Morgunblaðið - 14.07.1964, Side 22

Morgunblaðið - 14.07.1964, Side 22
22 MORCU N BLADIÐ Þriðjudagur 14. júlí 1964 r " ■ V ........................ i ....nw.i>y... Xlíl &' ' fiiS 2|rW. c I' V" ' ' h' 1 Mynd þessi er úr leik Akranes og Fram, tekin rétt áður en hið leiðinlega atvik gerðist. — Geir hefur náð boltanum, en Ríkarður er á leið til hans. Fram vann Akranes Leiðindaatvik spillti leiknum Sjö íslandsmet en Danir unnu landskeppnina LEIK Akurnesinga og Fram r.l. sunnudag lauk með sigri þeirra síðarnefndu 4:1. Tókst Frömmurum nú að afsanna þá kenningu að Akurnesingar væru ósigrandi á heimavelli, en langt er nú liðið síðan þeir hafa tapað leik heima fyrir. Akurnesingar urðu að lúta í lægra haldi í þess- um leik, þrátt fyrir stöðuga pressu að marki Fram allan síð- ari hálfleikinn og mun betri leik í fyrri hálfleik. Þessi sigur Fram er því tæpast verðskuldaður, en þeir höfðu heppnina með sér og það var það sem dugði. Sigur Fram í þessum leik eykur mjög líkurnar fyrir því að þeim takist að halda sér uppi í deildinni, enn minnkar nokkuð vonir Akur- nesinga um sigur í mótinu, þó engan vegin sé útséð um það að þeirra möguleikar séu taldir. Eitt atvik í þessum leik Fram og Akurnesinga vakti að vonum mikla reiði manna og er áreiðan- lega algert einsdæmi í knatt- spyrnuleik á íslandi, en það var í fyrri hálfleik, er Geir Krist- jánsson, markvörður Fram, réð- ist á skammarlegan og ósvífinn hátt að Ríkharði Jónssyni og sló hann hvað eftir annað í höfuð. og andlit, svo Ríkharður lá í valnum. Atvik þetta gerðist á 35. mín. fyrri hálfleiks. Akur- riesingar höfðu sótt að marki Fram og hafði Geir varið skot írá ’þeim og hugðist sparka út. Ríkharður hafði hnotið inni við markteig Fram og var að rétta sig upp. Hljóp Geir óviljandi á fætur Ríkharði, en taldi að Rík- harður hefði brugðið sér. Skipti það engum togum að Geir fékk þarna hreint æðiskast, réðist að Ríkharði með boltann reiddan og lamdi hann með honum í höfuð- ið, barði hann síðan í bakið og gaf honum síðan mikið hnefa- högg í andlitið svo Ríkharður féll aftur yfir sig á jörðina. Áhorf- endur þustu nú inn á völlinn, en höfðu á engan hátt óspektir í frammi, enda komu leikmenn Akraness í veg fyrir það. Dóm- arinn vísaði Geir af vellinum og fór hann þaðan í lögreglufylgd. Slík framkoma, sem Geir sýndi, er á engan hátt verjandi og hlýtur íþróttadómstóll, sá er um málið mun fjalla, taka mjög ákveðið á brotinu og dæma mann inn frá þátttöku í knattspyrnu- keppni um lengri eða skemmri tíma. Sem betur fer hlaut Rík- harður ekki neina teljandi áverka. en slíkt högg í andlit og höfuð manna geta orðið hættu- leg og því verður meg harðri refsingu að koma í veg fyrir að slik atvik geti hent í framtíð- inni. ISLANDSMÓT í golfi fór fram í Vestmannaeyjum dagana 8.