Morgunblaðið - 26.11.1964, Side 3
íslendingar
efslir í C-riðli
SEXTÁNDA Olympíuskákmót-
inu lauk í Tel Aviv þann 25 nóv.
með sigri sovézku skákmeiaíar-
enna. íslenzka skáksveitin sigr-
aði í C-í?lokki, og hlaut þar með
29. sætið, en alls tóku 50 þjóðir
þátt í keppninni.
Árangur íslendinganna, sem
eru allir um tvítugt, verður að
teljast framar öllum vonum.
t>eim tókst að verða fyrir ofan
Sviss, Finnland oig Kolumbíu, en
þessar þjóðir hafa á að skipa
reyndum skákmeisturum.
1 Endanleg röð á mótinu er þessi:.
'V
p A-riðill. Sæti 1-14.
1. USSR 36Vz
2. Júgóslavía 32
3. V-Þýzkaland 30 Vz
4. Ungverjaland 30
6. Tékkóslóvakía 26Vz
6. USA 27 Vz
7. Rúmenía 27
8. Búlgaría 27
9. Argentína 26
10. Pólland 24
11. Holland 21
12. Kanada 19
13. Spánn 17 Vz
14. ísrael 1714
B-riðill. Sæti 15-28.
1. A-Þýzkaland 3814
2. Svíþjóð 32
3. Danmörk 3114
4. England 31
5. Austurríki 2714
6. Perú 2714
7. Kúba 26
8. Noregur 2514
9. Mongólía 2514
10. Chile 24
11. Filipseyjar 2214
12. Ekvador 18
13. Paraguay 1714
14. Skotland 17
C-rionl. Sæti 29-42
1. ísland 3714
2. Sviss 3614
3. Kólumbía 35
4. Finnland 35
5. Venezuela 3014
6. Frakkland 2914
7. Grikkland 2714
8. íran 2314
9. Ind’land 22
10. Puerto Rico 2114
11. Tyrkland 2014
12. Mexico 20
13. írland 13
14. Monaco 12
D-riðill. Sæti 43-50.
1. Ástralía 2214'
2. S-Afríka 18
3. Bólivía 1514
4. Uruguay 1414
5. Portúgal 14
6. Luxemburg 12
7. Dóminikanska lýðv. 1014
8. Kýpur 5
13. umferö:
A-riðill.
USSR 2% — Tékkóslóv. 114
Rúmenía 2Va — Póliand 1%
Júgóslavía 3 — Kanada 1
USA 2Vz — Argentína IV2
ísrael 3% — Spánn V2
Holl. 2Vz — Búlgar. lVz + 1 b.
C-riðill.
Kólumbía 2Vz — Sviss 1%
íran 3 — Indland 1
Frakkland 2Vz — íraland Vz
ísland 3 — Grikkland 1
Tyrkland 3 — Mexicó 1
Puerto Rico 3Vz — Monaco Vz
Finnl. 2tá — Venezuela lVt
MORGUNBLAÐiD
ROTOLO-bræður ásami dr. PICARDO.
Fimm blindir bræður fá sjón
UNGI drengurinn á sjúkrahús
inu opnaði hægt augun. Fyrst
sá hann aðeins flöktandi
skímu, síðan fékk hann of-
birtu í augun, og loks greindi
hann eftirvæntingarfull and-
litin í kringum sig. „Geturðu
séð? Geturðu virkilega séð?“
mælti faöir hans fullur undr-
unar. Enginn hafði þorað að
láta sig dreyma um, að þetta
kraftaverk gæti nokkurn tíma
gerzt.
Það var í síðasta mánuði, að
ítölskum lækni, dr. Luigi Pi-
cardo, tókst að lækna fimm
bræður, sem höfðu verið blind
ir allt frá fæðingu. Rotolo-
bræðurnir, sem eru frá fimm
til fimmtán ára gamlir og
bóndasynir frá Sikiley, geng-
ust undir uppskurð til að f jar
lægja himnu af augum þeirra,
sem svipt hafði þá sjóninni
frá fæðingu.
Það var ekki uppörvandi
fyrir Picardo, þegar hann hóf
undirbúning að skurðaðgerð-
inni til að færa drengjunum
sjónina, að tvisvar áður höfðu
þeir gengizt undir aðgerð, sem
mistókst í bæði skiptin.
Gleði hans verður því ekki
með orðum lýst, er hann tók
umbúðirnar af augum drengj-
anna níu dögum eftir upp-
skurðinn og komst að raun
um, að allt hafði gengið fram
ar björtustu vonum.
