Morgunblaðið - 26.11.1964, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 26. nóv. 1964
t
Elskuleg móðir okkar
GUÐNÝ BJÖRNÆS
andaðist að morgni hins 25. þessa mánaðar.
Hulda Björnæs,
Ebba Björnæs Þór,
Kristján Jónsson.
Eiginmaður minn
EIRÍKUR EIRÍKSSON
Hlemmiskeiði, Skeiðum,
lézt í Reykjavík 24. nóvember s.l.
Ingibjörg Kristinsdóttir.
Maðurinn minn
GUÐNI GÍSLASON
frá Krossi,
andaðist 24. nóvember.
Helga Þorbergsdóttir.
Hjartkær eiginmaður minn
VIKTOR heiðdal aðalbergsson
Skipasundi 75, frá Seyðisfirði,
andaðist aðfaranótt 25. þessa mánaðar á Borgarsjúkra-
húsinu. — Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 3. desember kl. 10,30 fyrir hádegi.
Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda.
Sigríður Jónsdóttir.
Hjartkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma
JÓNÍNA BJÖRG JÓNSDÓTTIR
Nýjabæ, Fáskrúðsfirði,
andaðist í sjúkrahúsi Neskaupstaðar þriðjudaginn
23. þessa mánaðar.
Hallur Pálsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Utför
ELINBORGAR BJARNADOTTUR
Sunnuhvoli, Vatnsleysuströnd,
fyrrum húsfreyju á Arnarstöðum, Hraungerðishreppi,
fer fram frá Hraungerðiskirkju laugardaginn 28. nóv-
ember kl. *1 e.h.
Vandamenn.
Útför mannsins míns,
BJÖRNS JÓHANNESSONAR
fer fram frá Fossvogskirkju, föstudaginn 27. nóv,
kl. 1,30 e.h.
Jónína Guðmundsdóttir.
Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu
SÍMONÍU SIGURÐARDÓTTUR
Álftröð 7, Kópavogi,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 27. nóv.
kl. 10,30. — Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Börn, tengdabörn og bamabörn.
Öllum þeim er sýndu okkur vináttu og samúð við
andlát og jarðarför elsku litla drengsins okkar og
bróður
BIRGIS
sendum við kveðjur og hjartans þakkir.
Sigurína Friðriksdpttir,
Markús Guðjónsson,
Árni Markússon, Ásta Markúsdóttir,
Guðrún Markúsdóttir, Bryndís Markúsdóttir.
Jarðarför móður okkar
SVANHILDAR JÖRUNDSDÓTTUR
frá Hrísey,
fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn
27. nóv. kl. 1,30 e.h. Blóm og kransar afbeðnir. Þeim,
sem vildu minnast hinnar látnu er bent á líknar-
stofnanir.
Guðrún Pálsdóttir,
Hreinn, Gestur, Bjarni, Gunnar, Jörundur, Bergur,
og Svavar Pálssynir.
Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu mér vinar-
hug á 70 ára afmæli mínu 18. nóv. s.l. — Lifið heil.
Elísabet Jónsdóttir,
Bárugötu-23, Akranesi.
Innlega þakka ég öllum þeim sem sýndu mér vinar-
hug, með heimsóknum, gjöfum og heillaskeytum á 70
ára afmælinu mínu 16. nóv. s.l.
Óska ég ykkur allrar blessunar.
Gunnl. J. Auðunn, Bakka.
Hreinlæti er heilsuvernd
Laugardaginn 28. nóvember kl. 8 opnum við þvotta
hús að Síðumúla 4. Nýtt húsnæði, nýjar vélar,
góð þjónusta. Einnig munum við reka áfram þvotta-
húsið að Bröttugötu 3.
Þvottahúsið Einir sf.
Sími 12428.
Stöður lögregluþjóna
á Patreksfirði
Óskað er eftir að ráða tvo fasta lögregluþjóna til
starfa á Patreksfirði, frá og með 1. janúar n.k. eða
síðar, ef umsækjendur geta ekki tekið við starfi
frá þeim tíma. Laun samkvæmt launakerfi ríkisins
og sveitafélaganna. Umsóknir með upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist undirrituðum fyrir
23. des. n.k.
Sveitarstjóri Patreksf j arðarhrepps.
Gfuggatjaldastenpr
Amerískar, V-þýzkar og Sænskar með öllu tilheyrandi.
Ennfremur nickeleruð rör %“ — ]/z“ — V\“
og gluggatjaldagormar.
