Morgunblaðið - 21.01.1965, Page 24

Morgunblaðið - 21.01.1965, Page 24
JE LE KTROLUX UMÐOOIÐ tAUOAVCGI 69 sTmÍ 2Yé00 Tuska stíflar vél og stofnar báti I háska SklBin eftir af gáSeysi? ÓI-iAFUR Tryg-gTfason, 150 tonna vélbátur frá Hornafirði> varð fyrir vélarbilun rétt fyrir há- degi í gær, þriðjudag. Báturinn var þá staddur 3 sjóm. út af Dyrhólaey, en þar voru 7—8 vind stig og mikill sjór, og talin hætta á, að skipið ræki á land. Skipstjórinn á vb. 'Ólafi Tryggvasyni hafði samniband við varðskipið Ægi, sem statt var um 3ja til 4ra tíma siglingu aust- ar með landinu. Ráðlagði skip- herrann á Ægi, að leitað yrði að- sto'ðar nærstaddra skipa. Vb. Bergur frá Vestmannaeyj- um var staddur um 5 sjómílur frá Vb. Ólafí. Tryggvasyni. og M jólkurskortur á Seyðisfirði Seyðisfírði, 20. jan/úar. HÉR eru nú snjóalög mikil og hefir verið samgöngulaust við | Héarað nokkra. daga. Heita má að hér hafi verið mjólkurlaust að mestu, því meginhluti mjólkur- innar kemur frá Mjólkursamlag- inu á Egilsstöðum. Hingað til bæjarins hefir aðeins borizt mjólk frá Dvergasteinsbúinu í Seyðisfirði, en þaðan og frá Hánefsstöðum berst eina mjólk- in, sem framleidd er að nokkru róði hér í firðintun. Snjóbíll fór upp Hérað í dag m.a. til að sækja mjólk. Jarðýta kom niður yfir í gær og lagaði fyrir snjóbílinn, en það er nauð- synlegt þar sem mikill hliðar- halli er t.d. í Bfra-Staf. Hér í bænum hafa a'ðalgötur verið rudd ar og má heita að þær séu nokk- urn veginn færar bílum. Hœgt er að flytja mjólk frá Hánefsstöðum é trillu og verð- ur gert> en henni er fyrst safnað saman í nokkra daga. — Sveinn. heyrði skipstjórinn á Bergi á tal skipstjórans og skipherrans. Bauðst hann til að koma bátin- um til hjálpar. Dráttartaug var komið á milli Bergs og Ó. Tr., •og héldu skipin áleiðis til Eyja. Vegna óveðurs lágu þau í vari undir Eiði fram eftir kvöldi og komust ekki inn í höfnina, fyrr en laust fyrir miðnætti. Við athugun á vélinni kom í ljós, að tuska hafði stíflað sog- rör ne'ðst í botnskál gírsins, og hafði það í för með sér, að vél- in hætti að smyrja. Viðgerð mun hafa farið fram á gírnum í Reykjavík í desemiber sl., og er talið. að tuskan hafi þá verið skilin eftir 1 vélinni. Sjóprófum lauk í málinu hjá bæjarfógeta í Vestmannaeyjum í dag. — G.G. Eitskw þjókr ur Á ÞRIÐJUDAG var kveðinn upp dómur í Sakadómi Reykjavíkur yfir brezkum ríkisborgara, sem brauzt tvívegis inn í hús við Fischersund í byrjun mánaðar- ins. í seinna skiptið náðist hann sökum þess, að hann skarst á fæti, svo að hægt var að rekja bióðferilinn að gistiheimili Hjálp ræðishersins í Herkastalanum, þar sem þjófurinn bjó. Fannst ýmislegt þýfi í kamesi hans, sem hann játaði að hafa stolið. Maður þessi hafði verið á íslenzkum togara og komið til Reykjavík- ur um • hátíðarnar. Hann var dæmdur í þriggja mánaða fang- elsi, skilorðsbundið, til greiðsiu skaðabóta og að lokum vísað úr landi. Skaðabótakröfur höfðu ekki verið