Morgunblaðið - 11.10.1964, Page 10

Morgunblaðið - 11.10.1964, Page 10
10 MORGU N BLAÐID Sunnudagur 11. okt. 1964 "Hin ósögðu; ásæknu lausnarorð“ Kristján Karlsson skrifar um Stein Steinarr og skáldskap hans Af gleri strokið gamalt ryk og hjóm er gleði þín oig hryggð í rúmi og tíma. í>að andlit, sem þú berð, er gagnsæ gríma, og gegnum hana sér í auðn og tóm. Steinn Steinarr gerðist heim- spekilegt skáld og frumieik hans og skáldlegan þroska má rekja til heimspeki ljóða hans. Að segja það er ekki sama og að fullyrða, að sú heimspeki sé góð eða rétt; ef vér freistum að leysa hann upp í rökhugsun, reynist hún vera blákaldar stað- hæfingar; ef vér ætlum að opna skel kvæðanna til þess að kom- ast að kjarna heimspekinnar, reynist hún vera skelin sjálf. Rök hennar eru rök ímyndunar- afls og tilfinninga, og það er ekki úr vegi að minnast þess strax, að það var ein nýbreytni Steins í íslenzkum skáldskap að treysta í kvæði á þess konar röksemdafærslu í stað réttrar hugsunar. í draumi sértovers manns er fall hans falið. I>ú ferðast gegnum dimman kynjaskóg af blekkingum, sem brjóst þitt hefur alið á bak við veruleikans köldu ró. >inn draumur býr þeim mikla mætti yfir að mynda sjálfstætt líf, ! sem ógnar þér. Hann vex á milli þín og þess, sem lifir, og þó er engujn ljóst, hvað milli ber. Hann lykur um þig löngum armi sínum. og loksins ertu sjálfur draum-ur hans. Af þessari skáldskapartækni hafa mörg hin yngri skáld lært og væri ráðlegt til skilnings á þeim að le9a Stein fyrstan. En þessi gerð kvæðis kom ísienzk- um lesendum á óvart; jafnvel Magnús Ásgeirsson, sem allra manna gerst mátti skilja, hvað var hér að gerast, segir í rit dómi, 1942 að Steinn beiti í þessu kvæði og öðrum sams konar: „rökrefjum og orðasefjun, eins og miðill með ótvíræða hæfi- leika, er beitir brögðum, þegar hann þarf á að halda og stund- um aðeins vegna íþróttarinnar sjálfrar“. Hin eina skýring sem ég kann á þessum dómi, er sú, að Magnús er í svipinn óviðbú- inn þessari tegund skáldskapar— á íslenzku. Verður þá ekki öðr- um láð, þótt þeim brygði við. Svo að tekin sé önnur líking en hér að ofan, þá er heimspeki Steins opinn farvegur tilfinning- um hans og jafnframt aðlhald þein*a. Hún gegnir þannig ein- att sama h utverki og myndir, er metafórísk eða myndræn. Þeg ar hún virðist öfgafull, sem oft ber til, er það jafnan af því að vér lítum á hana af gömlum vana sem kenningu, en ekki sem mynd; lesum þá í raun og veru kvæðið eins og ritgerð og heimtum sönnun. Á breiðu torgi stendur minnismerki mannsins, sem dó, svo hinir mættu lifa. Þeir dá hans minning enn í orði og verki og afrek hans með gullnu letri skrifa. Fagnið ei meir hans afrekaverkum yfir, þótt ykkar vitund sjúkleg hugmynd blekki. Hann féll, en aðeins fyrir þann, sem lifir. Vér föl:.um fyrir þann, sem lifir ékki. Spenna kvæðisins skapast við aoótsögn þess. Myndræn merk- ing þess er reyndar mjög skýr,— ef vér skynjum það sem mynd: hinn óþekkti hermaður er ímynd Krists og kvæðið í uppreist gegn kenningunni um friðþæg- ingu. Til er hugsvölun, sem er í því fólgin að ganga