Morgunblaðið - 14.07.1964, Síða 22
22
MORCU N BLADIÐ
Þriðjudagur 14. júlí 1964
r " ■ V ........................ i ....nw.i>y...
Xlíl &' ' fiiS
2|rW. c
I' V" ' ' h'
1
Mynd þessi er úr leik Akranes og Fram, tekin rétt áður en hið leiðinlega atvik gerðist. — Geir
hefur náð boltanum, en Ríkarður er á leið til hans.
Fram vann Akranes
Leiðindaatvik spillti leiknum
Sjö íslandsmet
en Danir unnu landskeppnina
LEIK Akurnesinga og Fram
r.l. sunnudag lauk með sigri
þeirra síðarnefndu 4:1. Tókst
Frömmurum nú að afsanna þá
kenningu að Akurnesingar væru
ósigrandi á heimavelli, en langt
er nú liðið síðan þeir hafa tapað
leik heima fyrir. Akurnesingar
urðu að lúta í lægra haldi í þess-
um leik, þrátt fyrir stöðuga
pressu að marki Fram allan síð-
ari hálfleikinn og mun betri leik
í fyrri hálfleik. Þessi sigur Fram
er því tæpast verðskuldaður, en
þeir höfðu heppnina með sér og
það var það sem dugði. Sigur
Fram í þessum leik eykur mjög
líkurnar fyrir því að þeim takist
að halda sér uppi í deildinni,
enn minnkar nokkuð vonir Akur-
nesinga um sigur í mótinu, þó
engan vegin sé útséð um það að
þeirra möguleikar séu taldir.
Eitt atvik í þessum leik Fram
og Akurnesinga vakti að vonum
mikla reiði manna og er áreiðan-
lega algert einsdæmi í knatt-
spyrnuleik á íslandi, en það var
í fyrri hálfleik, er Geir Krist-
jánsson, markvörður Fram, réð-
ist á skammarlegan og ósvífinn
hátt að Ríkharði Jónssyni og sló
hann hvað eftir annað í höfuð.
og andlit, svo Ríkharður lá í
valnum. Atvik þetta gerðist á
35. mín. fyrri hálfleiks. Akur-
riesingar höfðu sótt að marki
Fram og hafði Geir varið skot
írá ’þeim og hugðist sparka út.
Ríkharður hafði hnotið inni við
markteig Fram og var að rétta
sig upp. Hljóp Geir óviljandi á
fætur Ríkharði, en taldi að Rík-
harður hefði brugðið sér. Skipti
það engum togum að Geir fékk
þarna hreint æðiskast, réðist að
Ríkharði með boltann reiddan og
lamdi hann með honum í höfuð-
ið, barði hann síðan í bakið og
gaf honum síðan mikið hnefa-
högg í andlitið svo Ríkharður féll
aftur yfir sig á jörðina. Áhorf-
endur þustu nú inn á völlinn,
en höfðu á engan hátt óspektir
í frammi, enda komu leikmenn
Akraness í veg fyrir það. Dóm-
arinn vísaði Geir af vellinum og
fór hann þaðan í lögreglufylgd.
Slík framkoma, sem Geir sýndi,
er á engan hátt verjandi og
hlýtur íþróttadómstóll, sá er um
málið mun fjalla, taka mjög
ákveðið á brotinu og dæma mann
inn frá þátttöku í knattspyrnu-
keppni um lengri eða skemmri
tíma. Sem betur fer hlaut Rík-
harður ekki neina teljandi
áverka. en slíkt högg í andlit og
höfuð manna geta orðið hættu-
leg og því verður meg harðri
refsingu að koma í veg fyrir að
slik atvik geti hent í framtíð-
inni.
ISLANDSMÓT í golfi fór fram í
Vestmannaeyjum dagana 8.—12.
júlí sl. og _ var keppt í þrem
flokkum. íslandsmeistari árið
1964 varð Magnús Guðmundsson
frá Akureyri, sem sigraði með
miklum yfirburðum eða 270
höggum. í öðru og þriðja sæti
urðu þeir óttar Ingvarsson og
Pétur Björnsson báðir frá
Reykjavík með 295 högg hvor.
