Morgunblaðið - 03.06.1965, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ
' Fimmtudagur 3.' júní 1965
2
Rut Jacobson og Guðmundur Guðjónsson í hlutverkum sínum.
MacSame Bufterfly
frumsýnd í kvöld
í KVÖLD frumsýnir Þjóðleikhús
ið óperuna Madame Butterfly
eftir Puccini. Er þetta siðasta
verkefni leikhúsins á þessu leik
Forseti bor«;ar-
stjórnar o" borg-
arráð kosið í dao;
A BORG ARST J ÓRN ARFUNDI
í dag kl. 5 fer fram kosning for-
seta borgarstjórnar til eins árs
og tveggja skrifara borgarstjórn-
ar. í>á verður kosið borgarráð
til sama tima, en í því eiga sæti
5 borgarstjórnarfulltrúar, eins
og kunnugt er.
Þa verður á fundinum kosið í
ýmsar stjórnir og nefndir m.a.
3 menn í stjórn Landsvitkjunar
til 6 ára, og 3 til vara.
Á fundinum fer einnig fram 1.
umræða um reikninga Reykja-
víkurborgar fyrir sl. ár.
ári. Leikstjóri er Svíinn Leif
Söderström og hljómsveitarstjóri
hiinn fraegi landi hans Nils
Grevillius, en með titilhlutverk-
ið fer sænska óperusöngkonan
Rut Jacobson, sem víða hefur
farið með það hlutverk.
Þá fara söngvararnir Guð-
mundur Guðjónsson, Guðmundur
Jónsson og Svala Nielsen með
stór hlutverk. Önnur sönghlut-
verk eru í höndum Ævars Kvar-
an og Sverris Kjartanssonar. Þá
hafa allir meðlimir Þjó'ðleikhús-
ins hlutverk í óperunni. 32 menn
úr Sinfóníuhljómsveit Jslands
leika á sýningunni.
Madame Butterfly er ein vin-
sælasta ópera Puccinis. Hún ger-
ist í Japan og eru búningar og
leiktjöld því litskrúðug í austur-
lenzkum sfð. Leikstjórinn teikn-
aði búningana, en leikmyndina
gerði Lárus Ingólfsson.
2. b. !9b5 kt. 12
'n.ö
Kuldaskil fóru yfir Reykja Norðanland voru hlýindi, 17
vík í gærmorgun og gerði um stig á Akureyri, sólskin og
leið snarpa regnskúr, en Norðurlands voru hlýindi, 17
vindur gekk úr suðri til vest- úti í Grímsey.
urs og hiti lækkaði um 2 stig.
Gjallsprengingar
við Sutsey
MORGUNBLAÐIÐ átti í gær
samtal við samtal við Þröst
Sigtryggsson, skipherra, en hann
hafði flogið yfir Surtsey í flug-
vél Landhelgisgæzlunnar í gær-
morgun.
— Skyggni var mjög slæmt,
sagði Þröstur, þegar við vorum
þarna kl. 10:30 um morguninn.
Þó sáum við strjálar gjallspreng
ingar um 700 metra ANA af
Surtsey. Náðu þær 20 til 30
nuetra upp fyrir yfirborð sjávar.
Á milli sýndist okkur brjóta á
sjónum þarna. Þá þóttumst við
sjá mórauðan blett í sjónum að
eins austar.
— Bláleit móða var yfir Surti
og tgufu lagði upp frá hraunrönd
inni suðvestanvert á eynni, svo
að sennilega er þar einhver hiti.
Myklebost, sendiherra Norðm anna, opnar bergristumynda-
sýninguna. — (Ljósm. Mbl.: Sv. Þormóðsson).
Skrílslátum í A-Þýzka-
landi mótmælt
— ráðizt var að byggingu bandarísku
hernaðarsendineíndarinnar
Heidelberg, 2. júni - AP - NTB
BANDARÍKIN hafa borið fmm
harðorð mótmæli við Sovétríkin,
vegna árásar þeirrar, er gerð
var í gær á húsakynni banda-
rísku hernaðarsendinefndarinnar
í Postdam, utan við Berlín.
Það var yfirmaður bandarísku
heraflanna í Evrópu, Anidrew P.
O’Meara, sem lagði fram mót-
mælin. Samkvæmt fréttatilkynn-
ingu, sem hann lét birta í dag,
er þeim, er lögðu til atlögu við
bygginguna, lýst sem hreinum
óþjóðalýð, sem hafi brotið rúður,
sóðað út húsið, auk þess, sem
þeir hafi rifið niður bandaríska
fánann, og eyðilagt hann.
A-þýzka fréttastofan AON
skýrði frá því síðdegis í dag, að
en verksmiðjan getur
Vopnafirði, 2. júní: —
í DAG barst fyrsta síldin á þessu
sumri til Vopnafjarðar. Var það
vélbáturinn Sigurður Bjarnason
frá Akureyri, sem kom hingað
rétt fyrir hádegið með um 1700
mál. Skömmu síðar kom Hann-
es Hafstein frá Dalvík og Iagði
upp 1100 mál. Von er á 1 til 2
bátum í kvöld.
