Morgunblaðið - 24.11.1964, Qupperneq 1
61 áirangur
32 síður
Brunarústir Boeing 707 þotunnar frá T.W.A. flugfélaginu á Fiumicino-fiugvelli við Róm, í gær
(Símamynd frá AP)
Vaxtahækkun í Bretlandi
— til að stöðva gjaldeyrisflótta
úr landinu
London, 23. nóvember.
— (AP-NTB) —
BREZKA stjórnin tilkynnti í
morgun að forvextir bank-
anna hækkuðu frá og með
deginum í dag úr 5% í 7%.
Er gripið til þessara ráðstaf-
ana í því skyni að tryggja
gegni sterlingspundsins og
bæta úr óhagstæðum greiðslu
jöfnuði við útlönd.
Aðeins einu sinni fyrr hafa
forvextir verið jafn háir í
Bretlandi, en það var á tíma-
bilinu 25. júlí til 5. okt. 1961.
Þingmenn íhaldsflokksins og
Frjálslynda flokksins gagnrýndu
stjórnina harðlega á þingi í dag
fyrir þessa ákvörðun.
Vaxtahækkunin kom ekki á
óvart, því búizt hafði verið við
þessum aðgerðum stjórnarinnar
um nokkurt skeið. Hins vegar
héldu stjórnarandstæðingar því
fram á þingi að hér væri um
of mikla hækkun að ræða. Einn-
ig voru margir, sem ekki áttu
von á því að vaxtahækkunin
kæmi til framkvæmda á mánu-
degi, því hingað til hafa vaxta-
breytingar venjulega orðið á
fimmtudögum í Bretlandi.
James Callaghan, fjármála-
ráðherra, skýrði frá vaxtahækk-
uninni í Neðri málstofu þingsins
WASHINGTON, 23. nóv. (AP)
Síðdegis í dag skýrði stjórn
bandaríska seðlabankans, Fed
eral Reserve Board, frá því
að ákveðið hafi verið að
hækka forvexti í Bankaríkj-
unum úr 3,5% í 4%. Sagði
bankastjórnin að þetta væri
gert til að vinna gegn óeðli-
legum gjaldeyrisstraumi úr
landinu, sem gæti m.a. orsak-
azt af hærri forvöxtum er-
lendis.
í dag. Sagði hann að tilgangur
stjórnarinnar með hækkuninni
væri að gera öllum ljóst að
stjórnin væri ákveðin í að
tryggja núverandi gengi punds-
ins og stöðva gjaldeyrisflótta úr
landinu. Minntist Callaghan á
Framhald á bls. 31.
Sprengingar í fEug-
vél á flugveliinum
í Róm
43 fórust, morgir s'ösuúust
Fyrsfa þotuslysið hja TWA flugfélaginu
Róm, 23. nóv. (AP)
FJÖGURRA hreyfla þota af
gerðinni Boeing 707 frá flug-
félaginu Trans World Airline
fórst í dag í flugtaki á Fiumi-
cino flugvelli við Róm. Með
vélinni voru alls 72 menn, og
fórust að minnsta kosti 43, en
8 þeirra, sem komust af, eru
hættulega slasaðir.
Bretur undvígir
MLF
London, 23. nóv. — (AP-NTB)
HAROLD Wilson forsætisráð-
herra Bretlands, sagði í ræðu í
Neðri málstofu brezka þingsins í
dag að stjórn hans væri andvíg
sameiginlegum kjarnorkuflota
Vesturveidanna (M.L.F.) og að
hún vildi að Bandaríkin ein
hefðu stjórn kjarnorkuvarnanna.
Kom þetta fram í bráðabirgða-
skýrslu forsætisráðherrans um
varnarmál, en endanlega skýrslu
stjórnarinnar um þau mál mun
hann ekki flytja þinginu fyrr en
að lokinni heimsókn til Washing-
ton til viðræðna við Johnson for-
seta í næsta mánuði.
Um kjarnorkuflotann sagði
Wilson: „Við álítum að sameigin-
legur kjarnorkufloti verði ekki
Framhald á bls. 31.
Með þotunni voru 55 farþegar
og tvöföld áhöfn, eða 17 manns.
Af þeirn^ komust 22 farþegar og
sjö af áhöfninni lífs af úr braki
vélarinnar. Margir farþeganna
voru starfsmenn TWA fiugfélags
ins. Meðal þeirra, sem komust af
var flugstjórinn, Vernon Lowell.
