Morgunblaðið - 25.03.1965, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 25.03.1965, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 25. marz 1965 MORCUNBLAÐIÐ 3 50 tegundir pelsa á tízku- sýningu Hringsins í kvöld Nokkrar af sýningarstúlkunum fyrir utan Hótel Sögu. Þorbjörg Bernard í pels úr íslenzku selsskinni. Frumkvæði ríkisins ALÞÝÐUBLAÐIB ritar í gær um þjóðnýtingu Áburðarverksmiðj- unnar og segir m.a.: „Það voru ríkisstjóm cig síðan Alþingi, sem ákváðu að hefja undirbúning að byggingu Áburð- arverksmiðju. Málið var undir- búið á vegum ríkisstjómar og allt fé útvegað til verksins“. Síðar segir: „Áburðarverksmiðjan var byggð fyrir frumkvæði ríkisins og ríkið útvegaði fé tii hennar. Þessi verksmiðja átti auðvitað að vera ríkisfyrirtæki frá upphafi“. Það er laukrétt, að Áburðar- verksmiðjan var byggð fyrir frumkvæði ríkisins og ríkið hef- ur frá fyrstu tíð ráðið rekstri hennar, þótt hún væri í hluta- félagsformi, enda á ríkið 60% hlutaf járins og Alþingi kýs meiri hluta stjórnar verksmiðjunnar. Þess vegna hefur verksmiðjan líka haft algjöra einokunarað- stöðu, og þessvegna hefur stjóm- endur hennar skort það aðhald, sem þeir hefðu haft, ef um venju- legt einkafyrirtæki hefði verið að ræða, og þessvegna er engin efi á því, að margt hefur vér far- ið í verksmiðjunni en skyldi, eins og yfirleitt verður ætíð í fyrir- tækjum þeim, sem ríkið er að valsa með, hversu góðir menn, sem stjórnendurair kunni að vera. Hitt eru engin rök, að fyrirtæki megi ekki vera í einkarekstri, þótt ríkið hafi að einhverju leyti haft forustu um undirbúning þeirra. Þar eiga hagkvæmnis- sjónarmið að ráða og einkarekst- ur hefur hvarvetna sannað yfir- burði yfir opinberan rekstur. Eignarndm og bætui Birget t'iltenborg. í hvítum stuttum minkapels. ^iFJuuuiauiU miKlO yfir því að Morgunblaðið bendir á þá augljósu staðreynd, að ef hlutabréf einstaklinga verða tekin eignarnámi, þá verði að greiða fyrir þau fullt verð. Það aettu þó þeir, sem ritstjórnar- greinar skrifa í blöð að vita svo mikið um islenzka löggjöf, að greiða verður fullu verði fyrir eignir, sem teknar eru eignar- námi. Hitt er allt annað mál, að Mbl. hefur ekkert mat lagt á það, hvers virði hlutabréfin muni vera. Sjálfsagt mundu bréfir aldrei metin á svipuðu verði og Alþýðublaðið áætlar, sem telui að þau mundu verða á 35 földt verði, en um veruleg fjárútlál hlyti að verða að ræða af ríkisins hálfu, ef það ætlar sér að ná hlutabréfum einstaklinga og sam- vinnufélaganna í Áburðarverk- smiðjunni. Ylfa Brynjolfsdóttir. Ekkert rættist aí hrakspdnum Athyglisvert er að rifja upp árásir stjórnarandstæðinga á Viðreisnarstjórnina þegar hún hóf störf og gerði þær ráðstaf- anir, sem nægðu til þess að létta af höftum og hömlum, gera inn- flutning til landsins frjálsan, en jafnframt að treysta efnahaginn út á við, ok bæta allt ástand viðskiptamálanna. Það var sagt að hér mundi verða atvinnuleysi og samdráttur „móðuharðindi af mannavöldum" eins og einn þing- Birget Filtenborg. anskilinni Birget. Þeirra á meðal eru Kúna Brynjólfs- dóttir, sem er búsett í Amer- íku, og systir hennar, Ylfa Brynjólfsdóttir. Widt sagði okkur að ann myndi dvelja hér vikutíma, og hefði mikinn áhuga á að komast til Surtseyjar, og þá helzt með Ijósmyndara, - Ylfu og pelsa til þess að taka