Morgunblaðið - 26.11.1964, Side 6
MORGU N BLAÐIÐ
' Fimmtudagur 26. nóv. 1964
Hús rannsóknastofnana sjávarútvegsins við Skúlagötu
Sveánn Benediktsson:
Starísemi Rannsóknarstofu Fiski-
félagsins er til ómetanlegs gagns
fyrir sjávarútveginn
SL. SUNNUDAG var í einu dag-
blaðanna, sem að vísu verður
sízt talið það markverðasta, veizt
mjög ómaklega að Rannsókna-
stofu Fiskifélags íslands. Var
þetta gert í blaðaviðtali, sem
nefnt var „Sildariðnaður og rann
sóknarstörf". Sagt er í greininni
varðandi rekstur síldarverk-
smiðja: „í síldariðnaðinum vant-
ar stofnun sem hefði það verk-
efni að fylgjast með og samræma
allar rannsóknir, jafnframt því
sepfi hún beitti sér fyrir nýjung-
um og miðlaði því bezta á hverj-
um tíma til verksmiðjanna. Fiski-
félagið hefur aðeins sinnt þessu
lítilsháttar fram til þessa og ætla
ég ekk4 að kasta hnútum að því
sérstaklega. En svona vinnubrögð
eru okkur til skammar og þyrftu
sem fyrst að heyra fortíðinni til“.
Svo mörg eru þau orð.
Þeir sem fylgzt hafa með störf-
um Rannsóknastofu Fiskifélags
íslands fyrir síldar- og fiskimjöls-
iðnaðinn, sem dr. Þórður Þor-
bjarnarson veitir forstöðu, verða
agndofa af undrun þegar þeir
heyra slíkan sleggjudóm, ekki sízt
þegar ummælin eru lögð í munn
manns, sem um tíma starfaði
sjálfur á vegum Rannsóknastofu
Fiskifélagsins, þótt hann hafi í
byrjun þessa árs látið þar af
störfum.
Vísindalegar rannsóknastofur í
þágu atvinnuveganna eru ómiss-
andi í nútíma þjóðfélögum.
Vér íslendingar höfum borið
gæfu til þess að skilja þetta. Eng-
in þjóð, sem ekki hefur yfir meira
fjármagni að ráða, hefur komið
sér upp jafn fullkominni Rann-
sóknastofu í þágu fiskiðnaðarins
sem vér íslendingar. Það eru
ekki aðeins húsakynnin og áhöld-
in í húsi Rannsóknastofnana
sjávarútvegsins við Skúlagötu,
þar sem Rannsóknastofa Fiskifé-
lags íslands og Fiskideild At-
vinnudeildar Háskólans eru til
húsa, er gert hafa garðinn fræg-
an, heldur það starf sem þessar
ítofnanir hafa innt af höndum.
Rannsóknastofa Fiskifélagsins
hefur m.a. beitt sér fyrir fullnýt-
ingu á hráefni verksmiðjanna.
Rannsóknastofan veitti aðstoð
við að koma upp fyrstu soðeim-
ingartækjunum í síldarverk-
smiðju. Hafa aðgerðir verksmiðj-
anna fært sjávarútveginum
hundruð milljóna króna viðbót-
artekjur, vegna betri hagnýting-
ar hráefnisins.
Rannsóknastofan benti á leiðir
til þess að hagnýta slógið, sem
til fellur við fiskaðgerð, svo að
það er nú að fullu nýtt.
Rannsóknastofan hefur haldið
uppi kerfisbundnum athugunum
á nitritinnihaldi í síldarmjöli og
öðru fiskimjöli, sem hér er fram-
leitt. En það er gert í þeim til-
gangi að þetta sterka rotvarnar-
efni sé ekki misnotað, því að þá
getur það verið hættulegt.
Rannsóknastofan framkvæmir
rannsóknir reglulega til þess að
meta fóðurgiidi fiskimjölsins.
Hún annast margsháttaðar efna
greiningar í þágu fiskiðnaðarins.
