Morgunblaðið - 05.01.1965, Side 19

Morgunblaðið - 05.01.1965, Side 19
Þriðjudagur 5. janúar 1965 MORCUNBLABID 19 MIKILL f jöldi fiskibáta ligg- ur nú í Reykjavíkurhöfn, aö- geröarlaus vegna verkfalls og illviöris. Af sömu ástæöum er mikiö fiskleysi í verzlunum borgarinnar og saltfiskur og skata nærri því eina fiskmet- ið, sem þar er á boðstólum. Þó munu nokkrir bátar fá undan þágu til að róa og sækja í soð- iö, er gefur á sjó. Deyfð ríkti yfir flotanum við Grandagarð í gær. Bátarn ir liggja bundnir hver utan á öðrum, víðast þrír eða fjórir hlið við hlið. Snjókoma var og kaldi, enda fáir á ferli. í bát- unum voru óvíða ljós og flest- allir þeirra jnannlausir. Þó sáust logsuðuglampar í tveim ur bátum og við eina bryggj- una unnu menn að því að taka um borð síldarnót. Er skipverjar voru spurðir, hvort Nótin tekin út í bátinn í gær. Bátaflotinn bundinn við Grandagarð vegna ver.. og veðurs Janus Þorbjarnarson tekur innan úr þorskhausum í ver- búð Sæbjargar. þeir væru ekki að brjóta verk fallið, hlógu þeir við og kváð- ust hafa orðið að losa viðgerð armenn við nótina, hefðu reyndar lofað því fyrir jól, en veður verið svo óhagstætt til nokkurra athafna þá, að því hefði alltaf verið slegið á frest og nú hefði ekki verið annarra úrkosta völ, en að rýma geymsluna og taka nót- ina um borð. „Þið verðið þá tilbúnir að sigia, um leið og verkfallið leysist“. „Já,“ sagði skipstjórinn, við getum siglt með fáeinna klukkustunda fyrirvara." „Hvernig er hljóðið í mönn unum?“ „Skipshöfnin hjá mér hefur ekki rætt mikið um verkfall- ið. Veðrið hefur líka verið þannig, að verkfallið hefur ekki komið að sök ennþá.“ í verbúð Sæbjargar við Grandagarð er maður nokkur að fiskaðgerð. Hann heitir Janus Þorbjarnarson, ættaður frá Flateyri við Önundar- fjörð. „Hvað er þetta, ertu með nýjan fisk?“ „Já, við fengum einn bíl- farm að þorski á laugardag- inn. Nú eru bara nokkur flök eftir. Og svo hausarnir. Þeir hefðu einhvern tíma þótt herramannsmatur, ekki sízt í hausastöppu. Þá er sett ( r innan í hausana, og tekin úr þeim beinin og síðan allt stappað saman. Það eru engin harðindi meðan maðúr hefur hausa, skal ég segja ykkur.“ — Athugasemd Frh. af bls. 27 Veitingamenn gátu að sjálf- sögðu ekki sætt sig við slík* framkomu, sérstaklega þegar haft er í huga að „pressa“ áttl veitingamenn til slíkra geysi- legra umframhækkana, þegar tveir stærstu dagar veitingahús- anna fóru í hönd, gamlárskvöld og nýárskvöld. Hljóðfæraleikarar höfðu sjálf- ir tilkynnt S.V.G. það skriflega, að þeir myndu leggja hiður vinnu á miðnætti 31. desember og hafði slíkt einnig verið aug- lýst í ríkisútvarpinu af F.Í.H. Með vísan til framanritaðs og þar sem F.Í.H. neitaði algjörlega að veita einnar viku frest til frekari samningsviðræðna, þá tilkynntí S.V.G. stjórn F.Í.H. í símskeyti síðari hluta gamlárs- dags, að meðlimir S.V.G. myndu ekki nota músik frá meðlimum F.Í.H. á gamlárskvöld og var stjórn F.Í.H. beðin um að til- kynna öllum meðlimum sínum þetta, enda höfðú hljóðfæraleik- arar þá algjörlega neitað beiðni S.V.G. um að spila á nýársdags- kvöld. í von um að verkfallið leystist á gamlárskvöld höfðu nokkrár hljómsveitir mætt á veitingastöð um um kvöldið, enda fá hljóð- færaleikarar um vikukaup fyrir að spila þetta eina kvöld og vildu þeir því ekki missa af þessu kaupi. Því er það ekki rétt sem fram kemur í fyrrgreindri blaðagrein að músikinni hafi verið kastað út á gamlárskvöld. S.V.G. telur í sjálfu sér ekki rétt að standa í blaðadeilu með- an ósamið er við hljóðfæraleik- ara, en þar sem þeir áttu upp- tökin af því, var ekki hjá því komizt að svara. Að lokum vill S.V.G. taka fram að það óskar ekki eftir frekarí blaðadeilum vegna máls þessa, enda myndu þá verða dregnar fram í dagsljósið ýmsar mjög svo vafasamar hótanir hljóðfæraleikara sem ekki myndu verða þeim til álitsauka. Samband veitinga- og gistihúsaeigenda. IðnaHarláð og hús i Hafaarfirði Til sölu 80 ferm. iðnaðarhús, ásamt 1500 ferm. lóð á góðu athafnasvæði við suðurhöfnina í Hafnarfirði. Tilvalinn staður fyrir margskonar rekstur. — Teikn ingar fyrir húsum fylgja. Leiga kemur til greina. Hagkvæmir greiðsluskilmálar. — Upplýsingar í síma 40469. Bátarnir mannlausir við Grandagarð. Kópavogur: Blaðburðarfólk vantai nú þegar til blaðadreiíingar í Austur- og Vesturbæ Hafið samband við útsölumann í síma 40748 Afgreiuslustúlka Okkur vantar stúlku til afgreiðslustarfa, allan daginn, helzt vana. GRENSÁSKJÖR Grensásvegi 46 (Uppl. ekki í síma). Ski ilstofur okkar verða lokaðar í dag FRÁ K L. 12 Á HÁDEGI. Heíldverzlunin Heklahf. Laugavegi 170—172.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.