Morgunblaðið - 23.09.1964, Side 27
Miðvikudagur 23. sept. 1964
MORGU NBLAÐiÐ
27
Athugasemd
Myndin er tekin við Gvendarbrunna í gær. Ef allt væri með' felldu, ætti vatnsborðið að nema
efri brún neðri hvítu rákarinnar. Á vetrum nær vatnið allt upp að bakkanum, þar sem Sigurður
Sigurðsson, vatnsveituvörður, stendur. (Ljósm. Mbl.: Sv. Þ.)
Vatnslítið í borginni
V ATN SLÍTIÐ hefur verið í
Reykjavík að undanförnu, og
sagði Þóroddur Th. Sigurðsson,
vatnsveitustjóri, i samtali við
Mbl. í gær, að vatnsborðið í
Gvendarbrunnum hefði lækkað
um 70 til 80 cm. frá því í ágúst.
Orsökin til þessa vatnsleysis
er sú, að algert snjóleysi var í
vor og þurrkar hafa gengið hér
í sumar. Vatnsveitustjóri kvaðstl
ekki telja ástæðu til að ætla, að
vatnið minnkaði enn, og ætti
ástandið því ekki að versna úr
þessu.
Á mánudag kom grjót í dæl-
una við Gvendarbrunna og stífl-
aði hana í rúman klukkutíma.
Á kvöldin tekur dælan í sig
loft eins og stendur.
ÚT A'F frétt í Morgunblaðinu í
gær varðandi neitun Framleiðslu
ráðs landbúnaðarins á veitingu
sláturleyfis til Kaupfélagsins
Höfn á Selfossi og útgáfu land-
búnaðarráðherra á bráðabirgða-
lögum af því tilefni, vill Fram-
leiðsluráðið taka eftirfarandi
fram:
1. í 14. gr. laga um Fram-
leiðsluráð landbúnaðarins o.fl.
nr. 59 frá 19. júlí segir um út-
hlutun sláturleyfa: „Leyfi til
alátrunar skal veitt til eins árs
í senn. Leyfi skal veita lögskráð-
um samvinnufélögum sem starf-
andi eru við gildistöku laga þess
ara svo að þeim samvinnufélög-
um, sem stofnuð kunna að verða
á viðskiptasvæðum félaga, sem
hætta störfum án þess að bænd-
tir á viðskiptasvæðinu gerist með
limir annarra félaga. Heimilt er
að veita sláturleyfi félögum neyt
enda á þeim stöðum, þar sem
ekki eru sláturhús, en aðeins fyr
ir það fé, sem þau kynnu að
kaupa til neyzlu meðlima sinna.
Ennfremur getur nefndin veitt
leyfi samvinnufélögum bænda,
er stofnuð kunna að verða eftir
að lög þessi öðlast gildi, á svæði,
þar sem ekki eru samvinnufélög
fyrir, og ekki falla undir ákvörð
un 4. málsl. þessarar greinar, og
sömuleiðis þeim verzlunum öðr-
— Landhelgisbrot
Framhald af bls. 28
hann hefði tekið eftir því, að
skipið fór fimm sjómílna leið á
stundarfjórðungi, hefði hann
gert sér Ijóst, að þar væri Óðinn
á ferðinni, því að ekkert annað
skip hér við land gæti siglt með
20 sjómílna hraða á klst..
Taylor bar það einnig, að
hann hefði orðið var við eitt
laust skot frá Óðni, en því hafi
verið skotið á Wyre Vanguard
og stefni Óðins snúið frá James
Barrie. Kvaðst hann hafa talið,
að Óðinn væri að eltast við
Wyre Vanguard, en ekki James
Barrie.
Var þá rannsókn málsins lokið
Og því vísað til saksóknara ríkis-
ins. Barst frá honum síðdegis í
dag ákæra á hendur Richards
Taylors fyrir ólöglegar veiðar
innan fiskveiðitakmarkanna.
Kl. 14.30 kom fyrir rétt Will-
iam Spearpoint, skipstjóri á
Wyre Vanguard, og hafði þá
borizt ákæra frá saksóknara á
hendur honum. Var Gísli ísleifs-
son, hrl., skipaður verjandi skip-
stjóra, en málið síðan tekið til
munnlegs flutnings. Hófst hann
kl. 17.30 og krafðist verjandi
þess, að skipstjóri yrði sýknaður,
en að ræðu verjanda lokinni var
niálið tekið til dóms.
I kvöld fer fram munnlegur
tnálflutningur í máli Richards
Taylors, en verjandi hans er
einnig Gisli ísleifsson. Má búast
við, að dómur í málum beggja
akipstjóranna verði kveðnir upp
síðdagis á morgun. — H. T.
'lbróttir
Framhald af bls. 26.
íþróttama'nnvirki nógu
snemma á framfæri trl viðkom
andi yfirvalda, er unnið er að
skipulagi nýrra byggðahverfa
eða er gera skal breytingar á
gömlum hverfum.
