Morgunblaðið - 18.10.1964, Side 1
32 síður og Lesbók
Sunnudagur 18. október 1964
Prentsmiðj£ Morgunblaðsiiw
Cousin og Castle
í ráðherrastóla
London, 17. okt. AP
f Leiðtogi stærsta verka-
lýðssambands Bretlands,
Frank Cousins, tekur nú í
fyrsta sinn sæti í ríkisstjórn.
Hefur hinn nýi forsætisráð-
herra, Harold Wilson, skipað
hann tæknimálaráðherra, sem
er nýtt embætti. Frank Cous-
ins hefur aldrei átt sæti á
þingi.
í dag tilkynnti Wilson
skipan nolskurra fleiri ráð-
herra, og fara nöfn þeirra
hér á eftir:
James Griffith, 74 ára skip-
ar nýtt ráðherraembætti •—
íjallar um mál Wales.
Anthony Gfeenwood, 53
ára verður nýlendumálaráð-
herra.
William Ross, 53 ára, verður
Skotlandsmálaráðherra.
Michael Stewart, 57 ára,
verður mennta- og vísinda-
málaráðherra.
Lontg-ford, lávarður, 58 ára,
verður innsiglisvörður og
leiðtogi lávarðadeildarinnar.
Douglas Jay, 57 ára, verður
forseti verzlunarráðsins.
Douglas Houghton, 66 ára,
verður kanzlari hertoga-
dæmisins Lancaster, ráðherra
án ráðuneytis.
Fred Peart, 50 ára verður
landbúnaðarráðherra.
Richard H. S. Crossmann,
56 ára, húsnæðismálaráð-
herra.
Ray Gunter, verkalýðs-
málaráðherra.
Tom Fraser, 53 ára, verður
orkumálaráðherra.
Barbara Castle, eina konan
i stjórninni, mun fjalla um
mál, er varða framkvæmdir
Breta erlendis.
♦ Síðdegis í dag kom Sir
Hug Foot, fyrrum sendi-
maður Bretlands hjá Samein-
uðu þjóðunum, til London. —
Telja fréttamenn í >" v> York,
að hann verði skipaður aðal-
fulltrúi lands síns hjá sam-
tökunum.
Samule Backett
Einkaskeyti til Mbl. frá AP
Bókmenntaverðlaunum
Nóbels verður úthlutað í
Stokkhólmi 22. október nk.
Eins og alltaf, þegar út-
hlutun þessara verðlauna
er fyrir dyrum, er mikið
rætt í blöðum um hverjir
séu líklegastir til að hljóta
heiðurinn. Sænska bók-
menntaakademían velur
venjulega bókmenntaverð-
Pablo Neruda.
launahafann löngu áður en
valnefndin kemur form-
lega saman.
Þeir, sem líklegastir eru
taldir til þess að hljóta bók-
menntaverðlaunin 1964, eru
ljóðaskáldið Pablo Neruda
frá Ohile, írsk-franska leiK-
ritaskáldið Samuel Backett og
brezki rithöfundurinn Graham
Greene. Einnig eru þeir taldir
koma til greina Lawrence
Durrell, rithöfundur, sem
einnig er Breti og samlandi
hans, ljóðaskáldið og rithöf-
undurinn Robert Graves.
John Steinbeck, sem hlaut
Nóbelsverðiaunin 1962 hefur
lýst sig fylgjandi því, að
Graves verði veitt þau að
þessu sinni.
Fregnir herma, að um 12
skáld og rithöfundar hafi ver-
ið taldir koma til greina að
þessu sinni og segir, að meðal
þeirra séu auk ofangreindra,
rithöfundar frá Þýzkalandi og
Ítalíu.
Hver hlýtur bókmennta-
verðlaun Nóbels 1964?
IVIyrtu 80
stúlkur á
\
10 árum
„Pravda” heldur áfram árás-
San Fransisco del Rincon,
Mexíkó, 17. okt.
t TVÆR systur voru í dag
fundnar sekar um að hafa
Framh. á bls. 2.
um á kínverska kommúnista
Stúlkan á þessari mynd, sem
heitir Jill Nietert og er
24 ára að aldri, varð fyrir
því í New York sl. fimmtu-
dag, að hnífur var rekinn í
bak henni og handtaska henn-
ar hrifsuð frá henni. Tilræðis-
maðurinn komst á brott, en
hafði lítið fé upp úr krafsinu.
f töskunni voru aðeins 75 cent.
Myndin hér var tekin, þeg-
ar stúlkan var á leið í
sjúkrahús — og má sjá, að
hnifurinn, sem var með 15 sm
löngu blaði, stendur enn í baki
hennar. Stúlkan ermjög alvar
lega særð — en þó hugað lif.
luiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiidiiiiiiiiiiiiiuisDiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiu
IVfoskvubúar vírðast lítt
harma fall Krúsjeffs
Orðrómur um að hann
sé í stofufangelsi
Moskvu, 17. okt. — AP
á PRAVDA, málgagn sov-
ézka kommúnistaflokks-
ins birtir í dag harðar árásir
á kínverska kommúnista,
bæði í frásögnum af ályktun-
um kommúnistaflokka Ítalíu
og Frakklands og í ritstjórn-
argrein. Bendir það ótvírætt
til þess að hinir nýju for-
ystumenn Sovétríkjanna
hyggi ekki á neitt meiri hátt-
ar frávik frá stefnu Krúsjeffs
gagnvart Kínverjum — því
sem kunnugt er var skipt um
ritstjóra við blaðið um leið
Johnson ræðir við
Oryggisráð U.S.A.
Washington, 17. okt. — AP
LYNDON B. Johnson, Banda-
ríkjaforseti, kallaði Öryggis-
ráð landsins til fundar í Hvíta
húsinu í dag og skyldi þar
fjallað um það umrót, sem
orðið hefur í heimsmálunum
síðustu daga, breytingar á for
ystu Sovétríkjanna, kjarn-
orkusprengingu Kínverja og
kosningaúrslitin í Bretlandi.
Forsetinn hafði ákveðið að
dveljast í dag á búgarði sínum í
Texas og verja sunnudeginum tii
kosningaferða um ríkið. Þess í
stað mun hann dveijast í Was-
hington næstu daga til þess að
geta fylgzt sem nákvæmast með
heimsmálunum og verið við öliu
búinn.
og Krúsjeff var rekinn frá
völdum. Blaðið segir einnig,
að hinir nýju leiðtogar hygg-
ist halda fast við að halda
fyrirhugaðan alþjóðafund
kommúnista — en tilgreinir
ekki hvenær hann verði hald-
inn.
f Um dvalarstað Krúsjeffs
er allt á huldu. Óstaðfest-
ar fregnir herma, að hann sé
í stofufangelsi einhvers stað-
ar í Moskvu. Þá eru uppi
raddir um, að hann muni
koma fram á Rauða torginu
á mánudag, þegar geimförun-
um verður fagnað — en aðr-
ar fregnir, einnig óstaðfestar,
herma, að einmitt það tæki-
Framhald á bls. 2
I stofufangelsi?