Morgunblaðið - 04.05.1965, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 4. maí 1965
stigum gegn 54
KR felldi 6 ára
Vann aukaúrsSitaEeik með
„einokun“ ÍR í kðrfuknattleik
EFTIR sex ár lauk loks einokun
ÍR á íslands- og Reykjavíkur-
titlunum í körfubolta, og nýir
meistarar eru teknir við. Eru það
KR-ingar, sem sigruðu ÍR í auka-
úrslitaleik I íslandsmótinu í
körfubolta sl. föstudag, með 64
stigum gegn 54. Voru það á allan
hátt réttlát úrslit, betra liðið
vann — fimm menn sem léku
eins og ein held allan tímann —
sigruðu fimm andstæðinga sem
of oft létu einstaklingshyggjuna
ráða. Þjálfari KR-inga, hinn
ameriski Philip Benzing, á sann-
arlega heiður skilið fyrir þetta
lið, sem hann hefur mótað svo
að það útfærir leikaðferðir betur
en áður hefur sézt hjá íslenzku
liði. Og það var einmitt fyrir
taktíska yfirburði að sigurinn
lenti KR megin. ÍR-liðið er
byggt upp af öllu sterkári ein-
staklingum en KR-liðið, en hefur
ekki yfir jafn vel skipulögðum
leik að ráða, þeir setja traust sitt
of mikið á stærstu stjörnu liðs-
ins, og er augljóst að slíkt geng-
ur ekki endalaust, því takmörk
eru fyrir því hve miklu má búast
við af einum manni í flokka-
íþrótt. Eru þessi úrslit ÍR-ingum
holl lexía og tekst þeim vonandi
að bæta þá galla, sem komið
hafa fram í leik þeirra.
♦ Spennandi leikur
Frá fyrstu mínútu til hinnar
síðustu var leikurinn æsispenn-
andi. ÍR nær forystu í upphafi,
13-6, en Einar Bollason og Gutt-
ormur Ólafsson taka góðan
sprett og tryggja KR forskot í
hálfleik, 28-23. Var þessi hluti
leiksins mjög vel leikinn á báða
bóga og sáust snilldarleg tilþrif
hjá báðum liðum. Flest stig í
hálfleiknum skoruðu hjá ÍR Þor-
steinn 10, hjá KR Einar 10 og
Guttormur 8.
í upphafi seinni hálfleiks
breikkaði bilið og er staðan á
tímabili 25-34 KR í vil. Sá munur
hélzt fram undir miðjan hálf-
leik, en þá er öðrum bakverði
KR, öðrum aðaluppbyggjara liðs-
ins, Kolbeini Pálssyni, vísað af
velli með fimm leikvíti. Tekur þá
að síga á ógæfuhliðina hjá KR
ag saxa ÍR-ingar á forskot þeirra
Fram og Valur
unnu um helgina
TVEIR leikir Reykjavíkur-
mótsins í knattspymu fóru
fram um helgina. Á laugar-
daginn kepptu Fram og Vík-
ingur 0|g vann Fram 4-1. Á
sunnudag kepptu Valur og
Þróttur og Valur sigraði 4-0.
Báðir leikirnir vom daufir og
í þeim lítil knattspyma. Er nú
lokið fyrstu umferð í Rvíkur-
mótinu og hafa öll félögin
komið fram á sjónarsviðið.
Fram, KR og Valur virðast eft-
ir fyrstu umferðinni að dæma
vera mun sterkari Þrótti og
Víkingi — en allir hafa leik-
imir í þessari fyrstu umferð
verið þannig að vart er hægt
að byggja á þeim dóm um getu
liðanna í sumar og öll hafa
þau fengið að kenna á nokkuð
þungum velli, þó oft hafi hann
verið verri en í vor.
Myndin sem hér fylgir sýn-
ir Helga Númason skora ann-
að mark Fram á laugardaginn.
Myndin er kannski lærdóms-
rik fyrir ísl. knattspymuunn-
endur. Helgi hefur skotið vel
en aldrei gæti svona mynd
verið tekin við marks ensks —
eða dansks eða nokkurs ann-
ars félags en íslenzks. Það er
eins og keppendurnir séu
áhorfendur. Hvar er vömin?
Nýkjörnir íslandsmeistarar KR ásamt þjálfara sínum, Philip Benzing, t. h. (Ljósm.: Bj. Bj.).
jafnt og þétt og þegar þrjár mín-
útur eru eftir af leiknum jafnar
Birgir, 49-49, KR skorar og aftur
jafna ÍR-ingar, 51-51. Gunnar
skorar fyrir KR og þá skeður
„krítiskt“ atvik, Agnar hjá ÍR er
að reka knöttinn upp með hlið-
arlínu vallarins, en missir hann
út af þegar áhorfandi bregður
fæti á knöttinn. Þessu taka dóm-
arar hins vegar ekki eftir og
dæma KR knöttinn. Agnar mót-
mælir þessum dómi ailkröftug-
lega og fer svo að dómarar dæma
tvö vítaskot á Agnar fyrir mót-
mælin. Einar Bollason skorar úr
öðru skotinu, þannig að fyrir
prakkaraskap áhorfanda missa
ÍR-ingar knöttinn ög fá auk þess
á sig eitt stig. Ein minúta er til
leiksloka og Birgir skorar fyrir
ÍR og er staðan þá 54-53 KR í vil.
