Morgunblaðið - 25.03.1965, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 25. marz 1965
Nýtt íslenzkt haf-
rannsöknarskip
Byggt sem skuttogari eftir íslenzkri
teikningu
Byg'gingarnefnd hafrannsókn-
arskips hefur sent Mbl. eftir-
íarandi fréttatilkynningu um
teikningu og undirbúning að
nýju hafrannsóknarskipi fyr-
ir íslenidinga:
Á UNDANFÖRNUM árum hefur
verið unnið að undirbúningi að
smíði íslenzks hafrannsóknar-
skips á vegum Fiskideildar At-
vinnudeildar Háskólans og gerðir
nokkrir tillöguuppdrættir að fyr-
irhuguðu skipi. Á síðastliðnu ári
gerði Seebeckwerft skipasmíða-
stöðin í Þýzkalandi tvo tillögu-
24. marz (AP)
Á myndinni sjást geimfarar
Bandaríkjanna, Virgil Griss-
om, t.h. og John Young, ásamt
geimfari sínu „Molly Brown“
af gerðinní Gemini, um borð
í flngvélamóðurskipinu „Intre
pid“ eftir velheppnaða geim-
ferð.
í dag skýrðu geimfararamir
vísindamönnum frá ferð sinni
og gengust undir nákvæma
læknisskoðun. Báðir eru geim-
fararnir við góða heilsu.
Á morgun halda þeir flug-
leiðis til Kennedyhöfða, þar
sem þeir gefa frekari skýrslu
um ferð sína, en á föstudaginn
verður móttaka þeim til heið-
urs í Hvíta húsinu.
Útliff fyrir samkomulag um
efnahagsmál í Danmörku
Kaupmannahöfn, 24. marz
(NTB).
I KVÖLD virtist gott útlit íyr-
ir, að samkomulag næðist um
aðgerðir til úrbóta í efnahags-
málum Danmerkur. Sósíaidemó-
kratar, Vinstriflokkurinn, thalds
flokkurinn og Bóttæki hafa und-
anfarna daga rætt um tillögur til
úrbóta og reynt að ná samkomu
lagi.
í kvöld höfðu Sósíaldemókrat-
ar, Róttækir og nokkrir Vinstri-
flokiksmenn ná'ð samkomulagi
uim aðalatriði frumvarps til laga
um aðgerðir í efnahags- og skatta
málum. En eftir var að ræða um
ýmis smáatriði svo enn. er ekki
fullvíst, að algert samkomulag
náist. Sósíaldemókratar, Róttæk-
ir og þeir Vinstriflókksmenn,
sem sameinazt hafa um aðal-
atriði frumvarpsins, tryggja því
meirihluta í þinginu.
Aukakosningar
sýna óbreytt fylgi
London 24. marz (NTB).
AF aukixkosningum, sem fram
fóru í kjördæminu Saffron
Walden í Bretlandi í gær, virð-
ist fylgi stærstu flokkanna
þriggja lítið hafa breytzt frá því
að síðustu aukakosningar voru
haldnar fyrir sjö vikum.
Frambjóðandi íhalcbflokksins
fór með sigur af hólmi í Saffron
Walden. Hlaut hann nær því
jafn mörg prósent atkvæða og
Richard A. Butler hlaut í kjör-
dæminu við þingkosningarnar í
haust. Sem kunnugt er hefur
Butler nú verið aðlaður.
Verkamannafiokkurinn jók at-
tm 100
höfrungar
króaðir inni
ÞÓRSHÖFN, 24. marz. — í
gær fórum við hér á Þórshöfn
að sjá höfrunga innan við ís-
inn, sem fyllir Þistilfjörðinn
og er aðeins um 200 m. renna
á milli hans og lands. Höfðu
þeir lokast inni af ísnum og
stukku þarna upp úr krapinu
og blésu.
f dag- voru þeir hér enn,
líklega um 100 dýr, oig orðið
mjög þröngt um þau. Var
voðalegt að sjá þessi grey
svona alveg innilokuð.
Fjöldi manns hefur farið til
að horfa á höfrungana, og í
dag hafa menn skotið þá og
dregið upp á ísinn, enda eru
þeir að farast þarna sem þeir
eru, því ísbreiðan er svo mikil
og svo grunnt fyrir innan.
