldwaters telja sýnilega að eina vonin um sigur sé að hafa nógu harða og ákveðna stefnu, jafnvel óábyrga. Þetta fyrirbæri þekkjum við svo sem úr íslenzkum stjórnmál- um. HAGUR LOFTLEIÐA ryrir skömmu var frá því skýrt, að Loftleiðir hefðu á s.l. ári hagnazt veru- lega á íslenzkan mælikvarða. Þennan hagnað- notar félagið til að styrkja samkeppnisað- stöðu sína á alþjóðaflugleið- um, og er vonandi að félagið hagnist áfram ,svo að það geti eflzt. Stundum fárast menn yfir því, ef atvinnufyrirtæki hagn- ast, og sósíaiistar halda því fram, að þá sé verið að arð' ræna viðskiptamenn fyrirtæk isins eða verkafólk þess. Loft- leiðir hafa rækilega afsannað þessa kenningu. Þeir fljúga á lægri fargjöldum en aðrir. Vegna starfa þessa flugfélags er ekki einungis um hagnað þess að ræða heldur líka við- skiptavinanna, sem ella hefðu orðið að greiða hærri far- gjöld. En Loftleiðamenn hafa líka sannað að við getum verið samkeppnisfærir við stórþjóð- irnar, ef við þorum að ráðast í stórverkefnin. Þess vegna er fordæmi þeirra hvatning til þess að leggja inn á nýjar brautir og þar er ekki sízt um að ræða stóriðjuna. ÞJÓFNAÐUR í KJÖRBÚÐUM T¥ér í blaðinu var s.l. sunnu- dag grein um þjófnað í kjörbúðum, sem er meiri Kahn, forseti Pakistan (t.h.) Peking, 13. júlí (NTB-AP) TVÖ af málgögnum kínversku stjórnarinnar ráðast í dag harka- lega á Nikita Krúsjeff, forsætis- ráðherra. Biöð þessi eru „Dag- blað þjóðarinnar“ og „Rauði fáninn“, og segja þau að Krús- jeff berjist fyrir því að innleiða auðvaldsstefnuna í Sovétríkjun- um og að hann sé leiðtogi nýrrar forréttindstéttar borgaranna í andstöðu við verkalýðinn. Geinar þessar eru skrifaðar með tilvísun til opins bréfs kommúnistaflokks Sovétríkjanna frá 14. júlí í fyrra, og er fyrir- sögnin í 'báðum blöðunum: „Um hinn falska kommúnisma Krús- jeffs og sögulegar kenningar hans fyrir heiminn". Er þar „endurskoðunarklíka Krúsjeffs“ sökuð um að hafa afnumið ein- ræði öreiganna og rutt brautina en menn hefðu að óreyndu trúað. Kaupmenn eiga að sjálf- sögðu að keppa um hylli við- skiptavina sinna, en engu að síður eru til þau svið, þar sem þeir eiga að hafa samstöðu, sem því miður hefur oft skort nokkuð á, verzlunarstéttinni sjálfri til tjóns. Eitt af þessum sviðum er það að koma í veg fyrir þjófn að í kjörbúðum, ekki til þess eins að gæta hags kaupmanna sjálfra, heldur beinlínis af og Robert Menzies, forsætis- ráðherra Ástralíu. Á bak við þá sjást Jomo Kenyatta, for- sætisráðherra Kenya (t.v.), íyrir endurreisn auðvaldsfyrir- komulagsins. Blöðin visa á bug þeirri „fáránlegu skoðun“ að ekki sé lengur um neina stétta- baráttu að ræða í Sovétríkjunum. Segja þau ag ný forréttindastétt borgara hafi risið upp í Sovét- ríkjunum og tilheyri henni dreggjarnar úr forustuliði flokks ins, opinberum stofnunum,.fyrir- tælfjum og frá samyrkjubúum. Endurákoðunarklíka Krúsjeffs er fulltrúi sovézlcu borgarastétt- arinnar, einkum þess flokks hennar, sem nýtur sérstakra for- réttinda, segja blöðin. — Skref fyrir skref hefur Krúsjeff og klíka hans breytt eignarrétti almennings í eignar- rétt forréttindastéttarinnar, seg- ir í greinunum. Afleiðingin af endurskoðunarstefnu Krúsjeffs er sú að fyrsta kommúnistaríki þjóðfélagsástæðum, því að það er hörmulegt til þess að vita að þjófnaður skuli líðast svo að segja fyrir allra aug- um. Auðvitað eiga kaupmenn þegar í stað að kæra hvern þann, sem uppvís verður að þjófnaði í kjörbúðum. Hann á að draga fyrir lög og dóm og láta hann sæta réttmætri hegningu. Það • er engum greiði gerður með þvf að láta þjófa sleppa við kæru. Það getur þvert á móti leitt til Milton Oboto, forsætisráð- = herra Uganda, og Kwame 1 Nkrumah, forseti Ghana. heims, sem hin mikla Sovétþjóð byggði upp með blóði sínu og sveita, stendur nú andspænia hættunni af endurfæðingu kapi- talismans. Blöðin segja aS slagorð Krús- jeffs um að koma á kommúnisku samfélagi í Sovétríkjunum inn- an 20 ára lýsi afturhaldssemi og só röng. Vitna þau í ummæli Mao Tse Tungs þegar hann sagði að lokasigur kommúnismans vinn- ist ekki á einum eða tveimur mannsöldrum, heldur fimm eða tíu mannsöldrum eða jafnvei er.n lengri tíma. Því er haldið fram í greinun- um að allur fjöldi sovézkra verka manna, bænda og menntamanna sé andvígur þeirri kúgun og nisrétti sem forréttindastéttin beiti, og reyni að berjast gegit stefnu Krúsjeffs. „Sögulegt fram lag hinnar merku Sovétþjóðar rnun ætíð standa sem lýsandi fordæmi fyrir komandi kynslóð- ir, og það geta svik Krúsjeffs- klíkunnar aldrei eyðilagt", segja blöðin. þess, að ístöðulítið fólk taki til við þjófnað, sem það ella mundi ekki gera. Þess vegna eiga kaupmenn að taka höndum saman um að hindra þessa ósæmilegu iðju. Víða erlendis eru speglar í kjörbúðum, þannig að alls staðar er hægt að sjá til við- skiptavinanna. Þetta mætti gjarnan gera hér, en umfram allt að láta ekki þá, sem upp- vísir verða að þjófnaði sleppa. miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimijiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiniiiiiiS Kínverjar saka Krúsfeff um baraftu fyrir kapítalisma Segja hann leiðtoga nýrrar forréttinda- stéttar, sem beiti verkalíðinn kúgun og misrétti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.