—12. júlí sl. og _ var keppt í þrem flokkum. íslandsmeistari árið 1964 varð Magnús Guðmundsson frá Akureyri, sem sigraði með miklum yfirburðum eða 270 höggum. í öðru og þriðja sæti urðu þeir óttar Ingvarsson og Pétur Björnsson báðir frá Reykjavík með 295 högg hvor. í fyrsta flokki sigraði Þórar- inn Jónsson frá Akureyri, en í öðrum flokki sigraði Júlíus Snorrason Vestmannaeyjum. Skilyrði til keppni alla daga voru mjög góð og voru samtals leiknar 72 holur í öllum flokk- um eða 18 holur á dag. Þetta er í þriðja sinn, sem ís- landsmót í golfi fer fram í Vest- LR. mót á Mela- velliniim í KVÖLD kl. 20.30 fer fram mót i fljálsum íþróttum á vegum Í.R. en opið öllum til þátttöku. Meðal keppenda verða sænsku gestirnir írá Ymer. Keppt verður í þessum grein- um: 200, 800, 3000 m. hlaupum, 4x100 m. boðhlaupi, kúluvarpi, kringlukasti, spjótkasti, lang- stökki og hástökki. Einnig verða margar kvennagreinar og 100 m. hlaup sveina. Allt í allt verður keppt 1 15 greinum, svo að margt verður að sjá og alltaf eitthvað að ske. Keppni í langstökki og kúluvarpi kvenna hefst hálftíma fyrr en mótið sjálft. DANIR sigruðu íslendinga í landskeppni í sundi með 39 stig- um gegn 38. Sigurinn var þó í rauninni meira, þar sem danska sundkonan Kirsten Strange, sem varð fyrst í 100 m. flugsundi á 1.13.0 var dæmd ur leik, en Hrafn hildur varö önnur. Hlutu íslend- ingar þar 5 stig en Danir ekkert. Keppt var í tveimur greinum fyrri dag keppninnar, laugardag. í bringusundi karla sigraði Benny Petersen á 2.46.0 mín., en Árni Þ. Kristjánsson synti á 2.53.0. 5 stig fyrir Danmörk, 3 fyrir ísland. Hrafnhildi gekk illa í keppni við Vibeke Christensen og sigr aði danska sundkonan á 2.58.0 en Hrafnhildur fékk 3.08.0. 5 stig fyrir Danmörk, 3 fyrir ís- land. Samtímis landskeppninni fór fram keppni í ýmsúm greinum. fyrir unglinga. Davið Valgarðs- son varð annar í 400 m skrið- sundi synti á 4.45.6, sem er nýtt íslandsmet. Guðmundur Gíslason synti 400 m fjórsund á 5.16,1 mín, sem mannaeyjum, hið fyrsta sinni 1959 og vannst þá á 310 höggum, næst árið 1962 og þá með 307 höggum, en nú vannst mótið á 270 höggum og skal tekið fram að völlur er óbreyttur og keppt við sömu aðstæður. Magnús tók í byrjun keppn- innar forystu og höggafjöldi hans miðað við hverjar 18 holur 71-68-65-66 og er þessi árangur mjög glæsilegur, sem fyrr segir sá langbezti, sem náðst hefir á 9-holuvelli hér á landi. Til er einnig nýtt fslandsmet. Enn- fremur setti Hrafnhildur nýtt íslandsmet í 400 m fjórsundi, synti á 6.16.2 mín. Mótinu lauk svo í gærkveldi og gekk íslendingunum þá bet- ur og voru þá sett 4 íslandsmet. Hrafnhildur synti 100 m. flug- sund á 1.13.9 mín. sem er nýtt íslandsmet, Guðmundur Gísla- son synti 200 m. baksund á 2.20.8 mín, nýtt met, og báðar boð- sundssveitirnar, karla og kvenna (400 m. fjórsund) settu met. Boð- sund karla var sérstaklega glæsi- legt. Guðmundur Gíslason synti 100 m. baksundssprettinn á 1.17.5 mín., Árni Kristjánsson bringu- sundið á 1.14.2 mín., Davíð flug- sundið á 1.02.9 mín., og Guð- mundur Harðarson skriðsundið á 59.6, sek. — Guðmundur sigraði í 100 m. skriðsundi í landskeppn- inni með 57.0 sek. íslenzka sundfólkinu líður öllu vel og lætur mjög vel yfir mót- tökum öllum. Á miðvikudag og fimmtudag keppa íslendingar á