Enn fremur skorar þingið á
nýskipað skipulagsráð að gæta
þess að vel sé séð fyrir þörfum
almennings og íþróttamanna
hvað snertir stærð og legu op-
inna svæða, þar sem iðka má
íþróttir og að slík svæði séu
skipulögð sem varanleg mann-
virki en ekki til bráðabirgða.
í sambandi við skipulagningu
skólalóða beinir þingið þeim til-
niælurn til menntamálaráðuneyt
isins, að fyrst og fremst séu um
ræddar lóðir skipulagðar og unn
ar í tilliti til hreyfingar- og
leikjaþarfa skólanemenda".
Tillagna íþróttanefndar verður
getið siðar.
um, sem uppfylla skilyrði þau,
sem sett eru um sláturhús og
verzlun kjöts samkvæmt ákvörð
un laga um kjötmat o.fl. nr. 5,
22. febrúar 1949“
Upplýst var að flestir bændur
þeir, sem eru félagsmenn í Kaup
félaginu Höfn, eru líka félags-
menn í Sláturfélagi Suðurlands:
Jafnframt var upplýst að Slátur
félag Suðurlands gat annast alla
slátrun fyrir félagsmenn sína og
aðra fjáreigendur á Suðurlandi.
Það hefur m.a. verið að byggja
nýtt sláturhús í Laugarási til að
geta fullnægt óskum félags-
manna sinna í þessu efni.
Það var því hvorki lagalegur
né siðferðislegur grundvöllur fyr
ir því að veita Kaupfél. Höfn
sláturleyfi.
2. Á fundi Framleiðsluráðs
land'búnaðarins 27. ágúst sl. var
umsókn Kaupfélagsins Höfn lögð
fram Oig gerð svofelld bókun:
„Pétur Ottesen óskaði þess að
framleiðsluráð veitti ekki þetta
leyfi og gerði um leið ýtarlega
grein fyrir þvi, að heppilegra
væri að Sláturfélag Suðurlands
hefði þessa starfsemi með hönd-
um. Einnig benti Pétur og Agnar
Tryggvason á að frá lagalegu
sjónarmiði væri óheimilt að'
veita nema einu félagi sláturleyfi
á sama svæði. Tillaga Péturs um
að synja um leyfið var borin
undir atkvæði og samþykkt með
öllum atkvæðum."
Þetta óskast birt í blaði yðar.
Reykjavik, 18. sept. 1964
f.h. Framleiðsluráðs landbún
aðarins
Gunnar Guðbjartsson, form.
Síld og síldar-
tekjur
AKRANESI, 22. sept. — Fyrsti
báturinn, sem fór út á síldveiðar
kl. hálftvö eftir hádegi í dag,
var Höfrungur II. Á eftir fóru
út Anna og Höfrungur III.
Hásetahlutur á vb. Sólfara á
sumarsíldveiðunum var 120 —
130 þús. kr. Ingvi Sigurðsson,
knálegur fjórtán ára drengur
hérna á Skagabraut 40, vann í
sumar í tvo og hálfan mánuð á
síldarplani austur á Seyðisfirði
og fékk 30 þús. kr. í kaup.
TVEIR þrettán ára drengir slös-
uðust í gær, þegar þeir hjóluðu
á sama reiðhjólinu framan á
sendiferðabil. Hlaut annar opið
beinbrot á fæti.
Um kl. 13 voru drengirnir á
ferð niður Tunguveg á hjólhesti.
Haraldur Hallsson, Tunguvegi 86,
stýrði hjólinu og reiddi Guðmund
Sigurjónsson, Ásgarði 105. —
Strætisvagn var á undan hjólinu
og hægði hann ferðina, er hann
kom í beygjuna fyrir ofan Miklu-
Réttir
Framh. af bls. 3
og gríðarstór svartur hundur
var ekki seinn á sér að grípa
hana. „Þetta er heimilishund
urinn minn.“ sagði Þorvald-
ína, „hann ætti nú skilið að
fá mynd af sér í blaðið, jafn
duglegur og hann er.“
★
Úti fyrir kepptust karlmenn
irnir við að koma fénu úr
seinustu hólfunum upp á bíla.
Réttunum var að ljúka, en
enn streymdi fólk að.
Menn klöppuðú á axlirnar
hver af öðrum og hrópuðu:
„Nei, þú hérna“ o.s.frv. —
Lögregluþjónar héldu uppi
reglu á veginum, enda veitti
braut rétt við gamla Breiðholts-
veginn. Hjólið var þá komið á
mikla ferð og sveigði fram fyrir
strætisvagninn. Lenti það þá fram
an á sendiferðabíl frá Morgun-
blaðinu, sem kom á hægri ferð
á móti á sínum vegarhelmingi.
Vissi bílstjórinn ekki fyrri til, en
reiðhjólið kom á hraðri ferð
framundan strætisvagninum, og
nam hann þá þegar staðar.
