Morgunblaðið - 24.04.1965, Side 6

Morgunblaðið - 24.04.1965, Side 6
6 MORC U N BLADIÐ Laugardagur 24. apríl 1965 Siötucp í dag: Salóme Gunnarsdóttitr, ísafirði SALÓME Gunnarsdóttir frá Sval barði í Ögurvík á í dag sjötugs- afmæli. I>essi merka og dug- mikla kona er fædd á Eyri í Skötufirði 24. apríl árið 189ö. Hún fluttist ung að árum í Ögur- vík og árið 1918 giftist hún Her- manni Hermannssyni. Bjuggu þau fyrst nokkur ár í Ögri, en árið 1926 reistu þau nýbýlið Sval barð í Ögurvík. Þar stundaði Hermann Hermannsson sjó og búskap. Áttu þau heima á Barði, sem svo var kallað, fram til árs- ins 1945 er þau fluttust til ísa- fjarðar. Hafa þau átt þar heima síðan og búið að Mjógötu 3. Hermann Hermannsson er far- sæll og dugandi sjómaður. Hann stundaði sjóinn af miklu kappi á litlum vélbátum með sonum sín- um, bæði heima í Ögurvík og einnig fyrstu árin eftir að hann fluttist til ísafjarðar. Hermann er fæddur 17. maí 1893 að Kross- nesi í Árneshreppi í Stranda- sýslu. Er hann því nú 72 ára að aldri. Hann er glæsimenni að vallarsýn, fríður maður og föngu- 1 legur og hinn bezti drengur. Salóme og Hermann eignuðust 11 börn, 6 syni og 5 dætur. Eru þau öll á lífi. Má segja, að barna lán þeirra hjóna sé mikið. Öll eru börn þeirra frábært myndar- fólk, sem hefur orðið foreldrum sínum til gleði og sóma. Fimm sonanna eru afburða skipstjórar og aflamenn og öll eru börnin vel gefin og vel gert atorkufólk. Dæturnar eru Anna Kristín, sem gift er Ásgeiri Sigurðssyni á ísa- firði; Þuríður, gift Arnviði Ævar Björnssyni á Húsavik; Sigríður, gift Erlingi Magnússyni, Reykja- vík; Karitas, gift Steingrími Birgissyni, Húsavík og Guðrún Dóra, sem gift er Þóri Þórissyni á ísafirði. Synirnir eru Sverrir viðskipta fræðingur í Reykjavík, formaður Landssambands islenzkra verzl- unarmanna, kvæntur Grétu Lind Kristjánsdóttur; Gunnar, skip- stjóri í Hafnarfirði, kvæntur Kristínu Önundardóttur; Þórður skipstjóri í Reykjavík, kvæntur Vigdísi Birgisdóttur; Gísli Jón, skipstjóri í Reykjavík, kvæntur Jónínu Einarsdóttur; Halldór skipstjóri á Isafirði, kvæntur Katrínu Gísladóttur og Birgir, skipstjóri í Reykjavík, kvæntur Öidu Sigtryggsdóttur. Barnabörn þeirra Salóme og Hermanns Hermannssonar munu þó nú vera orðin hart nær fjórir tugir talsins. Mér er minnisstætt heimili þeirra Salóme og Hermanns að Svalbarði í ögurvík. Þar voru ekki alltaf mikil veraldieg efni í búi. En allt tókst uppeldi þessa stóra og mannvænlega barna- hóps vel og giftusamlega. Þau hjón eru miklar mannkosta- manneskjur, vel gefin, hispurs- laus og drenglynt fólk. Áreiðan- leiki og festa voru og eru höfuð- einkenni þessara samhentu og þrekmiklu hjóna. Annríki Salóme á heimili hennar var aldrei svo mikið að gestrisni hennar og höfðingslund fengi ekki notið sín. Ástúð hennar og hjartahlýja skapaði ávallt birtu í kringum hana og heimili henn- ar. Salóme Gunnarsdóttir hefur hlotið ríkuleg sigurlaun fyrir stórbrotið starf, unnið af æðru- leysi og fórnfúsum kærleika. Hún hefur gefið þjóðfélagi sínu þá beztu gjöf, sem nokkru þjóð- félagi getur hlotnazt, gott, dug- mikið og heiðarlegt æskufólk. Það var mikið skarð fyrir skildi í Ögursveit, þegar hin stóra og glæsilega fjölskylda Salóme og Hermanns á Barði