Morgunblaðið - 23.09.1964, Qupperneq 21
1 Miðvikudagur 23. sept. 1964
MORGUNBLAÐIÐ
21
— Skólaáríð
Framlhald af bls. 20
í íslenzkum skólum. Að öðrum
aðstæðum óbreyttum verður
ekki annað ætlað, en náms-
leiði þessi mundi aukast við
lengingu skólatíma.
3. Undanfarna áratugi hefur hér
1 verið næg atvinna á sumrum
fyrir alla, sem vinna vilja.
Svo er enn, og vonandi verð-
ur ekki breyting á því um
langan aldur. Þetta hefur þýtt,
að sumartekjur skólaæskunn-
ar hafa orðið henni drjúgar í
pyngju, enda hefur stór hluti
námsmanna getað unnið fyrir
sér með þessum hætti þegar
á unga aldri. Ef þessi aflatími
námsmanns er styttur, minnka
að sjálfsögðu möguleikar hans
til að vera frjáls og óháður
í námi sínu, og jafnframt er
stuðlað að því, að lærdómur
sé munaður þeirra ungmenna,
sem eiga efnaða að.
4. í beinu framhaldi af næsta
1 lið hér á undan skal það und-
irstrikað, að sumarvinna ís-
lenzkrar skólaæsku við hin
ýmsu framleiðslustörf til
larxds og sjávar hefur haft það
í för með sér, að þekking þess
arar æsku á störfum og kjör-
um þjóðar sinnar á sér enga
hliðstæðu í þeim löndum, sem
okkur er tamast að miða við.
Hið félagslega gildi þessa at-
, riðis er ómetanlegt, enda hef-
ur það hamlað á árangursrík-
1 an hátt gegn skiptingu þjóðar
' innar í hástéttir og lágstéttir.
6. Sé það ætlunin að lengja ár-
lega skólavist allra nemenda
allt að stúdentsprófi, má ætla,
að atvinnuvegum landsmanna
yrði það nokkur skellur að
missa e.t.v. fjórðung sumar-
vinnu þessa hóps.
Félag gagnfræðaskólakennara
í Reykjavík er að sjálfsögðu
mótfallið taumlauri þrælkun
seskufólks, en gerir sér hins
vegar fullljóst, að margar árs-
tímabundnar atvinnugreinar
miða við ráðningu skólafólks
til sumarstarfa. Auðvelt ætti
»ð vera að reikna út, hvert tap
þjóðarframleiðslu íslendinga
yrði að missi þessara þúsunda
‘ frá starfi einn sumarmánuð.
(. Lenging þessi á skólaárinu
s mundi að líkindum aðeins
koma tál framkvæmda í
Reykjavík, en hér er nú þeg-
ar lengra skólaár en viðast
í GARÐSRÉTT
Þessar myndir tók frétta-
ritari blaðsins á Húsavík. Hér
reka bændur í Fnjdskadal til
Garðsréttar fé af Flateyjar-
heiði og úr Heiðarlöndum þar
í kring, eftir tveggja daga
göngur. Maðurinn er gamall
gangnaforingi og mektar
bóndi, Jón á Skarði í Dals-
minni.
hvar annars staðar á landinu.
Mundi því bilið enn breikka á
milli höfuðstaðarins eg lands-
b yggðarinnar, svo að í óefni
væri stefnt. Að lengdu skóla-
ári hér um einn mánuð mundi
reykvískur unglingur, sem
sendur væri á héraðsskólá,
ljúka árlegum námstíma sín-
um á allt að tveim mánuðum
skemmri tíma en félagar hans
í Reykjavík. Þarf ekki getum
að því að leiða, hvílíkt kapp-
hlaup yrði um það að vista
ungmenni höfuðborgarinnar í
slíkum skólum, og mun þó að-
sókn að þeim þegar teljast
nóg.
7. Samsvarandi mismunur myndi
að sjálfsögðu einnig gæta í
árlegum starfstíma gagn-
fræðastigskennara í Reykja-
vík og úti á landi. 9 mánaða
starfstími hér, allt að 2 mán-
uðum skemmri úti á landi.
8. Að lokum skal á það bent, að
lenging skólaárs hlýtur að
hafa í för með sér stóraukin
útgjöld hins opinbera tit
fræðslumála. Sé fé það, sem
til þarf, fyrir hendi, svo sem
gera verður ráð fyrir, er álita-
mál, hvort því er ekki betur
varið á annan hátt til endur-
bóta á framkvæmd íslenzkrar
unglingafræðslu.
