Morgunblaðið - 02.03.1965, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐID
Þriðjudagur 2. marz 1965
AKRANESI, 1. marz. — Síðast-
liðinn sunnudag íengu 2 bátar
héðan loðnu suður frá við Reykja-
nes. Haraldur fyílti sig og fékle
auk loðnuna rúm 4 tonn af ýsu
og þorski. Þorskurinn og ýsau
voru að hakka í sig loðnuna af
hinni mestu græðgi og gættu sín
ekki fyrr en búið var að loka
árásarliðið og fórnardýrin inni i
sömu næionnótinni. Haraldur
byrjaði að landa fyrir hádegi i
dag í Síldar- og fiskimjölsverk-
smiðjunni.
Myndin var tekin við ísröndina djúpt í Djúpál sl. laugardag frá vélbátnum Gunnvöru.
(Ljósm. H.T.).
Höfrungur III. fékk og full-
fermi af loðnu, hélt til Vest-
mannaeyja til að landa þar. Átta
þorskanetabátar voru á sjó héðan
í gær og fiskuðu samtals 62 tonn.
Höfrungur I. var aflahæstur með
9,6 tonn. — Oddur.
ísafirði, 1. marz.
FRÉTTAMAÐUR Morgunblaðs-
ins fór sl. laugardag í róður með
vélbátnum Gunnvöru frá ísafirði.
Var haldið út í Djúpál, en þar
átti Gunnvör þrjár netatrossur
í sjó í vesturkantinum á álnum
hjá svonefndum Eldingum og
Melum.
Þegar búið var að draga tvær
trossur var haldið út að ísnum,
sem þá var um tvær á hálfa mílu
fyrir utan veiðisvæði bátanna.
Allmikill sjór var á veiðisvæð-
inu, en þegar komið var að ísn-
um var miklu lygnara og sjólag
kyrrt Þarna var geysimikil is-
spönig, sem mun hafa verið um
8-10 mílna breið og hafði ísinn
hrannazt mjög upp og orðinn
nokkuð samfelld breiða, enda
þótt vakir væru víða innan um.
Ekkert
að fá
Sigurður Helgason,
lokinni veiðiferð.
1. vélstjóri, hampar lúðu, sem fréttamaður Mbt
fékk á pönnuna að
(Ljósm. H.T.).
is a
Fréttamabur Mbl. á ísafirði fór i róður
og leit um leið á isbreibuna
nýnæmi vestra
veiðisvæðin
Á laugardag var mikil ferð á
ísnum að landi og rak hann mjög
hratt inn ísafjarðardjúp. Þegar
haldið var til lands síðdegis á
laugardag var komin mikil ís-
breiða meðfram Grænuhlíð og
fyrir Jökulfjörðum og sunnan
megin við Djúpið var talsvert
stór ísspöng meðfram Stigahlíð
og allt inn undir Bolungarvík.
Á siglingaleiðinni inn Djúpið
voru víða stakir jakar á reki,
allt inn undir Hnífsdal. Þennan
ís hefur nú allan rekið frá landi,
þó stöku jakar hafi orðið land-
fastir hér og þar.
Jón B. Jónsson, skipstjóri á
Gunnvöru, sagði, að það væri
ekkert nýnæmi fyrir Vestfjarðar
báta að fá ísinn á veiðisvæði sín,
enda þótt meiri brögð hafi verið
að því nú en oftast áður.
Sagðist hann hafa misst tvær
netatrossur í ísinn í síðustu viku
og búast mætti við því, að ekki
yrði hægt að stunda veiðar þarna
við þessar aðstæður og bátarnir
yrðu því að leita vestur undir
Látrabjang eða í Breiðafjörð.
Afli var mjög lítill í þessari
veiðiför og fiskurinn heldur
smærri en fengizt hefur á þessum
slóðum að undanförnu. — H.T.
Myndin um
Kennedy
á Akureyri
AKUREYRI, 27. feb. — Kvik-
myndin um stjórnarár John F.
Kennedy, Bandarikjaforseta
„Years of Lightning, Day oí
Drums“ var frumsýnd í Borgar-
bíói í gærkvöldi fyrir fullu húsi.
Áður en sýningin hófst kynnti
formaður fsl.-ameríska félagsins
á Akureyri, Geir S. Björnson, sér
stakan fulltrúa ambassadors
Bandaríkjanna á íslandi, Jack
Whiting, sem flutti ávarp í til-
efni af frumsýningunni.
Borgarbíó gaf allan aðgangs-
eyri að þessari sýningu til söfn-
unarinnar í Davíðshús. — Sv.P.
Handfifasýn-
ingin fer á flakk
(Einkaskeyti tíl Mbl. frá
fréttaritara þess í Kbh.)
SÝNINGU þeirri sem verið
hefur í Listasafni ríkisins hér
í Kaupmannahöfn og kölluð
hefur verið „íslenzk handrit
og dönsk menning“ lýkur uim
miðjan marz og verður þó
send út á landsbyggðina. Er
nú verið að ganga frá samn-
ingum við ýmsar bæjarstjórn
ir víða í Danmörku um hús-
næði til handa sýningunni.