flutti þaðan burtu. En mestu máli skipti, að þetta góða fólk fann hamingjuna á nýjum slóð- um og fékk þar tækifæri til þess að vinna landi sínu vel og dyggi- lega. Ég óska þessum gömlu og góðu vinum, Salóme og Hermanni, innilega til hamingju með sjöt- ugsafmæli Iþeirra. Mestu máli skiptir þó iífslán þeirra. Þau geta nú litið yfir farinn veg og horft hamingjusöm fram til hinna efri ára. Vinir þeirra og skyldu- lið samfagnar þeim. Hérað þeirra og þjóðfélag þakkar þeim. Lifið svo heil og sæl, gömlu vinir. Sigurður Bjamason frá Vigur. Brezka sveitin kominn í GÆRKVÖLDI var væntan- lag til Reykjavíkur ensk bridge- sveit, sem hingað kemur í boði bridgefélaganna í Reykjavík. Bridgesveit þessi er skipuð mjög gó'ðum og kunnum spilurum, tveiur konum og tveimur körl- um og eru þar á meðal heims- meistari og Evrópumeistarar. Ensku spilarnir taka þátt í tví menningskeppni sem fram fer í dag og á rnorgun í Sjómanna- sbólanum og taka þátt í keppn- inni 65 pör. Á mánudag mun enska sveitin spila við íslandsmeistarana, sveit Gunnars Guðmundssonar og fer sú keppni fram að Hótel Sögu. Leikur þessi verður sýndur á sýningatöflunni til haigræðis og skemmtunar fyrir áhorfendur. Á miðvikudag keppir enska sveitin við Reykjavíkurmeistar- ana, sveit Halls Simonarsonar, og fer sá leikur einnig fram að Hótel Sögu og verður einnig sýndur á sýningartöflunni. Enska sveitin tekur ennfrem- ur þátt í sveitakppni 8 sveita, sem fram mun fara í Tjarnarbúð á þri'ðjudag, fimmtudag og laug ardag. Ensku spilararnir eru þessir: Frú Jane Pedro Juan, sem er núverandi heimsmeistari, frú Myndin er af frú Jane Peoro Juan sem er í ensku bridgesveit- inni, sem hingað er komin I boði bridgefélaganna í Reykja- vík. Frú Juan er núverandi heims meistari í kvennaflokki. Joan Durran, sem er núverandi Evrópumeistari, Anthony Priday, núverandi Evrópumeistari og Yuri Lengyel, sem hefur spilað í hollensku landsliðinu, en er nú búsettur í Englandi. Árleg ferð Fáksmanna ■ Hlégarð á sunnudag HINN árlegi útreiðartúr Fáks- félaga, sem farinn hefir verið að Hlégarði í Mosfellssveit, verð ur farinn n.k. sunnudag. Lagt verður upp frá hesthúsum Fáks á skeiðvellinum kl. 2 e.h. stund- víslega. Kaffidrykkja verður í Hlégarði um kl. 4 síðdegis. Þess- ar ferðir hafa jafnan verið fjöl- sóttar og má búast við að enn fleiri verði nú en venjulega þar sem aldrei hafa verið jafnmarg- ir, sem stunda hestamennsku hér í Reykjavík og nú. Fjáröflunarnefnd kvenna 1 Fáki er að hefjast handa um happdrætti, en í því verður dregið 6. júní. Vinningar eru gæðingsefni og strandferð með einhverju skipi Eimskpafélags- ins. • SUMARDAGURINN FYRSTI Ekki var sumardagurinn fyrsti beint sumarlegur. Enda mun það ekki hafa þóknazt máttarvöldunum að koma með sinn fyrsta sumardag sam- kvæmt pöntun frá okkur. Samt var þátttakan í skrúðgöngu og hátíðahöldum í Lækjargötu ágæt. Ég gekk niður Laugaveg á eftir lúðrasveit drengja og hafði ánægju af. Að vísu kom það fyrir, að herramennirnir með bassahljóðfærin, þeir sem ráku lestina, drægjust svolítið aftur úr í laginu. En það kom ekki að sök, því það er alltaf ánægjulegt að sjá ungt fólk að- hafast eitthvað gagnlegt og á- nægjulegt í fristundum sínum — og sannarlega liggur mikið starf að