Morgunblaðið - 02.03.1965, Side 32
Nauðlenti í Krýsuvík
— engan sakaði
EKKI var farið í neitt ísfiug í
gær, en flugvél Landhelgisgæzl-
unnar flaug yfir ísröndina í fyrra
Úku út af
Á LAUGARDAG óku a.m.k. 3 bif
reiðar út af Suðurlandsvegi á mal
bikaða kaflanum við Árbæjar-
blett. Að sögn rannsóknarlögregl
unnar, var kafli þessi mjög háll.
Ein þessara bifreiða fór út af veg
inum á móts við Árbæjarblett 69
yfir stórgrýti og sökk síðan í aur.
Meiddist konan, sem stýrði bif-
reiðinni og var flutt í Slysavarð
stofuna. Hún hafði, að sögn sjón
arvotta, verið að fara fram úr
annarri bifreið, er hún virtist
missa stjrón á bílnum með þess-
um afleiðingum.
dag og virtist þá ísinn hafa færzt
nær landinu, vera á hreyfingu
vestur eftir, hafa gisnað nokkuð
austur af Melrakkasléttu og
þekja þar aðeins um Vs af yfir-
borði sjávarins. í gær virtist ís-
inn enn hafa færzt nær á þeim
slóðum og vera kominn inn undir
landhelgislínuna. Vestlæg átt var
í gær. Upplýsingar Morgunhlaðs
ins eru að mestu fengnar frá Veð
urstofunni.
Frá varðskipum í gærmorgun:
Isinn í ísafjarðardjúpi er að
mestu rekinn burt. Ein spöng er
þó 10 sjómílur norðvestur af
Stiga og smájakar á stöku stað
á reki í Djúpinu.
Rekís er á milli Kögurs og
Horns. Einnig til hafsins eins og
séð verður. Hann mun þó greið-
fær skipum í björtu.
Siglunes kl. 17:
Nokkrir ísjakar eru á reki 6,7
sjómílur norðaustur af Siglunesi.
Þeir fjarlægjast.
Grímsey kl. 17:
Talsverð ísspöng er 3 til 5 sjó-
mílur suðvestur af eynni og rek-
ur til austurs.
Norðurflug kl. 16:58:
Tryggvi Helgason, flugmaður,
var kl. 16:00 staddur .skammt
norður af Siglunesi, en skömmu
norðan við það er geysimikill ís-
tangi. Hann er næstur Siglunesi í
um 15 sjómílna fjarlægð og um
15 sjómílna breiður. Tanginn nær
til norðurs eins langt og skyggni
leyfir, en það er um 70 kíló-
metrar. í miðju Grímseyjarsundi
eru nokkrir dreifðir ísflákar og
út af Ólafsfirði stakir jakar inn
undir Hrólfssker.
EINS og skýrt var frá í Morgunblaðinu á sunnudag, átti Aðal-
steinn Ottesen afgreiðslustjóri, hálfrar aldar starfsafmæli við blað-
ið í gær, 1. marz. f tilefni af því afhenti Haraldur Sveinsson stjórn-
arformaður h.f. Árvakurs, Aðalsteini gjöf frá félagsstjórninni, í tii-
efni af afmælinu. Viðstaddir voru stjórn Árvakurs framkvæmda-
stjóri félagsins og ritstjórar Mbl. — Starfsmenn blaðsins heim-
sóttu Aðalstein Ottesen á heimili hans í gær, í tilefni afmælisina
og var þar fjölmenni. Myndin hér að ofan er tekin þegar Harald-
ur Sveinsson afhendir Aðalsteini Ottesen gjöf útgáfufélagsins —
(Ljósm. Mbi. ÓI. K. M.).
Dagsbrún
segir upp
samningum
I Á AÐALFUNDI Verkamannal
félagsins Dagsbrúnar, sem y
’ haldinn var sl. sunnudag, vart
Isamþykkt að segja upp öllumj
| samningum félagsins við at-
t vinnurekendur, sem bundnirl
eru við 5. júní n.k. Jafnframti
I lagði fundurinn áherzlu á aðí
| þeir þrír mánuðir, sem til)
I stefnu væru, yrðu vel notaðirl
af öllum aðilum til nýrrarl
samningagerðar.
UNGUR flugmaður, Pétur Otte-
sen, varð að nauðlenda á túni
vegna veðurs við gömlu kirkjuna
í Krýsuvík á sunnudag. Gekk
lendingin vel. Björgunarsveitir
höfðu verið kallaðar út og neyð-
arástandi lýst yfir, áður en tíð-
indin um lendinguna bárust til
Reykjavíkur.
KI. 13:13 á sunnudag fór Pétur
Ottesen frá Vestmannaeyjum við
annan mann í TF-BAE, Cessna
150 kennsluflugvél frá Flugskól-
anum Þyt, áleiðis til Keflavíkur-
flugvallar. Óhagstætt flugveður
var yfir Reykjanesi, lágskýjað og
ísing. Kl. 14:03 sendi flugstjórn
í Reykjavík upplýsingar um veð-
ur í Keflavík og kvittaði Pétur
fyrir. Áætlaði hann þá lendingu
á Keflavíkurfluigvelli eftir 10
mínútur. Eftir það spurðist ekk-
ert til vélarinnar. Kl. 14:33 var
lýst yfir neyðarástandi og
skömmu síðar var Flugbjörgunar
sveitin kölluð út og Björgunar-
Samkomulag varö um
bræðslusíldarverðiö
Annarri verbákvÖrbun visað til
yfirnefndar
VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegs-
ins hefur að undanförnu setið á
fundum um ákvörðun verðs á
síld veiddri sunnan lands og vest
an 1. marz — 15. júní. Samkomu-
lag náðist um bræðslusíldarverð,
en önnur verð ekki, oig hefur mál
inu verið vísað til yfirnefndar.
