Morgunblaðið - 30.05.1965, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 30.05.1965, Qupperneq 24
24 MORGUNBLADID Sunnudagur 30. maí 1965 Garðs Apótek er flutt að SOGAVEGI 108. (Hornið á Sogavegi og Réttarholtsvegi). Opið alla virka daga kl. 9—7 nema laugardaga kl. 9—4 og sunnudaga kl. 1—4. SELTJARNARNESHREPPUR Logfaksúrskurður Samkvæmt kröfu sveitarstjóra Seltjarnarneshrepps úrskurðast hér með lögtök fyrir ógreiddum útsvör- um 1964, fasteignagjöldum, aðstöðugjöldum og vatns skatti, ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði. Lögtök verða framkvæmd fyrir gjöldum þessum að átta dögum liðnum frá birtingu úrskurðar þessa, verði eigi gerð skil fyrir þann tíma. Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu. 25. maí 1965. Björn Sveinbjörnsson (settur). Prentnemi óskast Viljum taka prentnema í setningu. Aðeins reglusamur piltur kemur til greina. SETBERG, Freyjugötu 14 — Sími 17667. Skrifstofur vorar eru fluttar úr Hafnarstræti 19 að Rauðarárstíg 1. G. Helgason og Melsted hf. Söltunarstöð Á Siglufirði er til leigu ein af beztu söltunarstöðv- unum. — Tilboð leggist inn á afgr. Mbl., merkt: „Síld — 7767“. Vön afgreiðslustúlka óskast frá kl. 1—6. — Upplýsingar í verzluninni frá kl. 1—3 á morgun. Dömu- og herrabúðin Laugavegi 55. T æknif ræðingur Tæknifræðingur með sérmenntun í hitatækni ðsk- ast í verksmiðju, sem er að hefja starfsemi sína. Upplýsingar um menntun og fyrri störf ásamt kaup tilboði sendist afgr. Mbl., merkt: „Ofnar — 6880“. Atvinna í sveit Mig vantar mann, vanan í sveit, sem fyrst. Talið við mig í síma, eða Ragnar son minn Borgarholtsbraut 45, Kópavogi. Lárus Björnsson. Grímstungu, Vatnsdal. GarSyrkjufélag Isjands 80 ára um þessar mundir HINN 6. maí eru liðin 80 ár frá stofnun Garðyrkjufélags islands. 1 öndverðu hét félagið fullu nafni „Hið íslenzka garðyrkju- félag“, allt fram til ársins 1940, en þá var nafninu breytt, og heitir það síðan Garðyrkjufélag islands. Helzti hvatamaður að stofnun félagsins var Georg Schierbeck, landlæknir. Garðyrkjufélag fslands er fé_- lag áhugafólks um garðyrkju. Á fundi með blaðamönnum í tilefni af afmæli félagsins, skýrði Jón H. Björnsson, skrúðgarðaarki-' tekt, frá því, að í athugun væri að halda reglulega fundi, þar sem öllum, sem áhuga hafa, væri boðið að koma. Yrðu þá kallaðir til sérfróðir menn til þess að ræða um garðyrkjumál. Mundu slíkir fundir væntanlega verða tilkynntir félagsmönnum bréf- lega, en fundarboðin yrðu þá jafnframt fréttabréf, þar sem birtar væru helztu niðurstöður síðasta fundar. Kynni þetta frétta bréf að verða að visi að tímariti í framtíðinni. Jón kvað félagið hafa stofnað til fræðslufunda stöku sinnum, og hefði aðsókn jafnan verið mjög góð. Á vorin hefur Garðyrkjufélag fslands éfnt til garðyrkjusýninga og einnig hlutazt til um það, að haldin hafa verið fræðsluerindi i útvarp. Þá má nefna Garð- yrkjuritið, sem komið hefur út á vegum félagsins. Hefur Ing- olfur Davíðsson ritstýrt því frá 1942. Stjórn Garðyrkjufélags íslands skipa Jón H. Björnsson, formað- Rosemarie reiðskóia Geldingaholti, 26. maí. SL sumar starfrækti Rosemarie Þorleifsdóttir reiðskóla fyrir börn hér í Vestra-Geldingaholti. Gekk starfsemin mjög vel og að auglýsing i útbreiddasta blaðinu borgar sig bezt. IMýr sendiherra Rúigariu staddur hér SL. laugardag afhenti nýr sendi- herra Búlgaríu á íslandi (með aðsetur í Stokkhólmi), Lalíú Gantséff að nafni, forseta Is- lands