Morgunblaðið - 26.11.1964, Qupperneq 27
1 Fimmtuðagur 26. nóv. 1964
MORGUNBLAÐIÐ
27
— Hroðalegar
lýsingar
' Framhald af bls. 1
út úr flugvélinni vafin inn í
teppi. Hún missti móður sína
brezka, og bróður sinn. Faðir-
inn særðist alvarlega og liggur
nú á sjúkrahúsi í Leopoldville.
Ung belgísk skólatelpa, Agnes
að nafni, sagði að hún hefði ver-
ið í haldi í mánuð.
„Uppreisnarmennirnir fóru ekki
illa með mig og nokkrar vinkon-
ur mínar", sagði hún. „En vesl-
ings nunnurnar, kennararnir
okkar og prestarnir fengu að
kenna á því“.
VÉLBYSSUSKOTHRfÐ
Á AFMÆLISDAGINN
* Max Debuisson, verkfræðing-
ur, sem fyrr er getið, sagði að
síðustu þrír dagarnir, áður en
gislunum var bjargað, hafi verið
verstir. „Monnie (dóttir þeirra
hjóna) átti fjögurra ára afmæli
daginn sem þeir skutu á okkur
úr vélbyssum. Ég mun aldrei
meðan ég lifi gleyma þessu“.
Debuisson sagði að þremur
dögum óður en þeim var bjarg-
að hafi hann og fjölskylda hans
verið flutt úr húsi þeirra, þar
sem þau höfðu verið í stofu-
fangelsi, og flutt í hótel, þar
sem fyrir voru um 200 evrópskir
gislar. „í gærmorgun, rétt fyrir
birtingu, var okkur safnað sam-
an og farið með okkur niður í
garðinn. Þar heyrðum við flug-
vélagný, og vonin um björgun
kviknaði. En ég hugsaði með
skelfingu til þess, hvað yrði um
Katie (eiginkonuna) og Monnie
litlu.
„Ofursti úr liði uppreisnar-
manna sagði okkur að við ættum
að ganga út úr bænum og af-
hendast Belgíumönnum. Þetta
var það fyrsta, sem við fengum
að vita um að það væru Belgar
en ekki hvítir málaliðar, sem
komið höfðu okkur til bjargar.
Við hófum gönguna niður göt-
una, en eftir 50 metra gang var
okkur skipað að setjast. Upp-
reisnarmenn færðu sig spölkorn
frá, sneru sér síðan við og hófu
skothríð á okkur. Þetta var
hrein og bein slátrun“.
„ALDREI JAFN FEGINN“
Ég kastaði mér yfir Monnie
og Katie, sem voru við hlið mér.
Ég fann hvernig ég reyndi að
grafa oklkur niður í götuna með
fingrunum meðan kúlurnar
hvinu yfir höfðum okkar. Ég
heyrði neyðaróp þeirra, sem þær
höfðu hitt. Síðan heyrði ég einn
uppreisnarmanna segja: — Nú
veltum við þeim við, og sjáum
um þá, sem enn eru á lífi.
„f því að- uppreisnarmennirnir
tóku að nálgast okkur, var kjrafta
verk það eina, sem ég gat von-
ast eftir. Og kraftaverkið gerð-
ist. Fyrir næsta horn kom bel-
gískur fallhlífarhermaður með_
vélbyssu í höndunum. Ég hefi
aldrei verið jafn feginn að sjá
hinn brúna og græna emkennis-
búning. Fleiri fallhlífarhermenn
fylgdu honum, og er þeir sáu,
hvað þarna var að gerast, hlupu
þeir áfram og skutu frá mjöðm-
inni á uppreisnarmenn, sem tóku
til fótanna og flýðu. Öllu var
nú lokið. Ég lá þarna í rykinu
og hélt dauðahaldi í Monnie en
tárin streymdu niður kinnar
mínar. Sömu sögu var að segja
um Katie“.
CARLSON VAR f HÓPNUM
Debuisson var að því spurður,
er hann kom til Briissel, hvort
hann hefði séð bandaríska trú-
boðslækninn Carlson.
„Að sjálfsögðu“, svaraði hann.
„Allir þekktu hann. Fram á síð-
ustu stundu veitti hann þeim
læknishjálp, sem á henni þurftu
að halda. Hann tilheyrði okkar
hópi, og hann dó á Lúmúmba-
torgi í gær, þegar skotið var á
okkur.
„Það veit Guð, að Carlson var
hugrakkur maður. Hann vissi,
að búið var að dæma hann til
dauða, en hann hugsaði aldrei
um sjálfan sig, heldur aðeins um
það fólk, sem þurfti á honum
að halda. Hann var staddur
nærri mér er skothríðin á okkur
Helgimynd úr brezku silfri.
Listmunauppboð
í da»
SIGURÐUR Benediktsson held-
ur uppboð á listmunum í Þjóð-
leikhúskj allaranum kl. 5 í dag.
