Morgunblaðið - 25.03.1965, Page 1
24 síður
Notuðu táragas
Árás á M-Víetnam — Viet
Cong óskar eftir erlendum
sjálfboðaliðum
24. marz. (AP)
Myndunum, sem „Ranger9“
tók af yfirborði tunglsins var
sjónvarpað beint inn á banda
rísk heimili. Myndin hér að
ofan er tekin af sjónvarps-
skermi, er verið er að sýna
hvernig gígurinn Alphonsus
leit út, þegar tunglflaugin var
í um 145 km fjarlægð frá
tunglinu. Á myndinni sést
sprungan, sem ekki var vitað
að væri í gígnum og blettirnir
sem vísindamenn likja við ör
eftir bólusótt.
Myndir „Rangers 9" leysa gátuna
um myndun yfirborðs tunglsins
Tilraunin heppnaðist fulikomlega —
Sjónvaxpað beint frd tunglinu inn d
bandaxísk heimili
Pasadena, 24. marz.
(NTB-AP)
I Tunglflaug Bandaríkja-
manna, „Ranger 9“, lenti
í dag á þeim stað á tunglinu,
sem fyrirhugað var, gígnum
Alphonsus. Síðustu 16 mínút-
urnar áður en flaugin rakst á
tunglið, sendi hún sjónvarps-
myndir til jarðar um 380 þús.
km veg, heint inn á heimili
milljóna Bandaríkjamanna.
Er þetta í fyrsta skipti, sem
myndum frá tunglinu er sjón
varpað beint.
á Vísindamenn við -Pasa-
dena-eldflaugastöðina segja,
að myndirnar, sem tungl-
flaugin sendi séu þær lang-
beztu, er náðst hafi af tungl-
inu. Eftir nokkurra klukku-
stunda rannsókn verði unnt
að segja til um hvernig yfir-
borð tunglsins hafi myndazt,
t.d. hvort gígarnir þar séu út-
brunnin eldfjöll eða hvort
þeir hafi myndazt við að loft-
steinar skyllu á tunglinu.
Auk fyrrgreinds skýrði yfir-
tnaður eldflaugastöðvarinnar frá
því, að ekki yrði langt að bíða
þess að unnt yrði að tilkynna
hvar á tunglinu bandarískir geim
farar myndu lenda.
Fyrstu myndirnar, sepi „Rang-
er 9“ sendi til jarðar, voru tekn-
ar úr rúmlega 2000 km fjarlægð.
Sýndu þær þrjá gíga, þar á
meðal Alphonsus", en hann er 105
km að þvermáli. Síðustu mynd-
irnar, sem flaugin sendi, voru
teknar aðeins nokkrum km frá
yfirborði tunglsins. Á þeim sást
sprunga, sem til þessa hefur ver-
ið óþekkt og í veggjum gígsins
sáust merki, sem líkjast örum
eftir bólusótt. Vísindamennirnir
gátu ekki sagt þegar í stað hvort
sprungan væri af völdum eld-
goss.
Johnson, Bandaríkjaforseti,
hefur sent öllum þeim, sem unnu
að hinu velheppnaða tunglskoti,
heillaóskir.
Sem kunnugt er, var „Ranger
9“ skotið á loft frá Kennedy
Framhald á bls. 2
Miðstjórnarfundur I Kreml:
Suslov gerir grein fyrir Moskvu-
ráðstefnu kommúnista
Saigon, Washington,
London (NTB-AP):
• í dag gerðu flugvélar frá
S-Vietnam og Bandaríkjunum
árásir á stöðvar í N-Vietnam
fjórða daginn í röð Átta flugvélar
tóku þátt í árásunum og vörp-
uðu sprengjum á ratsjárstöðvar
og útvarpsstöð við borgina Ilong
Hoi, um 95 km fyrir norðan landa
mærin.
• Útvarpið í Hanoi flutti i dag
langa yfirlýsingu frá Viet Cong
skæruliðum, sem útvarpið nefnir
þjóðfrelsishreyfingu S-Vietnam.
Skorar Viet Cong þar á aðrar
þjóðir að senda sjálfboðaliða til
aðstoðar meðan Bandarikjamenn
haldi áfram að beita hervaldi
gegn N-Vietnam og Laos.
Fregnirnar um að Bandaríkja
menn hafi notað gas gegn
skæruliðum í S-Vietnam hafa
vakið gremju meðal almennings
víða um heim. Blöð í mörgum
öndum, þar á meða Bretandi,
hafa gagnrýnt gasnotkunina harð
lega.