í fyrsta flokki sigraði Þórar-
inn Jónsson frá Akureyri, en í
öðrum flokki sigraði Júlíus
Snorrason Vestmannaeyjum.
Skilyrði til keppni alla daga
voru mjög góð og voru samtals
leiknar 72 holur í öllum flokk-
um eða 18 holur á dag.
Þetta er í þriðja sinn, sem ís-
landsmót í golfi fer fram í Vest-
LR. mót á Mela-
velliniim
í KVÖLD kl. 20.30 fer fram mót
i fljálsum íþróttum á vegum Í.R.
en opið öllum til þátttöku. Meðal
keppenda verða sænsku gestirnir
írá Ymer.
Keppt verður í þessum grein-
um: 200, 800, 3000 m. hlaupum,
4x100 m. boðhlaupi, kúluvarpi,
kringlukasti, spjótkasti, lang-
stökki og hástökki. Einnig verða
margar kvennagreinar og 100 m.
hlaup sveina.
Allt í allt verður keppt 1 15
greinum, svo að margt verður að
sjá og alltaf eitthvað að ske.
Keppni í langstökki og kúluvarpi
kvenna hefst hálftíma fyrr en
mótið sjálft.
DANIR sigruðu íslendinga í
landskeppni í sundi með 39 stig-
um gegn 38. Sigurinn var þó í
rauninni meira, þar sem danska
sundkonan Kirsten Strange, sem
varð fyrst í 100 m. flugsundi á
1.13.0 var dæmd ur leik, en Hrafn
hildur varö önnur. Hlutu íslend-
ingar þar 5 stig en Danir ekkert.
Keppt var í tveimur greinum
fyrri dag keppninnar, laugardag.
í bringusundi karla sigraði
Benny Petersen á 2.46.0 mín., en
Árni Þ. Kristjánsson synti á
2.53.0. 5 stig fyrir Danmörk, 3
fyrir ísland.
Hrafnhildi gekk illa í keppni
við Vibeke Christensen og sigr
aði danska sundkonan á 2.58.0
en Hrafnhildur fékk 3.08.0. 5
stig fyrir Danmörk, 3 fyrir ís-
land.
Samtímis landskeppninni fór
fram keppni í ýmsúm greinum.
fyrir unglinga. Davið Valgarðs-
son varð annar í 400 m skrið-
sundi synti á 4.45.6, sem er nýtt
íslandsmet.
Guðmundur Gíslason synti
400 m fjórsund á 5.16,1 mín, sem
mannaeyjum, hið fyrsta sinni
1959 og vannst þá á 310 höggum,
næst árið 1962 og þá með 307
höggum, en nú vannst mótið á
270 höggum og skal tekið fram
að völlur er óbreyttur og keppt
við sömu aðstæður.
Magnús tók í byrjun keppn-
innar forystu og höggafjöldi
hans miðað við hverjar 18 holur
71-68-65-66 og er þessi árangur
mjög glæsilegur, sem fyrr segir
sá langbezti, sem náðst hefir á
9-holuvelli hér á landi. Til
er einnig nýtt fslandsmet. Enn-
fremur setti Hrafnhildur nýtt
íslandsmet í 400 m fjórsundi,
synti á 6.16.2 mín.
Mótinu lauk svo í gærkveldi
og gekk íslendingunum þá bet-
ur og voru þá sett 4 íslandsmet.
Hrafnhildur synti 100 m. flug-
sund á 1.13.9 mín. sem er nýtt
íslandsmet, Guðmundur Gísla-
son synti 200 m. baksund á 2.20.8
mín, nýtt met, og báðar boð-
sundssveitirnar, karla og kvenna
(400 m. fjórsund) settu met. Boð-
sund karla var sérstaklega glæsi-
legt. Guðmundur Gíslason synti
100 m. baksundssprettinn á 1.17.5
mín., Árni Kristjánsson bringu-
sundið á 1.14.2 mín., Davíð flug-
sundið á 1.02.9 mín., og Guð-
mundur Harðarson skriðsundið á
59.6, sek. — Guðmundur sigraði
í 100 m. skriðsundi í landskeppn-
inni með 57.0 sek.