Er þetta annað uppboð Sigurð-
ar, þar sem aðeins eru seldir
listmunir, en venjulega hafa
þeír aðeins fylgt með á málverka
uppboðum. Auk málm-, fíla-
beins- og postulínsmuna, verða
einnig boðin upp 5 persnesk
teppú
Þrjátíu og átta númer eru á
skránni, en mörg aukanúmer
munu hafa bætzt við sjðustu dag
ana. Af því sem upp verður boð-
ið, má nefna japanska konu með
blævæng, 20 sm. háa, skorna í
fílabein, japanska smið, Helgi-
mynd, 27 sm. háa úr brezku
silfri; Austurlenskt sjal úr hör
og silfri, sem vegur 1210 grömm,
kaffisett fyrir 12 manns, smellt
silfur og postulín frá Hertel-
Jakob í Bæheimi; 3 veggskildi
varðandi ísland úr dönsku
postulíni, og löggilt tveggja lítra
brennivínsmál frá 1075 með
stimpli kóngsins.
Frá vinstri: Bjarni M. Magnús son, fundarritari, Guðmundur Asmundsson, hrl. og Guðm. H.
Garðarsson, formaður undirbú ningsnefndar, á stofnfundi Stéttarsambands fiskiðnaðarins í gær.
(Ljósm. Mbl.: Sv. Þ.)
— Stéttarsamband
Framh. af bls. 28
aðalstjórn með honum: Margeir
Jónsson, Keflavík, Tómas Þor-
valdsson, Grindavík, Aðalsteinn
Jónsson, Eskifirði, Bogi Þórðar-
son, Patreksfirði, Óskar Sigurðs-
son, Vestmannaeyjum, Bjarni
Jóhannsson, Akranesi, Bjarni V.
Magnússon, Reykjavík og Vil-
hjálmur Ingvarsson, Reykjavík.
í varastjórn voru kosnir Valdi-
mar Indriðason, Akranesi, Baldur
Jónsson, ísafirði, Vernharður
Bjamason, Húsavík, Ásgrimur
Pólsson, Keflavík, Hörður Vil-
hjálmsson, Hafnarf., Jón Jónsson,
Hafnarfirði, Guðmundur Þor-
björnsson, Reykjavík, Benedikt
Jónsson, Keflavík og Ásgrímur
Halldórsson, Hornafirði.
Svipmynd af stofnfundi Stéttarsambands fiskiðnaðarins ■ gær
hófst. Ég sá hann síðan ekki,
þar sem ég kastaði mér yfir
Monnie litlu, en þegar ég stóð
upp, lá hann á götunni með
kúlu gegnum höfuðið. Eftir all-
ar hótanirnar við hann dó hann
af hreinni tilviljun. Uppreisnar-
menn vissu ekki einu sinni hvern
þeir höfðu skotið'Y
VIÐBJÓÐUR
Margir starfsmenn Rauða
Krossins, sem tóku á móti flótta
fólkinu í morgun, gátu ekki var
izt gráti, er þeir heyrðu hinar
hroðalegu lýsingar þeirra, sem
lifðu blóðbaðið i Stanleyville.
Fyrrverandi starfsmaður
Belgíustjórnar í Kongó var mætt
ur á flugvellinum til að taka
á móti bróður sínum og systur.
Hann fékk þau tíðindi að þau
hefðu bæði verið skotin aðeins
örfáum mínútum áður en hjálp-
in barst.
Ung kona stóð ein sér í rign-
ingunni og starði tómum augum
fram fyrir sig. Hún missti 3
mánaða garnalt barn sitt í skot-
hriðinni í Stanleyville í gærmorg
un.
12 ára gamall drengur sat ein-
samall og beið ættingja sinna.
Þeir höfðu hinsvegar verið rist-
ir upp með langhnífum í blóð-
baðinu.
En þrátt fyrir martröðina og
dvölina með „þjóðfrelsishreyf-
ingu Kongó“ voru þeir nokkrir,
sem lýstu því yfir, að þeir
myndu halda til Kongó á ný, er
þeir hefðu hvílt sig og safnað
kröftum.
- Fullfrúaráðið
Frh. af bls. 28
oddsen fjármálaráðherra og
Höskuldur Ólafsson bankastjóri.
Auk þeirra eru sjálfkjörnir í
stjórn ráðsins formenn Sjálfstæð
isfélaganna í Reykjavík, en þeir
eru: frk. Maria Maack formaður
Sjálfstæðiskvennafélagsins Hvat
ar, Sveinn Guðmundsson form.
Landsmálafélagsins Varðar, —
Styrmir Gunnarsson formaður
Heimdallar, FUS og Sveinbjörn
Hannesson formaður Málfunda-
félagsins Óðins.
Stjórnin skiptir sjálf síðar
með sér verkum.
í varastjórn fulltrúaráðsins
voru einróma kjörin: Ágúst Haf-
berg, forstjóri, frú Gróa Péturs-
dóttir og Jóhann Hafstein, iðn-
aðarmálaráðherra.
