Morgunblaðið - 24.09.1964, Blaðsíða 21
Fimmtudagur 24. sept. 1964
MORCU N BLAÐIÐ
21
HAMARSRÉTT
EKKI þurfum við að fara lang-
an veg svo að fyrir okkur beri
ýmsir þeir staðir er til vor tala
í gegnum ótal minningar frá
liðnum árum.
Það eru skýrar og óbrotgjarnar
myndit.
Til þessara staða má telja
Hamarsrétt, skilarétt Vatnsnes-
inga, hún er til orðin fyrir fram-
tak forfeðra okikar. Þeir völdu
Ihenni þennan stað, sem veitti
tnönnum oig skepnum skjól fyrir
þrem veðuráttum og hringlaga
hvammur afmarkaði stærð rétt-
arinnar.
Þeir voru ek'ki alltaf lopnir í
hagsýninni gömlu mennirnir.
> í þessu tilfelli er engu líkara
en hvammurinn sé til fyrir rétt-
ina og réttin fyrir hvamminn.
Jafnan var það svo er um
byggingar var að ræða að notað
var það efni, sem næsta um-
hverfi gat í té látið og svo var
einnig hér.
Réttin var gerð úr torfi og
grjóti í tveim misstórum hring-
um.
Bili á milli ytra og innri hrings
var skipt í dil'ka með timbur-
skilrúmum, en innan innri
hringsins var hinn svokallaði al-
menningur með tveim jarðefnis-
veggjum til vesturs sem mynd-
aði innreksturganginn.
Á þann hátt var vesturkantur
réttarinnar notaður til stuðnings
við aðrekstur en sjórinn veitt
aðhald á hinn veginn.
Fjársafn stóð við sjóinn sunn-
an við Hamarsá meðan réttað
var.
Þar stóð hin prúða Gráflekka,
aem átti fallegu söguna, sem
börnin um allt ísland lásum í
Dýravininum.
En ofan við Fjársafnið léku
þær siti hófaspil Þorgrímsstaða
Skjóna og Hlíðarnös með Sauða-
dalsá og Hamarsrétt sem loka-
mörk sprettfæris.
Þar var heldur ekki langt frá
fallegi grái hesturinn hann
Sauðadalsá-Fálki, sem segja
mátti að ætti Hamarsá að leik-
systur.
Hann var alltaf jafn rólegur
og svipbriigðalaus hvort heldur
áin hjalaði við hann og laugaði
fætur hans, eða hún var ör og
ólgandi og lagðist honum að
síðu.
Á austurvegg Hamarsréttar
liggur Spori viðbúinn að sækja
hverja þá kind, sem frá réttinni
sleppur, og ekki langt þaðan
ejáum við Tevu, sem átti tryggð-
ina svo mikla að hún lagðist á
fjárhúsmæni yfir líki húsbónda
síns. og varð ekki þaðan tekin
fyrr en blýkúlan hafði veitt
henni líkn I þraut.
Þanniig og á fjölmarga fleiri
vegu tala minningar húsdýranna
til okkar.
Segja mátti að Hamarsrétt
væri hinn óformlegi þingstaður
hreppisins, þangað sóttu ur.gir
©g gamlir. Þar voru mestu gleði-
tnót ársins hjá unigu fólki, en
einnig afgreidd hin þýðingar-
mestu mál af ýmsu tagi að
ógleymdri kaupstefnu hinna
eldri manna.
Þar voru reikningsskil og þar
málti heyra töluð orð í fullri
meiningu án undandráttar.
En þar voru einnig jafnaðar
deilur og mælt til vináttu.
Þanniig koma minningarnar
mér fyrir sjónir.
Ekki er ætlan mín að rekja
hér lerugi þennan þátt liðinna
atburða.
Þó get ég ekki stillt mig um
eð draga fram tvö atvik, sem
sýna að fleiru var sinnt í Ham-
ersrétt en brýnustu skyldum við
íjárskilin.
Við erum stödd í Almenning
Hamarsréttar fagran haustdag,
sólin er ekki komin í hádegis-
stað og réttarstörf eru um það
bil hálfnuð.
Okkur verður litið norðvestur
yfir réttina oig fyrir augun ber
kona, er kemur ríðandi norðan
fjörukambinn.
Hún hvetur hestinn og heldur
að réttardyrum.
Við gangvegginn rennir hún
sér liðlega úr söðlinum og leggur
taum . hestsins yfir dyrastöpul-
inn, svo genigur hún teinnétt og
hvatlega í átt að Almenning.
Þar kastar hún kveðju á fólk-
ið svo snýr hún máli sýnu að
ungum manni nærstöddum, sem
var höfðinu hærri en aðrir þeir
sem í almenningnum voru.
Þegar þau hafa tekið tal sam-
an dregur hún skjal úr barmi
sínum og réttir honum, en hann
kveður sér hljóðs og les og að
lestri loknum talar hann frá
eiigin brjósti.
Hér voru þau að vinna að einu
og sama máli húsfreyjan á
Heiðafelli, Auðbjörg Jakobsdóttir
og tengdasonur hennar, Guð-
mundur Arason síðar hreppstjóri
á Illugastöðum.
