Morgunblaðið - 28.03.1965, Síða 23

Morgunblaðið - 28.03.1965, Síða 23
Sunnudagur 28. marz 1965 MORGUNBLAÐIÐ 23 Anna G. Torfadóttir — Minning AÐ MORGNI 21. marz lézt Anna Guðrún Torfadóttir eftir þunga legu um þriggja mánaða skeið. Hún hafði verið mjög hraust og bognaði lítt, þótt á móti blési, en brotnaði nú að fullu í bylnum etóra seinast, svo að ég bregði fyrir mig orðum Stephans G. Stephanssonar. Anna fæddist í Kollsvík í Rauðasandshreppi 6. des. 1894. Foreldrar hennar voru Torfi Jónsson bóndi og sjómaður þar og kona hans Guðbjörg Guð- bjartsdóttir. begar Anr»a var 9 ára gömul, varð hún fyrir fyrsta stóra áfall- inu, er hún sá föður sinn drukkna í brimlendingu í Kolls- vík, 4. apr. 1904. Var hann þá við annan mann að sækja trjá- við í nýjan bæ. I --- tneð 13 börn. Heimilinu var haldið saman, og bróðir Guð- bjargar, sá er af komst, er Torfi drukknaði, tók við búsforráðum. Þegar Anna var telpa, fór hún til heyskapar að Krókshúsum að Rauðasandi. Fegurð staðarins heillaði hana, og greip hana löngun til að komást þangað til langdvalar. Þegar hún hafði aldur til, réð hún sig í kaupavinnu á hið (þekkta heimili Saurbæ á Rauða- sandi, en þá bjuggu þar Ólafur Thorlacius og kona hans. Samtímis var þar á heimili Ólafur Einarsson, búfræðingur, bróðir Sigurvins alþingismanns og þeirra systkina. Síðar felldu (þau Ólafur og Anna hugi saman. Þau giftust 1918 og fóru að búa i Stakkadal. Heimili þeirra var rómað fyrir myndarskap og hreinlæti. Eftir 18 ára sambúð missti Anna mann sinn, og hafði (þeim þá orðið átta barna auðið og voru sjö á lífi. ólafur átti góðvin, Halldór Júlíusson, sem verið hafði kaupa- maður þeirra hjóna í Stakkadal. Þegar Ólafur sá, að hverju fór og var lagztur banaleguna, bað hann Halldór vin sinn að annast konu og börn. Halldór mun hafa gefið fyrirheit um það og efndi af frábærum drengskap. Halldór lézt að Hrafnistu 11. jan. sl. Hann hafði þá gengið sjö börnum í föðurstað, því yngsta frá því að það var á fyrsta ári. Börn Önnu og ólafs eru: Torfi, bankafulltrúi, Reykjavík, Guð- björg Ólína, húsmóðir, Reykja- vík, Elín Erna, húsmóðir, Lamb- haga, Ölfusi, Halldóra Guðrún, saumakona, Reykjavík, María, húsmóðir, Vindhæli, Skagaströnd Kristín, hjúkrunarkona, Reykja- vík. Anna átti ekki kost á skóla- námi að lokinni barnafræðslu, en hún var bókhneigð og list- hneigð. Hún lærði að leika á orgel hjá Guðnýju Þorvaldsdótt- ur, prests í Sauðlauksdal, og að því námi loknu lék Anna á orgel Saurbæjarkirkju á Rauðasandi í þrjátíu ár. Anna hafði glöggt auga fyrir náttúrufegurð og unni börnum og blómum. Blómareiturinn í Stakkadal vitnaði um þann , sem annaðist hann, oft að loknum löngum vinnudegi, þegar aðrir hvíldust. Keppzt var um að koma börnum til dvalar til Önnu í Stakkadal vitnaði um þann, sem fjögur börn auk heimabarna. Anna var snjöll hannyrðakona á útsaum, hekl og prjón og seinni árin varði hún miklum tíma til að vinna fatnað á barnabörnin. Anna flutti frá Stakkadal að Saurbæ árið 1945 og bjó þar í fjögur ár. Þá brá hún búi og fluttist til Reykjavíkur og hafði heimili með yngri dætrum sínum. Þær giftust og fluttust burt og síðustu árin bjó hún með Krist- ínu dóttur sinni að Hofteigi 38. Mjög náið samband hefur þó ávallt verið á milli Önnu og barna hennar, enda voru þau henni allt og hún þeim. Börnin þurftu oft að leita til hennar, allt til hins síðasta, og öðrum fremur leysti hún vanda þeirra. Tólf ár eru nú liðin, síðan fundum okkar Önnu bar fyrst saman, og mér hefur orðið æ ljósara, hve ágæta konu hún hafði að geyma. Ég flyt börnum og barnabörnum samúðarkveðju og þakka góð kynni, en í hugum okkar munu geymast Ijúfar minn ingar um greinda og hjálpfúía konu og móður, sem var styrkust, þegar mest á reyndi, trúuð og raungóð. Almáttugan guð biðjum við að blessa hana í nýjum heimkynn- um. Magnús Sigurffsson. Húsasmiðir! Viljum ráða flokk trésmiða við byggingu okkar. Uppmælingarvinna. — Upplýsingar gefur Þórður Jasonarson sími 16362 og 18551. IÐNGARÐAR H.F. Auglýsing frá bæjar- verkfræðingnum í Kopavogi Breiðholtsvegur verður lokaður á næstunni fyrir neðan vegamót Nýbýlavegar og Breiðholtsvegar. FÉLAGSHEIIHILI Skemmtikvöld í kvöld ★ SKEMMTIATRIÐI ★ VEITINGAR ★ DANS, TÖFL, SPIL, BLÖÐ og BÆKUR. Komið í hin nýju og þægilegu húsakynni HEIMDALLAR í Valhöll. Heimdallar BIIMGÚ - BIIMGÓ Bingó í Góðtemplarahúsinu í kvöld kl. 9. — Aðalvinningur eftir vali. 12 umferðir. — Borðpantanir í síma 13355 eftir kl. 7:30. Góðtemplarahúsið. Borgfirðingar - Húnvetningar Húnvetninga- og Borgfirðingafélögin í Reykjavík halda skemmtun í Sigtúni þann 1. apríl n.k. kl. 8,30. Til skemmtunar verður: 1. Vísnaþáttur í nýju formi. 2. Los Comuneros del Paraquay. 3. Einsöngur og tvísöngur: Guðmundur Guð- jónsson og Ingveldur Hjaltested. 4. D A N S . Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti. ATH.: Borð ekki tekin frá. Skenimtinefndin. Við sjóinn falleg 6 herb. íbúðarhæð í smíðum á 1. hæð í tveggja hæða húsi við Miðbraut á Seltjarnarnesi. Allt sér. Kynding, inngangur og þvottahús. Útborgun kr. 450 — 500 þús. STEINN JÓNSSON lögfræðistofa — fasteignasala Kirkjuhvoli — Símar 14951 og 19090. Afgreiðsluslúlka óskost STRAX. — Tjpplýsingar ekki í síma á morgun mánudag kl. 6—7 í verzluninni. TFZJhHJtJ ” f WLJ ■ r'" m I ■ 'M T*ÆKJAR.ðÖTU 63 Afgreiðslustúlku ósknst strax eða um mánaðamótin, helzt vön. ÍUUí, Ucllcli, Laugavegi 82. Innritun daglega Sími: 2-05 65. Kennsfa hefsf 1. apríl 6 vikna námskeið Snyrtinámskeið Megrun Aðeins 5 í flokki. TÍZKGSKÓLI ANDREIJ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.