Félag gagnfræðaskólakennara
í Reykjavík vill að síðustu endur
taka það álit stit, að þörf sé
margra endurbóta á fræðslutil-
högun bárna og unglinga, og
flestar þeirra endurbóta þýðing-
armeiri en lenging skólaársins.
Félagið er ávallt reiðubúið til
samstarfs við fræðsluyfirvöld,
bæði bæjar og ríkis, og mun fús-
lega gera nánari grein fyrir skoð
unum sínum á hinum ýmsu þátt
um fræðslumála, ef óskað er.
Sá þáttur mála, sem hér hefur
mest verið um fjallað, lenging
skólaársins, er að félagsins dómi
neikvæður fyrir alla aðila á
þessu stigi málsins.
Félag gagnfræðaskólakennara
í Reykjavík beinir því vinsam-
legast þeim tilmælum til hæst-
virtst fræðsiumálastjóra, að hann
hafi meðal annars þessi sjónar-
mið í huga, en hann fjallar end-
anlega um mál þetta.
Guðrún Gnðmnnds'
dóttir — Minning
29. ÁGÚST síðastliðinn, var gerð
að Síðumúla í Hvítársíðu útför
Guðrúnar Guðmundsdóttur frá
Síðumúlaveggjum í sömu sveit,
að viðstöddum óvenjumiklum
mannfjölda, sem sýndi, hvað
þessi góða kona hafði verið sam
ferðamanninum.'
Engan mann hef ég svo hitt,
að Guðrún skipaði ekki vegleg-
asta sessinn hvar sem hún fór
með geði sínu og göfuglyndi.
Sérstaklega eru mér minnis-
stæð þakklætisorðin frá mági
hennar og svilkonu á Ferju-
bakka, fyrir allt sem hún var
þeim og börnum þeirra í gleði og
sorg, og vart Jveit ég innilegri
tengsl milli mágfólks en þar var.
En það er nú svo meðan lífið
brosir við Oig allt léikur í lyndi,
verður manni á að öslast áfram
í hversdagsleikanum og gleyma
velgerðum góðra manna, sem
fyrir verða á lífsleiðinni, svo allt
í einu þegar blöð og útvarp
flytja andlátsfregn um gamlan
vin, setur mann hljóðan. Streng-
ir slakna, minningar vakna.
Ég man í Rauðanesi fyrir 38
árum er þú ásamt sambýliskonu
þinni með mjúkum móðurhönd-
um vernduðuð regnbarinn föru-
dreng, sem kom þreyttur og
svamgur um langan veg.
Um há.lfs árs skeið dvaldi ég
á bænum ykkar og leið aldrei
betur en þá. Við erfiðar aðstæð
ur frumbýlingsins varð hver dag
ur hamingjustund, og hvergi
hef ég vitað tvær fjölskyldur
svo óviðjafnanlegar.
Fyrir þessar stundir þakka ég
þér og bið vinum þínum, ætt
mönnum og maka huggunar
sorg.
Blessuð sé minning þín.
BJ.
vortir
Kartoflumús — Kakómalt
Kaffi — Kakó
Reynisbúð, Brœðraborgarstíg
Stúlkur óskast
Óskum að ráða nokkrar stúlkur á bók-
bandsvinnustofu okkar.
Félagsbókbandið
Ingólfsstræti 9.
Skipasmíðastöð iMjarðvíkur
óskar eftir smiðum og verkamönnum nó
þegar. — Uppl. hjá verkstjóra sími 1250.
Skipasmíðastöð Njarðvíkur.
Afgreiðslumaður
óskast. — Upplýsingar á skrifstofunni
í dag milli kl. 5—6.
lHálarinii
Matrá-skona - Starfsstúlkur
Matráðskona og starfsstúlkur óskast að Vist-
heimilinu að Arnarholti á Kjalarnesi.
Upplýsingar í síma 22400 frá kl. 9 — 17.
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.
Framleiðendur
athugið:
Önnumst sölu og dreyfingu innlendra
f ramleiðslu vara,
Sími 18560
Verzlanasambandið h.f.
Skipholti 37.
Sendisveinar
Ökkur vantar sendisvein hálfan
eða allan daginn.
Atvinnudeild Háskólans
Skúlagötu.
Sendisveinn
Nú þegar viljum við ráða sendisvein til
starfa í Bifreiðadeild félagsins ða Lauga-
vegi 176.
Sióvátryggingafélag íslands hf.