Bílstjóri sendiferðabílsins hlúði
að piltunum eftir föngum, mcðan
ekki af, því umferðin var bæði
mikil og fjölbreytt og allir
hugsuðu um það eitt að kom-
ast áfram. Degi var tekið að
halla og lundin að léttast. —
Kindunum var ekið burt og
þær horfðu gegnum rimlana
með sama „hlutlausa" svipn-
um. Einstaka hundur fékk
fría ferð með bílnum heim.
Hg.
Leiðrétting
í ÞÆTTINUM um hljómplötur í
sunnudagsblaðinu 20. þ.m., féll
niður undirskrift við aðra mynd
ina. Hún átti að vera þessi:
Quad-hátalari í hlustunarher-
bergi BBC.
hjálp var sótt. Kom lögreglan þeg
ar á vettvang, svo og sjúkrabíll
og bifreiðaeftirlitið. — Piltarnir
voru fluttir í Slysavarðstofuna.
Hafði Haraldur hlotið opið bein-
brot á fæti, en hinn mun ein-
ungis hafa skrámazt.
Lögreglan tjáði Mbl. í gær, að
börn og unglingar gerðu mikið af
þvx um þessár mundir að tví-
menna á reiðhjólum. T.d. voru
sex börn tekin og áminnt í gær-
dag fyrir þetta umferðarbrot.
Lögreglan segir, að þetta tiltæki
sé stórhættulegt, enda er lagt
blátt bann við því í lögreglusam-
þyktinni. Eina undantekningin er
sú, að fullorðnir menn mega reiða
ungt barn í sérstaklega útbúnu
sæti á hjólinu.
— Bólivía
Framh. af bls. 1.
urðu af mikil spjöll.
Einhverjir munu hafa særzt
í viðureign lögreglu og upp-
reisnarmanna í Sucre en eklci
fer sögum af mannfalli. Innan
ríkisráðherra Bolivíu, Ciro Hum-
bolt, sagði að friður væri kominn
á í landinu og allt væri með eðli
legum hætti á ný að kvöldi
sunnudags, en stjórninni hefði
verið kunngjört um uppreisnar-
tilraunina þá um morguninn.
Segir stjórn Paz Estenssoro að
uppreisnartilraunin hafi verið
lokaáfangi uppreisnarmanna
þeirra er mest hafa haft sig i
frammi í austur-héruðum lands
ins. Sendi stjórnin síðsumars her
menn til að ráða niðurlögum
skæruliða í Santa Cruz og San
Sumon, en þar hefur ríkt hern
aðarástand sl. tvö ár og var tal-
ið að þar hefðust við um 80 skaeru
liðar. Talsmaður breiðfylkingar
sósíalista, Gonzalo Romero, sagði
í ágúst, að flokkur sinn hefði
lagt á ráðin um skæruliðahernað-
inn til þess að mótmæla „einræð
islegum aðferðum" ríkisstjórnar-
innar. Hann þvertók fyrir að er-
lendir aðilar s.s. stjórn Castros
á Kúbu ættu þar nokkurn hlut
að máli.
- XXX ------
Bólivía er fátækt land, sem
hvergi nær að sjó. Það telur um
3,5 milljónir íbúa, sem hafa að
meðaltali um 95 dali (banda-
ríska) í árslaun. Þar er gífurleg
verðbólga og gullforði landsins
á þrotum, en Bandaríkjamenn
hafa veitt landsmönnum mikla
efnahagsaðstoð eða samtals yfir
300 millj. dala á undanförnum
12 árum. Víctor Paz Estenssoro
tók við völdum þar árið 1952
af herforingjaráðinu er þá var og
hefur síðan ráðið lögum og lof
um í landinu.
★
Von er á de Gaulle, Frakklands
forseta, sem nú er í heimsókn í
Venezuela, til Bolivíu 28. sept.
Ekki er gert ráð fyrir því að at-
burðirnir um helgina hafi nokkur
áhrif þar á.
Eldur á bílaverk-
stæði
FL. 10 á þriðjudagsmorgun
kom upp eldur í bíl á Litla bíta-
verkstæðinu. Kviknað hafði í út
frá logsuðu. Töluverður eldur
var í bílnum, þegar slökkviliðtð
kom á vettvang og mikið reykj-
arkóf. Bíllinn náðist út og var
þá slökkt í honum. Annar bftl
brann einnig mikið að irntan.
og urðu þvi talsverðar skemmdir
af eldinum.
Um hádegisbilið var slökkvi-
liðið kvatt að Fálkagötu 12 Þar
hafði kviknað í feiti á pönou á
eldavél. Slökkt hafði verið í
feitinni, þegar slökkviliðið kom,
og urðu sketníndLr litlar.
Þessi mynd var tekin á slysstaðnum í gær. Strætisvagninn var að fara vinstra megin niður beygj-
una, þegar hann hægði á scr, og piltarnir, sem tvímcnntu á hjólinu fyrir aftan hann, hrunuðu fram
úr honum og lentu framan á sendiferðabílnum, sem sést standa yzt á vegarbrúninni hægra megin.
(Ljósm. Mbl.: Sv. Þ.)
UmferðarsSys í gær:
Drengir tvamenntu á hjoli,
óku á hil og slósuðust