unglingamóti Norðurlanda, sem háð er í útborgum Kaupmanna- hafnar. marks um öryggi Magnúsar má geta þess að eitt sinn fór hann völlinn í 30 höggum eða 5 undir pari. Það vakti athygli golfmanna að Magnús hafði mjög langan og öruggan „driver“, t. d. tók hann lenstu holuna rúma 400 m með einu höggi og síðan 9-járni inn á „green“ og lá við holu, fór þá par-5 holu í 3 höggum. Megin- styrkur hans er í löngum og ör- uggum upphafshöggum og liggur hann inn á „green“ eftir fá högg, en hann virðist ekki „putta“ bet- ur en hver annar. í lok keppn- innar bauð bæjarstjórn Vest- mannaeyja keppendum og starfj mönnum til kvöldverðar og voru verðlaun þar afhent. „Ein bezta skáldsaga, sem ég hefi lesið" seg/r Baldur Þórðarson, dómari EINS og kunnugt er, dæmdi Baldur Þórðarson hinn sögu- lega leik á Akranesi á sunnu- daginn var. Við náðum í gær af honum tali og spurðum, hvernig þetta hljóðaði frá hans bæjardyrum séð. „Ég vil strax taka það fram, að frásögn sem ég las í dag- blaði í dag er einhver bezta skáldsaga, sem ég hefi lesið. Þar er hlutunum hagrætt og snúið algerlega öðrum aðilan- um í vil." Hvernig skeði þetta fræga atvik milli Geirs og Ríkharðs? „Það var þannig, að Geir er með knöttinn í höndunum, býr sig undir að spyrna frá marki, en þá gerir Ríkharður sér iítið fyrir og bregður hon- um. Ég flauta eðlilega og dæmi aukaspyrnu á Akranes, en þegar ég er á leiðinni til þeirra, tekur Geir knöttinn og dánglar honum í höfuðið á Ríkarði. Fyrir þetta rek ég Geir umsvifalaust út af, en áður en hann yfirgefur völl- inn, slær hann Ríkharð einu sinni í andlitið. Persónulega held ég að Rikharður harfi gert meira úr þessu og legið óþarflega lengi, enda sýna flestir einhvern leikaraskap undir svona kringumstæðum. En það breytir engu; brot Geirs er stórlega vítavert, og skyldi enginn koma svona fram á leikvelli." En hvað um lei'k Framliðs- ins í heild; lék liðið nokkuð sérlega ólöglega? Nei, þvert á móti, og það vil ég að komi fram, að af þeirri reynslu, sem ég hefi af liði Fram, er það langsamlega prúðmannlegast í leik af lið- um 1. deildar." „Og frásögnin af leiknum, samin af Akurnesing-, er langt frá því að vera hlutlaus. Fram leikur þarna með einum færra mest allan leikinn, og vinnur stóran taktískan sigur. Þeir lögðu réttilega aðaláherzlu á vörnina, en Skagamenn fengu ekki skorað þrátt fyrir mik- inn ákafa. Guðjón Jónsson stóð sig sérlega vel í markinu, og átti það sinn þátt í að koma andstæðingunum úr jafnvægi. „Að lokum vil ég taka fram, að við dómararnir héð- an úr Reykjavík förum nú að hætta að fara til þessara staða utan við bæinn til að dæma. Slíkt óþverra orðbragð og skrílsleg framkoma áhorf- enda, jafnvel ábyrgra aðila, er ekki þolandi öllu lengúr. Knattspyrnuyfirvöldin mega ekki lengur láta þetta ganga svona ámælislaust.“ Kormákr. Fétur Björnsson, Magnús Guðmundason og Óttar Ingvason. Framhald á bls. 23 Magnús Guðmundsson íslandsmeistari í golfi Vann með yfirburðum og náði glæsilegum árangri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.