Allþéttur ís liggur hér úti á
firðinum, en sunnan megin er
greiðfær sigling inn.
Síldarverksmiðjan getur ekki
hafið vinnslu, vegna þess að ým
is tæki vantar frá Reykjavík.
Vegna ótta við ís, hefur ekki tek
izt að koma vörum þessum með
skipum til Vopnafjarðar. Fyrir
lögreglulið hefði árangurslaust
reynt að koma í veg fyrir að-
gerðir árásarmanna, sem hafi
komið beint frá fundi, þar sem
þess var krafizt, að Bandaríkja-
menn dragi þegar í stað til baka
herlið sitt í S-Vietnam.
Mótmæli þau, er O’Meara lagði
fram, voru afhent yfirmanni her-
afla Sovétríkjanna í A-Þýzka-
landi, en samkvæmt fjórvelda-
samning þeim, er gerður var í
lok síðaji heimsstyrjaldarinnar,
ber hann fulla ábyrgð á öryggi
bandarísku hernaðarsendinefnd-
arinnar. — Þetta er í annað
skipti á skömmum tima, að
bandaríski fáninn er rifinn niður
við byggingu nefndarinnar.
ekki tekið til starfa
nokkrum dögum var vegurinn af
Austurlandsvegi út til Vopna-
fjarðar ruddur, en síðan var hon
um lokað aftur, þótt á honum
séu aðeins 4 til 5 smákaflar
blautir, sem þyrfti að gera við,
þannig að leiðin yrði fær. Þetta
hefur ekki fengizt gert, þótt
verksmiðja, sem framleiðir um
2 millj. króna útflutningsverð-
mæti á sólarhring, getur ekki
tekið til starfa, fyrr en flutninga
leiðin sé opnuð. Þangað til veg-
urinn kemst í lag, verður síld-
inni landað í þrærnar, unz þær
fyllast, en þær taka 20 þús. mál.
— S. J.
Vísað frá
Banda-
ríkjunum
) — gagnráðstöfun?
4 Washington, 2. júní —
7 AP — NTB.
/ BANDARÍSK yfirvöld hafa
1 vísað úr landi 1. ritara so-
i vézka sendiráðsins í Was-
í hington. Ritarinn, Stefun M.
/ Kirsanov, hefur verið lýstur
J „persona non grata“, þar eð
I hann hefur verið staðinn að
í starfsemi, sem á engan hátt
/ samræmist skyldum og störf-
l um sendiráðsritara.
t Ekki er gefin nánari skýr-
i ing á brottvísuninni í tilkynn-
/ ingu bandaríska utanríkis-
i ráðuneytisins, en haft er eftir
áreiðanlegum heimildum, að
sér sé um gagnráðstöfun að
ræða. Fyrir skömmu var þel-
dökkum sndiráðsmanni
Bandaríkjanna í Moskvu vís-
að úr landi. Maður sá heitir
Garnett, og varð hann að
halda heim frá Sovétríkj un-
um um miðjan sl. mánuð.
Sovézka stjórnin sakaði
Garnett um að hafa mútað
stúdentum frá Afríku, sem
stunda nám í Moskvu, til að
hætta námi sínu og halda
heim.
Síðar í dag sagði talsmaður
utanríkisráðuneytisins í Was-
hington, að Kirsanov yrði að
/ yfirgefa Bandarikin þegar í
\ stað. Ekki vildi talsmaðurinn
4 staðfesta, að hér væri um
/ ofangreinda gagnráðstöfun að
7 ræða.
MÚRINN OPINN
Berlín, 1. júní (AP)
UM 15 þúsund íbúar Vestur-
Berlínar heimsóttu í dag ætt-
ingja sína austan múrsins.
Hafa samningar náðst um
hvítasunnuheimsóknir, off
verður múrinn opinn íbúum
Vestur-Berlínar í hálfan máa-
uð.
Síld berst til
Vopnaf jarðar
Sendiherra Norðmanna
opnaði bergristu-sýninguna
í GÆRDAG opnaði hinn nýi
sendiherra Norðmanna hér, Thor
Myklebost, í Þjóðminjasafninu,
sýninguna á hinum norsku berg-
ristum, en frá henni var skýrt í
blaðinu í gær. Við athöfn þá er
fram fór af þessu tilefni, flutti
dr. Kristján Eldjárn, þjóðminja-
vörður, stútt ávarp, og fór 'nókkr-
um orðum um sýninguna. Hann
kvað hana m. a. kærkomna fyrir
okkur íslendinga, því hún minn-
ir á að saga vor nær lengra aftur
en til ársins 874. Myndirnar væru
sýnishorn af því bezta í Nor-
egi, sem væri ríkur af berg-
ristum. Hann lauk máli sínu
með því að biðja sendiherra
Norðmanna að opna sýninguna.
Flutti sendiherránn einnig stutt
ávarp. Meðal allmargra gesta
Norðmanna og íslendinga, voru
forsætisráðherra Bjarni Bene-
diktsson og menntamálaráðherra,
Gylfi Þ. Gíslason, Jóhannes
Kjarval listmálari svo og ýmsir
embættismenn. Sýningin stendur
j^fir þar til júní og er aðgangur
ókeypis. •>