Morgunblaðið - 25.05.1965, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 25.05.1965, Qupperneq 23
T Þriðjudagur 25. maí 1965 MORGUNBLAÐIÐ 23 IHHHIMMHH >>>>>>>>>iMMMMMMiMIMIMMMMIMMilMMIMMMMMIMIIIIIIIIIIMIMMMIMMMMtlMiMMI IIHHHtllllllMMIMHIIIIMHMHIIMMIMIIMHIIiMIIIIIIIIMMIIMMHMMHHMII IMMMMIMIMMMMII IIMMIIIIII fara fram á íslenzku ein- göngu. Á síðari árum eru hins veg- ar fleiri og fleiri Vestur-ís- lendingar sem ekki hafa full not af slíkum félagsskap, þar sem allt fer fram á íslenzku. Þess vegna hafa verið stofnuð fleiri félög um sama málefni, þar sem enska er aðalmálið og höfum við unnið að því að koma á nánara samstarfi við þessi félög. En mér finnst for- seti íslands hafa hitt naglann á höfuðið, þegar hann sagði fyrir vestan: „Er haegt að vera góður íslendingur á ensku?“ ur og þar hef ég búið síðan, að mestu leyti í Winnipeg. — Eruð þér ekki kvæntur? — Jú, konan mín er Stein- unn Eiríksdóttir, Jónssonar, sem bjó að ég held á Ekru í Hjaltastaðaþinghá. Hún er fædd fyrir vestan. — Eruð þér hingað kominn til þess að „stinga af“ frá afmælinu? — Nei, nei. Afmæli eru eng ir stórviðburðir fyrir vestan. Svo finnst mér ég ekki vera sjötugur. — Hvernig finnst yður nú að vera kominn til íslands? Séra Philip M. Pétursson afhendir Sigurði Inga Sigurðssynl, oddvita Selfosshrepps, nverki Þjóðræknisfélagsins. Akureyrlngur í húð og hár. — Hvar á landinu eruð þér fæddur? ) — Ég er fæddur og upp- alinn á Akureyri, þar sem ég var nágranni húsmóðurinnar á þessu heimili, frú Ástu Magnúsdóttur. Ég verð nú að segja það, að mér finnst frúin hafa stækkað síðan ég sá hana síðast fyrir 55 árum! j Faðir minn, Friðrik Krist- jánsson og bróðir hans, Magn- ús Kristjánsson, höfðu dálitla útgerð fyrir norðan og fór ég oft á sjó. Ég fór í gagnfræða- skólann á Akureyri, en þar sem ég var ekki búinn að ná 15 ára aldri, varð ég hálf- partinn að svindla mér inn. Þannig var nefnilega, að skóla stjórinn, sem þá var Jón Hjaltalín, hafði ákveðið, að enginn skyldi taka inntöku- próf, sem ekki væri orðinn fullra fimmtán ára gamall. Næsta vetur átti Stefán Stefánsson skólameistari á Möðruvöllum að taka við skólastjórn, svo faðir minn sneri sér til hans og fékk hann til að sannfæra Jón um að ég væri tækur í skólann. Ég veit satt að segja ekki nema hann hafi talið Jóni trú um að ég væri orðinn nógu gamall. Ég var svo fimmtán ára gamall, þegar við fluttum vest — Mér finnst alltaf gaman að koma hingað. Ég hef komið hingað tvisvar sinnum áður. En skemmtilegt þykir mér sú málvenja íslendinga fyrir vest an haf, að þeir segja alltaf að þeir séu að fára heim, þegar þeir ætla hingað. Þetta á jafnt við um þá sem fluttust hingað ungir og þá, sem fæddir eru fyrir vestan. Reykjavík er falleg. Á heimili Bjarna læknis hitt um við einnig Kristin Odd- friðsson og konu hans Yeru, en hún er kanadísk. Kristinn talar skínandi íslenzku en kona hans talar aftur á móti aðeins ensku, þótt hún skilji íslenzku nokkuð. Við hófum samtalið á því að spyrja Krist in, hvort hann væri fæddur hér á landi. — Já. Ég er fæddur á Seyðis firði 1894. Þaðan fluttist ég ungur til Reykjavíkur, og ár- ið 1913, ég var þá 19 ára, flutt ist ég til Kanada, nánar til- tekið vestur til Þingvalla og Lögbergsnýlendu, en þar bjó þá Magnús Hinriksson, móð- urbróðir minn. — Hafið þér verið búsettur þar síðan? — Nei, ég hef verið allra sveita kvikindi, eins og maður sagði hérna í gamla daga, því ég hef verið búsettur í 5 fylkj um í Kanada af 10. — En við hvað hafið þér starfað þarna í Kanada? — Fyrst eftir að ég kom þangað vestur vann ég við búskap, svo starfaði ég hjá einkafyrirtæki og keypti fyrir það korn. Síðan starfaði ég í því sama hjá Heilhveitisam- bandinu eða Saskatchewan Wheat Pool og þar vann ég í 17 ár. Það hafa verið í kring um 30 ár sem ég vánn við að kaupa korn. Jakob Kristjánsson, sjötugur, skoðar gamlar myndir frá Akur eyri, með læknisfrúnni Ástu Magnúsdóttur. „Hún Ásta hefur stækkað dálítið síðan ég sá hana siftast“. — í hverju var þetta starf fólgið? Ferðuðust þér um sveit irnar og sömduð við bænd- urna? — Nei, nei. Bændurnir urðu sjálfir