Boeing þotan kom frá Kansas
City í Bandaríkjunum með við-
komu í Chicago, New York, París
og Mílanó til Rómar. En frá Róm
var ferðinni heitið um Aþenu
til Kaíró.
Margir áhorfendur voru að
slysinu, þeirra á meðal flugvirkj-
ar og aðrir starfsmenn flugvall-
arins. Ber þeim saman um að slys
ið hafi orðið á eftirfarandi hátt:
Framhald á bls. 31.
Kosningor
d Itnlíu
Róm, 22. nóv. (AP)
I BÆJA og sveitastjórnarkosn-
, ingar fóru fram á Ítalíu í dag
og í gær. Þátttaka var mikil
I í kosningunum, eða 90,1%.
| Ekki er talningu lokið, en
I fyrstu tölur benda til þess að
kommúnistum hafi tekizt að
’ halda fylgi sínu, en að stjórn
I arflokkurinn, kristilegir demó
I kratar hafi tapað fylgi.
Fimmburar fæddir í París
Móður og börnum líður vel
París, 23. nóvember.
— (AP-NTB) —
FYRSTU fimmburarnir,
sem vitað er til að hafi
fæðzt í Evrópu, komu í
heiminn í dag í fæðingar-
heimili í Asmieres, einu út-
hverfi Parísarborgar. Móð-
urinni, frú Monique Sam-
bor, sem er 27 ára, og hörn-
unum fimm líður öllum
vel. Þar sem hörnin fædd-
ust rúmum tveimur mán-
uðum fyrir tímann, verður
búið um þau í sérstökum
hitakössum í barnasjúkra-
húsi í París, og þar verða
þau fyrsta mánuðinn.
Dr. Roger Chasques, íæð-
ingarlæknirinn, sem tók á
móti börnunum ásamt ljós-
móðurinni, Fernande Mancha,
sagði að fæðingin hafi hafizt
kl. 2,10 siðdegis. Vitað var fyr-
irfram að um fimmbura væri
að ræða. Fyrst kom stúlku-
barn, og vó hún aðeins 980
grömm, svo komu hin með um
10 mínútna millibili, 1150
gramma drengur, 1200 gr.
stúlka, 1230 gr. drengur, og
1150 gr. drengur. Tvær stúlk-
ur og þrír drengir.
Móðirin, frú Monique Sam-
bor, hafði dvalið í fæðingar-
heimilinu undanfarna 15 daga.
Sögðu læknar að hún væri
við beztu heilsu, en fengi ekki
að taka á móti gestum. Hún
og maður hennar, Raymond
Sambor, 35 ára, eiga tvö börn
fyrir, þriggja og fimm ára.
Dr. Chasques hefur starfað
sem fæðingarlæknir í tíu ár
en ekki fyrr tekið á móti
meiru en tvíburum. Sagði
hann að öll fimm börnin hafi
tekið að gráta strax eftir fæð-
ingu, „sem er góðs viti.“
Viðstaddur fæðinguna var
annar læknir, dr. Gerarnd de
Carmo. Er hann skurðlæknir,
en aðstoðar hans var ekki
þörf. Sagði hann að reynt hafi
verið að seinka fæðingunni
eftir fremsta megni, móður-
inni gefin róandi lyf og hún
látin hvíla sig vel fyrir fæð-
inguna. En síðasta mánuðinn
hafi læknar og starfslið fæð-
ingarheimilisins lesið allt,
sem unnt var að finna um.
fimmburafæðingar. Segir dr.
de Carmo að hvergi hafi hann
rekizt á frásögn um fimm-
burafæðingu í Evrópu.
Faðir fimmburanna, Ray-
mond Sambor, er bréfberi.
Hann heimsótti fjölskyldu
sína í fæðingarheimilið í dag,
og sagði við fréttamenn á eftir
að þau hjónin hefðu ákveðið
nöfn barnanna. Heita þau nú,
í þeirri röð sem þau komu í
heiminn: Catherine, Thierry,
Framhald á bls. 31.
Mynd þessi var tekin í París í gærkvöldi og sýnir Raymond
Sambor með syni sína tvo, Jean-Paul og Yves, eftir að kona
hans, frú Monique Sambor hafði eignazt fimmbura.
(Símamynd frá AP)