Verzlunin BRYIMJA
Laugavegi 29.
Fasteignir tii sölu
4ra herbergja
endaíbúð
við Laugarnesveg. íbúðin er
á 1. hæð, 115 ferm., auk þess
fylgja tvær geymslur í kjall
ara. Útb. aðeins kr. 450 þús.
300 þús. kr. lán getur fylgt
til 15 ára.
3ja herb. 'ibúb
á fyrstu hæð við Hringbraut
íbúðin er mjög vel með
farin. Hitaveita.
5 herbergja
enda'ibúð
á fyrstu hæð í sambýlishúsi
við Hvassaleiti. íbúðin er
140 ferm. með tvöföldu
gleri, harðviðarhurðum og
teppum. Auk þess fylgir eitt
herb. í kjallara.
5 herbergja
jarðhæð
við Melabraut, Seltjarnar-
nesi. Selst fokheld, en húsið
er pússað að utan. Sérinn-
gangur, sérþvottahús, og gert
ráð fyrir sérhita. Útb. að-
eins 200 þús. kr.
Skipa- og fasteignasalan
Jensína
Jensdóttir
frá Spálconufelli
í DAG fer fram frá Dómkirkj-
unni útför Jensínu Jensdóttur
frá Spákonufelli, ekkju Bene-
dikts Fr. Magnússonar fyrrum
bónda þar og síðar kaupmanns
í Reykjavík.
Jensína var fædd 25. ágúst
1871 að Spákonufelli, og var því
rúmlega 93 ára, er hún lézt,
Foreldrar hennar voru Jens
Jósefsson bóndi þar og kona
hans Steinunn Jónsdóttir (systir
Björns á Veðramóti og þeirra
systkina).
Jensina var mjög vel greind
kona og hugur hennar stóð til
menntá, en á þeim tíma hafði
æskufólkið ekki þá möguleika,
sem því bjóðast í dag. Auk sjálfs
menntunar stundaði hún nám
við kvennaskólann að Ytri-Ey
og einnig fór hún til Reykjavík-
ur þar sem hún lagði stuna 4
saumanám um hríð.
Árið 1909 giftist Jensína Bene-
dikt Fr. Magnússyni og hófu þau
þá þegar búskap að Spákonu-
felli. Ráku þau þar stórt bú
á þeirra tíma mælikvarða. Var
Jensína búkona í bezta lagi, „og
hélt öllu í sínum verkahring i
föstum skorðum hefðbundinnar
ættarvenju“, eins og gamall sveit
ungi hennar hefur komizt að
orði. Þar var allt á traustum
grunni og þrátt fyrir harða vet-
ur hvern af öðrum var aldrei
skortur í búi á Spákonufelli.
Þau Jensína og Benedikt
bjuggu að Spákonufelli í 16 ár,
en árið 1625 fluttust þau til
Reykjavíkur þar sem Benedikt
festi kaup á verzlun og starf-
rækti hana meðan heilsan entist,
Einnig keyptu þau húsið að
Grundarstíg 3 og þar var heimili
þeirra þar til Benedikt lézt 1955,
og Jensína bjó þar til dauða-
dags.
Þau hjón eignuðust einn son,
Jens, sem var prestur og um
nokkur ár blaðamaður við
Morgunblaðið. Lézt hann 4
bezta aldri, aðeins 36 ára gam-
all, öllum harmdauði. Varð það
þeim hjónum mikið áfall, en
þau báru sorg sína með undra-
verðu þreki.
Frú Jensína var höfðingleg
kona og stórbrotin, en hennar
tími var öldin sem leið. Hefði
hún sómt sér vel sem húsfreyja
á höfuðbóli. Hún samlagað.
ist aldrei umbrotum síðustu
áratuga, enda færðist þá aldur
yfir hana og heilsan tók að
bila. Hún var sjálfstæð í hugs-
un og vildi vera sjálfri sér nóg.
Henni var það mikið kappsmál
að fá að dvelja á eigin heimilj
þar til yfir lyki, og það tókst
henni með góðri umhyggju og
aðstoð tengdadóttur og sonar-
dætra. Var það henni mikils
virði.
Síðustu ævidagana gladdist
hún yfir þeirri fullvissu að
innan skamms gæti hún að nýju
fagnað samvistum við eigin-
mann sinn og son — og því er
bjart yfir þeim degi, þegar þessi
aldraða, göfuglynda kona er
lögð til hinztu hvíldar.
Þ. G.