að koma með kornið til okkar og draga það inn í > hlöðurnar en við flokkuðum það eftir gæðum og gengum frá því að öðru leyti fyrir i mölunina. — En við hvað unnuð þér, eftir að þér hættuð hjá Heil- hveitisambandinu? — Þá var ég um tíma bók- haldari og hélt tíma hjá stóru byggingarfyrirtæki, og núna, þangað til ég kom hingað hef ég haldið tíma og bókhald fyr ir menn sem hafa unnið við það að ryðja skóginn í Norð- vestur Kanada; fyrir olíufé- lögin, sem þurfa að leggja þar leiðslur og einnig til varnar skógareldum. — Eftir að ég kom hingað, í janúar, ég var ekki samferða hópnum sem kom í gær, þá hafa verið miklar umræður um virkjunina í Þjórsá, og sumir eru á móti henni, vegna þess að þeir telja að nú verði farið að nota kjarnorkuna í mun ríkara mæli en gert hef- ur verið. í þessu sambandi vil ég nefna, að þarna s-kammt frá þar sem við unnum við að ryðja skóginn, er nú verið að byggja eina stærstu stíflu í veröldinni. Hún verður um 600 fet á hæð, 114 míla á lengd. Aflið sem þessi virkjun framleiðir er 2.300.000 kíló- wattstundir, og verður það veitt alla leið að Bandarikja- línunni og munu Bandaríkin kaupá meiri hluta rafmagns- ins. í þessu fylki er líka verið að byggja þrjár aðrar stíflur nokkru minni en mestur hluti þess verður líka selt Banda- ríkjunum. — Er þetta í fyrsta skipti síðan þér komið hingað síðan þér fluttust vestur um haf? — Nei, ég kom hingað 1949, til að heimsækja föður minn, gamlan Reykvíking, Oddfrið Oddsson og dvaldi þá hér í sex eða sjö vikur. Nu er ég að heimsækja systur mina og ætla að vera hér í sumar. — Finnst yður ekki hafa orðið töluverðar breytingar á þessum tíma. — Stórkostlegar. Það er ekki hægt að kalla þetta breyt ingar, því það er miklu, miklu meira. — Og hvernig gezt yður að Reykjavík nútímans? Finnst yður hún falleg? — Mér hefur alltaf þótt vænt um Reykjavík og alltaf þótt hún falleg. Og ég vildi óska þess að það yrði búið að gera Tjörnina ennþá fallegri en hún er núna, því hún er óneitanlega mesta prýði borg- arinnar. — Að síðustu, Kristinn. Okk ur hefur virzt á þeim Vestur- íslendingum, sem við höfum haft tal af, að þeim þyki alltaf jafn vænt um gamla landið, jafnvel þó þeir hafi ekki séð það svo áratugum skipti og sumir ekki komið hingað áð- ur. að þeim mun eldri sem við verðum; því vænna þysi okk- ur um Island. Samkoma í Selfossbíó. Um kvöldið bauð Selfoss- hreppur gestum sínum til kvöldverðar í Selfossbíói. Var þar fram borinn islenzkur mat ur, lambakjöt og skyr. Odd- viti, Sigurður Ingi Sigurðsson var veizlustjóri og bauð gesti velkomna. Rakti hann síðan sögu Selfoss lítillega. Meðan setið var undir borð um, voru fluttar ræður. Talaði þá séra Philip M. Pétursson, forseti Þjóðræknisfélagsins. Þakkaði hann innilega höfð- inglegar móttökur og lýsti hrifningu sinni á hinum stór- stígu framförum, sem orðið hafa á Selfossi á undanförn- um árum. Sem lítinn þakk- lætisvott bað séra Philip odd- vita staðarins Sigurð Inga Sigurðsson að veita móttöku fána Þjóðræknifélagsins. Einn ig afhenti séra Philip hreppn- um hinn nýja þjóðfána Kanada. Meðan á borðhaidinu stóð, sungu gestir nokkur ættjarð- arlög, og kunnu ljóðin engu að síður en heimámenn. Karla kór staðarins skemmti gestum með söng, undir stjórn Guð- mundar Gilssonar, og var góð ur rómur gerður að. Þá sýndi Gísli Bjarnason kvikmynd af útreiðum ungmenna úr Bisk- upstungum. Að lokum sleit oddviti sam komunni og færði Vestur-ís- lendingum að gjöf loftmynd af Selfossi til minningar um staðinn. Einnig fékk hver gest anna bókmerki, sem á stóð: Með kveðju frá Selfossi. Fóru gestirnir nú í bílana og voru allir sammála um að þessum degi mundu þeir aldrei gleyma. — Já, þetta er áreiðanlega rétt og ég held það megi segja Kristinn Oddfriðsson með dætrum læknisins, Sigriði og Þóra Bjarnadætrum. 3 ................................................................................111.............................. ..........................H.IIIHHIH.HM.H.H.H.I................. %.H.HHHHHMH.M...............II11.......MM.......M...................I,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.