í nefnd, sem ásamt stjórn
fulltrúaráðsins skal skipa um-
dæmafulltrúa ráðsins, voru kjör-
in með samhljóða atkvæðum:
Baldur Jónsson, vallarstjóri,
Benóný Kristjánsson, pípulagn-
ingameistari, Björn Þórhallsson,
viðskiptafræðingur, Gunnar
Helgason, framkvæmdastjóri,
Jón Jónsson, skrifstofustjóri, frú
Lóa Kristjánsdóttir, Magnús Jó-
hannesson, trésmiður, frú Ólöf
Benediktsdóttir, Valur Valsson,
stud. oecon., Þórður Kristjánsson,
kennari.
Að loknum venjulegum aðal-
fundarstörfum flutti Jóhann Haf
stein, iðnaðarmálaráðherra, ræðu
um stóriðju og raforkufram-
kvæmdir.
— Skothrið
/ramh. af bls. 1.
Talið er að 30—35 Bandaríkja
menn og Evrópubúar hafi verið
drepnir af uppreisnarmönnum er
belgísku fallhlífarhermennirnir
héldu innreið sína í Stanley-
ville. Þar af voru 15—20 skotnir
til bana á svonefndu Lumumba
torgi í miðborg Stanleyville, en
hinir voru drepnir í flugstöðvar
byggingunni. Auk þeirra, sem
biðu bana á Lumumbatorgi, særð
ust þar um 40 manns.
Fregnir herma, að enginn upp
reisnarleiðtoganna hafi verið tek
inn höndum. Höfuðpaurinn,
Christophe Gbenye, er sagður
hafa sézt á flótta í bíl gegnum
Stanleyville skömmu eftir að
belgísku fallhlífahermennirnir
lentu á flugvelli borgarinnar.
Vitni hafa skýrt frá því, að
Carlson, bandaríski trúboðslækn
irinn, hafi fallið á * Lumumba-
torgi. Þá munu þúsundir inn-
fæddra Kongóbúa hafa verið
teknar af lífi við Lumumba-
minnismerkið í Stanleyville á sið
ustu mánuðum. Aftökurnar fóru
yfirleitt þannig fram, að upp-
reisnarmenn hjuggu fórnarlömb
in niður með hinum löngu frum
skógasverðum sínum.
Leiðtogar ýmissa Asíu- og
Afríkuþjóða, þeirra á meðal
Jomo Kenyatta, forsætisráðherra
Kenya, egypzka stjórnin, Ben
Bella, forsætisráðhérra Alsír,
og að sjálfsögðu kommún-
istalöndin með Sovétríkin og
Kína í broddi fylkingar, hafa
harðlega gagnrýnt aðgerðirnar í
Stanley ville, ag sagt að mannúð-
in hafi verið yfirdrep eitt til
þess að koma „þjóðfrelsishreyf-
ingu“ Kongó á kné.
Bandaríkin og Belgía hafa lagt
á það áherzlu við U Thant, aðal-
ritara Sameinuðu þjóðanna, að
ef ekki hefði verið gripið til ráð-
stafana, hefðu allir hvítir menn
í Stanleyville verið miskunnar-
laust murkaðir niður af uppreisn
armönnum.
Þá hefur Súdan beðið Öryggis
ráð SÞ að koma saman til fund-
ar hið bráðasta til að ræða ástand
ið í Kongó.
í dag urðu óeirðir fyrir fram-
an bandaríska sendiráðið í Sofía
í Búlgaríu, að því er sovézka
fréttastofan Tass segir. Voru
margar rúður brotnar í sendiráðs
byggingunni. Búlgarska stjórnin
hefur beðið afsökunar á atburðin
um.
Jomo Kenyatta, forsætisráð-
herra Kenya, sagði að allar göt-
ur til mánudags hefði verið unrtt
að bjarga hvítum mönnum frá
Stanleyville með milliigöngu al-
þjóða Rauða Krossins. Kenyatta
sagði að hinir hörmulegu atburð-
ir í Kongó sýndu ljóslega, að úti-
loka yrði alla erlenda íhlutun frá
landinu.
Leiðréttin®
JÓN H. BJÖRNSSON hefur beð-
ið blaðið fyrir eftirfarandi leið-
réttingar við grein hans, sem
birtist í blaðinu í gaér:
1. Fyrirsögnin: GRÓÐURINN í
REYKJAVÍK. Átti að vera:
GRÓÐURHÚS í REYKJAVÍK.
(Tekið undir með Sigurði Magn
ússyni, fulltrúa).
2 ....það er gott að taka plönt
ur beint úr uppeldisgróðurhúsi.
Átti að vera: ....það er ekki
gott.....
3 ....e.t.v. er það framleiðslu
stöð sem sýnir erlendu ferðafólki
mátt hitaveitunnar hér norður-
frá hjá okkur. Átti að vera:
. ...mátt hitaveitunnar bezt hér