Rotolo-bræðurnir eru nú á
hvers manns vörum á Ítalíu.
Þeir eru byrjaðir að læra að
lesa og skrifa, leika sér við
lömbin á búgarði föður síns
og semja sig að þeirri miklu
breytingu, sem orðið hefur á
lífi þeirra. Þegar einn þeirra
hafði orð á því, hve stórkost-
.legt væri að geta nú S É Ð
páfann, var þeirn þegar boðið
í heimsókn í Vatikanið.
Hamingjuóskunum rignir nú
yfir dr. PICARDO úr öllum
áttum. En fyrir hann eru það
smámunir einir í samanburði
við þá innilegu gleði, að hafa
veitt birtu inn í líf fimm
ungra drengja, sem alla sína
ævi höfðu aðcins þekkt myrkr
ið eitt.
Bretar hyggjast ekki
lækka gengi pundsins
London 25. nóv. — NTB.
BREZKA stjórnin hygigst ekki
lækka gengi sterlingspundsins,
þrátt fyrir ástandi’ð á þriðjudag,
að því er góðar heimildir í Uond-
on fullyrtu í dag. Því var bætt
við að brezka stjórnin fylgist
Benedikt GröndaL
V arðbergsf undiir
í Sögu í kvöld
FRAMHALDSAÐALFUNDUR
VARÐBERGS, félags ungra á-
hugamanna um vestræna sam-
vinnu, verður haldinn í kvöld í
Hótel Sögu og hefst kl. 20:30.
Að aðalfundarstörfum loknum,
flytur Benedikt Gröndal, alþm.,
erindi: „Vandamál Atlantshafs-
bandalagsins." Benedikt er ný-
kominn af fundi þingmannasam-
taka bandalagsins, þar sem þessi
mál voru mjög til umræðu.
mjög vel með hversu mól þessi
þróast. Brezka stjómin telji, að
ráðstafanirnar, sem þegar hafa
verið gerðar, þ.e. forvaxtahækk-
unin, muni verða til þess að
treysta gengi sterlingspundsins
er fram í sækir.
Um miðjan dag í dag var gengi
pundsins óbreytt miðað við
Bandaríkjadollar, og er kaup-
höillin lokaði, var gengið hið
sama og um miðjan dag á þriðju-
dag.
Vantar vitni
UM kl. 9.40 á mánudagsmorgun
varð árekstur á gatnamótum
Hverfisgötu og Snorrabrautar.
Hér var um tvo utanbæjarbíla
að ræða, fólksbíl og Landrover-
jeppa. Báðir bílstjórarnir segjast
hafa ekið inn á gatnamótin gegn
grænu ljósi.
Umferðardeild Rannsóknar-
iögreglunnar hefur hug á að hafa
tal af vitnum af atburðinum, og
eru sjónarvottar vinsamlega
beðnir að hafa samband við
hana.
Grænleitur vöru
bill
UM kl. 14.20 á miðvikudag ók
grænleit vörubifreið með skóflur
á palli suður Sólheima. Bílstjór-
inn er vinsamlega beðinn að
hafa samband við Umferðar-
deild Rannsóknarlögreglunnar í
síma 21100.
Útvegsbanka-
málið
HIÐ svonefnda „Útvegsbanka-
mál“, varðandi það, er starfs-
menn bankans lögðu niður
vinnu til þess að mótmæla ^stöðu
veitingu, er nú hjá embætti Sak
sóknara ríkisins. Þaðan mun það
sennilega verða sent bæði við-
komandi ráðherra, þ. e. banka-
málaráðherra (viðskiptamála-
ráðherra), og bankiaráði Útvegs
banka íslands til umsagnar,
áður en ákvörðun verður tekin
um refsiaðgerðir.
Slys í bv. Agli
Skallagrímssyni
PATREKSFIRÐI, 25. nóv.
Varðskip kom hingað kl. 17 í
dag með mann, sem hafði slasazt
um borð í bv Agli Skallagríms-
syni. Maðurinn, Bragi Guð-
mundsson, hafði handarbrotnað
á vinstri hendi við það, að keðja
slóst í hann. Bragi er nú í sjúkra
húsinu hér á Patreksfirði.
— TraustL
HEIMDALLUR F.U.S.
MÁLFUNDAKLÚBBUR. í kvöld
kl. 8.30 verður haldinn fundur
í Málfundaklúbbnum. Umræðu-
efnið þar verður: „Sjónvarps-
málið“.