gerðar á hendur hon- um. Sjómaðurinn fór utan með flugvél á miðvikudagsmorgun. árongurslausii súttufundir SÁTTAFUNDUR sá í sjómanna- deilunni, sem hófst kl. 14 á þriðju daig, stóð til kl. 6 á miðviku- dagsmorgun. Annar fundur hófst kl. 20.30 í gærkveldi og stóð enn yfir kl. 23.30, án þess að árangur hefði náðst. Alþingi kvatt saman 1. febrúar FORSETI íslands hefur, að til- lögu forsætisráðherra, kvatt Al- þingi til framhaldsfundar mánu- daginn 1. febrúar n.k., kl. 14.00. (Frá forsætisráðuneytinu). Johannes Manong IV@anong þakltar fyrir síg: ,Fldði Island vegna kynþáttaofsdkna* Sænsk blöð skýra frá því, að honum hafi verið veitt landvist í Svíþjóð - eftir illa dvöl á íslandi, að því er bezt verður skilið STOCKHOLMS-TIDISIIS SVO SEM marga refcur minni til urðu fyrir skemmstu nokk ur blaðasikrif vegna blöfckn- manns frá S-Afríku, sem til landsins kom fyrirvaralaust og vildi komast í Háskóla Is- lands. Moður þessi, Johannes Manong, kom hingað peninga- laus eftir að hafa sent hing- að skeyti, sem Stúdentaráði barst sanra dag og hann kom. Skeytið hljóðaði svo efnislega: Johannes Manong er að koma. — Stúdentaráð greiddi götu manns þessa eftir beztu getu, og útvegaði honum frítt fæði og húsnæði til að byrja með, en tilkynnti Manong jafn- framt að í janúarbyrjun yrði hann að sjá fyrir sér sjálfur. — Ennfremur var reynt að útvega Manong vinnu, en það hafði ekki tekizt er hann til- kynnti um jólin að sér „byð- ist styrkur í Sviþjóð." — Nú er Manong þessi kominn til Svíþjóðar, og mun það af fregnum að dæma ekki hafa gengið með öllu vandræða- láust. Hins vegar útdeilir hann í blöð þar í landi óhróður um íslánd, og kveðst hafa flúið land vegna „ofsókna". — Rétt mun vera að Manong hafi fengið hér eitt bréf með hakakrossi, þar sem stóð að „ísland væri hvitt og ætti að vera það“, svo og að brennd- ur hafi verið kross á lóð Há- skólans, en ekki er vitað hvort heldur hér hefur verið um að ræða misheppnaða „fyndni“, grátt drykkjugam- an eða þann örsmáa hóp furðu fugla, sem telja sig nýnazista, en af fregnum í sænskum blöðum er það helzt að ráða, að „eini negrinn á öllu Is- landi“ hafi ekki haft frið fyrir eilífum ofsóknum í sima, bréflega eða þá í formi brenn andi Ku-Klux-Klan-krossa. — Hér fer á eftir frétt úr hinu virta sænska stórblaði „Stock- holmstidningen", svo og um- sögn Auðólfs Gunnarssonar, formanns Stúdentaráðs, um málið. „Eftir snör handtök og ráð- stafanir útlendingaeftirlitsins síðdegis á laugardag, hefur Suður-afrískum flóttamanni, Johannes Manong, 29 ára, ver ið veitt hæli í Svíþjóð. Man- ong kemur frá íslandi, þar sem hann varð, að eigin sögn, skotspónn mótmæla-aðgerða ný-nazista. í Svíþjóð mun hann setjast í lýðháskólann að Skinnskatteberg sem auka nemandi, þar til hann hefur lært sænsku svo hann geti haldið áfram háskólanámL Manong var síðdegis á laug- ardag á flugvellinum í Glas- gow, eftir bráðan „flótta" frá íslandi. Búizt er við