nokkrar myndir. Hann segist vona að pelsamir falli sýn- ingargestum vel í geð, og ef einhverjir hefðu áhuga á því að eignast pels, gæti hann glatt þá með því, að þeir væru allir til sölu. Eins og fyrr getur verða sýndar 50 mismunandi tegund ir pelsa, og margar gerðir af skinnum. Erik Widt segir að í ár séu pelsarnir einkar kven- legir og léttir. Þeir eru gjarn- an tvíhnepptir og mjög flegn- ir að framan. Þá eru pelsar úr íslenzkum skinnum, og hver veit nema við eigum eftir að halda sýningu á pelsum framleiddum hér úr íslenzk- um skinnum. Ef til vill fer það eftir því hvort leyft verð- ur minkaeldi hér, eins og mik- ið hefur verið rætt um að und anförnu. Widt þarf ekki að óttast að pelsarnir veki ekki verð- skuldaða athygli, en verð þeirra vildi hann ekki gefa upp. Skemmtun kvenfélagsins Hringsins hefst kl. 7 e.h. með borðhaldi, og auk tízkusýn- ingarinnar verða þar mörg skemmtiatriði, svo sem jazz- ballett og samleikur á píanó. Allur ágóðinn af skemmtun- inni rennur til Barnaspítala- sjóðsins. HINGAÐ er kominn í boði kvenfélagsins Hringsins dansk ur maður að nafni, Erik Widt, sem hefur meðferðis hvorki meira né minna en 50 tegund- iy yndislegra minkapelsa frá Birger Ghristensen í Kaup- mannahöfn. Sýnir hann þá á skemmtun Hringsins í Hótel Sögu í kvöld. í fylgd með Erik Widt er dönsk sýninga- stúlka, Birgit Filtenborg, en hún kom í stað Thelmu Ingvarsdóttur, sem átti að sýna pelsana en forfallaðist á síðustu stundu. Þessir „Saga-minkar“ eins og þeir heita, eru mjög falleg- ir og vandaðir, enda eftirsótt- ir og seldir um allan heim. Stúlkurnar, sem sýna pels- ana eru allar íslenzkar að und Fjölmenni í félags- heimili Heimdallar „Opið Kús“ í kvöld FRÁ því Félagsheimili Heim- dallar var vígt fyrir rúmlega viku hefur ungt fólk komið þang að í stórum hópuni, þau kvöid, sem opið hefur verið. Mun láta nærri að um 500 manns samtals hafa komið þangað frá opnun- iinni. Sérstök kynningarkvöld hafa verið haldin fyrir nemend- ur í Verzlunar- og Menntaskólan- um og verða slík kvöld haldin í næstu viku fyrir Háskólann, Kennaraskólann o. fl. Geysifjöl- menni hefur verið á þessum kynn ingarkvöldum. Sl. þriðjudag var „Opið hús“ í Félagsheimilinu og skemmtu menn sér þar við dans, töfl o. fl. í kvöld verður Félags- heimilið aftur opið fyrir allt ungt fólk, sem þangað vill koma og skemmta sér í hlýlegum og þægi- Iegum húsakynnum. Er sérstök ástæða til þess að vekja athygli á því að ekki er nauðsynlegt að vera félagsbundinn í Heimdalli til þess að koma í hið nýja fé- lagsheimili, það er opið öllu ungu fólki. Hið nýja Félagsheimili Heim- dailar hefur farið glæsilega af stað og er ungt fólk eindregið hvatt til þess að líta þar inn í kvöld og kynna sér hin nýju húsakynni. maður Framsóknarflokksins orð- aði það. Auðvitað rættist ekkert af þessu, heldur batnaði hagur landsmanna jafnt og þétt og að- staðan út á við varð styrkari en áður. Síðan hafa stjórnarandstæð- ingar verið að hamra á því, að ríkisstjórnin hafi horfið frá við- reisninni, þar sem hún hefur t.d. lækkað vexti, þegar ekki var lengur þörf hinna háu vaxta og svo framvegis. Ætti þó hver mað- ur að geta skilið það, að þegar ákveðnu markmiði er náð, þarf ekki að gera efnahagsráðstaf- anir til að ná því að nýju.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.