fram af tilfinn- ingum sínum. Það skáld, sem leitar hennar, eins og Steinn virðist stundum gera, á vitaskuld á hættu að missa marks, af því að tilfinningin fylli ekki út í kvæðið. Vera má, að þessi ljóður finnist á stöku kvæði Steins. En hins vegar er lágur tónn orðanna, gagnstætt ofríki til- finningar og staðhæfingar, ein- att fyrirmynd hófstiliingar. hann, nema færa okkur fjær. Þetta gerir sum kivæði Steins torráðin í fljótu bragði, þó að þau verði deginum ljósari í hæfilegri fjarlægð. Ó, þú og ég, sem urðum a drei til. Eitt andartak sem skuggi flökti um veg'g birtist sú mynd, sem okkur æt-.uð var. Sem næturgola gári lygnan hyl, sem glampi kalt og snöggt á hnífsins egg, sem rauðar varir veiti orðlaust svar. iiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiitiiiiiiiiMiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiit Steinn Steinarr hefði orðið 56 ára n.k. þriðjudag, ef E hann hefði lifað. Morgunblaðinu var kunnugt um hina 1 ágætu grein Kristjáns Karlssonar um skáldið og fór 1 þess á leit, að fá birtan hluta hennar í blaðinu í dag. == Steinn á orðið marga vini og aðdáendur meðal | íslenzkra Ijóðlistarunnenda og má óhikað telja að E þeim þyki fengur í greininni. Grein Kristjáns birtist í heild sem inngangur að | heildarútgáfu á verkum Steins Steinars, sem út kem- 1 ur hjá forlagi Helgafells innan skamms. Ég býst ekki við, að það fari milli mála, að þetta kvæði sé lakara en Utan hringsins. „Lít- ill fengur“ gerir fremur að draga úr áherzlu á sínium stað. og „í rúmi og tíma“ er óljóst orðalag hér. Samt má vel sætta sig við þetta, af því að kvæðið er í á- varpsstíl; það er mælt fram. Uppistaða síðara erindisins er hins vegar tvær ágætar myndir, iiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniii rjÍllllllllllllllHHHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIICIIIIIllHHíHllllllllllllllllllllltliJHIIMHIIIIIIimilllltllllllllllllHIIIIIIIKIIIHHIIIIIIIIIIIIIHIIIHIIIIIIHIlllllHilillllllHlltllll Þú situr enn við gluggann og senn er komin nótt, og úti er niðamyrkur, svo annarlega hljótt. Og senn er komin nótt. 9vo finnur þú um andlit þitt fara kaldan súg. Þig grípur óljós hræðsla. Þú horfir út í myrkrið og hvíslar: Hver ert þú? Og holur rómur svarar: Ekkert, ekkert. Sú fánýtishyggja, sem birtist svo opinskátt í þessu snemm- Steinn Steinarr orta kvæði Steins, á eftir að verða uppistaða fjölmargra síð- ari kvæða. Sem lífsspeki er hún einhæf og mótmælanleg, sem staðreynd kvæðis er hún, þegar bezt lætur, óvefengjanleg. Stund um birtist hún sem altæk stað- hæfing, ellegar dramatísk álykt un af atviki, mynd eða sýn, sem skáidið bregður upp svo nærri, að það er líkt og að bera sterkan sjónauka alveg að tiíteknum hlut: vér sjáum hann of glöggt, svo að vér berum ekki kennsl á Ó, fagra mynd, sem okkur báðum bnr. Svipaðri taékni átti hann eftir að beita síðar óslitið, kvæði eftir kvæði í Tímanum og vatninu. En eitthvert fullkomnasta dæmi um þessa sterku nálægð er litan hringsins, þar sem hlutlæg mynd og heimspekileg hugmynd eru sem oftar jafn-gildar, jafn-veiga mikiar í