Hún hefur vakandi auga á nýj-
ungum í fiskiðnaði og lætur í té
margháttaðar upplýsingar og
dreifir út fræðsluritum varðandi
hann.
Þá má geta þess, að dr. Þórður
Þorbjarnarson hefur aflað og
dreift til félagsmanna í Félagi
ísl. fiskimjúölsframleiðenda upp-
lýsingum um markaðsmál, sem
oft hafa orðið að ómetanlegu
gagni fyrir framleiðendur.
Rannsóknastofan hefur leið-
beint og kennt ýmsum efnafræð-
ingum og aðstoðarmönnum hin
sérstöku störf, sem efnafræðingar
í síldar- og fiskimjölsverksmiðj-
um þurfa að inna af hendi og
stundum lagt til menn af eigin
starfsliði til þessara starfa.
Síðast en ekki sízt efnagreinir
Rannsóknastofan sýnishorn af
öllu mjöli og lýsi, sem út er flutt
frá íslandi og er þessi mikilvæga
framleiðsla seld skv. vottorðum
Rannsóknastofu Fiskifélags ís-
lands til ómetanlegs hagræðis og
hagsbóta fyrir íslenzkan sjávar-
útveg.
Framleiðendur á þessum út-
flutningsvörum hjá öðrum þjóð-
um verða að sætta sig við, að
verð vörunnar sé miðað við efna-
greiningu í landi kaupandans, að
hálfu eða öllu leytL Er þetta til
marks um það traust, sem Rann-
sóknastofa Fiskifélags íslands
nýtur bæði innanlands og utan.
Rannsóknastofan hefur til um-
ráða eina hæð og bakhúsið i
byggingu Rannsóknastofnana
sjávarútvegsins við Skúlagötu.
Þar starfa nú 15 manns. Forstöðu
maðurinn er dr. Þórður Þorbjarn-
arsson, eins og fyrr segir. Auk
hans starfa þar efnafræðingarnir
Geir Arnesen, Jóhann Guðmunds
son og Júlíus Guðmundsson og
ennfremur gerlafræðingarnir dr.
Sigurður Pétursson og Guðlaug-
ur Hannesson. Annað starfsfólk
stofnunarinnar hefur einnig sýnt
kunnáttu og lipurð í starfi.
Síldarverksmiðjur ríkisins og
Félag ísl. fiskimjölsframleiðenda
eru stofnuninni þakklát fyrir
mikilvæg og margþætt þjónustu-
störf, sem hún hefur látið þeim í
té til ómetanlegs gagns fyrir
þessa aðila og sjávarútveginn I
heild.
Ég hef heyrt starfsémi Rann-
sóknastofu Fiskifélagsins hrósað
að verðleikum af öllum innlend-
um sem erlendum, sem haft hafa
af henni einhver kynni, fyrir ut-
an þessa einu hjáróma rödd, sem
að framan er nefnd. Ef slíku að-
kasti er ekki mótmælt, þá er á-
gætt starf vanþakkað.
Sveinn Benediktsson.
Guðmundur J. Einarsson
„Kalt er við kórbak'7
persónusaga Guðmundar J. Einarssonar
ÚT ER KOMIN bók Kalt er við
kórbak eftir Guðmund J. Einars
son frá Brjánslæk. Bókin kemur
út á forlagi Skuggsjár.
Á kápu er kynning á bók
þessari og segir þar m.a. „Höf-
undur hefur frá mörgu að segja
á sjó og landi, utanlands og inn-
an. Hann segir frá hvort sem í
•hlut á nánasta skyldfólk hans,
félagar hans á íslandi eða yfir-
læknir og hjúkrunarfólk á Vífil-
stöðum. . . Þetta er saga manns,
sem þurft hefur að þola þrautir
og sorgir og oft hefur átt erfiða
daga“. — Síðan segir að Guð-
mundur sé skáldhneigður draum-
óramaður, sem mikið hefur lesið
og yrkir sér til hugarhægðar.
