Morgunblaðið - 26.11.1964, Side 28
)
LAND^
*~kOVER
BENZ1N eða
DIESEL
SERVIS
SERVIS
SERVIS
SERVIS
SERVIS
Serws
MshJs LAU6AVEGI
Myndin er tekin í Kaupmanna höfn á sunnudaginn var, þegar
þiskupinn yfir íslandi setti séra Jónas Gíslason í embætti.
Frá vinstri: Sér Jónas Gíslason, herra Sigurbjörn Einarsson
og Sjálandsbiskup G. Scliioler í Hróarskeldu.
(Ljósm. Connie Eriksen).
Tóbaksnotkun eykst
miðað við sölu í okt, '63 og okt ‘64
SAMKVÆMT upplýsingum sem
Mbi. hefur fengið hjá Áfengis-
og tóbaksverzlun ríkisins, var
sala á hvers kyns tóbaksvörum
Vísindamenn
í Surtsey í gær
ELLEFU menn fóru til rann-
sókna í Surtsey í gær. Hér var
um að ræða lið í athugunum til
Rannsóknaráðs ríkisins á Surts-
ey. Mennirnir, sem fóru í eyna,
voru íslenzkir vísindamenn og
aðstoðarmenn þeirra, svo og
kvikmyndatökumaður.
Herflutningaflugvél frá varn-
arliðinu flutti þá frá Reykjavík
til Heimaeyjar, en þaðan sel-
flutti þyrla frá varnarliðinu þá
í þremur ferðum út í eyna. —
Styttri tíma var dvalizt í eynni
en fyrirhugað hafði verið, en þó
tókst að safna sýnishornum og
gera allar athugasemdir, sem
fyrirhugaðar höfðu verið.
talsvert meiri í október síðast-
liðnum en í sama mánuði á ár-
inu 1963.
Sala á vindlingum var um 2000
millum meiri í október 1963 en
í október 1964. (Eitt mill er
fimm „karton“. — f fyrra seld-
ust um 18 þúsund mill í október
en nú um 20 þúsund.
Sala á reyktóbaki var um
tveimur tonnum meiri í októ-
ber nú en í sarna mánuði í fyrra.
í fyrra seldust 546 þús. stk.
af vindlum í október en nú 800
þús. stk. Seldust því 254 þús.
vindlum fleira í okt. 1964 en í
okt. 1963.
Neftóbak seldist einnig betur
í október nú en í fyrra. Nemur
aukningin rúmum 600 kg.
Akranesi, 25. nóv.
328 gærur er nú búið að súta
í Sútunarverksmiðjunni hér, síti
an starfsemin hófst fyrir u.þ.b.
hávfum mánuði. — Oddur.
Miklar útvarpstrufl-
anir í Siglufirði
Siglufirði, 25. nóv.
SIGLFIRÐINGUM er nú mörg-
um heitt í hamsi vegna þess, hve
illt er að hlusta á Ríkisútvarpið,
einkum eftir kl. 8 á kvöldin.
Ekki er þó kvartað undan efni
útvarpsins, heldur eru hlustunar-
skilyrðin svona léleg.
Mörgum gramdist í gærkvöldi,
þegar seinasti þáttur þriðjudags-
leikritsins var leikinn, en með
því hefur verið mjög vel fylgzt
hér. Má segja, að þessi lokaþátt-
ur hafi alveg farið framhjá flest-
um Siglfirðingum. Mangs er get-
ið til, hvað þessum truflunum
valdi, og skal ekki farið út í þá
sálma hér.
Þeir, sem geta tekið við FM-
bylgju á tækjum sínum, munu
sleppa við truflanir, en 30% hlust
enda hér munu eiga slík tæki.
Nú er verið að safna undirskrift-
um undir skjal, þar sem farið er
fram á úrbætur. Á þriðja hundr-
að manns hefur þegar skrifað
undir, og er það mikið í ekki
stærri bæ. — Stgr. Kr.
Stéttarsamband fiskiðnað
arins stofnað í gær
Gunnar Guðjónsson kosinn formaður
STÉTTARSAMBAND fisk-
iðnaðarins var stofnað í gær
á fjölmennum fundi á Hótel
Sögu. Fundurinn stóð í fimm
tíma, frá kl. 15—20. Gunnar
Guðjónsson var kosinn for-
maður sambandsins.
Á fundinum voru staddir fisk-
verkendur og fulltrúar þeirra
hvaðanæva að af landinu. í upp-
hafi hans var Elías Þorsteinsson,
Keflavík, kosinn fundarstjpri, og
Bjarni Y. Magnússon, Reykjavík,
fundarritari.
Til fundarins hafði boðað
þriggja manna undirbúnings-
nefnd, sem hafði unnið að sam-
bandsstofnuninni í eitt ár. í
henni áttu sæti Guðmundur H.
Garðarsson, sem var formaður
hennar, Einar Sigurðsson, Reykja
vík og Elías Þorsteinsson, Kefla-
vík.
Formaður nefndarinnar, Guð-
mundur H. Garðarsson, hafði
framsögu um málið fyrir hönd
nefndarinnar. Lýsti hann aðdrag-
andanum að stofnuninni og til-
gangi Stéttarsambands fiskiðn-
aðarins. Jafnframt lagði hann
fram uppkast að lögum fyrir sam
bandið, sem Guðm. Ásmundsson,
hrl., hafði samið í samráði við
nefndina.
Samþykkt var einróma að
stofna stéttarsambandið, og laga-
uppkastið var samþykkt svo til
óbreytt.
