Morgunblaðið - 23.09.1964, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIB
Miðvikudagur 23. sept. 1964
Heræfingarnar á
N-Atlantshafi
Áhugi Rússa ekki óeðliSegur
London, 22. september, AP, NTB
Sovézkar flugvélar, skip, og
kafbátar eru enn á vakki á N-
Atiantshafinu milli íslands og
Noregs, þar sem nú fara frair.
miklar heræfingar á vegum Atl-
antshafsbandalagsins.
í gær var tveim rússneskum
sprengjuflugvélum af Bison-
gerð fylgt út af æfingasvæðinu
og í dag öðrum tveim af Badg-
er-gerð en alls mun sex eða sjö
sinnurn hafa orðið vart við
að Rússar kæmu þar nærri.
Ba ndaríkjamaðurinn Kleber S.
Masterson, aðmíráll, yfirmaður
„árásariiðs“ NATO, sagði við
fréttamenn um borð í flugvéla-
móðurskipinu Wasp, að ekkert
væri óeðlilegt við þennan áhuga
Rússanna. „í>að er samt eins og
þeir hafi einlíverja nasasjón haft
af því sem við ætluðum að gera
Lítil veiði
— bræla
Á MÁNUDAGSKVÖLDI® var
litils háttar sildveiffi 100 sjó-
milur suðaustur af Dalatanga. í
gær var bræla á miðum og ekki
veiffiveffur. Sólarhringsaflinn frá
mánudagsmorgni til þriðjudags-
morguns var 12.500 mál og tunn-
ur hjá 27 skipum. Afli skipanna
fer hér á eftir.
Tunnur: Ólafur Magnússon EA
600, Arnar RE 750, Rifsnes RE
800, Vonin KE 500, Þórður Jón-
asson RE 1.100, Gullberg NS
250, Óskar Halldórsson RE 450,
Jón Kjartansson SU 300, Lómur
KE 250, Vattarnes SU 500, Eld-
ey KE 100 og Guðbjartur Krist-
ján ÍS 100.
Mál: Elliði GK 450, Hannes
Hafstein EA 400, Ásþór RE
850, Snæfugl SU 150, Ásbjörn
RE 500, Guðmundur Péturs ÍS
300, Faxi GK 1.000, Sigurður
Bjarnason EA 700, Bjarmi II.
EA 1.200, Náttfari ÞH 500,
Héðinn ÞH 400, Garðar GK
Ö50, Gjafar VE 1.000, Guðrún
Jónsdóttir ÍS 800 og Loftur
Baldvinsson EA 900.
hér, sagði Masterson, en hefði
þeim verið kunnugt um hvað
það var, hefðu þeir ekki dreift
sér svona mikið.“ Masterson
kivað liðið ekki myndu forðast
Rússa heldur láta viðskipti við
þá vera hluta af æfingunum.
Æfingar herjanna fara nú að-
allega fram á hafinu mildi Nor-
egs og íslands og er m.a. gerð
„árás“ á flugvélamóðurskipið
„Wasp“ og það varið, tundur-
dufl lögð og slædd o.fl.
Eftir nokkra daga munu skip-
in halda í suðvesturátt til þess
að birgja sig upp að eldsneyti
og vistum á hafinu úti fyrir Bret
landi og þaðan mun flotinn halda
tii Biscaya-flóa.
Meira en 160 skip taka þátt í
æfingum þessum, sem eru ein-
hverjar mestu sjóhernaðaræfing
ar sem sögur fara af. Einnig
taka þátit í þeim 170 flujvélar
og yfir 30.000 manna herlið
NATO-ríkjanna.
fy
Sjö ára drengur
rir bíl á Selfossi
KLUKKAN 11,25 á þriðjudags-
morgun lenti sjö ára gamall
drengur á reiðhjóli fyrir bifreið
austur á Selfossi. Drengurinn
var fluttur í sjúkrahús, en
meiðsli hans voru ekki talin al-
varlegs eðlis.
Y : vW' '
Tvíþekjan sem Manfred Lorenz flaug yfir til Vestur-Þýzkat'ands.
standa vörff um vélina í Uelzen.
Vestur-Þýzkir lögreglumenn
Flýði vestur á lítilli flugvél
í bandaríska stórblaðinu
„New York Times“ segir frá
því er 23 ára gamal'l austur-
þýzkur rafvirki flýði flugleið
is vestur yfir landamærin á
fimmtudaginn var. Flaug
hann lítilli tvíþekju og lenti
heilu og höldnu á akri ein-
um skammt frá Uelzen í
Neðra-Saxlandi. Rafvirkinn,
Manfred Lorenz, flaug vél
sinni, sem var þriggja sæta
sportflugvél, gerð í Sovét-
rikjunum, svo lágt að hún
nam við tré á jörðu til þess
að hennar yrði ekki vart á
ratsjám kommúnista.