uppistöðu kvæðis: Ég geng í hring í kringum allt sem er. Og innan þessa hrings er veröld þín. Minn skuggi féll um stund á gluggans gler. Ég geng í hring i kringum allt sem er. Og utan þess hrings er veröld mín. Það væri fjarstæða að tala um að nálgast þetta kvæði á ein- hvern 9érstakan hátt: kvæðið er alveg hjá oss. Ef oss hentar, er þetta, í krafti miðlína (eða mið- línu kvæðisins, frásögn af manni, sem gengur kring um hús konu, sem hann elskar („ai.lt, sem er“) og nær ekki fundi hennar, þó að hún verði skugga hans vör um stund. En umfram allt er það tvær myndir; önnur hlutlæg „Minn skuggi féllhin af- leidd, heimspekileg, þó að hún sé dregin með hlutlægum orðum („Ég geng í hring ..“). Því skynjum vér fremur en skiljum mérkingu beggja: órjúfandi ein- manaleik, skammlífi manns og óraunveruleik. Slík skynjun ligg ur beint við, þegar formið er jafn-einsteypt og aðskorið eins og hér. En til eru ýmis kvæði, þar sem útlistuð, myndlaus yfir- lýsing er látin vega á móti hlut lægri mynd. Það bjargast ekki neitt, það ferst, það ferst. Það fellur um sjálft sig og er ei lengur. Svo marklaust er þitt líf og lítiil fengur, og loks er eins og ekkert hafi gerzt. sem bera merkingu þess full- komlega uppi. Með öðrum orðum af því að við skynjum myndirn ar nógu ljóst, er merking erind isins sjálfsögð. En hvað um fyrra erindið, sem er upptalning stað- hæfinga í ræðustíl? Spurningin er, held ég, alls ekki sú, hvort vér aðhyllumst hina skilyrðislausu og öfgafullu heimspeki, sem hér er reidd fram heldur þessi, hvort vér föllumst á hana í bili órökstudda, andmælalaust. Ég hygg, að vér gerum það og einmitt fyrir þá sök, að hún er ekki niðurstaða hugsunar, heldur ímynd tilfinn ingar, sem vér þekkjum sjálfir frá tilteknum stundum. Vér tök um þátt í hinni skáldlegu ósvífni sem gerir persónulega óánægju og vönleysi að allsherjar heims- skoðun. Og um leið höfum vér t skynjað þetta erindi kvæðisins I á myndrænan hátt líkt og hið síðara. Þannig er það í raun og veru öfgamar, afdráttarleysið, sem gerir þetta að skáldskap í stað kenningar. Öfgar eru mál tilfinninga og ímyndunarafls, og skáldskapur af þessu tagi má ekki bjóða upp á sanngirni, af því að hann tefíir ekki fram neinum andstæðum og leitar ekki samræmis. Þetta gildir um mörg hin heimspekilegu kvæði Steins og reyndar ýmis önnur, einkum þau, sem eru myndfá eða snauð af samlíkingum og samanburði. Og það er vert að gefa þessu gaum, því að vér getum orðið mangs vísari af kvæðum Steins um hlullverk heimspeki í skáidskap. Hún get ur lagt skáldi upp í hendur ákveðið hugmyndakerfi, sem höfðar bæði til skoðana og til- finninga samtiðarmanna. En heimspeki Steins er heima- tilbúin, hún er nakið mál tilfinn- inga hans, og þess vegna skír- skotar hún beint til tilfinninga iesandans. Hún á ekki stoð í menningarlegri hefð eða hug- myndakerfi. Steinn var ekki menntaður maður í formlegum skilningi; hann sá og skildi beint og milliliðalaust. Þess vegna get- ur heimspeki hans verið mönn- um svo háskaleg, ef þeir skilja ekki eðli hennar og hlutverk í kvæðunum. Það er lífshætta að taka hana bókstaflega sem kenn ingu eða formúlu og afsiðandi að henda hana á lofti sem vígorð bölsýnnar tilfinningasemi. En pað dýpkar og hreinsar tilfinn- ingalíf hvers manns að skynja gegnum hana hinar viðkvæmu og stundum eldsáru tilfinningar skáldsins. Hvað sem formlegri menntun líður, var Steinn eins og allir góðir listamenn menntaður í list sinni og skildi, hvað honum hent aði úr hugmyndum samtímans. Það er vel til, að venjulegt skóla r.