Morgunblaðið - 23.09.1964, Page 26
26
MORCU NBLAÐIÐ
Miðvibudagur 23. sept. 1964
Bylting í fjárhagsáætlun
íþróttasantbands fslands
— vegna 1,8 milBj. kr. lekraa af vindBingaskatli
MARGAR og merkar tillögur
voru ræddar á íþróttaþingi, og
fjölluðu nefndir þingfulltrúa um
þær allar. Mestar urðu umræð-
urnar um fjármálin, enda hefur
bylting orðið I starfi ÍSÍ með
hinum nýja tekjulið, sem sam-
böndunum var fenginn með IZV2
eyris skatti af hverjum vindlinga
pakka. 1 f járhagsáætlun sam-
bandsins er gert ráð fyrir að
tekjur af þessum lið verði 1,8
millj. kr. eða 150 þús. kr. á
xnánuði.
í fjárhagsáætlun sambandsins
fyrir næsta ár kennir og bylt-
ingar í fjárveitingum til íþrótta-
starfsins.
Er gert ráð fyrir þvi, að ÍSÍ
ráði til sín tvo sérmenntaða
menn til íþróttakennslu og leið-
beinandastarfa og ferðist þeir að
staðaldri milli sambandsaoilja.
Hefur þetta lengi verið draumur
ÍSÍ en ekki orðið að veruleik'a
vegna mjög takmarkaðra fjár-
ráða. <
Til útbreiðslustarfseminnar er
auk þess jætlað að verja fé svo
sem hér segir:
Til héraðssamb. kr. 350.000
— sérsambanda — 350.000
— íþróttamerkjan. — 35.000
— unglingaráðs — 20.000
— kvennaráðs — 10.000
— fræðsluráðs — 100.000
— námskeiða — 80.000
— útgáfustarfsemi og
annarar útbreiðslu — 120.000
Samtals kr. 1.065.000
Ýmsar aðrar tillögur fjárhags
legs eðlis sem varða fjárhagssam
Ruml. 200 glímumenn
stoíni landssamband
MEÐAI, tillagna, sem lágu fyrir
íþróttaþingi, var þingsályktun
um að sú þróun sé eðlileg, að
sérsamband verði myndað fyrir
íslenzka glímu. Fyrir því feiur
þingið framkvæmdastjóm ÍSf að
vinna að undirbúningi og stofn-
un sérsambands í glímu á þessu
hausti.
íþróttanefnd þingsins fjallaði
um málið og vom nefndarmenn
ekki spenntir fyrir framgangi
málsins að sögn framsögumanns
nefndarinnar. Fyrir áeggjan
stjórnarmanns ÍSÍ varð nefndin
þó ásátt um að mæla með samlþ.
tillögunnar við þingið. Enginn
ræddi málið og lítill hluti þing-
fulltrúa greiddi atkvæði með til-
lögunni og einn á móti. Var það
eina mótatkvæðið sem á þinginu
féll.
Samkvæmt lögum ÍSÍ um sér-
sambönd þurfa 6 sérráð að
standa að stofnun sérsambands.
Sex glímuráð eru ekki til í land
inu og mjög erfitt hefur reynzt
undanfarna áratugi að starf-
band ÍSÍ og aðildarfélaga voru
samþykktar.
Af tillögum allsherjarnefndar
voru helztar, að stjórn ÍSÍ yar
heimilað að koma' á landshapp-
drætti einu sinni á ári til styrkt-
ar hinu félagslega-starfi íþrótta-
og ungmennafélaga í landinu.
Yfirlýst var að „formanna-
fundurinn“ svonefndi í Hauka-
dal hefði gefið svo góða raun,
að rétt væri að slíkir fundir yrðu
haldnir annað hvert ár, það árið
sem íþróttaþing væru ekki.
bá var samþykkt tillaga frá
Þorsteini Einarssyni svohljóð-
andi:
„íþróttaþing ISI haldið 19. og
20. sept. 1964, samþykkir að fela
öllum sambandsaðilum sínum að
vera vel á verði um:
1. að þau svæði eða lóðir, sem
á gildandi skipulagi kaupstaða
eða kauptúna, eru ætluð undir
íþróttamannvirki, séu eigi
skert eða felld niður sem slík
og tekin undir annað.