Manfred Lorenz hafði verið
í áburðardreifingu skammt
frá Anklam og lenti þar sem
snöggvast til að ná í meiri
áburð. En meðan aðstoðarflug
maðurinn og tæk-nifræðingur
sem með þeim var fóru
þeirra erinda, beið Man
fred ekki boðanna held-
ur hóf vélina á loft
og flaug yfir til Vestur-Þýzka
lands. Þangað kominn var
hann á inniskónum einum
saman og hafði ekki
annað meðferðis utan fá-
ein persónuskilríki. Konu
sína og lítið barn
skildi hann eftir fyrir austan
og sagðist ekki hafa þorað
að taka þau með sér í vél-
ina af ótta við að á hana
yrði skotið.
Manfred Lorenz.
<Í>‘M
Tilrauncstöðin á Keldum
fœr á 3 millj. kr. styrk
TILRAUNASTÖÐ háskólans í
meinafræffi aff Keldum hefur und
anfarin fimm ár notið styrks frá
heilbrigffistofnun Bandarikjanna
til rannsókna á mifftaugakerfis-
sjúkdómum í saufffé.
Er styrkur þessi veittur af
stofnun þeirri, sem hefur meff
höndum rannsóknir á taugasjúk-
dómum og blindu í Bandaríkjun-
um (National Institute of Neuro-
logical Discases and Blindness).
í/* NAIShnH*
j / SV50hnúfw
X Sn/é&oma > ÚÍ! Sfrúrir £ Þrjmur wzá KutíoM HnstkJt H Hmt
Styrktímabilið er nú senn út-
runniff og hefur síðasti hluti þessa
styrks nýlega verið veittur, en
alls hefur styrkur þessi numið
rúmlega 50.600 dollurum, eða á
þriffju miiljón íslenzkra króna.
Styrktarfénu hefur einkum ver
ið varið til rannsókna á visnu,
sem er veirusjúkdómur, er veld-
ur hægfara lömunum og upp-
drætti. Sjúkdómur þessi var all-
útbreiddur í sauðfé á Suðvestur-
landi fyrir fjárskipti og olli víða
tilfinnanlegu tjóni.
Danmörk
LÆGÐIN fyrir SV land þok-
aðist austur og grynntist í
gær, og vindurinn snefist um
leið meira til NA-áttar. Á
varðskipinu Ægi austur af
Langanesi voru sex vmdstig,
en þýzkt skip vestur af Vest-
fjörðum tilkynnti 50 hnúta (10
vindstig). Fyrir austan fjall
var víða 10 stiga hiti kl. 15,
en 3 stig á Hólsfjöllum.
Veffurspáin kl. 10 í gær-
kvöldi næota sólarhring:
SV-mið: Austan stinnings-
kaldi, víða skúrir.
SV-land, Breiðafjörður,
Faxaflóamið og Breiðafjarð-
armið: NA-kaldi og síðar
stinnin,gskaldi, þurrt veður.
Vestfirðir og miðin: NA-
átt, stormur á djú prmðurn,
rigning eða slydda norðan til.
Norðurland: NA-kaldi og
síðan stinningskaldi; víða
rigning og síðar slydda.
Norðurmið: NA stinnings-
kaldi og rigning fyrst, síðan
allhvasst og slydda.
NA-land og miðin: NA gola
eða kaldi, dálíti'l rigning.
Þokuloft á miðunum.
Austfirðir og Austfjarða-
mið: Austangola eða kaldi,
dálítil rigning.
SA-land og miðin: A og
SA kaidi. Rigning.
Austurdjúp: S kaldi eða
stinningskaldi. Þokuloft.
Veffurhorfur á fimmtudag:
NA átt og dálítil rigning á
Norður- og Austurlandi, en
þurrt vestamlands.
Framh. af bls. 1.
missti sæti sín á þjóðþinginu
1960, eftir þriggja ára stjórnar-
samvinnu við sósíaldemókrata,
og radikala. Kommúnistar hlutu
þá 27.300 atkv. en engan mann
kjörinn.