ám sé listamanni fremur til traf ala en framdráttar, af því að það er einkum fólgið í því að tileinka sér persónulegar hugmyndir, sem skírskota hvorki til skynj- unar manns, né þess, sem honum liggur á hjarta. Og samtíðin lagði Steini ekki í hendur neitt sam- fellt hugmyndakerfi né hug- myndaforða. Heimspeki nútím- ans er á reiki og í molum; Is- lendingar hafa auk heldur aldrei átt neina heimspekilega hefð. Vel má vera, að það hafi orðið gróði vor en tap Steins, að hann fann ekki athvarf í ákveðnu hug myndakerfi, en það væri fásinna, að ætla sér að ráða af kvæðum hans, hvernig hann hefði ort þau þá. Hann renndi einhvern tíma huga til hinnar katólsku kirkju, og hann aðhylltist að minnsta kosti um langt skeið ævinnar sósíalisma, eins og gerst má sjá í hinum pólitísku kvæðum í Rauður loginn brann og Ljóðum og raunar enn síðar í ýmsum á- deilukvæðum og þjóðfélagsgagn- rýni. En eins og mörgum róman tískum einstaklingshyggjumönn- um er títt, gerði hann bæði að þrá og tortryggja rökrétt skoð- anakerfi og alhæfð sannindn Bæði upplag hans og líklega enn- þá fremur beisk lífereynsla gerði hann bágrækan í hverjum hóp, efagjarnan og gagnrýninn. En enginn, sem les kvæði hans af nokkrum skilningi, getur ætlað, að efagirnin hafi verið honum þjáningarlaus. Ég leitaði án afláts, og brjóst mitt titraði af trega, og þó var mér ljóst, að það hafði ekkert gerzt. Né heldur gagnrýnin sársauka- laus, né afgötur og andstaða við samfélag sitt þægur kostur. Ég viðurkenni mína synd og sekt: ég sveikst frá öllum skylduxn heiðvirðs manns og elti vafurloga heimsku og hjóms um hrjóstur naktra kletta og auðnir sands. Mitt fólk, mitt land, minn himinn og mitt haf! heim kemst að lokum allt, sem burtu fer. Eg drúpi höfði þreyttu í þögn og bæn: Þú ert ég sjálfur. Fyrirgefðu mér! Hefði ekkí slíkum manni ver ið aflátsbón að katólskum hætti eðlileg? Þetta kvæði er í Ferð án fyrirheits, þar sem hann hefur náð sterkustum tökum á ádeilu- forminu og hreyfir sig frjálsleg- ast í vígstöðu hinnar heimspeki- legu afneitunar. (Sbr. Tii hinna dauðu, Lát huggast barn, Mynd- laus, Úr vitund þinni horfir and lit eitt, Kvöldvísa, Gamall mað- ur með staf, Börn í leik, Bæn, Andi hins liðna, 1 drauml sér- hvers manns, og enn fleiri). Og er ekki erfiðara að biðja af slíkri einlægni fyrirgefningar á þeim „syndum“, sem drýgðar eru af sjálfstæði heldur en vanmáttar- syndum? Frá þessari játningu Steins, sem vitaskuld ógildir ekki afneit unarskáldskap hans, heldur gæð ir hann miklu fremur í heild auk inni dýpt mannlegrar reynslu, Framhald á bls. 23

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.