íslenzka sundfólkinu líður öllu
vel og lætur mjög vel yfir mót-
tökum öllum. Á miðvikudag og
fimmtudag keppa íslendingar á
unglingamóti Norðurlanda, sem
háð er í útborgum Kaupmanna-
hafnar.
marks um öryggi Magnúsar má
geta þess að eitt sinn fór hann
völlinn í 30 höggum eða 5 undir
pari.
Það vakti athygli golfmanna að
Magnús hafði mjög langan og
öruggan „driver“, t. d. tók hann
lenstu holuna rúma 400 m með
einu höggi og síðan 9-járni inn á
„green“ og lá við holu, fór þá
par-5 holu í 3 höggum. Megin-
styrkur hans er í löngum og ör-
uggum upphafshöggum og liggur
hann inn á „green“ eftir fá högg,
en hann virðist ekki „putta“ bet-
ur en hver annar. í lok keppn-
innar bauð bæjarstjórn Vest-
mannaeyja keppendum og starfj
mönnum til kvöldverðar og voru
verðlaun þar afhent.
„Ein bezta skáldsaga,
sem ég hefi lesið"
seg/r Baldur Þórðarson, dómari
EINS og kunnugt er, dæmdi
Baldur Þórðarson hinn sögu-
lega leik á Akranesi á sunnu-
daginn var. Við náðum í gær
af honum tali og spurðum,
hvernig þetta hljóðaði frá
hans bæjardyrum séð.
„Ég vil strax taka það fram,
að frásögn sem ég las í dag-
blaði í dag er einhver bezta
skáldsaga, sem ég hefi lesið.
Þar er hlutunum hagrætt og
snúið algerlega öðrum aðilan-
um í vil."
Hvernig skeði þetta fræga
atvik milli Geirs og Ríkharðs?
„Það var þannig, að Geir er
með knöttinn í höndunum,
býr sig undir að spyrna frá
marki, en þá gerir Ríkharður
sér iítið fyrir og bregður hon-
um. Ég flauta eðlilega og
dæmi aukaspyrnu á Akranes,
en þegar ég er á leiðinni til
þeirra, tekur Geir knöttinn og
dánglar honum í höfuðið á
Ríkarði. Fyrir þetta rek ég
Geir umsvifalaust út af, en
áður en hann yfirgefur völl-
inn, slær hann Ríkharð einu
sinni í andlitið. Persónulega
held ég að Rikharður harfi
gert meira úr þessu og legið
óþarflega lengi, enda sýna
flestir einhvern leikaraskap
undir svona kringumstæðum.
En það breytir engu; brot
Geirs er stórlega vítavert, og
skyldi enginn koma svona
fram á leikvelli."
En hvað um lei'k Framliðs-
ins í heild; lék liðið nokkuð
sérlega ólöglega?
Nei, þvert á móti, og það vil
ég að komi fram, að af þeirri
reynslu, sem ég hefi af liði
Fram, er það langsamlega
prúðmannlegast í leik af lið-
um 1. deildar."
„Og frásögnin af leiknum,
samin af Akurnesing-, er langt
frá því að vera hlutlaus. Fram
leikur þarna með einum færra
mest allan leikinn, og vinnur
stóran taktískan sigur. Þeir
lögðu réttilega aðaláherzlu á
vörnina, en Skagamenn fengu
ekki skorað þrátt fyrir mik-
inn ákafa. Guðjón Jónsson
stóð sig sérlega vel í markinu,
og átti það sinn þátt í að
koma andstæðingunum úr
jafnvægi.
„Að lokum vil ég taka
fram, að við dómararnir héð-
an úr Reykjavík förum nú að
hætta að fara til þessara staða
utan við bæinn til að dæma.
Slíkt óþverra orðbragð og
skrílsleg framkoma áhorf-
enda, jafnvel ábyrgra aðila,
er ekki þolandi öllu lengúr.
Knattspyrnuyfirvöldin mega
ekki lengur láta þetta ganga
svona ámælislaust.“
Kormákr.
Fétur Björnsson, Magnús Guðmundason og Óttar Ingvason.
Framhald á bls. 23
Magnús Guðmundsson
íslandsmeistari í golfi
Vann með yfirburðum og náði
glæsilegum árangri