Dean Rusk, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, ræddi þessi við-
brögð á fundi með fréttamönn
um í dag. Kvað hann þau byggð
á miklum misskilningi. Táragas
það, sem Bandaríkjamenn hefðu
notað í S-Vietnam, væri samskon
ar og lögreglumenn í mörgiun
löndum hefðu undir höndum og
notuðu til að dreifa mannfjölda
t.d. við mótmælaaðgerðir, sem
snerust upp í óeirðir. Hafi Banda
ríkjamenn notað táragasið til
Framhald á bls. 2
Moskvu, 24. marz (NTB-AP)
♦ Miðstjórn kommúnistaflokks
Sovétríkjanna kom saman til
fundar í Kreml í dag. Á fundin-
um ræddi Leonid Brezhnev, for-
maður flokksins, aðgerðir til efl-
ingar landbúnaði Sovétríkjanna
og minntist Gheorghiu-Dej, hins
látna forseta Rúmeníu.
» Talið er að fundur mið-
stjórnarinnar muni standa fram
á föstudag. Meðal þeirra, sem
eru á mælendaskrá auk Brezh-
nevs, er Mickhail Suslov, hug-
myndasérfræðingur flokksins, og
mun hann gera grein fyrir ár-
angri ráðstefnu 19 kommúnista-
flokka, sem haldin var í Moskvu.
Fréttamenn eru þeirrar skoð-
unar, að í sambandi við greinar-
gerð Suslovs, verði umræður um
ágreininginn innan heimskomm-
únismans. Kínverjar hafa, sem
kunnugt er, fordæmt áðurnefnda
ráðstefnu kommúnistaflokkanna.
Segja þeir, að með henni hafi
sovézkir kommúnistar viljað
auka sundrungina innan heims-
kommúnismans.
Ræða Brezhnevs um landbún-
aðinn á fundinum í dag hefur
enn ekki verið birt, en Tass-
fréttastofan sagði, að hann hefði
gert miðstjórninni grein fyrir að-
kallandi aðgerðum til eflingar
landbúnaðarins.
Haft var eftir áreiðanlegum
heimildum i Moskvu í dag, að á
miðstjórnarfundinum yrði gerð
nokkur breyting á skipun fram-
kvæmdanefndar flokksins, en
sagt, að breytingin myndi ekki
ná til æðstu leiðtoganna.
Á tindi
Keiuiedyijolls
Whitehorse, Yukon, 24. marz
(AP)
RiOBERT Kennedy öldunga-
deildarþingmaður, kleif í dag
Kennedyfjall í Kanada, en
fjallið er nefnt eftir hinum
látna forseta. Fjallið er 4.236
metrar á hæð og kom Kenne-
dy upp á tindinn kl. 9 í kvöld
(ísl. tími). Með öldunigadeild-
arþingmanhinum voru nokkr-
ir vanir fjallgöngumenn, þar
á meðal James W. Whittaker,
sem var fyrstur Bandaríkja-
manna til að klífa Mount
Everest.
Veiðin bregzt
við Lofoten
Bodö, 24. merz (NTB)
VERTÍEHN við Dofoten hefur
nú staðið í sjö vikur, og í
skýrslu, sem birt var í dag
segir, að þegar sé ljóst, að
veiðin hafi algerlega brugðizt.
Ætla margir sjómenn að
fara frá Lofoten í þessari
viku, vegna hinna slæmu afla-
bragða.
Umheimurinn viðurkenni, að land-
grunnið er hluti af Islandi
Að þessu stefnum við
Ræða dómsmálardðherra í umræðum um
landhelgina á Alþingi í gær.
í GÆR urðu miklar umræð-
ur á Aiþingi um landhelgis-
málið vegna þingsályktunar-
tillögu, sem fram er komin
um útfærslu fiskveiðiland-
helginnar fyrir Vestfjörðum,
en flutningsmenn tillögunnar
eru Hannibal Valdimarsson
og Sigurvin Einarsson.
Dómsmálaráðherra, Jóhann
Hafstein, skýrði afstöðu ríkis-
stjórnarinnar til þessa máls
og hver sé framtíðarstefna
hennar varðandi landhelgi ís-
lands. Tók ráðherrann það
m.a. skýrt fram, að landgrunn
ið væri hluti af íslandi og að
því væri stefnt, að umheim-
urinn viðurkenni það. Ræða
ráðherrans fer hér á eftir:
Herra forseti.
Vissulega er hér um að ræða
þýðingar- og veigaróikið mál.
Landhelgismálið er á hverjum
tíma eitt mesta mál íslendinga,
þessarar litlu eyþjóðar í nyrztu
höfum. Ekkert er ofmælt af því,
sem háttvirtur framsögumaður
mælti um þýðingu þess fyrir vest
firðinga að fá til eigin afnota á
Framh. á bls. 8