baki. stuttri gönguför drengja — þeytandi lúðra sína — niður Laugaveg. Sem gamall lúðrasveitarmað- ur get ég borið það, að fátt er skemmtilegra en leika í slíkri hljómsveit. Foreldrunum finnst sjálfsagt margt skemmtilegra en að hlusta á endalausan og hávaðasaman blástur þeirra, sem æfa sig vel heima. Samt ættu foreldrar að hvetja börn sín til þess að reyna að komast í slíkan félagsskap — og greiða fyrir þeim eftir beztu getu, ef einhverjir hæfileikar gera vart við sig. Piltarnir, sem gengu niður Laugaveginn, með lúðra sína á sumardaginn fyrsta hafa ekki aðeins haft gaman af þessum sumardegi, heldur er þetta tóm stundastarf mjög þroskandi fyr- ir þá — og það er e.t.v. aðal- atriðið. Báðar hljómsveitirnar voru ágætar — og við þyrftum að eignast fleiri slíkar. • VERKNÁMSKENNSLA Jón H. Björnsson, garðarki- tekt, skrifar okkur eftirfarandi: „Velvakandi: Aukinn skilningur á verk- námskennslu er sannarlega gleðiefni. Nú er talað um, að nemendur skuli fá verklega kennslu í vinnustofum skólanna í ríkari mæli í stað handleiðslu ýmissa meistara. Þetta er gleði legt vegna þess að skóli, sem hefur það hlutverk fyrst og fremst að kenna, hlýtur að ná miklu betri árangri, heldur en meistari gerir með sitt hags- munas j ónarmið. Ástæðan fyrir því, að ég læt fögnuð minn hér í ljós, er sú, að árið 1952 kenndi ég við Garð yrkjuskóla ríkisins, nýkominn frá margra ára námi í Banda- ríkjunum, og stóð þá yfir breyt- ing við reglugerð skólans. Mér var gefið tækifæri til þess að láta óskir mínar í ljós, sem ég gerði. Óskir mínar beindust í þá átt að kenna samtvinnað bók legt og verklegt nám við skól- ann. Engar af mínum tillögum voru teknar til greina, ég hætti kennslu. Nú stendur aftur yfir breyting á reglugerð skólans. Sem skólanefndarmaður, hefi ég komið tillögum mínum á framfæri, en hvort þær ná fram að ganga á eftir að koma í ljós. Ég tel vafasamt að enn sé næg- ur skilningur fyrir hendL Tillögur mínar eru fyrst og fremst í þá átt, að nemandi sé við skólann árið út í gegn, þar sem að svo margt viðvíkjandi garðyrkju er háð árstíðunum, og að hvert fag sé kennt bæði í bóknáms og verknáms tímum samtvinnað, þar sem að hægt er að koma því við. Síðastliðm tólf ár hefur farið fram ein- göngu bóknáms kennsla fjóra svörtustu skammdegismánuð- ina. Sú kennsla hefur verið mjög vel framkvæmd af úrvals kennurum, en sú kennsla gerir ekki hálft gagn á móts við það, ef að hægt væri að tengja hana verknámskennslu við skólann sjálfan. Hér verð ég að biðja menn að misskilja mig ekki. A5 vinna við garðyrkjustöð skól- ans, sem er ein stærsta fram- leiðslustöð landsins og hefur því sitt hagsmunasjónarmið, er ekki það sem ég á við með verknáms-kennslu, sem fram- kvæmd yrði fyrst og fremst af kennslustofnun. Til frekari skýringar gæti ég, eins og Gísli Halldórsson, verk fræðingur, talið upp dæmi frá minni eigin reynslu við verk- námsskóla í Farmingdale, Long Island og borið þá reynslu sam an við nám mitt við Garðyrkju- skóla ríkisins, en læt þætta nægja að sinni. Jón H. Björnsson". PIB ■„3 D C .—i l—i l—l 86‘rr- 12 ▼ 24 v bakljós, ökuljós, stefnuljós óg bremsuljós. BRÆÐURNIR ORMSSON hf Vesluigötu 3. —'Öími 11467. "

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.