Er nú búið að ná um 30
höfrungum og verið að skera
þá. Kjötið má frysta og eins
hefur það verið boðið til sölu
til Akureyrar. — Birgir.
kvæðamagn sitt í Saffron Wald-
en um 1 14%, en Frjálslyndi-
flokkurinn tapaði smávægilega.
Eftir að • úrslít kosninganna
voru kunngjörð hafa talsmenn
íhaldsflokksins og Frjálslynda-
flokksins látið í Ijós þá skoðun,
að stjórnin muni ekki efna til
kosninga í náinni framtíð, þar
sem hún telji, að yrði það gert,
myndi Verkamannaflokkurinn
ekki hljóta öflugri meirihluta á
þingi, en hann hefur nú.
Færeyingur
týndur
ÁÐUR en færeyzka fiskiskipið
Haförninn frá Sóldarfirði á Aust
urey fór á þriðjudag, en það
hafði legið í Reykjavíkurhöfn,
tilkynnti skipstjórinn lögregl-
unni, að mann vantaði á skipið.
Máðurinn hafði farið í land á
mánudagskvöld, en ekki komið
aftuf. Hann heitir Samuel
Rasmussen, 34 ára gamalL Hann
var klæddur færeyskri peysu og
dökkum buxum, bedhöfðaður,
dökkihærður og með yfirskegg.
Þeir sem kynnu að vita eitt-
hvað um manninn, eru beðnir
um að hafa samband við rann-
sóknarlögregluna. Á þriðjudags-
kvöld er vita’ð að Færeyingurinn
fór frá Færeyska sjómannaheim-
ilinu kl. 12—1 um nóttina og síð
ar er talið að hann hafi verið
með íslendingi í leigubíi.
— „Rangers" 9
Framhald af bls. 1
höfða sl. sunnudag, en klukkan
var rúmlega 1 e.h. (ísl. tími) í
dag, er flaugin rakst á tunglið.
í gær breyttu visindamenn í
Pasadena stefnu flaugarinnar
nokkuð og voru breytingarnar
svo nákvæmar, að flaugin hitti
alveg rétt mark. Hún sendi milli
5 og 6 þúsund myndir til jarðar.
Vitni vantar
AÐFARANÓTT mánudags sl. um
3 leytið um nóttina var bifreið-
inni E 602 ekið út af Suðurlands-
vegi skammt fyrir ofan Lögberg
og þar út í grjóturð. Ökumaður-
inn segist hafa verið einn í bif-
reiðinni og ekki meiðzt. Hann
kveðst hafa veifað bíl, sem var
á leið í bæinn og fengið far.
Hann veit ekki hver ökumaður-
inn er, og rannsóknarlögreglan
biður hann um að hafa samband
við sig.
Ekið var á Volkswagenbifreið-
ina R 10722 móts við Sælakaffi
á þriðjudag. Hún var mannlaus.
Eru þeir sem vita um það beðnir
að hafa samband við lögregluna.
— Notuðu
Framhald af bls. 1
þess að komast hjá að beita skot
vopnum.
Rusk kvaðst vilja leggja á-
herzlu á, að Bandaríkjamenn ætl
uðu sér ekki að beita annarskon
ar gasi í S-Vietnam, en táragasi,
sem væri óeitrað og stefndi ekki
lífi manna í voða. Þeir væru alls
ekki að undirbúa gashernað af
þeirri tegund, sem beitt hefði ver
ið í fyrri heimsstyrjöldinni og
valdið dauða tugþúsunda manna.
Kvaðst ráðherrann skilja við-
brögð fólks við fregnunum um
gasnotkun Bandaríkjamanna í S-
Vietnam, ef það hefði sett þær
í samband við slíkt eiturgas.
Sem fyrr segir, hafa skærulið-
ar Viet Cong kailað sjálfboðaliða
frá öðrum löndum til aðstoðar, en
ekki hafa ennþá borizt fregnir
um að kalli þeirra hafi verið
svarað.
í ræðunni, sem Leonid Brez-
hnev, formaður kommúnista-
flokks Sovétríkjanna, hélt í gær,
við móttöku geimfaranna á Rauða
torginu, sagði hann, að fjöldi ung
menna frá Sovétríkjunum hefðu
óskað þess að fá að berjast við
hlið „þj óðfrelsishreyfingarinnar"
í S-Vietnam. Ekkert hefur hins
vegar verið tilkynnt um að Sov
étstjórnin hafi heimilað ungmenn
unum að fara tii Vietnam.