Gert er ráð fyrir að hún
standi í um 10 daga á hverj-
um stað. — Rytgárd.
m
Kenndi
margra grasa
Eíding veldur spreng-
ingu í Rio de Janeiro
Frcðfeg e^i.idi
á bændafundi
Rio de Janeiro, 27. febr. (AP)
ÞRUMUVEÐCR gekk yfir Rio
de Janeiro, þar sem menn eru
sem óðast að undirbúa Karne-
valið mikla og varð að bana 12
manns en hátt á fjórða tug varð
að flytja í sjúkrahús. .
Skömmu eftir dögun léku eld-
ingar lausum hala um rætur
Corcovado-fjallsins, sem er 700
metra hátt og er Rio ámóta og
12 kindur
af afrétti
BÆ, 27. feb. — Fyrir nokkrum
dögum heimti bóndinn að Neðra
Ási í Hjaltadal 12 kindur, sem
gengið hafa af framarlega í Kh!
beinsdalsafrétt fram undir Helj-
ardalsheiði. Kindurnar voru
furðanlega í góðum holdum, en
kviðlitlar.
Nú í vikunni varð eldur laus
1 kjallara í Garðakoti , Hjalta-
dal. Kviknaði út frá olíukynd-
ingu og urðu töluverðar skemmd
ir. — Björn.
Esjan og gerðu mikinn usla. Eld-
ingunni laust niður í 17 ára
stúlku, sem beið bana á stundinni
og fjóra félaga hennar varð að
flytja á sjúkrahús. Þá laust eld-
ingu nið.ur í sprengiefnisgeymslu
þar sem fyrir var töluvert magn
af dýnamíti, er nota átti til spreng
inga í jarðgöngum sem verið var
að gera þar rétt hjá. Olli spreng
ingin miklu grjóthruni og gróf á
annan tug manna undir byigging-
arefni og sandi.
Björgunarmenn bar skjótt að
og ekki var langt í sjúkrahús, en
fregnir herma að þegar sé vitað
að 12 manná hafi farizt af völd-
um eldinganna og sjö þeirra sem
fluttir voru í sjúkrahús séu þungt
haldnir, en 24 minna særðir. Enn
er leitað í rústum af sprengiefna
igeymslunni við mynni jarðgang-
anna, ef ske kynni að þar væru
enn einhverjir lífs. En í Ríó búa
fjórar og hálf milljón manna og
þó nokkrir cariocas deyi uppfrá
hjá Corovado muna þá fáir, því
nú er Karneval í borginni fyrir
því verður allt að þoka.
BÆ, Höfðaströnd, 27. feb. — í
gær var annar bændafundur á
tveim vikum haldinn á vegum
Búnaðarsambands Skagafj arðar
á Hólum í Hjaltadal í gær kl. 2
og að Stóru Ökruim sama dag
kl. 9. Tveir fyrirlesarar komu
frá Atvinnudeild Háskólans, þeir
Dar es-Sa!aam, 27. febrúar, NTB.
Jónas Jónsson og Yngvi Þor-
steinsson.
Yngvi talaði um beit og beit-
arþol á afréttum og víðar, en
Jónas um ræktun nytjajurta.
Bæði þessi erindi voru rnjög
fróðleg og urðu um þau allmikl-
ar uimræður. Þykir bændum
gott að fá slíka gesti annað slag-
ið til fróðieiks, skrafs og ráða-
gerða. — .Björn.
Harður árekstur
á Akureyri
AKUREYRI, 27. febr. — Um 12
leytið í deg varð harður bifreiða-
árekstur á mótum Hjalteyrargötu
og Strandgötu, sem er aðalbraut.
Húsavíkuráætlunarbíllinn kom
vestan Strandgötu, þegar lítill
fólksbíll hugðist beygja fyrir
hann inn í götuna og skullu þeir
saman af miklu afli, svo að fólk*
bíllinn mun vera nær því ónýt-
ur. Þrjá menn sem í honum voru
sakaði ekki. Mikil hálka og ísing
var á gc', lum, svo að Húsavíkur
bíllinn naði ekki að stöðva í tæka
tíð. — Sv. P.
Gogníræðaskóli Akraness
fær blósturstæki
VESTUR-ÞÝZKA stjómin hefur
kallað heim sérfræðinga þá sem
hún hafði áður sent Tanzaniu-
mönnum til aðstoðar, yfir 60
manns, sam aðallega hafa verið
við kennslu í flugher og sjóiher
landsins. Astæðan er sú að
Tanzania hefur gert saimninga
við Austur-Þýzkaland um að
skipaður verði austur-þýakur
aðalræðismaður í landinu.
AKRANESI, 27. febr. — Nýlega
kom frú Hulda Jónsdóttir, for-
maður Sylsavarnadeildar kvenna
hér í bænum, til skólastjóra
Gagnfræðaskólans, Ólafs Hauks
Árnasonar og afhenti skólanum
fyrir hönd félags síns að gjöf
kennslutæki til lífgunar úr daúða
dái með blástursaðferðinni.
Skólastjóri þakkaði gjÖfina. Páll
Gíslason, yfirlæknir kenndi
meðferð tækisins. Allir nemend-
urnir eiga að lœra á tækið. —•
Oddur.
Þfóðverjar kalla heim
sérfræðinga frá Tanzanlu