trúnaðarbréf sitt. Frétta- menn hittu sendiherrann að máli á þriðjudag. Hann kvaðst ánægður með fyrstu kynni sín að íslandi og íslendingum, og hefði hann átt gagnlegar viðræður við ýmsa að- ilja hér. Hann kvaðst telja, að efla ætti viðskipti milli land- anna, og í því sambandi hefði fulltrúum frá íslenzka viðskipta málaráðuneytinu verið boðið á vörusýningu í Búlgaríu í haust. Þar gætu siðan farið fram við- ræður um viðskipti. Þá hefði landbúnaðarráðherra, Ingólfi Jónssyni, verlð boðið persónu- lega til Búlgaríu. Hefði hana þakkað boðið, en ekki hefði ver- ið ákveðið, hvenær af því yrði. Einnig vildu búlgörsk yfirvöld bjóða sendinefnd íslenzkra menntamanna, svo sem rithöf- unda og blaðamanna, austur, og mundi það boð fara um utanríkis ráðuneytið hér, þegar til þess kæmi. Þá hafði sendiherrann áhuga á stúdentaskiptum og stofnun gágnkvæmra vináttufé- laga. Sendiherrann rakti síðan mikinn hluta af atvinnusögu Búlgara frá lokum síðari heims- styrjaldar, meðal annars hvernig traktorum hefði fjölgað úr 135 upp í 60.000. Búlgarar gætu keypt fisk héðan, en selt okkur margt í staðinn, svo sem vélar, ávexti, niðursuðuvörur, vín, vefn aðarvöru og skó. 100 milljónir lítra af víni væru framleiddir á ári hverju í Búlgaríu. ur, Gunnlaugur Ólafsson, gjald- keri, Ingólfur Davíðsson, ritari, Kristinn Helgason, varaformað- ur og Einar I. Siggeirsson, með- stjórnandi. starfrækir a sumar virtust börnin ánægð með veru sína hjá Rosemarie. Var þeim kennt að umgangast hesta, beizla og leggja á, farið í stutta reið- túra á hverjum degi, leiki og á kvöldin voru kvöldvökur, þar sem ýmislegt var til skemmtun- ar og fróðleiks fyrir börnin, t.d- kvikmyndasýningar og sagðar sögur af hestum. Nú í sumar ráðgerir Rose- marie að halda þessari starf- semi áfram með svipuðu sniði og eru ákveðin 6 hálfsmánaðar nám skeið, 3 fyrir pilta og 3 fyrir stúlkur. Mjög góð aðsókn. virðist ætla að verða að reiðskólanum nú, en þó er enn pláss fyrir nokkra nemendur síðari hlutann í sum- ar. Upplýsingar eru gefnar í síma 15637 fyrir drengi og 37470 fyrir stúlkur. — J. Ó. Rithöfundar látnir lausir í Lissabon Lisboa. 28. maí. NTB. ÞRÍR portúgalskir rithöfundar, sem fyrir skömmu voru teknir höndum fyrir aðild að bók- menntaverðlaunaveitingu til fang elsaðs hermdarverkamanns, voru í dag látnir lausir á ný. —■ Rithöfundarnir þrír, Alexandre Pimheiro Torres, Augusto Abel- aria og Manuél da Fonseca, voru látnir lausir, eftir að 98 mennta menn höfðu undirritað mótmæli gegn handtöku þeirra. Þeir áttu allir þrír sæti í dómnefnd rithöf- undafélagsins portúgalska, er fyrir nokkru úthlutaði bók- menntaverðlaunum félagsins að upphæð 50.000 escudos rithöfundinum Jose Vieira Mate us da Graca, fyrir bókina „Luanda“. Viera hlaut 14 ára fangelsisdóm árið 1963 fyrir hermdarverk unnin í Angola. — Verðlaunaveitingin vakti mikið umtal og deilur í Portúgal og val dómnefndarinnar varð til þess að stjórnin bannaði starf- semi rithöfundafélagsins. Þegar mynd þessi birtist, í sambandi við töku togarans Aldershot, brengluðust nöfn þessara skips- manna, en þeir eru frá vinstri: Kristinn Petersen, Jón Sigurðsson, Örn Ásgeirsson, Gunnar Njáls- son .Gunnar Sch. Thorsteinsson og Guðjón Petersen. Undir mynd á forsíðu í þessu sama blaði stóð að Höskuldur Skarphéðinsson hafi tekið við stjórn togarans, en það var Guðjón Petersen, 2. stýrimaður, sem það gerði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.