En siðasta mínútan var hrein KR
mínúta og skora þeir tíu stig
gegn einu hjá ÍR. KR-sigur var
orðinn staðreynd og áhorfendur
ryðjast inn á völlinn í fögnuði
og bera KR-liðið í gullstól af vell
* Liðin
■Hinir nýbökuðu íslandsmeist-
arar KR eru vel að sigri sínum
komnir. Þeir léku sína tvo úr-
slitaleiki við ÍR mjög vel og með
samheldni og öryggi náðu þeir
að brjóta niður alla andstæðinga
sína í mótinu. Hittni þeirra var
mjög góð I leiknum, og öryggi
mikið í leiksuppbyggingú, svo að
varla sást sending út í loftið. —
Beztu menn liðsins eru Einar
Bollason, sem er frábær skytta
og vaxandi leikmaður við frá-
kastahirðingu og varnarleik, Kol
beinn Pálsson og Gunnar Gunn-
arsson skipuleggja sóknina af sí-
vaxandi nákvæmni og auk þess
er Gunnar annar stigahæsti leik-
maður mótsins. í úrslitaleiknum.
sýndu þeir Guttormur og Hjört-
ur einnig mjög góðan leik og
skoruðu þýðingarmikil stig.
ÍR-liðið er borið upp af Þor-
steini Hallgrímssyni og er eins og
liðið hafi staðnað í því að láta
Framh. á bls. 31
Úskar aftur íslandsmeistari
Fjölmennasta badmintonmót
hérlendis háð um helgina
ÍSLANDSMÓTIÐ í badminton —
hið fjölmennasta sem haldið hef-
ur verið — fór fram um helgina i
KR-húsinu. Mótið fór vel fram en
nokkuð skyggði á að í einliðaleik
karla, þar sem barizt er um þann
íslandsmeistaratitil er mestu máli
skiptir, vantaði nýlega kjörinn
Reykjavíkurmeistara. En það
skyggir ekki á glæsilegan sigur
Óskars Guðmundssonar KR sem
sigraði með yfirburðum í einliða-
leik og vann einnig Islands-
meistaranafnbót í tvílialeik karla.
Þetta Islandsmeistaramót í bad-
minton var hið fjölmennasta sem
haldið hefur verið.
Úrslit mótsins:
Einliðaleikur karla.
Óskar Guðmundsson KR —
Viðar Guðjónsson TBR 15:8,
15:5
Tvíliðaleikur karla.
Óskar Guðmundsson KR og
Rafn Viglgósson TBR — Jón
Höskuldsson TBR og Steinar
Petersen TBR 15:13, 15:8.
Tvíliðaleikur kvenna.
Jónína Nieljohniusdóttir og
Hulda Guðmundsdóttir TBR —
Lovísa og Halldóra Thoroddsen
TBR 15:11, 12:15, 15:7.
Tvenndarkeppni.
Jónína Nieljohniusdóttir og
Lárus Guðmundsson TIBR —
Halldóra Thoroddsen og Garð-
ar Alfonsson TBR, 15:10, 15,4.
I flokkur
Einliðaleikur karla.
Björn Helgason Vestra —
Gunnar Felixson KR 15:12,
16:4.
Tvíliðaleikur karla.
Trausti Eyjólfsson og Halldór
Þórðarson KR r— Hilmar Stein-
grúnsson og Gunnar Felixson
KÉ 15:9, 15:6.
Einliðaleikur kvenna.
Jóna Sigurðardóttir KR — Erla
Friðriksdóttir KR 5:11, 11:6
11:8.
Tvíliðaleikur kvenna.
Erla Friðriksdóttir og Jóna Sig-
urðardóttir KR _— Guðbjörg
Ingólfsdóttir pg Álfheiður Ein-
arsdóttir TBR 15:6, 15:7.
Tvenndarkeppni.
Erla Guðmundsdóttir og Matt-
hías Guðmundsson TBR —-
Jóna Sigurðardóttiir og Guð-
mundur Jónsson KR 15:13,
15:13.
Unglingaflokkur.
Einliðaleikur.
Haraldur Jón Komelíusson
TBR — Áxel Jóhannsson TBR
11:5, 11:7.
Tvíliðaleikur.
Haraldur Jón Kornelíusson og
Axel Jóhannsson TBR — Finn-
björn Finnbjömsson og Snorri
Ásgeirsson TBR 15:7, 15:6.
Keíla vík vtann
JBreiðabtík 7:1
ISLANDSMEISTARAR Kefla-
víkur í knattspyrnu léku sinn
fyrsta opinbera kappleik á sumr-
inu sl. lauardag er þeir mættu
Breiðabliki frá Kópavogi á mal-
arvellinum í Keflavík. Breiðablik
hefur nú gerzt aðili að „litlu
bikarkeppninni“ og var þetta
fyrsti leikurinn í þeirri keppni í
vor. Keflvíkingar sigruðu með
talsverðum yfirburðum, 7 mörk-
um gegn 1, og var Jón Jóhanns-
son hinn marksækni miðherji
IBK einkum mikilvirkur en hann
skoraði 5 mörk í leiknum.
Óli B. Jónsson þjálfari ÍBK,-
kvaðst vera nokkuð ánægður með
þennan leik, einkum síðari hálf-
leik, en þá hefði liðið náð góð-
um samleiksköflum. Óli taldi þó
að liðið myndi geta sýnt tailsvert
betri leik á grasi, því ósléttur
malarvöllur hefði háð því nokk-
uð. Aðspurður taldi Óli B. að
Keflavíkurliðið ætti að verða sízt
lakara en í fyrra, jafnvel nokkru
sterkara.