2. að íoma tillögum um nauð-
synleg svæði eða lóðir undir
Framh. á bls. 27
rækja glimuráð Reykjavíkur —
og aðeins tekizt með höppum og
glöppum. Virðist því næsta furðu
legt að hlaupa til og stofna lands
samband — þó það sé kannski
meðalið að hafa samtök glímu-
manna nógu víðfeðm.
Það vakti athygli fréttamanna
á þinginu að fulltrúar á iþrótta-
þingi skuli grípa til rómantískra
lýsingarorða þegar rætt er uoi
glímu og kalla hana þá gjarna
,Jþjóðaríþróttina“. Var þó upp-
lýst af stjórn ÍSÍ að virkir þátt-
takendur í glímu eru eitthvað
rúmlega 200 talsins. Önnur íþrótt
er stundum kölluð „íþrótt íþrótt-
anna“. Á sama hátt mætti kalla
körfuknattleik „nýtízkulegustu
íþróttina“, knattspymu e.t.v. „vin
sælustu íþróttina" og frjálsiþrótt
ir hina „klassi.skustu“.
Svona rómantík er afsakanleg
í héraðsmótum og félagsafmæl-
um en meðal fulltrúa sem eiga
að fjalla um íþróttamálin al-
mennt er hún næsta hjákátleg.
— A. St.
-9
Högni og Jón Þór sonur hans.
— Ljósm.: Sv. Þ.
Óli B. þjálfari vill að við
vinnum „bikarinn" líka
BB
— segsr Högni GuffinBsugsson
fyrirEiði Keffvíkiaiga
— ÞETTA er allt saman voða-
lega gaman, sagði Högni Gunn
laugsson, fyrirliði Keflavíkur-
liðsins, er við hringdum hann
upp í gærkvöldi.
Högni var að koma af æf-
ingu, rétt kominn inn úr dyr-
unum.
— Þið bara æfið áfram,
svona strax eftir sigurinn?
— Við tökum klukkutíma
Þessi mynd er frá leik Keflvíkinga og KR. Hér skorar Ellert eina mark KR — Knötturinn fer
undir Kjartan markvörð. — Ljósm. Sv. Þorm.
æfingu annað slagið. Óli B.
vill þetta og við hlýðum. Óli
segir að hinir séu hættir að
æfa en við megum það alls
ekki.
— Þið ætlið þá að vinna
bikarinn líka.
— Óli vill það helzt.
— Óli hefur lyft vel undir
þetta hjá ykkur?
— Við hefðum ekki getað
fengið betri mann, segir
Högni. Hann er svo samvizku-
samur, áhugasamur og slíkur
félagi að það er ekki hægt
annað en smitast af honum og
fyllast sama áhuganum á að
ná takmarkinu sem sett er.
■— Hvað eruð þið margir sem
æfið og keppið í 1. deildar
liðinu?
— Það eru 14 sem hafa kom
íð inn á völlinn í mótinu, en
það eru 18—20 sem æfa að
staðaldri.
— Hvernig hélduð þið upp
á sigurinn? ,
— Við fórum til Reykjavik-
ur og lyftum okjcur vel upp.
Við borðuðum fyrst á Sögu
og þegar skemmtun lauk þar
brugðum við okkur í Þórs-
kaffi.
— Þið hafið ekki rekizt á
neina af KR-ingunum þar?
— Nei, ekki í þetta skipti.
— Og hvað á svo að gera á
sunnudaginn þegar þið fáið
bikarinn afhentan?
— Ég veit það ekki með
vissu. Ég hef heyrt því fleygt
að bæjarstjórnin ætli að gleðja
okkur eitthvað, en ég veit það
ekki með vissu.
— Sveinn Þormóðsson tók
ágæta mynd af þér eftir að
sigurinn var tryggður á dög-
unum. Þá er strákurinn þinn
kominn í fang þér.
— Já, hann heitir Jón og er
7 ára en þó áhugasamur knatt-
spýrnumaður, nú hvað sem síð
ar verður, sagði Högni
Sigurlaun í Bikarkeppninni.