Sendisveinar óskast
Vinnutími kl. 6,30 f.h. og kl. 1—6 e.h.
Snjórinn
Mikið finnst mér alltaf lifna
yfir bænum, þegar snjóföl
leggst yfir allt og veðrið er
kyrrt, bjart, en svalt. Þetta er
nú eitthvað skemmtilegra
vetrarveður en þessi sífellda
rigning, sem er alveg óþolandi
orðin. En ég geri ekki ráð fyrir
að við höldum sjónum lengi
nú fremur en fyrri daginn.
Hann byrjar að rigna aftur, ég
er alveg viss um það — og
svo heldur hann áfram að
rigna — og rigna, eins og venju
lega. (Vonandi verður mér
ekki að spá minni).
Guðsþjónustur
í Firðinum
Úr Hafnarfirði hefur borizt
bréf þar sem kvartað er yfir
því, að barnaguðsþjónustur
séu aldrei haldnar í Firðinum.
Spyr bréfritari, hvort laun
presta séu eitthvað lægri þar
suður frá en annars staðar á
landinu — t. d. í Reykjavík —
þar sem prestar eru óþreyttir
á barnaguðsþjónustunum.
Mér finnst í rauninni alltaf
mjög leiðinlegt og óviðeigandi,
þegar fóik setur einhvern upp
mælingarkvarða á kristilegt
safnaðarstarf — en auðvitað
verða prestar að lifa eins og
aðrir — og úr því að við höf-
um hér ríkiskirkju, þá er það
alls ekki óeðlilegt, að þeir
skipi sér í flokk með öðrum
ríkisstarfsmönnum. Starf frí-
kirkjusafnaðanria hlýtur hins
vegar að vera annars eðlis.
Ég nota bara þetta tilefni til
þess að drepa á þessa hlið
kirkjunnar og kirk(justarfsins.
Hafnarfjarðarprestar eru vafa
laust ekki ver launaðir en aðr-
ir — og vona ég að úr rætist
með barnaguðsþjónustur í
Firðinum mjög fljótlega. —
Skátarnir og ýmsir aðrir þar
syðra hafa sýnt, að góður
grundvöllur er fyrir margs
konar félagsstarfi í Firðinum
og vonandi verður bréfritara að
ósk sinni um að barnaguðs-
þjónustur verði þar eins oft og
hægt er að koma við.
Þessir karlmenn
Og hér kemur bréf frá frú
nokkurri, sem telur niig hafa
brugðizt illa vegna óska um
fjársöfnun til kaupa á sjálf-
virkri þvottavél með þurrkara
fyrir þríburamóðurina. Frúin
segir þetta m.a.:
Kæri Velvakandi.
Ég má til að segja þér til
syndanna, þó ég sé varla penna
fær. Þú gefur glöggt dæmi um
skilningsleysi karlmanna á
hla.tverki húsmóðurinnar. Mér
finnst undirtektir þínar við
frúna sem vildi gangast fyrir
söfnun fyrir sjálfvirkri þvotta-
vél með þurrkara handa „þrí-
buramóðurinni“, fyrir neðan
allar hellur. Þú veizt greini-
lega ekki að þesskonar vél er
á við vinnukonu fyrir barn-
margar konur. Þessar vélar
spara ótrúlega mikinn tíma,
ekki bara við þvottinn, heldur
er alveg óþarfi að strauja
bleyjur og fl. úr þeim.“
Sem betur fer hef ég ekki
þurft að standa í bleyjuþvotti
um dagana og má því vel vera,
að ég sé ekki jafnskilnings-
ríkur í máli þessu og ég ætti
að vera. En í þessu tilefni á
frumkvæðið því að vera í hönd
um kvenna. Ég læt ekki af
þvi áliti mínu.
B O S C H
rafkerfi
er í þessum bifreiðum:
BENZ SAAB
DAF TAUNUS
NSU VOLVO
OPE VW
Við höfum varahlutina.
BRÆÐURNIR
ORMSSON HF.
■Vesturgötu 3. — Sími 11467.