Þau eru að minna á ungan
mann í hreppnum, sem hefir
orðið að ganga undir þann ör-
lagadóm að missa aðra hend-
ina á há skeiði æfinnar, oig þau
biðja hreppsbúa að leggja fram
sitt litla lóð til að bæta honum
þann missi að svo miklu leyti
sem það er á ’þeirra valdi.
Hvað er lífið?
Gáski og alvara, tvær greinar
af sama stofni.
Ég sagði áður að Hamarsrétt
hefði verið staður reikningsskila.
Þar var ósjaldan innköllun
sveitangjalda. Við vissum hvað
það þýddi er góðkunningi okk-
ar tóku sér sæti á vegg almenn-
ingsins og fór að handleika brúna
leðurveskið með ólinni sem
reynt var að smeygja yfir miðj
una, enda stóð þá sjaldan á kall-
inu til gjaldenda.
Ég minnist eins slíks atviks.
Granni okkar er kominn í
sæti sitt og beinir rödd sinni
til þín og mín í almenningnum.
En þá uppgötvum við tíðum að
við höfðum farið van búnir að
heiman, og þá var að grípa til
þeirra ráða, sem helzt voru til-
tæk.
Ætli hann Fúsi geti ekki
lánað mér? Og Fúsi lánaði.
Ég ætla að biðja Sigfús, og
Sigfús lánaði oig lánaði.
Loks var nafnalistinn á gjald-
skránni á enda og síðast var Sig-
fús kallaður og beðinn að borga
útsvarið.
Einum of seint, brunnurinn
var þurrausinn. Sigfús hafði lán-
að allt úr veskinu sínu. Þá hló
skattheimtumaðurinn og sagði:
„Trúir nokkur því að hann
Sigfús í Stöpum geti ekki borg-
að útsvarið sitt?“
Tíminn með sína þjóðlífshætti
breytist. Nú sézt ekki lengur að
bændur og búalið raði sér í
hvamminn og stífi þykk sauða-
föll úr hnakktöskum.
En ennþá á Hamarsrétt með
sínu sérkennilega umhverfi að-
dráttarafl.
Um hásumarskeið renna lang-
ferðabílar að réttinni og hús-
freyjur úr höfuðstað norður-
lands taka mali sína og ganga í
hvamminn.
Þættir tilverunnar eru á ýmsa
vegu samofnir, og litbrigði lífs-
ins mörg. En að baki okkar
þylur niður tímans við eyru og
við berumst fram fyrir næsta
leiti.
Ágúst Jónsson
Svalbarði.
íbúðaskipti
Vil skipta á 4 herbergja íbúð fyrir 6 herbergja
íbúð í Vogunum. Tilboð sendist Morgunblaðinu
merkt: „Stækkun — Vogar — 9010“.
Starfsstúlku
vantar í tvo mánuði á stórt heimili í nágrenni
Reykjavíkur. Ágætt kaup. Þær sem vilja sinna þessu
leggi nafn og heimilisfang og símanúmer ef hægt
er í umslag á afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir 26.
þ.m. merkt: „Ágætt kaup — 9009“.
SALLY RANDALL
„The Devil and the Virgin“
%
Kvöldverður framreiddur frá kl. 19,00.
GLAUMBÆR simi 11777
Skrifstofu- og iðnadarhúsnæði
150 — 200 ferm. húsnæði óskast sem fyrst fyrir
skrifstofur og saumastofu. Þarf helzt að verá nálægt
miðbæ. — Upplýsingar í síma 1 65 90.
H úsgagnasmiÖir
Húsgagnasmiðir eða trésmiðir vanir innréttinga-
vinnu, einnig lagtækir hjálparmenn óskast nú þegar.
C. Skúlason & Hlíðberg
Þóroddsstöðum.
ODYBT!
Fyrir konur! Fyrir karla!
Kápur, margar teg. Mislitir bolir
kr. 295.- fcr. 55.-
Sísléttar blússur Sportskyrtur
kr. 125.- kr. 150.— Hvítar og mislitar
Peysur skyrtur
kr. 45.— fcr. 750.-
Síslétt sængurver fcr. 3T5.— Pophn blússur
frá kr. 175.—
Síslétt lök kr. 125.— Sportskyrtur kr. 175.— Karlmannafrakkar
Ullargarn, 50 gr. margar tegundir
kr. 20.— kr. 400.—
Fyrir börn og unglinga !
Telpnaúlpur Drengjaskyrtur
kr. 295.- kr. 98.—
St. 10—12 Barnapeysur
Drengjaúlpur kr. 35.—
kr. 295.— Ullargolftreyjur
St. 2—10 kr. 200.— Sportsokkar
Drengjagallabuxur kr. 12.—
Stærðir 14—16 Telpnasportbuxur
■i • >0 00 • 1 kr. 98.-
Itlotiií tækifærið - ( lerið ódýr innkaup -
Hiícins |i essa tikn
Austurstræti 9.