Skv. lögum Stéttarsambands
fiskiðnaðarins er tilgangur þess:
Að safna öllum íslenzkum fisk-
framleiðendum í einn félags-
skap.
Að vera opinber málsvari fisk-
Á AÐÁLFUNDI Fulltrúaráðs
Sjálfstæðisfélaganna í Reykja-
vík, sem haldinn var í gærkvöldí
var stjórn og varastjórn ráðsins
öl) endurkjörin. Ennfremur
flutti Jóhann Hafstein iðnaðar-
málará&herra ræðu um stóriðj i.
og rajorkuframkvæmdir.
Fundarstjóri var kjörinn Geir
Hallgrímsson borgarstjóri, og
Baldvin Tryggvason
íundarritari var Styrmir Gunn-
arsson formaður Heimdailar
F.U.S.
í upphafi fundarins minntisí
fundarstjóri 11 meðiima fuiltrúa
ráðsins, sem failið hafa frá á s.1
ári.
Formaður ful ltrú ar áðs ins s'.
starfsár, Baldvin Tryggvason
framkvæmdastj óri, flutti skýrslu
stjómar ráðsins, sam bair með
Gunnar Guðjónsson, formaður
Stéttarsambands fiskiðnaðarins.
iðnaðarins.
Að efla íslenzkan fiskiðnað
og samheldni fiskframleiðenda.
Að fjalla um samninga við hrá-
efnisseljendur. Að vera samtök-
um vinnuveitenda til ráðuneytis
um kjarasamninga.
Að gera tillögur um málefni, er
snerta fiskiðnað.
Skv. bráðabirgðatölum Hagstofiu
íslands um verðmæti útflutnings
og innflutinings í okfóber 1964
sér gott og öflugt starf á árinu.
í aðalstjórn ráðsins voru kjörn
ir einróma: Baldvin Tryggvason
framkvæmdastjóri; Gunnar Thor
Að vinna að því, að réttur fisk-
iðnaðarins sé ekki fyrir borð bor-
inn.
Að vinna að aukinni þekkingu
íslendinga á fiskiðnaði, m.a. með
útgáfu tímarits eða blaðs.
Gunnar Guðjónsson, Reykja-
vík, var kosinn formaður Stétt-
arsambands fiskiðnaðarins og í
Framhald á bls. 27.
Aðalfundur
LÍtJ hefst
í dag
í DAG kl. 14.00 hefst aðalfundur
Landssambands íslenzkra útvegs
manna. Verður hann haldinn í
Tjarnarkaffi og munu sitja hann
um 70 fulltrúar frá 13 sambands
félögum.
Fundurinn hefst með setningar
ræðu formanns sambandsins,
Sverris Júlíussonar .
var í þeim mánuði flut't út fyrir
466.708.000 krónur (í fyrra 409.
233.000 kir.), en inn fyrir 419.
975.000 kr. (í fyrra 397.683 000
kr.). Hefur því bæði innflutning-
ur og útflutningur aukizt, og
vöruskiptajöfnuður í okt. 1964
er hagstæður um 46.733.000 kr.
Samtals hefur verið flutt úf I
jan.-okt. í ár fyrir 3.785.740.000
kr.) á sama tímabili í fyrra íyrir
3 075.803. kr.), en inn fyrir 4.370,
405.000 kr. (í fyrra 3.771.162.00J
kr.). Vöru9kiptajöifnuður í jan.-
tokt. er því óhagstæður um 584.
665.000 kr., en var óhagstæður
á sama tímabili í fyrra um 695
354.000 kr.
Framhald á bls. 27
Helminaur skulda-
bréfanna seldur
BLAÐINU hefur borizt eftir-
farandi fréttatilkynning frá
Seðlabankanum:
Eins og kunnugt er af frétt-
um hefur nýlega verið boðið
út 50 milljón króna lán ríkis-
sjóðs í formi verðtryggðra
spariskírteina. Forsala þeirra
hófst s.l. mánudag.
Almenningur hefur tekið
þessum spariskírteinum mjög
vel og í lok þriðja söludagsins
var búið að selja um helming
útgáfunnar.
Spariskírteinin sjólf verða
tilbúin til afhendingar hjá
söluaðilum í Reykjavík n.k.
mánudag og fljótlega á eftir
úti á landL
Eftirtaldir aðilar í Reykja-
vik taka á móti áskriftum og
annast sölu spariskírteinanna:
Seðlabanki íslands
Landsbanki íslands
Útvegsbanki íslands
Búnaðarbanki íslands h.f.
Iðnaðarbanki íslands h.f.
Verzlunarbanki íslands h.f.
Samvinnubanki íslands h.f.
Sparisjóður Rvíkur og nágr.
svo og öll útibú viðskipta-
bankanna í Reykjavík.
Ennfremur hjá Málflutnings
skrifstofu Einars B. Guðmunds
sonar, Guðlaugs Þorlákssonar
og Guðmundar Péturssonar og
KauphöllinnL
Sölustaðir utan Reykjavíkur
eru útibú allra bankanna og
stærri sparisjóðir. Hægt er að
panta skirteinin hjá flestum
öðrum sparisjóðum oe inn-
lánsdeildum.
Aðalfundur Fulltrúa-
ráðsins í gærkveldi
Búizt er við að fundinum ljúki
síðdegis á laugardag,
Innflutningur og
útflutningur eykst
Vöruskiptajöfnuður óhagstæður