honum til Árlanda-flugvallar á sunnu dag. / Manong, sem var athafna- samur meðlimur einnar af and .spymuhreyfingunum gegn stjóm Verwoerds, neyddist til að flýja land sitt eftir Sharps- ville-blóðbaðið svonefnda 1960. Síðan hefur hann lengst af haldið til í Afríku og Eng- landi. Til íslands kom hann fyrir örfáum mánuðum. Hann var einasti negrinn á öllu ís- landL Framhald á bls. 2Ö T? ° £ * J 1 t ar tristad # i fter ett snabbt ingrípande av utLanníngskommissio- n«n pa lö rdagsefterm»d<la- gen har en sydafrikan.sk flyktlng, Johannes Manong, 29, beretts fristad i Sverige. Manong kommer námiast frán Island, dar han entigt egen uppgift varit utsatt för demonstrationer frán ny- nazistiskt báll, I Sverige ska han «á som extraelev o» Fyrirsögnin og npphaf fregn arinnar í „Stockholmstidning en“ s.l. sunnudag. Fjórtán bílar brjótast yfir Úxnadalsheiöi Surtseyjargosið: Lengsfa, óslitna eldgos frá upphafi ísl.byggðar EI.DGOSIÐ úr gígnum Surti í Surtsey hefur nú staðið óslitið frá því í nóvember árið 1963. Er það lengsta gos, fullkomlega óslitið, sem átt hefur sér stað síðan ísland byggðist. Skv. upplýsingum dr. Sig- urðar Þórarinssonar, ' jarðfræð- ings, teljast þrjú eldgos önnur hafa staðið lengur í byggðasögu landsins. Ekkert þeirra þriggja var þó fullkomlega samfellt. Mý- vatnseldar svokallaðir í Leir- hnúkssprungu við Mývatn hóf- ust með sprengigosi árið 1724, þegar Víti varð til í Kröflu. Þar gaus nokkurn veginn samfellt á árunum 1725 — 1729. Hekla gaus á árunum 1766 til 1768, en þó var það gos sundur slitið á köfl- um. Eyjafjallajökull gaus á ár- unum 1721 til 1723. Að tíma- lengd er Surtur því fjórði í röð- inni, en nr. eitt, ef miðað er við, að gosið hafi ekki verið slitr- ótt. Að gosefnamagni standa þó nokkur gos Surti framar og mörg, ef miðað er við flatarmál hrauns. Hér er ávallt miðað við gos, sem orðið hafa frá upphafi íslands- byggðar. Togarasala BV. Jón forseti seldi í Cuxhaven á miðvikudagsmorgun 105 tonn af fiski fyrir 105.500 mörk. Akureyri 20. janúar. FJÓRTÁN bílar, aðaliega stórir flutningabílar hafa verið að brjót ast yfir Öxnadalsheiði í da.g með hjálp stórvirkra tækja frá Vega- gerð ríkisins á Ákureyri. Bílarnir komu að sunnan til Varmahií'óar kl. 2 í nótt og héldu þaðan aftur kl. 9:30 í morgun áleiðis til Akur eyrar. Héðan frá Akureyri fóru svo í gær ýta, veghefiil og stór trukkur bílunum til aðstoðar. Lestin kom að Grjóta um kl. 14 i dag, en komst ekki ofan í Bakka sei fyrr en M. 18 í kvöld. Snjó- þyngsli eru mest ó Flóanum, en það er austasti hiuti sjálírar heiðarinnar. Hann var rudidur i gær, en traðirnar fylltust allar aftur í nótt. Von er á bílunum hingað til bæjarins í kvöld. Ekki er fyrirhugað a'ð aðstoða bíla á þessari leið aftur að sinni að óbreyttu veðri. Ágætt fiæri er út að Hjalteyri, en vegurinn þaðan til Dalvíkur er afar þungfær, enda fylltust Framh. á bls. 2

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.