Við kosningarnar í nóvember
1960 var atkvæðatala flokkanna
svo sem hér segir:
Sósíaldemókratar 1.024.039
Vinstri fl. . 511.388
íhaldsmenn 436.005
Sósíal. þjóðfl. 149.482
Radikalir 140.808
Óháðir 81.094
Retsforbundet 52.232
Kommúnistar 27.345
Slésvíkurfl. 9.047
S.l. fjögur ár hefur verið í
Danmörku samsteypustjórn, sem
naut stuðnings 76 þingmanna
sósíaldemókrata, 11 þingmanna
radikala (Rad. venstre) og Græn
lendingsins Mikael Gam, sem til
heyrir hvorugum stjórnarflokkn
um og er kosinn í Grænlandi.
Meirihluti stjórnarflokkanna á
þingi var því naumur nokkuð,
er á móti 88 þingsætum þeirra
komu 86 fyrir stjórnarandstöð-
una. Stærsti flokkurinn í stjórn
arandstöðunni var flokkur Eriks
Eriksens, Venstre (bændaflokk-
urinn sem áður var) með 38 þing
sæti. íhaldsmenn höfðu á að
skipa 32 þingsætum, sósíalíski
þjóðarflokkurina 11 og óháðir S.
Sjúkdómi þessum svipar að
sumu leyti til vissra taugasjúk-
dóma í mönnum og m.a. af þeirri
ástæðu er mikilvægt að rann-
saka hann ýtarlega, því að það
gæti veitt aukinn skilning á eðli
annarra h§egfara taugasjúkdóma.
Áðurnefndur styrkur hefur
gert tilraunastöðinni kleift að
vinna mun meira að þessum rann
sóknum heldur en ella hefði orð-
ið og auk þess hefur verið unnt
að afla tækja og útbúnaðar ýmis
konar, sem nauðsynlegur var til
þessara rannsókna. — (Frétt frá
menntamálaráðuney tinu).
444 hvalii
veiddust í ór
Hvalveiffibátarnir fjórir,
sem Hvalur hf. gerir út frá
Hvalstöffinni í Hvalfirffi,
hættu veiffum í gær.
Var vertíffin í ár ]>á orffin
122 dagar, en hún stóff yfir
í 128 daga í fyrra.
Að þessu sinni veiddust alls
444 hvalir, þ.e. 217 langreyð-
ar, 89 sandreyðar og 138 búr-
hveli.
1 fyrra veiddust 439 hvalir
á vertiðinni. Voru það 283
langreyðar, 20 sandreyðar oig
136 búrhveli.
— Tonkin-flói
Framh. af bls. 1.
fer milli Saigon og Hne og einn-
ig vopnaða lest sem síðan kom
hinni til aðstoðar. Þrettán
manns slösuðust af lestarmönn-
um og 10 farþegar.
í Qui Ntion var enn ókyrrð
á götum úti og margt manna á
ferlL Stúdientar höfðu látið
stjórninni eftir útvarpsstöðina
sem þeír tóku í gær, en ekki
vai' útvarpað um stööina.
Heilsufarið
í borginni
MORGUNBLAÐIÐ hefur haft
spurnir af því að starfsmenn hafi
vantað til vinnu hjá ýmsum
fyrirtækjum að undanförnu
vegna pestar, sem gangi yfir á
2—3 dögum og lýsi sér aðallega
í innantökum og uppsölum.
Blaðið hafði því tal af Birni L.
Jónssyni, fulltrúa bongarlæknis,
í gærdag, en hann kvaðst ekki
hafa haft spurnir af því hjá
læknum borgarinnar, að slíkur
pestarfaraldur gengi yfir borg-
ina. Heilsufar almennt virtist í
góðu horfi. Hins vegar bæri þess
að gæta, að fólk tilkynnti ekki
alltaf til lækna, þótt það fengi
ýmsa minni háttar kvilla, sem
gengju fljótt yfir.
Vitni vantar
SL. sunnudag var stúlka 3
leið yfir Austurstræti. Segir húr
að hún hafi gengið út á götuna
fyrir aftan bíl, sem ekið vai
vestur götuna, en í því hafi bíl
inn stoppað skyndilega, og haf
hún þá verið svo nærri að „aft
urstuðari“ bílsirus hafi slegizt
hana með þeim afleiðingum af
hún hlaut allmikinn skurð i
fæti. Henni láðist hins vegar a?
leggja á minnið númer bíLsins
og óskar rannsóknarlögreglaí
eftir því að viðkomandi öku
maður gefi sig fram, hafi haru
orðið var við slysið, svo oií
vitni, sem vitað ar að voru aí
óhappinu.