Samkomuiag náðist þó eins og
fyrr greinir um verð á síld til
vinnslu í verksmiðjum, 81 eyrir
fyrir kg. Verðið er miðað við
síldina komna á flutningatæki
við skipshlið. Seljandi skal skila
síldinni í verksmiðjuþró, og greið
ir kaupandi 5 aura í flutnings-
gjald frá skipshlið.
sveitin í Keflavík, auk þess sem
yfirmönnum flugmáia og eigend-
um vélarinnar var gert aðvart.
Þá var leitað aðstoðar Landssím-
ans, sem hringdi til alira sím-
stöðva á milli Keflavíkur og
Hvolsvallar í Rangárvallasýslu og
spurði hvort nokkur hefði orðið
fluigvélarinnar var. Fyrirspurnir
þessar báru engan árangur.
Klukkan 7 mínútur yfir 3, eða
40 mínútum eftir að neyðar-
ástandinu var lýst yfir, var
hringt í flugstjórn frá Hafnar-
firði. Var þá kominn Pétur Otte-
sen, sem kvaðst hafa orðið að
lenda sunnan við Kleifarvatn, þar
sem útlitið hefði verið orðið svo
slæmt framundan, og hefði lend-
ingin tekizt ágætlega. Pétur hafði
fengið far með bíl frá Krýsuvík
til Hafnarfjarðar.
Tveir menn fóru til Krýsuvík-
ur í gærmorgun og sóttu flug-
vélina. Lenti hún heil á húfi í
Reykjavík um kl. 10.
Háseti
slasast
Arkanesi, 1. marz.
ÞAÐ bar við á sunnudag, þegar
þeir á vélbátnum Heimaskaga
voru að leggja loðnunetin á
Reykjanesröst, að vírinn festist
og slitnaði, er alda reið undir
bátinn. Vírendinn slóst í andlit
eins hásetans, braut úr honum
margar tennur, sprengdi efri
góminn og loks reif vírendinn út
úr munnviki hans.
Á eftir slóst svo vírinn í skip-
stjórann, sem hlaut smáskeinu
á hálsinn. Andlit hásetans var
allt stokkbólgið, þegar Heima-
skagi renndi að bryggju kl,
6,30 um kvöldið. Komst hann
skjótt á læknisfund, en Heima-
skagi fór þegar aftur út á veið-
ar. — Oddur.
Keflavík, 1. marz.
SÍÐASTLIÐINN sunnudag fóru
þrír drengir saman útá Berg,
eins og kallað er. Lögðu þeir leið
sína að Helguvík, sem er litlu
vestan við Hólmsbergsvita. Er
drengirnir höfðu verið þar
nokkra stund, vildi það slys til,
eftir því sem bezt er vitað að
einn þeirra félaga, Sverrir Sigur
bergsson, hrapaði fram af brún-
inni, um 10 til 12 metra fall. Virð
ist grjóthrun hafa fylgt, því mjög
stór steinn lá yfir brjósti drengs-
ins, þegar að var komið,
milli klukkan 4 og 5 á sunnudag.
Félagar Sverris, sem með hon-
um voru, urðu skelfdir er slysið
varð. Hlupu þeir þegar af stað til
Só ehhi vegno
ísingar
HARÐUR árekstur varð á laug-
ardag á horni Ásgarðs og Bú-
staðavegar. Volkswagenbifreið
var á leið niður Ásgarð og
beygði inn á Bústaðaveg, en
enskur Ford, sem var á leið aust-
ur hann, ók á hlið fólksvagnsins.
Var ísing mjög mikil um þessar
mundir og kvaðst ökumaðurinn
ekki hafa séð til ferða fólksvagns
ins fyrr en um seinan. Kona, sem
ók fólksvagninum, fékk glerflís
í gagnaugað og var flutt á Slysa-
verðstofuna.
Keflavíkur til að ná í hjálp, en
það er um 3 til 4 kílómetrar.
Þegar lögreglan kom með þeim
á slysstaðinn virtist drengurinn
vera látinn, enda mjög skadd-
aður eftir hrapið.
Mjög sjaldgæft er að slys hendi
á berginu, enda þótt unglingarn-
ir séu þar oft og tíðum, bæði við
veiðar og aðra skemmtan. Margt
bendir til þess að orsök dauða-
slyssins á sunnudaginn sé að í
frostmótum hafi steinn losnað úr
með þessum sorglegu afleiðing-
um.
Sverrir Sigurbergsson var 15
ára mannvænlegur og duglegur
drengur. Hann var sonur Sigur-
bergs Sverrissonar frá Brimnesi
í Grindavík og Sigríðar konu
hans, en þau búa hér í bænum
að Sóltúni 10. — hsj.
ísinn færist nær
en gisnar austan til
Drengur hrapar til
bana í Hólmsbergi