Sjór stöðv-
aði vél
Heima-
skaga
AKRANESI, 24. marz. — Vél-
báturinn Heimaskagi sendi út
neyðarskeyti fyrri hluta næt-
ur í nótt. Hann var þá á heim-
leið af miðunum með 700
tunnur af loðnu og átti ófarn-
ar 30 sjómílur hingað. Veður
var slæmt og sjór komst nið-
ur um boxalokin og niður í
lest og síðan aftur í vélarúm,
svo að stöðva þurfti vélina.
Varðskipið Óðinn kom á
vettvang til hjálpar, dældi sjó
úr Heimaskaga og kom drátt-
artaug í bátinn og dró hann í
rúmlega tvær klukkustundir,
þangað til skipshöfn Heima-
skaga hafði komið sinni vél í
gang.
Komst svo Ileimaskagi í
höfn kl. 4—5 síðdegis í dag
á eigin vélarafli. —‘Oddur.
uppdrætti, en sú skipasmíðastöð
hefur mikla reynslu í smíði rann-
sóknaskipa, þar á meðal rann-
sóknaskipa af skuttogaragerð.
í maí síðastliðnum skipaði
Emil Jónsson, sjávarútvegsmála-
ráðherra, eftirtalda menn í bygg-
inganefnd hafrannsóknaskips:
Gunnlaug E. Briem, ráðuneytis-
stjóra, formann, Davíð Ólafsson,
fiskimálastjóra, Jóhannes Nordal,
bankastjóra, Hjálmar R. Bárðar-
son, skipaskoðunarstjóra, og Jón
Jónsson, deildarstjóra.
Hefur nefndin falið Agnari
Norland, skipaverkfræðingi og
Ingvari Hallgrímssyni, fiskifræð-
ingi, að vinna úr framkomnum
tillögum í nánu samstarfi við
Fiskideildina og gera fyrirkomu-
lagsteikningu að hinu fyrirhug-
aða skipi.
Hafa þeir nú gert teikningu að
rannsóknaskipi, byggðu sem skut
togara. Er það um 46 m að lengd
og um 790 rúmlestir. Skipið verð-
ur smíðað sem alhliða rannsókna
skip, búið öllum nauðsynlegustu
rannsóknartækjum, fiskileitar-
tækjum og veiðarfærum. Þar sem
hér er um að ræða skip af sér-
stakri gerð, þarf mjög víðtækan
undirbúning, Og verður hann
framkvæmdur að miklu leyti I
samvinnu við rannsóknastofnan-
ir erlendis og skipasmíðastöðvar,
er mikla reynslu hafa í smíði
slíkra skipa.
Fjárhús Reykvík-
inga við Geitháls
FJÁREIGENDUR í Reykja-
vík hafa á undanförnum árum
haft kindur sínar í fjárhúskof-
um á sérstöku svæði við Breið-
holtsveginn. Það svæði fengur
þeir til takmarka'ðs tíma, og
brátt kemur að því að það þarf
að rýma vegna stækkandi byggð
ar í Reykjavík.
Borgarráð hefur nú samþykkt
að fjáreigendur verði úthlutið
svæði við Geitiháls, noröan Suður
landsvegar. Fái þeir þar allt að
50 ha lands, sem þeir megi reisa
fjárhús sín á.
UM hádegi í gær var víðast
10—15 stiga frost hér á landi
og vindur NA, en fremur hæg
ur. Háþrýstisvæði er yfir aust
anverðu Grænlandi og ís-
landi, en lægðabylgjur við
NA-Grænland hreyfast suður
á bóginn, og má búast við
heldur vaxandi N-átt á norð-
austanverðu landinu í dag. ís
rekur nú suður með Austur-
landi og eru syðstu jakar
komnir suður um Gerpi og
suður fyrir Hvalbak.
Veðurhorfur kl. 22 í gær-
kvöldi: Suðvesturland til
Breiðafjarðar og miðin: NA-
kaldi eða stinningskaldi, létt-
skýjað. Vestfirðir og miðin:
NV-kaldi, dálítil él norðantil.
Norðurland og Norðaustur-
land og miðin: N-kaldi í nótt,
stinningskaldi á mongun, snjó-
ltoma öðru hverju. Austfirðir
og Suðausturland og miðin:
NA-kaldi, víða allhvasst á mið
unum bjartviðri.
Horfur á föstudag: N-átt um
allt land og frost svipað og i
dag, bjartviðri sunnanlands en
éljagangur fyrir norðan.