Nýir þátttakendur eru alltaf
velkomnir á fundi Málfunda-
klúbbsins.
KTAKSTCl\\1>
Vegið að
Hannibal Valdimars.
Illa er nú vegið að Hannibal
Valdimarssyni af samherjum
hans, bæði úr liði Moskvukomim-
únista og Framsóknarmanna.
Hinir fyrrnefndu sögðu honum
strax til syndanna, þegar hann
boðaði það í setningaræðu á ASÍ
þingi, að hann óskaði hlutfalls-
kosninga. Sögðu kommúnistar
það fráleitt og bönnuðu Hanni-
bal að standa við fyrirætlun sína.
Síðan hafa Moskvumenn hælzt
mjög um yfir því, að þeim skyldi
takast að hindra Hannibal Valdi-
marsson í því að fá þessu stefnu-
máli sínu framgengt og telja að
niðurstaðan á ASÍ þingi hafi ver
ið eins ákjósanleg og hugsazt gat.
Er það rétt frá þeirra sjónar-
miði, því að þeir hafa aldrei hugs
að sér að launþegasamtökin ættu
að þjóna hagsmunum meðlim-
anna, heldur að þau ættu að nota
í pólitískum tilgangi, og þá er
að sjálfsögðu þægilegt fyrir
Moskvumenn að þeir ásamt Fram
sóknarmönnum akuli þar ö>llu
ráða og hafa Hannibal Valdimars
son að bandingja.
Er Hannibal
umboðsmaður
“laumumanna"?
f ritstjómargrein Timans er
rætt um það, að verkalýðurinn
þurfi að berjast fyrir ýmsum
kjarabótum og síðan segir orð-
rétt:
„Þetta getur því aðeins orðið,
að innan æðstu stjórnar verka-
lýðssamtakanna séu ekki menn,
sem ganga þar erinda kjara-
skerðingaflokkanna og reyna á
allan hátt að deyfa baráttuhug-
inn og kjarkinn. Enginn vígi eru
sterk, ef andstæðingunum tekst
að eiga laumumenn innan virkis-
veggjanna.“
Þarna er verið að andmæla
skoðun Hannibals Valdimarsson-
ar um það að heppilegast væri
að kjósa til Alþýðusambands-
stjórnar með hlutfallskosningu,
þannig að allir megin áhrifa-
hópar í verkalýðshreylfingunni
ættu sína fulltrúa í stjórn sam-
takanna. Forseta Alþýðusam-
bands eru ekki vandaðar kveðj-
umar. Það er sagt að hann berj-
ist fyrir því að koma „laumu-
mönnum" inn fyrir virkisvegg-
ina„ en það mundi „deyfa bar-
áttuhuginn og kjarkinn“, þannig
að lítil von væri um það, að
samtökunum tækist að gæta hags
muna launþega.
Jhaldsstaur kjara-
skerðingarsteínunnar'
Og enn er vegið að Hannibal
Valdimarssyni. I ritstjórnargreia
Tímans segir ennfremur:
„Það er Framsóknarmönnum
til sóma að stjórnarblöðin skuli
þakka þeim, að fulltrúum íhalds
ins var ekki hleypt inn í stjórn
verkalýðssamtakanna. Verkalýðs
hreyfingin þarf ekki síður að
gæta þess, að andstæðingamir
vinni hana ekki innanfrá en ut-
an frá. Seinasta Alþýðusambands
þing verður lengi talið merkilegt
þing, vegna þess það gerði sér
þetta nægilega ljóst. En rétt er
að geta þess, að Framsóknar-
menn eiga ekki einir þennan heið
ur skilið. Fjöldi annarra verka-
lýðssinna, m.a. úr stjóraarflokk-
unum, var á sama máli, eða yfir-
leitt allir þeir, sem ekki vilja
tjóðra verkalýðshreyfinguna við
íhaldsstaur kjaraskerðingarstefn
unnar.“
Þarna er umbúðarlaust sagt að
Ilannibal Valdimarsson hafi vilj-
að „tjóðra verkalýðshreyfinguna
við ihaldsstaur kjaraskerðingar-
stefnunnar“ og leynir sér ekki,
að verið er að liælast um yfir
því, að tjóðrið hans Hannibals
hafi lent á honum sjálfum. Hann
sé nú reyrður bandalagi Moskvu-
kommúnista og Framsóknar-
manna og megi sig ekki hreyfa.